Dagur - 22.05.1993, Síða 13

Dagur - 22.05.1993, Síða 13
Laugardagur 22. maí 1993 - DAGUR - 13 Íþróttir íslandsmótið í knattspyrnu: Boltinn fer að rúfla ENGIN HÚS ÁN HITA í 1. og 2. defld - hvað gera ÍBA-stelpur í sínum fyrsta leik Það hefur varla farið framhjá neinum að íslandsmótið í knatt- spyrnu hefst um helgina og hófst raunar í gær með leikjum í 3. deild. í dag og á morgun byrjar boltinn síðan að rúlla í 1. deiid karla og kvenna og 2. deiid karla. Það verða 2 leikir á Norðurlandi í dag. Tindastóls- menn fá IR-inga í heimsókn á Krókinn og 1. deildar lið IBA Þróttarstelpur frá Neskaupstað í heimsókn. Þór á útileik við KR á morgun sunnudag og 2. deild- ar lið KA og Leifturs leika einnig á útiveili, Leiftur gegn Stjörnunni og KA gegn UBK. KA-menn verða án þeirra Bjarna Jónssonar og Arna Her- mannssonar í fyrstu leikjunum en báðir stunda þeir nám er- lendis fram á sumar. Leikir ÍBA og Tindastóls eru báðir mjög athyglisverðir. Tinda- stóll er að leika sinn fyrsta lcik í 2. deild síóan 1991 og lið Þórs og KA mæta nú sameinuð til leiks í kvennaboltanum undir merkium ÍBA. Arndís Olafsdóttir, markahrók- ur KA, sagði stelpurnar örugglega veróa fcgnar þegar þessi fyrsti leikur yrði búinn. „Vió vitum lítið um Þróttarliðið. Þær unnu Þór í fyrra og eru með svipaðan mann- skap. Við gefum að sjálfsögðu ekkert eftir þó við verðum örugg- lega stressaðar.“ Hún sagói hóp- inn ná vel saman og góðan anda ríkjandi. „Það æfa allir af viti núna því það er samkeppni um allar stöður í liðinu." Hún vildi ekki lofa marki á laugardaginn en útilokaði ekkert. Lcikurinn hefst kl. 14.00 í dag og fer fram á mal- arvelli KA. Sverrir Sverrisson, leikmaður Tindastóls, sagði Sauókrækinga hóflega bjartsýna fyrir leik þeirra við IR. „Við vorum búnir aó reyna að fá leiknum frestað til kl. 16 og eins að fá að leika hann fyr- Sveinbjörn Hákonarson, fyrirliði Þórs, er í lcikbanni á morgun og verður að láta sér nægja að hvetja félaga sína úr stúkunni. Arndís Ólafsdóttir leikmaður ÍBA, vildi ekki lofa marki gcgn Þrótti N í dag en útilokaði ekkert. ir sunnan svo hann yrði örugglega á grasi, en þeir voru ekki til í nein- ar samningaviðræður. Þaó verður því tekió vel á móti þeim.“ Leik- urinn fer því fram kl. 14.00. Sveinbjörn og Halldór í stúkunni Sveinbjörn Hákonarson, einn af lykilmönnum 1. deildar liðs Þórs, verður í leikbanni á móti KR á sunnudaginn og fylgist því meö Halldór Áskelsson, ieikmaður Þórs, á við þrálát mciðsl í hásin að stríða og gctur ekki lcikið með liði sínu á morgun og er reyndar alls óvíst hvenær hann kemst á fulla fcrð. leiknum af bekknum. Halldór As- kelsson á við meiðsl í hásin aö stríða og verður einnig fjarri góðu gamni á morgun. „Eg mun örugg- lega láta heyra vel í mér og styðja strákana þannig," sagði Svein- bjöm. Menn eru nokkuð spenntir að sjá hvort þeim breytingum á liðs- uppstillingu sem Sigurður Lárus- son hefur gert frá síðasta sumri muni verða haldið til streitu. Þær helstu eru að Júlíus Tryggvason er kominn úr öftustu víglínu og í þá fremstu og Sveinn Pálsson færður í stöðu aftasta vamarmanns. Að- spurður um þetta atriði svaraði Sveinbjörn því til að hann væri ósammála því að Júlíus skyldi eft- ir sig of stórt gat í vörninni. „Þær breytingar sem þjálfarinn hefur gert hingað til hafa allar reynst vera réttar, en þar með er ekki sagt að liðinu verði stillt svona upp á sunnudaginn." Leikur KR og Þórs hefst kl. 20.00 á sunnu- dagskvöld. KA leikur viö