Dagur - 17.11.1992, Blaðsíða 16
mmm
Akureyri, þriðjudagur 17. nóvember 1992
"1 | | r « 1+1 J anl/l/im k S mím'ítnm
u Nýj | nuju&vu iii?h*i\i\uii u v mmuiuiii
U mynastækkannn ]frá KODAK cPe<k6myndir’ Skipagötu 16 - Sími 23520
Sauðárkrókur:
Rússneskur togari
landar í fyrsta sinn
- Skagfirðingur hf. kaupir
rúm 200 tonn af þorski
Menn brugðu á leik í 10 ára afmæli félags eldri borgara á Akureyri sl. sunnudag. Hvað ætli „daman“ heiti?
Mynd: Robyn
Mikið af hnúfubak á loðnumiðunum:
Tæpum 30 þúsund tonnum af loðnu
verið landað á Raufarhöfii
Rússneski togarinn Poljarnoe
kom til Sauðárkróks á mánu-
dag og mun hafa vikuviðdvöl.
Fiskiðjan Skagfirðingur mun
Grímsey:
„Ómögulegt að reka
matvöruverslun
viö þessar aðstæður"
Sæfari siglir nú aðeins einu
sinni í viku frá Akureyri til
Grímseyjar. Kristín Óladóttir,
útibússtjóri verslunar Kaupfé-
lags Eyfirðinga í Grímsey, seg-
ir að nú sé svo komið að ill-
mögulegt sé að stunda verslun-
arrekstur í eyjunni, allir
aðdrættir séu of kostnaðar-
samir.
„Sæfari lestar á Akureyri á
mánudagsmorgnum og er hér í
eyjunni ekki fyrr en á þriðjudegi.
Því er svo að Grímseyingar fá
aldrei ný brauð. Mjólkin sem við
fáum er mánudagsstimpluð og er
ekki fersk út alla vikuna. Því er
svo að ég verð að taka mjólk með
flugi um helgar sem er kostnaðar-
samt. Flutningsgjald fyrir tvær
grindur, þ.e. 40 lítra, er vel á
þriðja þúsund. í raun er ómögu-
legt að reka matvöruverslun við
þessar aðstæður," segir Kristín
Óladóttir í Grímsey. ój
Aflaverðmætí
Akureyrariimar
EA 35 milljómr
Akureyrin EA kom til löndun-
ar á sunnudaginn. Fyrir helgi
kom Víðir EA til löndunar í
Hafnarfirði eftir stuttan túr.
Víðir EA þurfti að leita hafnar
á þrettánda degi. Togspil bilaði
fyrir vestan á Torginu, en þá var
togarinn kominn með 100 tonn af
frosnu, sem gerir í aflaverðmæt-
um 17 milljónir. Togarinn er far-
inn til veiða með nýtt flottroll,
stóra Gloríu.
Akureyrin var með 307 tonn
upp úr sjó á 23 dögum. Frystur er
aflinn 190 tonn, að aflaverðmæti
35 milljónir. Uppistaða aflans er
karfi og grálúða. Togarinn heldur
til veiða á morgun. ój
© VEÐRIÐ
Búist er við allhvassri norðan-
átt norðanlands í dag en held-
ur hægari sunnan til. Gert er
ráð fyrir slyddu eða snjókomu
fyrir norðan en úrkomulausu í
öðrum landshlutum fram eftir
degi. Veður mun fara fremur
kólnandi og gert er ráð fyrir
björtu en svölu veðri á landinu
á laugardag og hiti verði undir
frostmarki.
að líkindum kaupa rúm 200
tonn af fiski. Þetta er annar
farmur sem rússneskur togari
landar með milligöngu Fisk-
miðlunar Norðurlands að sögn
Asgeirs Arngrímssonar.
