Dagur - 17.11.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 17. nóvember 1992
Fréttir
Fjölmenni í Grenjaðarstaðakirkju við innsetningu nýs prests:
Sr. Þórir Jökull Þorsteinsson
mun þjóna fjórum sóknum
Sr. Þórir Jökull Þorsteinsson,
sem vígður var til Grenjaðar-
staðarprestakalls í Þingeyjar-
prófastdæmi í Dómkirkjunni
25. október sl. var settur inn í
embætti í Grenjaðarstaðar-
kirkju sl. sunnudag af prófast-
inum sr. Erni Friðrikssyni á
Skútustöðum í Mývatnssveit.
Sr. Þórir Jökull tekur við af sr.
Kristjáni Vali Ingólfssyni, sem
ráðinn hefur verið sem skóla-
meistari Skálholtsskóla, sem
starfræktur verður með nýju
sniði, þ.e. mun skiptast í þrjú
svið, guðfræðisvið, fræðslusvið
og kirkjutónlistarsvið. Þórir Jök-
ull útskrifaðist frá Samvinnu-
skólanum 1985 og starfaði síðan
hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarð-
ar, en vorið 1986 hóf hann starf
sem fréttamaður við Svæðisút-
varp Norðurlands og var þar til
haustsins 1987 er hann hóf nám
við guðfræðideild Háskóla
íslands, en jafnhliða náminu
starfaði hann hjá Ríkisútvarpinu.
Sr. Þórir Jökull mun þjóna fjór-
um sóknum; Grenjaðarstaðar-
sókn, Einarsstaðasókn, Nessókn
og Þverársókn í Laxárdal. Þver-
ársókn er ein fámennasta sókn
landsins, íbúar þar liðlega einn
tugur manna. Fyrsta embættis-
verkið var að skíra Hafdísi
Davíðsdóttur, dóttir Hönnu
Dóru Hermannsdóttur frá Stað-
arhóli í Aðaldal og Davíðs Haf-
steinssonar en þau búa á Akur-
eyri.
Nú eru þjónandi prestar í öll-
um prestaköllum Þingeyjarpró-
fastdæmis og lengst af hefur svo
verið nema helst Staðarfells-
prestakalli, sem nú hefur verið
sameinað Hálsprestakalli, en síð-
ustu misserin var prestakallinu
þjónað af sr. Birni Jónssyni, fyrr-
um sóknarpresti á Húsavík. Við
sameininguna fékk prestakallið
nafnið Ljósavatnsprestakall og
telur sr. Orn Friðriksson að það
brjóti í bága við lög sem segi að
prestakall skuli kenna við þann
stað sem presturinn býr á.
„Kirkjur og kirkjugarðar eru í
alveg ótrúlega góðu lagi í þessu
prófastdæmi og þar sem einhvers
er ábótavant stendur til að lag-
færa það. Fyrir nokkrum áratug-
um gagnrýndi danskur maður
hart íslensku kirkjuna og taldi
andlegt líf hennar vera lélegt þar
sem ytri búnaður kirknanna væri
lélegur. Ef það er mælikvarðinn
sýnir það að söfnuðirnir hafa
áhuga fyrir sínum kirkjum og
andlegt líf fólks í Þingeyjarsýsl-
Sr. Þórir Jökull Þorsteinsson ásamt prófastinum, sr. Emi Friðrikssyni, á
tröppum Grenjaðarstaðakirkju Mynd: gg
um er í góðu meðallagi,“ segir sr.
Örn Friðriksson.
„Það hefur verið sagt um suma
íslendinga að þeir líti að kirkjuna
eins og brunaliðið, gott að hafa
það en helst aldrei að nota það.
Ég er einnig nokkuð hræddur við
þá stefnu sem gengur út á það að
stefna fólki nánast allar stundir í
kirkjuna, en með því fengist lítill
hópur sem væri mjög virkur en
mundi fæla marga aðra frá.“ GG
Hvammstangi:
Dg(U]gy
Árleg ókeypis
þjónustuskoðun
allra Isuzu-bíla 23.-27. nóvember.
60 ATRIÐI SKOÐUÐ
Þjónustuskpðun Isuzu á sér ekki hliðstæðu
hérlendis. Árlega koma hingað til lands fulltrúar
verksmiðjanna og skoða alla Isuzu-bíla sem
komið er með. Um 60 atriði eru skoðuð og fá
eigendur lista yfir ástand bílsins að lokinni
skoðun.
ÞAÐ ER ÓKEYPIS ALLT
Skoðunin er ókeypis. Á meðan eigendur þiggja
veitingar er skipt um olíu og olíusíu, einnig
þeim að kostnaðarlausu.
SKOÐUNIN FER FRAM
hjá Þórshamri hf., Tryggvabraut 3-5,
Akureyri, sími 96-22700.
PANTIÐ TIMA STRAX!
þÓRSHAMRNF.
Við Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700.
j@utyœD(Ki
7U Uðs oiðftý
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000
Vörur seldar af lager þrotabús
- ólíklegt að bústjóri samþykki allsherjarveðsetningu
Fyrir nokkru síðan var seld
matvara af vörulager þrotabús
Vöruhúss Hvammstanga, sem
nýlega varö gjaldþrota. Að
sögn Ásgeirs Björnssonar hér-
aðsdómslögmanns sem er
bústjóri þrotabúsins var sett
svokallað allsherjarveð á eign-
ina fyrir um ári síðan, en hann
telur ólíklegt að hann sam-
þykki það.
