Dagur - 17.11.1992, Side 1
75. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 17. nóvember 1992
219. tölublað
HERRADEILD
Verð frá kr. 9.900,- ,, Gránufec'ags® «Uol
Akureyri • Simi 23599
Samherji hf.:
Baldvin Þorsteinsson EA10
afhentur eigendum í morgun
- togarinn kemur til heimahafnar
á Akureyri nk. föstudag
Baldvin Þorsteinsson EA 10,
nýr togari Samherja hf. á
Akureyri, var afhentur eigend-
um í morgun í Flekkefjord í
Noregi. Togarinn heldur af
Hólanes hf.:
Beðið skýrslu
rekstrarráðgjafa
- atvinna fimmtíu
manns í biðstöðu
Málefni Hólaness hf. eru í bið-
stöðu og uppsagnir tæplega
fimmtíu starfsmanna því í fullu
gildi. Að sögn Magnúsar B.
Jónssonar sveitarstjóra Höfða-
hrepps er rekstarráðgjafi að
meta stöðuna og er niðurstöðu
að vænta um næstu mánaðar-
mót.
Eins og menn muna sagði
Hólanes hf. upp um 50 starfs-
mönnum frá og með 1. okt. sl.
eftir að Skagstrendingur hf.
áhvað að selja togarann Arnar.
Magnús B. Jónsson segir hrepp-
inn og fyrirtækin tvö vera að
athuga um hugsanlega samvinnu
og þessir aðilar hafa ráðið til sín
rekstrarráðgjafa sem nú sé að
meta stöðuna og er nú beðið
skýrslu frá honum. Kvaðst Magn-
ús vonast til að það yrði ekki síð-
ar en upp úr næstu mánaðarmót-
um. Málin væru í bið og ekkert
um þau að segja fyrr en sú skýrsla
liggur fyrir. sþ
stað til Islands í dag.
„Skrokkur togarans var smíð-
aður í Póllandi. Skipið er 65,70
metra langt og 12,60 metra
breitt. Simek skipasmíðastöðin í
Flekkefjord tók við skrokknum
og nú er togarinn fullbúinn.
Hann reiknast 1500 brúttólestir.
Þorsteinn Vilhelmsson verður
skipstjóri, Arngrímur Brynjólfs-
son 1. stýrimaður, Hákon Þröst-
ur Guðmundsson 2. stýrimaður
og Baldvin Loftsson yfirvélstjóri.
Skrokkur Baldvins Þorsteinsson-
ar EA er sérstyrktur fyrir veiðar í
ís. Ráðgert er að togarinn verði í
heimahöfn á Akureyri nk. föstu-
dag,“ sagði Þorsteinn Már Bald-
vinsson, framkvæmdastjóri Sam-
herja hf. ój
Það var líf og tjör á skautasvellinu á Akureyri sl. föstudagskvöld en þá stóð skautafélagið fyrir diskóteki á svellinu.
Mynd: Benni
Enn reynt að ná breiðri samstöðu í þjóðfélaginu um efnahagsaðgerðir:
„Við viimum ekki undir hótunum“
- segir Kári Arnór Kárason, formaður Alþýðusambands Norðurlands
Samkvæmt ákvörðun Yfirfast-
eignamatsnefndar ríkisins mun
fasteignamat á Akureyri og
Sauðárkróki hækka um 12% 1.
desember nk. Sama hækkun
verður hjá Kjalarneshreppi,
Egilsstöðum og Selfossi. Þessi
hækkun byggir á niðurstöðum
af sölukönnunum á kaupsamn-
ingum fasteigna á undanförn-
um 13 árum. Meðaltalshækk-
un fasteignamats yfir landið
verður 3,5% á íbúðarhúsum og
íbúðarhúsalóðum, en af at-
vinnu húsnæði aðeins um 1%.
Þessi hækkun hefur ekki áhrif
á fasteignagjöld í áðurnefndum
byggðarlögum því fasteigna-
gjöldin eru lögð á eftir álagning-
arstofni sem er óháður staðsetn-
ingu fasteignar. Þessi hækkun
kann hugsanlega að hafa áhrif á
eignarskattinn, þó aðeins hjá
þeim sem eiga skuldlitlar eða
skuldlausar eignir. Sölukannnan-
ir í öðrum kaupstöðum á
Fasteignamat á Akureyri og Sauðárkróki hækkar um 12%:
Verulegur samdráttur í sölu
fasteigna á þessu ári
Kári Arnór Kárason, formað-
ur Alþýðusambands Norður-
lands, segir að þrátt fyrir að
miðstjórn Alþýðusambandsins
vilji reyna til þrautar að ná
samkomulagi við alla hlutað-
eigandi aðila til þess að freista
þess að ná breiðri samstöðu
um efnahagsaðgerðir, hafi
verkalýðshreyfingin ekki hvik-
að frá þeirri kröfu að til
umtalsverða vaxtalækkana
verði að koma.
„Ég túlka niðurstöðu mið-
stjórnarfundarins sl. sunnudag á
þann veg að við getum ekki átt
aðild að samningum um eitt eða
neitt nema að í þeim felist veru-
legar vaxtalækkanir og fallið
verði frá þeim gríðarlegu skatta-
millifærslum frá atvinnulífinu yfir
á launafólk sem verið er að tala
um. Ég er ekki tilbúinn að sam-
þykkja tilflutning af þessu tagi.
