Dagur - 05.01.1993, Qupperneq 1
76. árgangur Akureyri, þriðjudagur 5. janúar 1993 1. tölubiað
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Þrír Grímsey-
ingar fæddust
á síðasta árí
Á síðasta ári fæddust þrír
Grímseyingar, tvær stúlkur og
einn drengur, en samkvæmt
upplýsingum Hagstofunnar
fjölgaði íbúum í Grímsey um 5
milli áranna 1991 og 1992.
Grímseyingarnir þrír fæddust í
apríl, maí og desember á sl. ári.
Þorlákur Sigurðsson, oddviti í
Grímsey, sagðist vera ánægður
með þessa fólksfjölgun í eynni.
„Héðan er enginn fólksflótti,“
sagði hann. óþh
Siglufjörður:
Neyðarblys
olli tjóni
Það óhapp varð á Siglufirði
skömmu eftir miðnætti á
nýársnótt að neyðarblys braut
rúðu í húsi við Suðurgötu og
hlaust nokkur eldur af.
Að sögn lögreglunnar á Siglu-
firði náði húsráðandi að slökkva
eldinn með handslökkvitæki, en
ljóst er að töluvert tjón varð á
innbúi. Lögreglan segir að sem
betur fer hafi enginn verið í stofu
hússins þar sem neyðarblysið
lenti. óþh
Akureyri:
Þqár Hkams-
árásir kærðar
til lögreglu
Þrjár líkamsárásir voru kærðar
til lögreglunnar á Akureyri eft-
ir áramótin.
Að sögn lögreglu voru tvær
líkamsárásanna í Sjallanum á
Akureyri á nýársnótt og ein í
Kjallaranum (í kjallara Sjallans).
í öllum þessum tilfellum
reyndust ekki vera alvarleg
meiðsl á þeim sem fyrir líkams-
árásunum urðu. óþh
HrútaQörður:
BMysálaugardag
Um miðjan dag á laugardag
rákust tveir fólksbílar saman á
Norðurlandsvegi milli Þór-
oddsstaða og Reykja í Hrúta-
firði. Tveir voru fluttir með
þyrlu til Reykjavíkur og þrír á
sjúkrahúsið á Hvammstanga. í
kjölfarið á þessum atburði ók
jeppi aftan á vörubfl, en engin
slys urðu þar á fólki.
Slysið átti sér stað um kl. 15.30
laugardaginn 2. jan. Voru öku-
maður og farþegi í annarri bif-
reiðinni fluttir til Reykjavíkur
með þyrlu. Alls voru fimm
manns í bílunum og voru hinir
þrír fluttir á sjúkrahúsið á
Hvammstanga. Meðan verið var
að sinna slysinu ók jeppi aftan á
kyrrstæðan vörubíl í bílalest sem
myndaðist vegna slyssins. Kona
með tvö börn var í jeppanum, en
enginn meiddist. Bíllinn
skemmdist nokkuð. sþ
Gamlárskvöld við
Eyjafjörð:
Fæld hross um
allar sveitir
Aðeins ein brenna var á Akureyri á gamlárskvöld, á Bárufellsklöppum. Fjöldi fólks lagði leið sína að brennunni og
þar á meðal voru þessir tveir ungu menn sem hér eru að bjástra við eldfæri. Mynd: Robyn
Bændur og hesteigendur um
Eyjafjörð leita nú hrossa, sem
ruku fæld úr heimahögum
vegna sprenginga og Ijósadýrð-
ar á gamlárskvöld. Þannig
fundu Höfðhverflngar nokkur
útigangshrossa sinna við Svert-
ingsstaði í Eyjafjarðarsveit og
björgunarleiðangur þurfti að
gera út á Garðsárdal til að
bjarga 33 hrossum úr sjálf-
heldu og koma þeim til
byggða.
