Dagur - 05.01.1993, Síða 7
Þriðjudagur 5. janúar 1993 - DAGUR - 7
Á annan í jólum var haldið
mót í innanhússknattspyrnu í
nýja íþróttahúsinu á Blöndu-
ósi. Hvöt hélt mótið en verð-
laun voru gefin af Stíganda.
Mótið hefur til þessa verið
haldið að Húnavöllum, en með
tilkomu hins glæsilega íþrótta-
húss á Blönduósi, gerbreyttist öll
aðstaða í héraðinu. Allt gekk vel
fyrir sig og sigurvegari eftir
spennadi keppni var A-lið
Hvatar. Bráðabana þurfti til að
knýja fram úrslit í leik þeirra við
Tindastól, sem hafnaði í 2. sæti. í
keppni um 3. sæti vann B-lið
Hvatar, lið Neista frá Hofsósi.
sumarið leggðist vel í mannskap-
inn. Talsverður hluti liðsins æfir í
Reykjavík undir stjórn Marteins
Geirssonar og afgangurinn æfir í
Ólafsfirði.
Markakóngur KA skiptir um félag:
Guimar Már Másson
farinn til Ólafsflarðar
Ólafsfirðingar hafa fengið góð-
an liðsstyrk fyrir baráttuna I 2.
deild næsta sumar. Gunnar
Már Másson, aðal markaskor-
ari KA sl. sumar, hefur nú
skipt í herbúðir Leifturs.
Gunnar á án efa að fylla skarð
Þorláks Árnasonar sem nýver-
ið gekk til liðs við Grindvík-
inga.
Gunnar Már er mikill fengur
fyrir Leiftur. Hann var einn besti
leikmaður KA í sumar og marka-
hæsti maður liðsins með 7 mörk í
17 leikjum. Hann á auk þess að
baki 19 1. deildar leiki með Val
og 2 landsleiki með landsliði
U-16. Af þessu má vera ljóst að
Ólafsfirðingar ætla ekki að gefa
neitt eftir í harðri baráttu 2.
deildar næsta sumar. Kristinn
Hreinsson á Ólafsfirði sagði að
Gunnar Már mun leika gegn sínum
gömlu félögum á næsta ári.
Bikarkeppnin í handknattleik:
KA og Selfoss leika í kvöld
- bæði liðin orðin hungruð í titil
I kvöld ræðst hvort það verð-
ur KA eða Selfoss sem leikur
til úrslita í bikarkeppni HSÍ.
Liðin eigast við í KA-húsinu
og hefst leikurinn kl. 20.30.
Lið KA hefur æft vel yfir jól-
in og að sögn Árna Stefánsson-
ar, liðsstjóra, eru menn vel
stemmdir og staðráðnir í að
gera sitt besta. Sama má án efa
segja um Selfyssinga. Liðin eru
með þeim betri í 1. deildinni.
Því má búast við toppleik í
kvöld og áhorfendur ættu að
fjölmenna.
Stórskytturnar Alfreð Gíslason og Sigurður Sveinsson verða í eldlínunni
í kvöld og þá kemur í Ijós hvor hefur betur.
íþróttaannáll 1992:
Fjölbreytt ár hjá hestafólki
Hestamenn urðu að vonum
sárir þegar þeirra var að engu
getið í íþróttaannál Dags sem
birtur var fyrir skömmu.
Ástæða þess að norðlenkir
knapar urðu útundan var ein-
faldlega sú að annállinn var
byggður á efni af íþróttasíðum
Dags frá síðasta ári, en hesta-
íþróttir var þar ekki að finna.
Sjálfsagt og eðlilegt hefði verið
Bautamótið í knattspyrnu:
Þórsarar reyndust sterkastir
Á sunnudaginn lauk Bauta-
mótinu í knattspyrnu. Mótið
hefur unnið sér fastan sess
meðal knattspyrnumanna og
þykir jafnan talsverður við-
burður. Það var nú haldið í 7.
sinn. Til leiks mættu 15 lið frá
sjö félögum, en Völsungar
komust ekki sökum ófærðar.
Eftir spennandi keppni voru
það Þórsarar sem stóðu uppi
sem sigurvegarar, en þeir
lögðu Mývetninga í úrslitaleik.
