Dagur


Dagur - 06.10.1992, Qupperneq 3

Dagur - 06.10.1992, Qupperneq 3
Þriðjudagur 6. október 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Gagnrýni á fyrirætlanir samgönguráðuneytis um viðgerðir á Heklu í Póllandi: Atvinnustefnan látin víkja fvrir tímabundnum hagsmunum Samgönguráðuneyti og utan- ríkisráðuneyti sæta harðri gagnrýni Málms, samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðn- aði, en samtökin teija að stjórnvöld séu sinnulaus gagn- vart slæmri stöðu málm- og skipasmíða hér á landi. í nýrri yfirlýsingu samtakanna er jafn- framt lýst eftir samræmdri atvinnustefnu stjórnvalda, sem taki mið af hagsmunum allra atvinnugreina, þar á meðal iðnaðar. Mótmæli við samgönguráðu- neytið eru sett fram vegna áforma þess um að semja við pólskt fyrirtæki um viðgerðir á strandferðaskipinu Heklu. Félag- ið bendir á að lægsta innlenda til- boðið sé aðgengilegt og við bætist hagræði sem því fylgi að láta vinna verkið innanlands. Þá megi einnig benda á að ýmsir skattar og gjöld renni til innlendra aðila ef verkið verði unnið hér á landi auk margvíslegra óbeinna áhrifa á aðra atvinnustarfsemi. „Þegar allt þetta er talið hníga gild rök að því að eðlilegt sé að taka lægsta innlenda tilboðinu. Með ákvörðun ráðuneytisins telur félagið að enn einu sinni hafi samræmd atvinnustefna vikið fyr- ir þröngum og tímabundnum hagsmunum. Þetta er þeim mun alvarlegra þegar í hlut á ríkisvald- ið sem með réttu ætti að horfa á málið með hliðsjón af ríkjandi atvinnuástandi." Samtökin segja einnig að utan- ríkisráðuneytið virðist hafa gleymt því síðustu vikur og mán- uði að hér á Iandi þrífist inálm- og skipaiðnaður, sem eigi í vök að verjast. Með samkomulags- drögum sem fyrir liggi milli EFTA og Póllands, og ísland hafi tekið þátt í að móta, verði ekki annað séð en veita eigi Pólverj- um undanþágu frá almennu banni við ríkisstyrkjum, a.m.k. næstu fimm árin. Þetta þýði að pólskur skipaiðnaður muni áfram eflast og með fullu samþykki íslenskra stjórnvalda geta boðið verð í smíði og hugsanlega einnig viðgerðir skipa sem staðfastur grunur leiki á að sé stórlega niðurgreitt. JÓH Sauðárkrókur og Varmahlíð: Þjófar og hrekkjalómar á ferðiimi Mikill mannfjöldi streymdi í Skagafjörðinn til að vera við Laufskálarétt í Hjaltadal. Fór allt vel fram að mestu leyti. Lögreglan þurfti þó að hafa afskipti af nokkrum ungmenn- um sem gerðu sér leik að því að stela númerum af bílum á Sauðárkróki. Voru þau einnig með „óskagfirskan“ landa í fórum sínum og er það mál nú til rannsóknar. Einnig var brotist inn í Vélaval í Varma- hlíð um helgina. Aðkomin ungmenni sem komu til að vera viðstödd stóðréttina voru staðin að því að stela núm- erum af bílum á Sauðárkróki sl. laugardag. Þegar lögreglan hafði afskipti af þeim kom í ljós að þau voru með aðkeyptan landa undir höndum og er það mál nú til rannsóknar hjá réttum aðilum. Brotist var inn í Vélaval í Varmahlíð um helgina og stolið þaðan 5000 krónum og ýmsu smálegu, s.s. símtækjum o.fl. Ekki er vitað nákvæmlega hve- Ekkert hefur enn afráðist í málefnum Meleyrar hf. á Hvammstanga. Búið er að greiða Landsbankanum upp afurðalánin. Rannsóknarlög- reglan vildi ekki tjá sig um rannsókn vegna meintra veð- svika fyrirtækisins. Guðmundur Tr. Sigurðsson framkvæmdastjóri Meleyrar hf. sagði í samtali við blaðið að á nær atburðurinn átti sér stað þar sem þetta