Rússneski togarinn er 2344
tonn að stærð og flytur frystan
fisk, slægðan og hausaðan. Farm-
urinn er 570 tonn, 332 tonn af
þorski, 196 tonn af ýsu og rúm 42
tonn af rækju. Að sögn Ásgeirs
kaupir K. Jónsson á Akureyri
rækjuna, en annar fiskur fer til
Sauðárkróks, Bolungarvíkur og
Hnífsdals og lítið eitt til Ólafs-
fjarðar. Öllum fiski úr togaran-
um verður landað á Sauðárkróki
og mun það taka vikutíma. Fisk-
miðlun Norðurlands hefur milli-
göngu um söluna og er framhald
á fiskkaupum og þjónustu við
rússneska togara í athugun. Að
sögn Einars Svanssonar fram-
kvæmdastjóra Skagfirðings hf. er
ætlunin að kaupa um 230 tonn af
þorski núna ef fiskurinn reynist
nógu góður. Verðið er á bilinu
106-112 kr. á kílóið. sþ
Greiðslustöðvun útgerðarfyrir-
tækisins Ránar hf. á Dalvík
rennur út nk. föstudag en
þriggja mánaða greiðslustöðv-
un var framlengd um mánuð í
okóbermánuði þar sem við-
ræðum um sölu á báti fyrir-
tækisins, Sænesi EA-75, var
talið miða vel.
Sænesið, sem er 110 tonna bát-
ur smíðaður í Svíþjóð 1987, hef-
ur verið á rækjuveiðum að
undanförnu og landað aflanum til
vinnslu hjá Söltunarfélagi Dal-
Kjördæmisþing framsóknar-
manna á Norðurlandi eystra
vill að ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar fari frá völdum,
„svo í staðinn geti komið
ríkisstjórn, sem þorir að tak-
ast á við verkefnin í samstarfi
og santvinnu við fólkið sem í
landinu býr,“ eins og það er
orðað í stjórnmálaályktun
þingsins. Á þinginu kom fram
mjög hörð gagnrýni á núver-
andi ríkisstjórn og úrræða-
leysi hennar við að snúa vörn
í sókn.
Kjördæmisþingið telur það
forgangsverkefni í íslenskum
stjórnmálum á næstu vikum og
mánuðum að efla og treysta
atvinnulífið í landinu. Endur-
skipuleggja þurfi fjárhag
Loðnan hefur nú færst norðar
og er nú ANA af Langanesi en
allgóð loðnuveiði var um helg-
ina, aðallega aðfaranótt
sunnudags, og voru Hestar
víkur hf.
Ekkert hefur hins vegar miðað
í samningaviðræðum um sölu á
bátnum og þeim hefur nú verið
frestað þar sem skuldastaða fyrir-
tækisins er jafnvel bágari en talið
var er þreifingar um sölu bátsins
hófust. Hverfandi líkur eru því á
að samkomulag takist fyrir föstu-
dag um sölu á bátnum og því lík-
legast að sýslumanni berist beiðni
fljótlega þar á eftir um að fyrir-
tækið verði tekið til gjaldþrota-
skipta. GG
atvinnulífsins, m.a. með því að
lækka vexti, lengja lán, breyta
lánsfé í hlutafé og auka þátt-
töku lífeyrissjóðanna í atvinnu-
lífinu. „Stöðugt gengi er mikil-
vægt til þess að halda jafnvægi í
efnahagslífinu en ef ekki tekst
að að lækka kostnað atvinnu-
lífsins og treysta grundvöll þess,
verður gengisfelling ekki
umflúin,“ segir í ályktuninni.
í stjórnmálaályktuninni kem-
ur fram harkaleg gagnrýni á
störf og stefnu ríkisstjórnar
Davíðs Oddssonar, sem fyrr
segir. „Með fljótfærnislegum
skyndiákvörðunum hefur trún-
aður ríkisvalds og sveitarfélaga
verið rofinn. Nýjar álögur á
atvinnulífið og stórkostlegar
vaxtahækkanir að frumkvæði
stjórnvalda hafa leitt til þess að
landanirnar á Raufarhöfn en
þangað komu 6 bátar. Albert
GK var með 722 tonn, Þórður
Jónasson EA með 709 tonn,
ísleifur VE með 720 tonn,
Guðmundur Ólafur ÓF með
600 tonn, Faxi RE með 628
tonn og Sjávarborg GK með
802 tonn. Heildarlöndun á
Raufarhöfn á vertíðinni er
29771 tonn.
