Dagur - 06.10.1992, Page 4

Dagur - 06.10.1992, Page 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 6. október 1992 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25689 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Þegar samráð og samstöðu skortir Sú efnahagskreppa, sem nú gengur yfir íslensk- an þjóðarbúskap, verður alvarlegri með hverjum deginum sem líður. Daglega berast fregnir af fjöldauppsögnum í fyrirtækjum og gjaldþrotum eða verulegum rekstrarerfiðleikum fyrirtækja um land allt. Þegar er ljóst að veturinn sem í hönd fer mun reynast mörgum afar erfiður og fátt gefur tilefni til bjartsýni. Aðsteðjandi erfið- leikar eru svo alvarlegir að ekkert nema sameig- inlegt átak þjóðarinnar allrar getur leitt til þess að úr rætist. Ríkisstjórn, stjórnarandstaða, sveitarstjórnir, forsvarsmenn fyrirtækja og verkalýðsfélaga og síðast en ekki síst almenningur; allir þessir aðilar þurfa að leita sameiginlegra lausna á þeim vandamálum sem hvarvetna blasa við. Því miður bendir þó fátt til þess að slík þjóðarsamstaða geti skapast hér á landi. Meginskýringin á því eru einstrengings- leg og hrokakennd vinnubrögð ríkisstjórnarinn- ar það sem af er kjörtímabili hennar. Ríkisstjórnin hefur kosið að hafa ekkert sam- ráð við stjórnarandstöðu um mótun framtíðar- stefnu í mikilsverðustu málaflokkum. Nægir í því sambandi að nefna að fulltrúar stjórnar- andstöðunnar eiga ekki aðild að nefnd um endurskoðun fiskveiðistefnunnar. Sú nefnd er jafnan kölluð „tvíhöfða nefndin" því hún er klof- in í tvennt í afstöðu sinni til veigamestu atriða sjávarútvegsstefnunnar. Starf nefndarinnar er fyrir vikið að mestu unnið fyrir gýg og fullkomin óvissa blasir við. í ríkisfjármálum er hið sama uppi á teningunum. Þar deila stjórnarflokkarnir um leiðir að settu marki og hringla með virðis- aukaskattinn. Ríkisstjórnin hefur lýst yfir stríði við sveitarfélögin og stjórnarandstöðuna í þeim efnum, sem svo mörgum öðrum. Forsvarsmenn í atvinnulífinu og verkalýðsleiðtogar eru sömu- leiðis margir hverjir mjög ósáttir við stjórnar- stefnuna og þær leiðir sem ríkisstjórnin hefur kosið að fara til að minnka ríkissjóðshallann. Skoðanakannanir sýna ennfremur að ríkisstjórn- in nýtur síminnkandi trausts almennings og nú er svo komið að hún á mun fleiri andstæðinga en stuðningsmenn. Hér ber allt að sama brunni. Ef íslensku þjóð- inni á að takast að vinna sig út úr þeim vanda sem að henni steðjar, verða allir að leggjast á eitt. Ekkert bendir hins vegar til þess að slík þjóðarsamstaða sé svo mikið sem í sjónmáli. Jafnframt er ljóst að með óbreyttri stjórnar- stefnu verður þjóðarsamstaða um mikilvægustu mál aldrei annað en fjarlægur draumur. BB. Fokdreifar Veflagigt - síþreyta Árið 1992 er Norrænt gigtarár. Gigt er samheiti yfir sjúkdóma sem talið er að einn af hverjum fimm íslend- ingum muni fá um ævina. Þá eru 20% öryrkja gigtar- sjúklingar. Flestir hafa heyrt um einstaka tegundir gigtar, svo sem slitgigt, beinþynningu og liðagigt, en gigtarsjúkdómar greinast í yfír hundrað undirflokka. Þar má nefna iktsýki, rauða úlfa, fjölvöðvabólgu, æðabólgur, hryggikt (hrygggigt), barnaliðagigt, þvag- sýrugigt og vöðva- og vefjagigt. í tímariti Gigtarfélags íslands (2. tbl. 1992), sérútgáfu í tilefni Norræna gigtar- ársins, er fjallað um nokkra flokka gigtsjúkdóma og m.a. vefjagigt, sem virðist vera síþreytusjúkdómur ungra kvenna. Vefjagigt veitir ef til vill svör við áður ósvöruðum gátum og Dagur birtir hér grein Árna Jóns Geirssonar úr tímaritinu og reynslusögu danskrar