Með því er ekki verið að útiloka
að eitthvað verði hreyft við1
skattakerfinu, en menn eru þá að
tala um allt aðrar tölur en nefnd-
ar hafa verið. Við höfum lagt
áherslu á að ef menn vilja færa til
skatta, þá yrði að færa þá yfir á
þá hópa sem hefðu efni á að
borga hærri skatta," sagði Kári
Arnór.
Hann sagði ekki geta liðið þau
vinnubrögð forsætisráðherra að
stilla verkalýðshreyfingunni upp
við vegg; annað hvort gangi hún
að ákveðnum kostum eða ríkis-
stjórnin leggi sjálf fram tillögur
að aðgerðum sem yrðu enn harð-
ari en ella. „Við vinnum ekki
undir hótunum. Menn verða
skoða tillögurnar eins og þær eru.
Hafi þeir ekki trú á þeim, þá
gagnrýna þeir þær og reyna að ná
betri niðurstöðu. Menn hafa stillt
málum þannig upp að þetta sé
spurning um samstöðu innan
verkalýðshreyfingarinnar og án
hennar sé málið búið. Málið er
það að um þetta er engin sam-
staða innan ríkisstjórnarflokk-
anna og heldur ekki í röðum
atvinnurekenda. Og á Alþingi er
líka mikil ósamstaða um málið.
Ég tel að þrátt fyrir allt sé verka-
lýðshreyfingin samstæðasti hóp-
urinn af þeim sem að málinu
koma. Mér finnst ekki mjög
geðslegt að taka þátt í vinnu þar
sem hver höndin er á móti ann-
arri og menn vilja fá verkalýðs-
hreyfinguna inn til að fá synda-
kvittun. Ég vil ekki láta nota
verkalýðshreyfinguna á þann
hátt,“ sagði Kári Arnór. óþh
Norðurlandi þ.e. Blönduósi,
Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og
Húsavík gáfu ekki tilefni til
hækkanna umfram landsmeðal-
tal. Eftir á að fyrna þær fasteignir
sem hækka um 12% þannig að
S raunveruleg hækkun einbýlishúss
úr steinsteypu gæti verið á bilinu
10,5% til 11%.
Þessi hækkun nú segir ekkert
um það hver þróun þessara mála
verður í framtíðinni, því hér er
aðeins verið að færa fasteignamat
til raunvirðis.
Matsverð íbúða og íbúðar-
húsalóða í 4 sveitarfélögum
hækkar um 7%, en þau eru:
Höfn í Hornafirði, Eyrarbakki,
Stokkseyri og Hveragerði.
„Það hefur verið töluvert
miklu rólegra á fasteigna-
markaðnum hér allt þetta ár en í
fyrra, en í Reykjavík er talað um
40% minni sölu og mér þætti ekki
óeðlilegt að það sama væri uppi á
teningnum hér þó ekki sé haldin
nein skrá yfir málið. Mest sala er
í eignum á bilinu 7 til 8 milljónir
króna og þá er bæði um að ræða
fjölbýlishúsaíbúðir og minni rað-
húsaíbúðir og einnig er nokkur
eftirspurn eftir sérhæðum í þess-
um verðflokki. Mjög lítil sala er í
dýrari eignum. Ég held líka að
þetta svartsýnistal í þjóðfélaginu
hafi þau áhrif að fóík heldur að
sér höndum varðandi fasteigna-
viðskipti. Það vantar bjartsýnina
og þar hafa fjölmiðlar spilað stórt
i hlutverk," segir Tryggvi Pálsson
hjá fasteignasölunni Fasteigna-
torgið. GG
AfLi smábáta:
Þorskaflinn
meiri en í fyrra
Afli smábáta er heldur meiri
það sem af er ári sé litið til
sama tíma í fyrra. í byrjun
nóvember voru 43.266 tonn
komin á land á landinu öllu á
móti 41.732 tonnum.
Uppistaða smábátaveiðinnar
er þorskur. Þorskaflinn á tíu
fyrstu mánuðum ársins er meiri
en á sama tíma fyrir ári, þ.e.
31.652 tonn á móti 29.561
tonni. Minna hefur veiðst af
öðrum tegundum þá sérstaklega
ufsa og steinbít. í ár eru komin á
land 3196 tonn af ufsa á móti
4007 tonnum 1. nóvember 1991.
Tonnafjöldinn í steinbít er 1569
tonn á móti 2265 tonnum. Sé litið
til Norðurlands þá er smábáta-
veiðin til muna lélegri í ár en oft
áður. 6628 tonn voru komin á
land í byrjun nóvember á móti
7655 tonnum á sama tíma í fyrra.
Smábátar af Vesturlandi hafa afl-
að best það sem af er ári. 10.380
tonn hafa komið til löndunar þar
af 7258 tonn þorskur. ój
Lögreglan:
Róleg helgi á Akureyri
Rólegt var hjá lögreglunni á
Akureyri um helgina. Engin
alvarleg óhöpp urðu í umferð-
inni og ölvun var með minna
móti miðað við venjulega
helgi.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri var rólegt um helgina. Tveir
voru teknir fyrir ölvun við akstur
og þrír árekstrar voru tilkynntir
til lögreglu. Engin slys urðu á
mönnum og aðeins minniháttar
skemmdir á ökutækjum.
Nokkuð mannmargt var á
skemmtistöðum bæjarins um
helgina en að sögn lögreglu var
ölvun minni en gera mátti ráð
fyrir - einkum á laugardagskvöld.
ÞI