Mótið þótti takast vel í alla
staði og talsverður fjöldi áhorf-
enda fylgdist með úrslitaleikjun-
um. í 8 liða úrslitum fóru leikar
þannig:
Leiftur-HSÞ-b a 0:8
KA a-Dalvík a 3:1
2. fl KA-KA b 8:2
Þór a-Dalvík b 5:1
í undanúrsltum vann A-lið HSÞ-
b, lið 2. flokks KA 2:1 og í hinum
undanúrslitaleiknum áttust við
A-lið KA og Þórs. Jafnt var eftir
venjulegan leiktíma og framleng-
ingu og því þurfti vítaspyrnu-
keppni til að lcnýja fram úrslit.
Þar tryggði Lárus Sigurðsson
Þórsurum sigur með því að verja
2. spyrnu KA-manna.
Það voru því tvö lið frá KA
sem kepptu um 3. sæti á mótinu.
A-liðið vann lið 2. flokks 3:1. í
úrslitaleiknum áttust við Þór a og
A-lið HSÞ-b. Þórsarar skoruðu
1. markið en Mývetningar náðu
að jafna eftir að Lárusi Sigurðs-
syni markverði Þórs hafði verið
vikið útaf. Skömmu fyrir leikhlé
bættu Þórsarar við öðru marki. í
síðari hálfleik brustu allar varnir
HSÞ og Þór komst í 6:1, áður en
Mývetningar minnkuðu muninn í
6:2, sem urðu úrslit leiksins.
Sveinn Brynjólfsson formaður
knattspyrnudeildar KA, sem hélt
mótið, afhenti Þórsurum síðan
sigurlaunin í mótslok.
að hestamenn hefðu samt sem
áður fylgt með í annálnum, en úr
því verður ekki bætt sem komið
er. Hestaíþróttir eru vissulega
íþróttir enda hestamenn innan
ÍSÍ. Sem smá sárabót fá hesta-
menn hér sinn annál og sem áður
er stiklað á stóru og margt sem
verður útundan af þeim sökum.
Léttir stóð fyrir góðhesta-
keppni á Lögmannshlíðarvelli
fyrstu helgina í júní. Maður
mótsins var valinn Baldvin A.
Guðlaugsson, sem vann þrefald-
an sigur á mótinu. Hann vann
einnig sigur á Hvítasunnukapp-
reiðum Fáks í Reykjavík og fjöl-
margir sigrar aðrir komu í hans
hlut á síðasta sumri.
Erlingur Erlingsson og Jar-
þrúður Þórarinsdóttir gerðu það
gott á íþróttadeildarmóti Hesta-
mannafélagsins Léttis á Akur-
eyri. Erlingur varð stigahæstur og
Jarþrúður vann sigur í ólympískri
tvíkeppni.
Árvisst hestamót Skagfirðinga
fór fram á Vindheimamelum um
Verslunarmannahelgina. Svo
sem oft áður var Sigurbjörn
Bárðarson maður íþróttakeppn-
innar.
Knapar af Norðurlandi gerðu
góða ferð á íslandsmótið í hesta-
íþróttum í Reykjavík um miðjan
ágúst. Erlingur Á. Óskarsson frá
Létti varð íslandsmeistari í tölti í
flokki unglinga og fleiri Norð-
lendingar unnu til verðlauna.
Sjöunda bikarmót Norður-
lands fór fram helgina 22.-23.
ágúst á nýjum keppnisvelli í Lög-
mannshlíð. Til leiks mættu 6
sveitir frá 5 héraðssamböndum.
ÍBA varð sigurvegari mótsins og
hlaut Dagsbikarinn að launum.
íþróttamaður
Norðurlands 1992
Nafn íþróttamanns:
1
2.
íþróttagrein:
Nafn:
Sími:
Sigurvegarar Bautamótsins. Aftari röð frá vinstri: Ragnar Ragnarsson og Rúnar Antonsson frá knattspyrnudeild
Þórs, Örn Viðar Arnarson, Lárus Orri Sigurðsson, Þórir Áskelsson, Hlynur Birgisson, Lárus Sigurðsson og Sigurð-
ur Lárusson, þjálfari. Fremri röð: Júlíus Tryggvason, Páll Gíslason, Gísli T. Gunnarsson, Birgir Þ. Karlsson og
Sveinbjörn Hákonarson.
Heimilisfang:
Sendist tii: íþróttamaður Norðurlands 1992
B.t. Dagur, strandgötu 31,600 Akureyri
Skilafrestur er til 8. janúar 1993.