konu sem haldin er vefjagigt. Nýr sjúkdómur? Á undanförnum árum hafa lækn- ar smám saman verið að gera sér betur grein fyrir sjúkdómi sem einkennist af stöðugri þreytu og verkjum. Þessi sjúkdómur hefur ýmist verið nefndur vefjagigt (fibromyalgia) eða síþreytufár (chronic fatigue syndrome). Sennilega er hér um sama sjúk- dóm að ræða þó svo að honum hafi verið gefin tvö nöfn. Ein- kenni sjúkdómsins, sem hér eftir verður nefndur vefjagigt, hafa verið þekkt í meira en heila öld og gengið undir ýmsum sjúk- dómsheitum en það var fyrst fyrir u.þ.b. 10 árum að sjúkdómnum var lýst nákvæmlega og rann- sóknir á honum hófust. Einkenni Vefjagigt er fyrst og fremst sjúk- dómur ungra kvenna en einungis fimmti hver sjúklingur er karl- maður. Flestir þeirra eru á aldr- inum 20 til 50 ára. Langvinnir verkir eru aðaleinkenni vefjagigt- ar og byrja þeir oftast, eða virð- ast verstir, í mjóbaki og í axlar- grind. Verkirnir eru þó dreifðir og finnast líka framan á brjóst- kassa, um olnboga, yfir þjó- hnöppum og við hné; langvinnur höfuðverkur er líka mjög algeng- ur. Almennur stirðleiki, sem oft er verstur á morgnana, er til staðar hjá flestum sjúklinga og geta þeir verið svo stirðir að þeir eiga erfitt með að komast fram úr rúminu. Svefntruflanir eru algengar þannig að sjúklingarnir eiga erfitt með að sofa og vakna oft upp eða sofa laust. Við rannsóknir á svefnháttum þeirra sem eru með vefjagigt kemur í ljós að truflun verður á svokölluðu 3. og 4. svefnstigi sem er eiginlegur hvíld- arsvefn. Afleiðingin er að fólkið vaknar þreytt og sumir kvarta yfir því að þeir séu þreyttari að morgni en þegar þeir fóru í rúmið kvöldið áður. Óeðlileg þreyta er eitt aðaleinkenni sjúkdómsins og lýsa sjúklingar henni sem algeru magnleysi. Þreytan er oft svo mikil að sjúklingum vaxa hlutir í augum og þeir hætta því oft þátt- töku í ýmsum athöfnum hins dag- lega lífs. Ýmis önnur einkenni fylgja þessum sjúkdómi en þau eru þó ekki eins algeng og þau sem nefnd eru hér að framan. Þannig kvarta margir um „órólegan ristil“ og kviðverki, náladofa og bjúg á höndum, kvíða, væga dep- urð og einbeitingarskort. Greining - rannsóknir Greining sjúkdómsins byggist á frásögn sjúklingsins og læknis- skoðun. Líkamsskoðun leiðir í ljós að liðir eru ekki bólgnir, eng- an stirðleika er að finna í hrygg og liðum og vöðvakraftur og skyn eru eðlileg. Dreifð eymsli í vöðvafestum á ákveðnum stöð- um í hnakka, herðum, um oln- boga, í þjóhnöppum og yfir læris- hnútum eru einkennandi fyrir sjúkdóminn. Útiloka þarf sjúk- dóma með svipuð einkenni eins og iktsýki, fjölvöðvabólgu og vanstarfsemi á skjaldkirtli. Yfir- leitt eru allar blóðrannsóknir eðlilegar, vöðvarit og vöðvasýni sem og röntgenmyndir og beina- skönn. Orsakir Orsakir vefjagigtar eru óþekktar. Þó er ljóst að stundum byrjar sjúkdómurinn í kjölfar vírussýk- ingar. Þannig er vel þekkt að svo- nefnd Akureyrarveiki sem gekk í faraldri á árunum 1948-1949 olli vefjagigt eða síþreytu. í sumum tilvikum virðist sjúkdómsástand- ið byrja með svefntruflunum en hægt er að framkalla vefjagigt Jytte Kristensen er 34 ára og býr í Langá á Jótlandi, móðir Jens sem er 10 ára og Jespers sem er 14 ára. í fjögur ár hefur hún verið sjúkraskrifuð en það var ekki fyrr en nýlega að sjúkdómsböli því sem hún hefur lifað við var gefið nafn: Vefjagigt. - Ég er þreytt, undirlögð af dauðans þreytu, mig svimar, hef sjóntruflanir, er með stöðugan höfuðverk og ætíð þrungin innri spennu. Það er eins og líkaminn titri að innan. Og ég get aldrei sofið heilan