Dagur - 06.02.1993, Side 19
Sakamálaþraut
Laugardagur 6. febrúar 1993 - DAGUR - 19
Verið á undan Carter lögregluforingja að leysa
þrautina. Ykkur til aðstoðar eru teikningar með
mikilvægum vísbendingum...
Morðið á sjöundu hæð
- eftir Francis Clarke
Graham undirforingi var úrillur í dag. Konan
hans hafði brennt ristaða brauðið, hann hafði
misst af lestinni sem hann var vanur að taka í
vinnuna og nú hvarf hann næstum því í reykjar-
mekki frá stórum, hvítum sportbíl sem brunaði
framhjá honum og skildi eftir blett á nýþvegnu
buxunum hans.
Hann reyndi samt að þvinga fram bros og
fylgdi Carter lögregluforingja inn um glerdyr
lúxus-íbúðarblokkarinnar og að lyftunni sem
flutti þá upp á sjöundu hæð.
Evert Evans húsvörður kom til dyra í íbúð
númer 704 og vísaði þeim inn í stofuna. Þar var
allt í óreiðu; borði hafði
verið velt við,
standlampi lá í
gólfinu og
púðar lágu út
um allt. En á
miðju gólfinu lá
lík af gullfallegri
ungri konu
„Hún heitir Lilian
Vyner,“ útskýrði Evans.
„Þið þekkið hana er
það ekki - þetta er
ein fremsta fyrir-
sætan okkar. Jason
Langley sem býr
hinum megin við
ganginn hringdi til
mín í inn-
anhús
sím-
ann
fyrir um
það bil tuttugu mínútum og
sagði mér að hræðileg slagsmál
væru í gangi í þessari íbúð.“
Höfuð-lykillinn
Þegar ég kom upp svaraði enginn þegar ég
bankaði svo þess vegna hringdi ég í ykkur. Svo
kom ég aftur með höfuð-lykilinn og fann íbúð-
ina mannlausa fyrir utan lík konunnar.“ Graham
undirforingi dró nú upp minnisbókina sína og
spurði Evans hvort hann vissi eitthvað um stúlk-
una. Svo virtist sem hún hafi verið trúlofuð fast-
eignasala að nafni Peter Dobson.
„Hann á glænýjan sportbíl,“ sagði Evans. „Eg sá
hann meira að segja þegar ég gekk í gegnum
anddyrið. Þið hljótið að hafa rekist á hann.“
Undirforinginn brosti um leið og hann og
Carter lögregluforingi bönkuðu á dymar hjá
Langley. Snyrtilegur ungur maður bauð þeim
inn en hann
hafði verið að
snæða morg-
unverð.
„Við skulum
sjá... klukkan
Lausn á sakamálaþraut:
•punjs BQpgpp L’ujucj qijoa b3o|iuioj3 IQJliq UOSqOQ
qb jiqAc] ujos pipj) qij3a BjBi) qb jnjKji| ui|py\ jbjsojj njo jæcj ji:3oc| nui
-jpjsjnjsB|qjn bjj ^qsqXoj tojojo BpuVu uin|iq lunfXu b jb|3a jEjioq uo iuui
->!>|0|q QE UUIUIOIj/ál QIJ3A BJBq JS|30S UUBJJ !JSB§D|UIBSUnj3 BS J3 uosqoQ
er níu núna svo ég hef hringt í Evans fyrir um
hálftíma síðan. Auðvitað þekkti ég Lilian en ég
kærði mig bara ekki um að blanda mér í rifrildin
hennar.
Langley strauk vel rakaðan vanga sinn en
hélt svo áfram að snæða harðsoðna eggið sitt.
Hann sagðist ekki hafa farið út úr íbúðinni sinni
þennan morgun.
Úrslit gærkvöldsins
Lögreglumennimir tveir voru á leiðinni út úr
íbúðinni þegar
Graham undirforingi
snéri sér snögglega
við. „Mitt var
ekki komið í
morgun
þegar ég
fór,‘,‘ sagði
hann í
afsökunar-
tón og tók
morgun-
blað
' Langley af
borði í gang-
inum. „Væri
Jþér sama þótt
'ég liti aðeins
á knattspyrnu-
' úrslit gær-
kvöldsins?
„Og þá,“ sagði Carter
lögregluforingi hugsandi,
„eigum við bara Dob-
sön eftir.“ Hann
fundu þeir á
ríkulega búinni skrif-
stofu hans í miðborginni.
„Er Lilian... dáin?“ stundi Dobson og lét sig
falla niður í stól. „En ég var í íbúðinni hjá henni
í morgun!" „Já, og þú varst næstum því búinn
að aka okkur niður þegar þú fórst,“ sagði
Graham argur.
„Ég var búinn að aka meira en hundrað kíló-
metra til þess eins að hitta hana,“ sagði Dobson
rólega. „Hún hringdi til mín um klukkan sjö í
morgun og bað mig að koma strax en þegar ég
kom svaraði enginn í íbúðinni hjá henni. Ég var
ekki meira en tvær mínútur inni í húsinu og því
miður... ég hef greinilega misst af ykkur þegar
ég fór.“
Lögreglumennimir báru saman bækur sínar
fyrir utan skrifstofu Dobson. „Jæja, Graham,“
sagði Carter lögregluforingi, „þú veist auðvitað
hver það er
sem helst ligg-
ur undir
grun...?“
Hver er sá
grunaði?
RAUTTLjÓS^
||U^FERÐAR RAUTT LjÓSB
Bókhald - launauppgjör
- VSK uppgjör - skattaframtöl
TÖLVÍS sf
Kaupangi viö Mýrarveg.
Páll Sigurjónsson - Lára Kristinsdóttir.
Sími 21777- Fax 12177.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Laust starf
Starf umdæmisstjóra Rafmagnsveitna ríkisins á
Norðurlandi eystra er laust til umsóknar.
Krafist er menntunar á sviöi rafmagnsverkfræöi eöa
rafmagnstæknifræði.
Ráöiö veröur í stööuna frá 1. júlí 1993.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri Raf-
magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, Reykjavík,
sími 605500.
Umsóknir berist til Rafmagnsveitna ríkisins, Lauga-
vegi 118, Reykjavík, fyrir 1. mars 1993.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS,
Laugavegi 118 105 Reykjavík.
Hestamenn!
Látum ekki aka á okkur
í skammdeginu - notum
ENDURSKINSMERKI
HESTAMANNAFÉLAGID LÉTTIR
SlolnaA 5 nóv 1928 P O Bo» 348 - 602 Akuieyn
Þú færð allan pappír á einum stað
D/VG S P R» E Isl "T"
Strandgötu 3 I • Akureyri • tr 24222 & 24166
Eiginmaður minn,
STEFÁN ÁSGEIRSSON,
frá Gautsstöðum,
lést á Seli, 4. febrúar.
ída Þórarinsdóttir.