Dagur - 06.10.1992, Síða 11

Dagur - 06.10.1992, Síða 11
Þriðjudagur 6. október 1992 - DAGUR - 11 HÉR & ÞAR Ellefu ára snillingur í háskóla David Noor var fimm mánaða þegar hann lærði að tala, þriggja ára þegar hann byrjaði að lesa og fimm ára þegar hann samdi sín fyrstu tölvuforrit. Þessi undra- drengur hefur að mestu sleppt hefðbundinni skólagöngu enda nægði honum að taka aðeins Fyrir framan tölvuskjáinn. Fimm ára samdi hann fyrstu forrit sín. prófin. Hann er nú á leiðinni í háskóla, aðeins 11 ára gamall. „Þegar hann var fjögurra ára keypti ég notaða tölvu og ætlaði stráknum að leika sér í henni. En hann fór strax að fást við forrit og áður en langt um leið var hann byrjaður að skrifa sín eigin,“ seg- ir Jackie, móðir undrabarnsins. Orðspor drengsins barst til tölvufyrirtækis sem sendi honum mikið af bókum og forritum til að glíma við. Jackie segir að þessar bækur hafi ekki verið skiljanlegar nema sérfræðingum á tölvusvið- inu en þær voru ekki hindrun fyr- ir David Noor. Skólastjórnendur ríkisháskól- ans í Oregon í Bandaríkjunum segja David yngsta nemandann sem þar hafi sest á skólabekk. Og einkakennari hans er ekki í vafa um hæfileikana. „Heimurinn á eflaust eftir að heyra meira um David Noor í framtíðinni." David fyrir utan nýja skóiann sinn og á innfelldu myndinni með móður sinni Jackie. „Hann er enn lítill strákur.“ Polarisumboðið og Hjólbarðaþjónustan Hvannavöllum 14 b, Akureyri, verður lokað vegna flutninga frá og með miðvikudeginum 7. október. Opnum í nýju, glæsilegu húsnæði að Undirhlíð 2, fimmtudaginn 15. október. Polarisumboðið Hjólbarðaþjónustan Undirhlíð 2, sími 22840, Akureyri. (Við hringtorgið, austan Hörgárbrautar gegnt Veganesti.) Tátur á toppnum: Ameríski draumurinn í hnotskum Bandaríkjamenn eru ekki með neinn kvennalista og því þykir það tiltökumál þar og fréttaefni að kona hafi náð útnefningu bandaríkjaforseta í virðulegasta yfirlæknisembætti í Bandaríkjun- um „Surgeon General.“ Ekki er það þó einber karlremba sem fær fréttamenn til að finnast þetta fréttnæmt því Dr. Antonia Novello tilheyrir auk þess þeim minnihlutahóp sem er af spænsk- um ættum. „Ég lét mig aldrei dreyma um að ná svona langt,“ trúði Antonia bandaríska fréttaritaranum fyrir. „Ég er virkilega þakklát fyrir að vera borgari í þessu dásamlega landi,“ sagði læknirinn við útnefninguna. Georg bandaríkjaforseti lýsti yfir: „Líf dr. Novello er undra- verð ofursaga - dýrðlegt dæmi um ameríska drauminn.“ Dr. Antonia Novello fæddist á Puerto Rico með mikinn fæðing- argalla sem gleymdist að lagfæra með skurðaðgerð. Pegar það var gert var hún orðin átján ára. „Ég komst af með því að hlæja að sjálfri mér.“ Þegar hún innritaðist í háskól- ann í Michigan tók hún strax eftir Dr. Antonía Novello. verðlaunum sem veitt voru „Nemanda ársins“. „Ég ákvað að vinna þau verðlaun,“ sagði Antonia - sem hún og gerði. Þegar hún klifraði upp met- orðastigann áttu margir erfitt með að lúta vilja yfirmanns af spænskum ættum. Einu sinni bað einhver óbreyttur læknir hana um að vera ekki fyrir; „ég sagði: ’fyrirgefðu, en hér ræð ég’ og þá svaraði sá: ’Ó, ég vissi ekki að Puerto Ricanir væru meðal yfirmanna.’“ Dr. Novello gefur okkur þessi ráð: „Lítið á björtu hliðarnar. Ef þið haldið að ekki sé hægt að ná takmarkinu - þá tekst það heldur ekki.“ Skóútsöl umarkaðu r M. H. Lyngdal Sunnuhlíð íslenskir kuldaskór íslenskir götuskór ECCO kuldaskór ECCO götuskór Karlmanna- götuskór spariskór kuldaskór vinnuskór Kven- götuskór spariskór kuldaskór kuldastígvél Mikil verðlækkun M. H. Lyngdal (Sunnuhlíð) Sími 26399

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.