blund. Ég þarf að sjálfsögðu að fara á fætur til að koma börnunum í skólann en ég hef ekki úthald alla daga til að vera á fótum. Ég drattast um og reyni að gera það sem ég get - og allt er í hægagangi. - Reyndar finnst mér ég aldrei njóta nokkurs dags. Ég fer svolít- ið í gönguferðir, sveima um með afþurrkunarklút og spjalla við börnin mín. En það sem viðvíkur börnunum er erfitt því ég hef t.d. ekki úthald í að leika fótbolta eða tennis við þau og sá yngsti getur ekki alveg skilið að ég bara get ekki allt. Hann vildi m.a. að ég léki við hann badminton en ég gat ekki einu sinni lyft spaðan- um. Maður upplifir hvern ósigur- inn af öðrum. - Ég hef reynt öll möguleg störf: Unnið á dagheimili, í versl- un og verksmiðju, verið í þjón- ustu aldraðra og dagmamma. En ég hef orðið að hætta fljótt því að ég hef svo lítið úthald. Um tíma með því að trufla svefn kerfis- bundið. í öðrum tilvikum má rekja upphaf sjúkdómsins til langvarandi andlegs álags og streitu, erfiðrar meðgöngu eða fæðingar. Þá má stundum rekja orsök vefjagigtar til slysa, m.a. í umferðinni, sérstaklega háls- hnykkja. Medferð og horfur Hefðbundin meðferð við vefja- gigt byggir á því að lækna svefn- t.ruflanir. Til þess eru yfirleitt notuð geðdeyfðarlyf í litlum skömmtum en þau bæta svefn og rjúfa vítahring verkja og svefn- truflana. Alhliða líkamsþjálfun hjálpar einnig mörgum. Árangur þessarar meðferðar er þó ekki betri en svo að einungis um helm- ingur sjúklinganna fær bót. Bólgueyðandi gigtarlyf, verkjalyf og venjuleg svefnlyf virðast lítið gagn gera. Batahorfur eru góðar að því leyti að vefjaskemmdir eiga sér ekki stað en vefjagigt er ólík mörgum öðrum gigtsjúkdómum þar sem liðbrjósk og bein geta skemmst. Aftur á móti geta ein- kenni verið langvinn og erfitt að meðhöndla þau. Um þessar mundir er unnið að rannsóknum á vefjagigt á Land- spítalanum þar sem reynt er að komast nær orsökum sjúkdóms- ins og ný meðferðarform eru reynd. Vert er að geta þess að Gigtar- félag íslands hefur nýlega gefið út fræðslurit um vefjagigt sem hver sem vill getur fengið sent ókeypis. Árni Jón Geirsson. Höfundur er sérfræðingur í lyflækningum og gigtsjúkdómum á Gigtardeild Land- spítalans. var ég send á endurhæfingardeild í Árósum. En það tekur eina klukkustund að komast þangað og þá er ég svo útkeyrð og undir- lögð af verkjum að ég get ekki meir. í fyrsta sinn sem ég kom þangað datt ég um koll og það varð að aka mér heim, segir Jytte Kristensen, sem að auki er með of sveigjanlega liði, astma og berkjubólgu. Hún er sannfærð um að ör- orkubætur væru eina rétta lausn- in en hún er í sömu stöðu og allir aðrir sjúklingar með vefjagigt: Gigtsjúkdómurinn vefjagigt gef- ur ei rétt til örorkubóta. - Ég hef reynt allt: Bylgju- meðferð, nálastungur, heilun, nudd, sjúkraþjálfun og hómópata- lækningar. Ég hef líklega eytt tuttugu þúsund dönskum krónum á síðustu 10 árum í þess háttar en ég finn engan mun á mér. Ég á einstakan mann en yfirleitt er það erfitt fyrir annað fólk að skilja að maður sé veikur. Við heyrum fjölmargar særandi athugasemdir, einnig frá læknum. Þeir líta á mann sem ímyndunarveikan. Við erum felmtri slegin yfir því að læknar almennt skuli ekki kynna sér sjúkdóminn. Ég fer ekki mikið út en ég er þó í hópi með vefjagigtarsjúkl- ingum. Og við njótum þess að vera saman. Við erum orðin u.þ.b. 25 í hópnum og hittumst einu sinni í mánuði - nokkur okkar hafa oft símasamband. Jytte Kristensen frá Danmörku: Tilvera mín er í hægagangi

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.