Dagur - 05.01.1993, Qupperneq 5
Þriðjudagur 5. janúar 1993 - DAGUR - 5
Mannlíf
Stór og myndarleg fjölskylda. Sitjandi eru afmælisbarnið og eiginmaðurinn,
Þorvaldur Nikulásson. Fyrir aftan þau standa börnin. Frá vinstri: Kristján,
Anna Sigríður, Smári, Árni, Margrét, Magnús Már og Helga Gunnur.
Séra Þórhallur Höskuldsson fór á
kostum í afmælisávarpi.
Sextugsaflnæli Kolbrúnar í Lóni
Mikið var um dýrðir í sextugs-
afmæli Kolbrúnar Kristjáns-
dóttur, Byggðavegi 94 á Akur-
eyri, 3. október sl. Veislan var
haldin í Lóni, húsnæði Karla-
kórs Akureyrar-Geysis og voru
meðfylgjandi myndir teknar við
það tækifæri.
Jakob Jónasson, Unnur Pétursdóttir og Smári Þorvaldsson.
Svanur Eiríksson, Guðrún Óskarsdóttir, Ársæll Magnússon, Þorvaldur
Jónsson, Rósa Sigurðardóttir, Erla Hólmsteinsdóttir og Daniela Guð-
mundsdóttir.
Helga Jóhannsdóttir, Elsa Björnsdóttir, Ester Elíasdóttir, Helga Sigfúsdótt-
ir, Valgerður Frímann, Þorbjörg Elísdóttir og Snorri Rögnvaldsson.
Lesendahornið
Þakkir til Kæliverks M.
Smári Björnsson hringdi
og vildi koma á framfæri kæru
þakklæti til starfsmanna Kæli-
verks hf. á Akureyri.
verksmanna í ísskápsraunum
mínum einstaklega góð og vil
þakka fyrir mig. Það er sjálfsagt
að geta þess sem vel er gert.
STÍFT FITUBRENNSLUNÁMSKEIÐ
HEFST11. JANÚAR
„ísskápurinn minn bilaði um
daginn og ég hringdi strax í þá
hjá Kæliverki og bað þá að hjálpa
mér. í stuttu máli sagt voru þeir
mjög kurteisir, liprir og skemmti-
legir og vildu allt fyrir mig gera.
Ég sagði þeim að ísskápuirnn
hefði hætt að ganga og ég vissi
ekki hvað væri að honum. Þeir
buðust strax til að koma og sækja
skápinn og yfirfara hann á verk-
stæðinu til að finna bilunina.
Tveir menn frá Kæliverki
komu að skammri stundu liðinni
og sóttu skápinn. Þeir færðu mér
hann aftur daginn eftir í full-
komnu lagi. Þá sögðu þeir mér að
þeir hefðu einungis yfirfarið
skápinn en ekki þurft að gera við
hann, þar sem hann hefði reynst í
fullkomnu lagi hjá þeim. Eflaust
hefur skápurinn hrist til í flutn-
ingunum og bilunin, sem væntan-
lega hefur verið smávægilegt
sambandsleysi, lagast af sjálfu
sér. Það hefði hins vegar ekki
þurft að fylgja sögunni og eflaust
var hægt að krefja mig um væna
upphæð fyrir „viðgerðina". Það
létu þessir öðlingar hins vegar
ógert.
Mér finnst þjónusta Kæli-
Áramótakveðja
til rflds-
stjómarmnar
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
er afar umdeild og það vanda
henni ekki allir kveðjurnar
þessa dagana. Brynjúlfur Sig-
urðsson á Kópaskeri sendir
ríkisstjórninni eftirfarandi
áramótakveðju, sem syngja
má við lagið „Nú árið er
liðið...“
Ó, heiðraða ríkisstjórn haf þig á braut
með hugsjónabyrðina laka.
Þú býður þeim fátæku baráttu og þraut,
en bandalags mallar þú viðsjálan graut.
Já, kveddu og komd’ ei til baka.
En hvers er að minnast ef hverfurðu frá?
Jú, hér er af mörgu að taka.
Þín Viðeyjarfæðing var görótt og grá
og gegndarlaus svik þínum loforðum á.
Þín minning sem víti mun vaka.
Brynjúlfur Sigurðsson.
Pennaviiiir óskast
Degi hafa borist tvö bréf frá ungu
fólki í Þýskalandi sem leita
pennavina á Akureyri. Fyrra
bréfið ritar piltur tuttugu og
þriggja ára gamall. Hann leitar
að stúlku sem pennavini. í bréf-
inu segist hann ætla að dvelja á
Akureyri sumarlangt árið 1994.
Hann tilgreinir áhugamálin;
svifflug, sund, mat og ást. Þær
stúlkur sem vilja hafa samband
geta skrifað á íslensku eða ensku
og þá er það nafn og heimilisfang
piltsins.
Volker Banschbach,
Muhlweg 23,
6951 Schefflenz,
Germany.
Síðara bréfið er frá Till Blum,
sem er átján ára og lýkur stúdents-
prófi í vor. Blum hefur áhuga á
hjólreiðum, skíðaferðum og
góðri tónlist. Þar að auki beinist
áhuginn að efnafræði og jarð-
fræði og þar kemur ísland inn í
myndina. Bréfaskriftir geta farið
fram á þýsku eða ensku og heim-
ilisfangið er:
Am Singerberg 5,
D-5630 Remscheid,
Germany.
Eina varanlega leiöin að lækkaðri líkams-
þyngd er aukin hreyfing og rétt mataræði.
Láttu okkur hjálpa þér að losna við auka-
kílóin og halda þeim frá fyrir full og allt.
* Fitumæling og vigtun
* Ráðgjöf varðandi mataræði
* Matarlistar -
Spennandi mataruppskriftir
* Fyrirlestrar um megrun
og mataræði
Sigríður Eysteinsdóttir
næringarfræðingur
+ Þjálfun og hreyfing 5
sinnum í viku
Verð 9.800
Skráning hefst
5. janúar
Hringdu strax
Takmarkaður fjöldi
Sími 26211