Allsherjarveðið var útbúið fyr-
ir um ári síðan og tekur það til
allra tækja, húsbúnaðar og vöru-
lagers vegna sj álfskuldarábyrgð-
ar ákveðinna einstaklinga. As-
geir sagðist álíta að veðsetningin
stangist á við veðlögin og því
ógild og muni hann væntanlega
synja henni. Hann kvaðst ekki
hafa fengið formlega tilkynningu
um veðið, en hann hefði séð Ijós-
rit af því. Salan á matvörunni fór
fram 6. nóv. sl., en að sögn
Ásgeirs var um að ræða matvöru
sem ella hefði skemmst. Ásgeir
segir meginregluna þá að sala
megi ekki brjóta í bága við veð-
setningu, en í þessu tilfelli verði
veðið ekki viðurkennt, en fari
svo muni kröfur taka til andvirði
sölunnar. sþ
Mabrögð báta fyrstu tíu mánuði ársins:
Milljón tonn komin á land
Fyrstu tíu mánuði ársins bárust
á Iand 1.019.260 tonn frá
bátaflota landsmanna. Á sama
tíma í fyrra var aflinn 467.728
tonn.
Af aflaskýrslu Fiskifélags
íslands má sjá að þessi mikli
munur milli ára er fólginn í
loðnuveiðunum í haust og byrjun
vetrar. í byrjun nóvember voru
704.859 tonn af loðnu komin á
Listvinafélag Akureyrarkirkju:
Jakob Tryggvason
útnefndur heiðursfélagi
land, en á sama tíma í fyrra voru
tonnin 200.124 tonn. Veruleg
aukning hefur einnig orðið í síld-
veiðum þ.e. 88.947 tonn á móti
26.362 tonnum í fyrra.
Sé litið til einstakra fiskteg-
unda þá kemur í ljós að þorsk-,
ýsu- og ufsaafli er mun minni en
árið áður, þ.e. þorskur 101.9091
tonn/113.580, ýsa 18.091 tonn/
23.195 og ufsi 18.808 tonn/
25.960. Grálúðu- og skarkola-
veiðin dróst einnig saman, en
steinbítur hefur veiðst í svipuð-
um mæli.
Mestur afli hafði borist til
Austfjarðahafna í byrjun nóvem-
ber, þ.e. 338.414 tonn. Norður-
landshafnirnar höfðu tekið á
móti 225.603 tonnum. ój
Jakob Tryggvason, fyrrverandi
organisti Akureyrarkirkju, var
útnefndur heiðursfélagi List-
vinafélags Akureyrarkirkju á
aðalfundi þess sl. sunnudag.
í heiðursskjaii er Jakobi þakk-
að áratuga starf hans í þágu
kirkjutónlistar við Akureyrar-
Jakob Tryggvason.
kirkju, en þar var hann organisti
og kórstjórnandi í áratugi. Jakob
stóð að stofnun Kirkjukórs
Akureyrarkirkju, sem nú heitir
Kór Akureyrarkirkju, árið 1945
og hann var á sínum tíma mikill
baráttumaður fyrir því að orgel
kirkjunnar var keypt, en það hef-
ur fram að þessu verið langstærsta
orgel landsins.
Á aðalfundi Listvinafélagsins,
sem var fyrsti aðalfundur þess,
var rætt um starf fyrsta starfsárið
og það sem í vændum er. Fram
kom að dagana 2. til 9. maí verði
efnt til kirkjulistaviku í Akureyr-
arkirkju með fjölbreyttri dag-
skrá.
Þrír af stjórnarmönnum List-
vinafélagsins voru endurkjörnir;
Björn Steinar Sólbergsson, Jón
Árnason og Valgerður Valgarðs-
dóttir. Hrefna Harðardóttir og
Signý Pálsdóttir gáfu ekki kost á
sér til endurkjörs, en í þeirra stað
voru kjörnar Björg Þórhallsdóttir
og Þórey Aðalsteinsdóttir. í
varastjórn eru Gunnborg Krist-
insson og Ragnheiður Þórsdóttir.
óþh
Heilsugæslustöðin
á Akureyri:
Kláðamaur hrjáði
átta sjúklinga
Skýrsla um smitsjúkdóma frá
Heilsugæslustöðinni á Akur-
eyri er á svipuðum nótum í
byrjun nóvember sem í allt
haust. Mest ber á kvefi og háls-
bólgu.
Inflúensu hefur ekki orðið vart
enn sem komið er í haust. Á skrá
heilsugæslustöðvarinnar fyrir
október eru átta vegna lungna-
bólgu. Vegna kvefs og hálsbólgu
leituðu 612 sjúklingar til lækna
heilsugæslustöðvarinnar. Fjögur
hlaupabólutilfelli greindust í
mánuðinum og einn reyndist með
rauða hunda. Magaveiki kom við
nokkuð marga. Sjötíu og sex eru
á skrá og einn sjúklingur var með
matareitrun. Átta þurftu að leita
sér lækninga vegna kláðamaurs.
ój