Fjórir bátar lönduðu á Þórs-
höfn um helgina, Víkurberg GK
með 640 tonn, Bergur VE með
550 tonn, Björg Jónsdóttir ÞH
með 550 tonn og Svanur RE með
700 tonn. í haust hafa borist um
15000 tonn af loðnu til Þórshafn-
ar og um 6000 tonn af síld sem
bæði hefur farið til vinnslu og
bræðslu.
Súlan EA landaði í Krossanesi
á sunnudag 767 tonnum af loðnu
og í gær landaði Sigurður VE þar
800 tonnum.
Þórður Jónasson EA var dreg-
inn til Seyðisfjarðar af Jóni
stöðugleika í efnahagsmálum er
ógnað. Afleiðingarnar eru
erfiðleikar í atvinnulífinu, vax-
andi gjaldþrot fyrirtækja og
mikið atvinnuleysi. Með
úrræða- og aðgerðaleysi hefur
ríkisstjórnin gert gjaldþrota-
leiðina að megininntaki í efna-
hagsstefnu sinni,“ segir í álykt-
uninni. Bent er á að viðvarandi
atvinnuleysi sé nú staðreynd f
fyrsta sinn um margra áratuga
skeið. „Það er samfélagsböl,
sem þjóðin getur ekki sætt sig
við. “
Kjördæmisþingið krefst þess
að stöðugri óvissu um stefnu-
mótun f stjórn fiskveiða verði
aflétt án frekari tafa og mótuð
verði stefna til lengri tíma, sem
stuðli að eflingu atvinnulífs og
Kjartanssyni SU þar sem kafarar
náðu vírdræsu sem festist í skrúfu
bátsins strax í fyrsta kasti aðfara-
nótt mánudags. 7 til 8 vindstig
voru þá á miðunum en í gær hafði
veðrið gengið niður.
Mjög mikið er af hnúfubak á
loðnumiðunum og hefur einstaka
skepna verið að þvælast í loðnu-
næturnar og m.a. rifnaði nótin
hjá Bjarna Ólafssyni AK eftir
slíka „heimsókn“.
Arnþór EA landaði á sunnu-
dag 180 tonnum af síld til vinnslu
á Seyðisfirði og var búinn að
kasta í fyrrinótt, en lítil veiði var
hjá síldarflotanum. Veiðisvæðið
hefur nú færst utarlega í Beru-
fjarðarálinn. Arnþór EA hefur
fengið rúm 1300 tonn af síld en
heildarsíldarkvóti skipsins er
2440 tonn. Á sunnudag var hólfi í
Breiðamerkurdýpi lokað fyrir
síldveiðum vegna þess hve smá
hún er þar, en nokkrir bátar
höfðu verið þar að leita síldar.
GG
jafnvægi í byggð. Þá mótmælir
þingið auknum álögum og stór-
felldum niðurskurði á fjárveit-
ingum til landbúnaðarmála,
sem boðaður er í fjárlagafrum-
varpi ríkisstjórnarinnar.
Kjördæmisþingið telur að
samningurinn um hið evrópska
efnahagssvæði geti reynst
íslendingum þýðingarmikill ef
nauösynlegir fyrirvarar verði
tryggðir. Ymis atriði samnings-
ins verði að liggja skýrar fyrir,
svo sem ásættanlegur samning-
ur um tvíhliða fiskveiðiheimild-
ir, eignarréttur á landi og orku-
lindum, ákvæði um innflutning
búvara og staða íslands í sam-
skiptunum við Evrópu-
bandalagið. Síðast en ekki síst
verði samningurinn að standast
ákvæði stjórnarskrárinnar. BB.
Samningar ekki tekist um
sölu á Sænesi EA-75:
Greiðslustöðvun a5 renna út
Framsóknarmenn á Norðurlandi eystra:
Vflja ríkisstjómina frá völdnm
- í staðinn komi „ríkisstjórn sem þorir að takast á við verkefnin“
i