Að sögn Einars Benediktsson-
ar í Hjarðarhaga lágu hross hans
við opið. Á miðnætti fældust
hrossin í sprengjugnýnum, ruku
á hvað sem fyrir varð, og stefndu
til fjalls. Orri Óttarsson frá
Garðsá fann hrossin á nýársdag
innan við Stífluhól þar sem þau
voru í sjálfheldu upp undir
fjallsegg. Vegalengdin sem hross-
in ruku er um 14 kílómetrar.
Fæðingar á Norðurlandi árið 1992:
Drengir í miklum meiriWuta
Á árinu 1992 fæddust 44 færri
börn á fímm sjúkrastofnunum
á Norðurlandi, á Akureyri,
Sigluilrði, Húsavík, Sauðár-
króki og Blönduósi, en árið
1991. A síðasta ári fæddust
samtals 567 börn en 611 árið
1991. Athyglisvert er að á
Iiðnu ári fæddust mun fleiri
drengir en stúlkur. Drengirnir
voru 316 en stúlkurnar 251.
Á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri fæddust 424 börn á síð-
asta ári í 423 fæðingum. Verulega
hallaði á kvenþjóðina, stúlkurnar
voru 193 talsins en drengirnir
231. Árið 1991 fæddust 444 börn
á FSA, þar af voru níu tvíbura-
fæðingar. í gær höfðu þrjú börn
fæðst á FSA frá áramótum.
Fæðingum fækkaði talsvert á
Siglufirði á síðasta ári miðað við
fyrra ár. í fyrra fæddust 11 börn á
sjúkrahúsinu þar, 6 stúlkur og 5
drengir, en 16 árið áður. Ekkert
barn hefur fæðst á Siglufirði það
sem af er árinu 1993.
Á Sjúkrahúsi Húsavíkur fædd-
ust 47 börn árið 1992, 26 drengir
og 21 stúlka. Árið 1991 fæddust
hins vegar 50 börn á Húsavík, 24
drengir og 26 stúlkur. Fyrsta barn
ársins 1993 á Húsavík, tæplega 18
marka stúlka, fæddist kl. 6.25 í
Stórskenund
bifreið
eftir veltu
Bifreið af gerðinni Toyota er
mikið skemmd eftir veltu
skammt frá Möðruvöllum í
Hörgárdal síðdegis í gær.
Bifreiðinni var ekið í átt til
Akureyrar og skipti engum tog-
um að ökumaður, sem var einn í
bifreiðinni, missti stjórn á henni í
hálku. Ökumaður slapp án telj-
andi meiðsla. óþh
gærmorgun. Foreldrar hennar
eru Sóley M. Hafsteinsdóttir og
Óðinn Magnússon, en þau eru
nýflutt til Húsavíkur. Þessi fyrsti
Húsvíkingur ársins er annað barn
þeirra hjóna.
Á sjúkrahúsinu á Blönduósi
fæddust 22 börn, 14 drengir og 8
stúlkur. Árið 1991 fæddust 42
börn. Ekkert barn hefur fæðst á
nýju ári.
Á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki
fæddust 63 börn í 62 fæðingum,
40 drengir og 23 stúlkur. Árið
1991 fæddust þar 61 barn. í gær
hafði ekkert barn fæðst á Sauðár-
króki það sem af er árinu.
óþh/IM/sþ
Búgreinafélögin:
Krefjast annars virðis-
aukaskattsþreps
Annað virðisaukaskattsþrep á
matvæli er krafa félaga eggja-
framleiðenda, kjúklinga-
bænda, kúabænda, hrossa-
bænda og svínabænda en
félagasamtök þessara búgreina
efndu til blaðamannafundar í
gær þar sem fjallað var um þá
ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
skerða endurgreiðsiur virðis-
aukaskatts af framleiðsluvör-
um þeirra um tæp 65%. Ljóst
er að viðkomandi búgreinar
geta ekki tekið á sig þá skerð-
ingu og því munu þessar
aðgerðir leiða til hækkunar
viðkomandi vörutegunda. Gert
er ráð fyrir að kjúklingar
hækki um allt að 15%, egg um
11% og nautakjöt um 14% á
næstunni vegna framangreindra
ráðstafana.