uppgötvaðist ekki fyrr en á mánudagsmorgun. Málið er í rannsókn. sþ föstudag hefði Landsbankanum verið greiddur upp síðasti hluti afurðalánanna og fyrirtækið því að mestu skuldlaust við bankann. Nú er beðið eftir svari frá Spari- sjóði V-Hún. um afurðalán og er það væntanlegt fljótlega. Haft var samband við RLR vegna kæru Landsbankans um meint veðsvik Meleyrar hf. og vörðust menn allra fregna. sþ Meleyri hf.: Beðið eftir svari - búið að greiða skuldir við Landsbankann Fríður hópur sveina í trésmíðaiðn tók á móti prófskírteinum um sl. helgi. Á myndinni eru 13 þeirra 19 sem út- skrifuðust. Mynd: Robyn Akureyri: Nítján útskrifast sem sveinar í trésmíði Nítján piltar hafa þreytt sveinspróf húsasmiða það sem af er árinu á Akureyri. Fyrri hópurinn þreytti prófið í janúar og sá síðari í júní sl. Skírteini voru afhent með viðhöfn um sl. helgi á Fiðlaranum. Að sögn Guðmundar Ómars Guðmundssonar, formanns Trésmiðafélags Akureyrar, kom- ast færri í trésmíðanám en vilja. Miklar sveiflur eru í byggingar- iðnaðinum og því eðlilegt að byggingameistarar safni ekki lærlingum að sér. „I ljósi þessa er hópurinn stór, sem fékk skírteini um helgina. Piltarnir eru af Norðurlandi auk tveggja frá Egilsstöðum. Sveins- próf húsasmiða er tekið á tveim- ur stöðum þ.e. í Reykjavík og Akureyri, þrátt fyrir að í reglu- gerð sé gert ráð fyrir að prófið fari aðeins fram í Reykjavík. Ein prófnefnd er starfandi, en þar sem norðanmenn eiga varamenn í nefndinni þá hefur verið sæst á að prófa hér á Akureyri einnig. Áður fyrr voru prófskírteini send viðkomandi í pósti, en nú í tví- gang höfum við haft annan hátt á. Við höfum gert okkur daga- mun sem um helgina í Fiðlaran- um, enda ærin ástæða til. Stórum áfanga er náð eftir fjögurra ára nám,“ sagði Guðmundur Ómar. ój Skrifstofu- og ritaraskólinn Síðustu dagar innritunar. Upplýsingar í síma 96-27661 eftir kl. 18.00. Stjórnunarfélag islands Bílar til sölu! Cherokee Laredo m/öllu, árg. '88. Skoda Favorit, árg. '89. Skoda Favorit, árg. '90. Skoda 120 L, árg. '87. Daihatsu Charade, árg. '86. Chrysler Le Baron, árg. '88. Góðir greiðsluskilmálar. Skálafell Draupnisgötu 4 • Sími 22255. Bridgefélag Akureyrar Bautamót Bautamót, þriggja kvölda tvímenningur, hefst þriðjudagskvöldið 6. október. Verðlaun mótsins gefur veitingahúsið Bautinn. Þátttaka tilkynnist Páli Jónssyni í síma 21695 (vinnusími: 25200) eða Hermanni Tómassyni í síma 26196 (vinnusími: 11710) fyrir kl. 13.00 þfiðjudaginn 6. október. Spilamennska hefst kl. 19.30 og eru spilarar hvattir til að mæta stundvíslega. Stjórn Bridgefélags Akureyrar. TÍMANNA TÁKN! Alþjóðleg þjónusta ó Akureyri. Umboðsaðili DHL á Akureyri er Flugfélag Norðurlands. DHL-Hraóflutningar hf. og Flugfélag Norðurlands bjóða þér nú þjónustu sem fœr hlutina til að ganga hratt fyrir sig. Þú slappar af í þeirri vissu að sendingin þín er nánast komin á leiðarenda um leið og húnfór af stað.Hafðu samband og kynntu þér ótrúlega fjölbreytta þjónustu í hraðflutningum.Við náum í hlutina til þín og sleppum ekki hendinni af sendingunni fyrr en hún er komin í réttar hendur. Itrasta öryggi í alla staði. Efþú þarft að senda skjöl/pappíra eða stærri pakka með hraði frá Akureyri, þá hafðu samband við DHL-Hraðflutninga hf. WORLDWIDE EXPRESS4 SÍMI68 98 22/FAX68 98 65 Sími Akureyri: 96-12100

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.