Dagur - 05.01.1993, Síða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 5. janúar 1993
Íþróttir
Halldór Arinbjarnarson
Erlendur A. Óskarsson, Létti, varð
íslandsmeistari í tölti unglinga.
Jens Gíslason úr Nökkva varð
íslandsmeistari í siglingum.
Úthlutað úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrar:
94 íslandsmeistarar á árinu
- 7 Akureyringar fóru á Ólympíuleika
Miðvikudaginn 30. desember
sl. var úthlutað úr Afreks- og
styrktarsjóði Akureyrar. Ann-
ars vegar voru veittir fjárstyrk-
ir og viðurkenningar til þeirra
sem þótt höfðu skara framúr á
sviði íþróttamála á nýliðnu ári.
Hins vegar var öllum þeim sem
náðu Islandsmeistaratitli á
árinu veittur sérstakur pening-
ur til eignar.
Þetta var í 3. skipti sem þessi
athöfn fór fram. Fjárhagsstyrk úr
Afreks- og styrktarsjóði fengu:
Þór og KA 200 þúsund til ungl-
ingastarfs og einnig íþróttafélög-
in Eik og Akur, 100 þúsund
hvort. Þá var þeim Jóni Óðni
Óðinssyni og Þresti Guðjónssyni
veittar sérstakar viðurkenningar
fyrir árangursríkt starf að
íþróttamálum í bænum. Jón
Óðinn fyrir júdó og Þröstur fyrir
störf að skíðamálum oe meðal
fatlaðra íþróttamanna. Þá fengu
3 menn sérstaka viðurkenningu
fyrir að bjarga manni frá drukkn-
un í Sundlaug Akureyrar.
Alls urðu 94 einstaklingar, sem
keppa fyrir félög á Akureyri,
íslandsmeistarar á nýliðnu ári. Þá
fóru 2 Akureyringar á Vetrar-
ólympíuleikana, 1 á Sumar-
ólympíuleika og 4 á ólympíumót-
in í Barcelona og Madrid.
Ólympíufarar frá Akureyri: Þröstur Guðjónsson, sem tók við viðurkenningu Rögnvaldar
Ingþórssonar, Freyr Gauti Sigmundsson, Elvar Thorarensen, Haukur Eiriksson, Rut Sverris-
dóttir, Aðalsteinn Friðjónsson og Stefán Thorarensen.
Þröstur Guðjónsson og Jón Óðinn Óðinsson fengu báð-
ir sérstakar viðurkenningar fyrir öflugt starf að íþrótta-
málum.
Þorsteinn Þorsteinsson, Sigurður Ólafsson og Jóhann
Jónsson voru heiðraðir fyrir einstakt björgunarafrek úr
Sundlaug Akureyrar.
Rut Sverrisdóttir og Ómar Þ. Árnason, Óðni, urðu
íslandsmeistarar í sundi.
Skíðaráð státaði af mörgum íslandsmeistaratitlum. Lengst til vinstri eru syst-
kinin Brynja Þorsteinsdóttir, Hildur Ösp Þorsteinsdóttir og Vilhelm Þor-
steinsson. Þá koma skíðagöngumennirnir Stefán Kristinsson, Gísli Harðar-
son, Þóroddur Ingvarsson, Haukur Eiríksson, Kristján Ólafsson og Þröstur
Guðjónsson, sem tók við viðurkenningu Rögnvaldar Ingþórssonar.
UFA: Karen Gunnarsdóttir, Stella
Tinna S. Stefánsdóttir, Sigríður Ása
Einarsdóttir og Klara Fanney Stefánsdóttir.
Hér má sjá þá sem mættir voru frá júdódeild KA til að taka við sínum viðurkcnningum. Þeir sem náðu íslandsmeist-
aratitli á árinu voru: Arnar Hilmarsson, Arnar Sæþórsson, Elmar Dan Sigþórsson, Jóhannes Gunnarsson, Jón K.
Sigurðsson, Atli Þórarinsson, Birna Baldursdóttir, Ómar Arnarson, Sigurður Jóhannsson, Sævar Sigursteinsson,
Hans Rúnar Snorrason, Baldur Stefánsson, Rúnar Snæland, Jónas Jónasson, Vernharð Þorleifsson og Freyr Gauti
Sigmundsson.
Anna Ragnarsdóttir og Aðalsteinn Friðjónsson úr
Eik kræktu bæði í íslandsmeistaratitla á síðasta ári.
Skautafélag Akureyrar varð íslandsmeistari í íshokkí og Jóhannes H. Gísla-
son og Jóhanna S. Kristjánsdóttir í listhlaupi. í efri röð frá vinstri eru:
Jóhanna S. Kristjánsdóttir, Ágúst Ásgrímsson, Ágúst Ásgrimsson (yngri),
Benedikt Sigurgeirsson, Garðar Jónasson, Héðinn Bjömsson, Sveinn
Björnsson, Sigurgeir Haraldsson, Birgir Ágústsson og Jóhannes Gíslason.
Neðri röð: Heiðar I. Ágústsson, Magnús Finnsson, Haukur Hallgrímsson,
Sigurbjörn Þorgeirsson, Sigurgeir Söbeck og Sigurður Sveinn Sigurðsson.
Kristján Marinó Falsson, íslands-
meistari í kraftlyftingum í +125 kg
flokki.
Magnús Magnússon lagði bæði
heims- og Norðurlandameistara
þegar hann varð íslandsmeistari í
einmenningi í bridgc.
Pétur Broddason, Kristjana ívarsdóttir og Hanna B.
Sigurbjörnsdóttir urðu Isl.meistarar í vaxtarrækt. Á
myndinni em Kristjana og Sverrir Gestsson, sem
tóku við viðurkenningu fyrir hönd Péturs.
íslandsmeistarar Akurs vora bræðurnir Stefán og
Elvar Thorarensen og einnig Sigurrós Karlsdóttir
sem ekki gat verið viðstödd afhendinguna.
Fyrsti íslandsmeistaratitill KA í handknattleik kom í hlut 4. flokks félagsins.
Liðið skipuðu Bjarni Bjarnason, Friðrik Flosason, Sverrir Björnsson, Bald-
ur Sigurðsson, ísleifur Einarsson, Guðmundur Brynjarsson, Ásgeir
Gestsson, Guðmundur Sveinsson, Vilhelm Jónsson, Flóki Ólafsson, Óskar
Bragason, Halldór Sigfússon, Tómas Jóhannesson, Ragnar Þorgrímsson,
Guðmundur Pálsson, Arnar Árnason, Ragnar Ólafsson, Arnar Vilhjálms-
son og Jóhann Eyþórsson. Þjálfari var Ámi Stefánsson.
Snorri Arnaldsson og Tryggvi Hcimisson koma úr
Lyftingafélagi Akureyrar.