Á fundinum var saga þessarar
skattlagningar rakin - frá því
hann var tekinn upp í formi sölu-
skatts á árinu 1988 og í daglegu
tali nefndur matarskattur. Áhrif
lækkaðra endurgreiðslna vegna
virðisaukaskatts á framangreind-
ar búgreinar eru nú þau, að skatt-
ur er í upphafi var 12% virðis-
aukaksattsþrep nemur nú um
21,2% virðisaukaskatti. í máli
Hauks Halldórssonar, formanns
Stéttarsambands bænda, á fund-
inum kom fram að Stéttarsam-
bandið hafi varað við þessum
skatti og talið að endurgreiðslur
myndu rýrna og yrðu teknar af
eins og nú hafi orðið raunin.
Bjarni Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Félags eggjabænda, sagði
að heildarskerðingin væri nú á
bilinu 200 til 250 milljónir króna,
sem búvöruframleiðendum og
neytendum væri ætlað að taka á
sig. Með þessum ráðstöfunum
væri verið að mismuna búgrein-
um auk þess að hækka verð á
neysluvörum til neytenda. ÞI
„Strax í birtingu á laugardaginn
héldum við Þröstur Sigurðsson
og Freyr Áskelsson inn á Garðs-
árdalinn tíl að freista þess að
bjarga hrossunum. Er að var
komið var ljóst að okkur skorti
búnað og hjálparmenn. Félagar
úr Hjálparsveitinni Dalbjörgu
voru nú kallaðir til. Við þurftum
að höggva okkur slóð upp fjalls-
hlíðina að hrossunum, sem var
erfitt verk. Eitt hrossanna,
tveggja vetra trippi, hafði hrapað
og var illa skorið á höfði. Hross-
unum náðum við ekki niður í dal-
botn fyrr en undir kvöld. Vel
gekk að reka hrossin út Garðsár-
dalinn og ekki þurfti að lóga slas-
aða trippinu. Það komst undir
læknishendur og verður að vera í
sjúkrastíu næsta mánuðinn,"
sagði Einar Benediktsson að
Hjarðarhaga í Eyjafjarðarsveit.
______________________ó[
Akureyri:
Borðhníftir í
miðbænum
Á nýársnótt kom til átaka í
göngugötunni á Akureyri milli
tveggja manna frá Grænhöfða-
eyjum, sem báðir voru töluvert
ölvaðir.
Annar mannanna ógnaði hin-
um með borðhnífi. Lögreglan
handtók manninn og afvopnaði
og færði í fangageymslu. Hinn
maðurinn hlaut smávægilega
áverka. óþh
Ólafsijörður:
Hálfdán tekur við í vikunni
Hálfdán Kristjánsson, nýráð-
inn bæjarstjóri í Ólafsfírði,
tekur við störfum í vikunni.
Hann mun sitja fyrsta bæjar-
stjórnarfund sinn næstkom-
andi þriðjudag þegar er reglu-
legur fundur bæjarstjórnar.
Á fundinum á þriðjudaginn í
næstu viku verður væntanlega
tekin fyrir beiðni Sigurðar
Björnssonar, bæjarfulltrúa, um
lausn frá störfum. Sem kunnugt
er óskaði hann eftir lausn í síð-
asta mánuði í framhaldi af sam-
kckomulagi sem orðið hafði milli
flokkanna í bæjarstjórn um bók-
un til að ljúka svokölluðu Fisk-
marsmáli. Þessi bókun mun þá að
líkindum einnig koma fram á
fundinum á þriðjudag og hún þá
ljúka þessu máli sem hefur verið
svo fyrirferðarmikið í umræðum í
bæjarstjórn Ólafsfjarðar síðustu
tvö árin. JÓH