UBK fyrr um daginn, eða kl. 17.00 og Leiftur og Stjaman spila á laugar- dag kl. 14.00. HA Knattspyrna: Sigur og jafntefli í Lúxemburg - ungu strákarnir stóðu sig betur íslenska A-landsliðið í knatt- spyrnu varð að gera sér jafntefli að góðu í leik gegn Lúxemburg sl. flmmtudag. Lokatölur leiks- ins urðu 1:1 og geta íslendingar þakkað fyrir annað stigið. Leik- urinn fór fram ytra og var liður í undankeppni Heimsmeistara- mótsins í knattspyrnu. Heimamenn léku mun betur en íslenska liðið í fyrri hálfleik og það var því gegn gangi leiksins, þegar Arnór Guðjohnsen kom ís- lenska liðinu yfir skömmu fyrir leikhlé. Þorvaldur Orlygsson átti fasta fyrirgjöf fyrir markið, Lúx- emborgurum mistókst að hreinsa frá, boltinn barst til Arnórs á fjær- stönginni og hann gerði engin mistök og skallaði boltann í mark- ið. Snemma í síðari hálfleik var Þorvaldi Örlygssyni vikið af velli og léku Islendingar því einum færri síðasta hálftímann. Skömmu síðar náðu heimamenn að jafna og var markið sérlega slysalegt. Fyr- irliöi heimamanna sendi fasta fyr- irgjöf fyrir markið og varð Hlynur Birgisson leikmaður Þórs, fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að senda boltann í eigið mark og jafna þar með leikinn. Hlynur ætl- aði að hreinsa í hom en náði ekki nægilega vel til boltans sem hafn- aði í markinu hjá Birki Kristins- syni markverði. Eftir markið héldu hcimamenn áfram að sækja af krafti, án þess þó að skapa sér umtalsverð mark- tækifæri. Fleiri urðu mörkin ekki og jafntefli því staðreynd. Daginn áður lék íslenska U-21 árs landslióið gegn Lúxemburg í undankeppni Evrópumótsins og vann sætan sigur 3:1. Þórður Guð- jónsson, Lárus Orri Sigurðsson og Kristinn Lárusson, skoruðu mörk íslenska liósins og komu liðinu í 3:0. Skömmu fyrir leikslok mink- uðu heimamenn muninn og þar við sat. Þakkir frá Félagi hjartasjúk- linga á Eyjafjarðarsvæðinu Á aðalfundi Félags hjartasjúk- Iinga á Eyjafjarðarsvæðinu fyr- ir skömmu, færði Góðtemplara- reglan á Akureyri, félaginu að gjöf kr. 200 þúsund. Þetta er öðru sinni sem reglan styrkir samtökin með stórgjöf. Þá hefur Páll Jóhannesson, óperusöngvari, gefið félaginu 300 eintök af hljómplötu sinni; „Ég syng fyrir þig.“ Endurhæfinga- stöðin aó Bjargi, Flugfélag Norð- urlands, Skógræktin í Kjamaskógi og Möl og sandur, hafa veitt fé- laginu ómetanlegan stuðning. Öllu þessu góöa fólki þökkum við höfðingsskap og biðjum því blessunar í bráð og lengd. (Fréttatilkynning) Hreinlætistæki ★ Blöndunartæki Sturtuklefar ★ Sturtuhorn. Sýnum einnig flísar á gólf og veggi og Nomaco baðinnréttingar. [\CNr\CN Verslið við fagmann. DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI SÍMI (96)22360 HREINLÆTISTÆKI STURTUKLEFAR 0G HURDIR BLÖNDUNARTÆKI ALLT EFNI TIL PÍPULAGNA JAFNAN FYRIRLIGGJANDI y Í A intýri sumarsins Hestasiimarbúðir sumarið 1993 YM-Yík Árskógsströnd Eyjaiirði Innritun er haíin Námskeið nr. 1 hefst 1. júní. Námskeið nr. 2 hefst 8. júní. Námskeið nr. 3 hefst 15. júní. Farið verður á hestbak tvisvar sinniini á dag. Sjóstangaveiði, kvöldvökur, veiði, sund, hestaútilega og margt íleira. Upplýsingar og pantanir í síniuin 96-61630 og 96-61982 alla daga. Teppaútsala Dönsk gæða gólfteppi, teppabútar og mottur á stórlækkuðu verði. Allt á að seljast. Útsalan hefst mánudaginn 24. maí og stendur út vikuna. Gerið góð kaup Teppaverslun Halldórs Kristjánssonar Strandgötu 37, sími 22934

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.