Dagur - 22.05.1993, Blaðsíða 23

Dagur - 22.05.1993, Blaðsíða 23
I UPPÁHALDI Laugardagur 22. maí 1993 - DAGUR - 23 „Þetta oholla er svo gott“ - segir Tinna Óttarsdóttir Tinna Öttarsdóttir cr leikmaöur 1. deildar liðs ÍBA í knatt- spymu. Hún var í KA-liðinu sem vann sér sæti í dcildinni en sem kunnugt cr vom kvennalið KA og Þórs sameinuð. Tinnu líst vcl á hópinn, segir að nú sé loks samkeppni um sæti í liðinu og allar reyni þær því að standa sig. ÍBA leikur gegn Þrótti Neskaupstað á Akureyri í dag og scgir hún mikilvægt að vinna þann leik og fá gott start. Tinna er frá Garðsá í Eyjafjaröarsveit og vinnur í Rúmfatalagemum. Við slóg- um á þráðinn til hennar. Hvað gerirðu helst ífrístundum? „Þær fara aðallega í knatt- spymuæfingar, enda er fót- boltinn aðaláhugamálið.“ Hvaða matur er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Mér finnst eiginlega allt gott, því miður. En ætli heima- reykta hangikjötið hans pabba sé ekki best.“ Uppálialdsdrykkur? „Þaö er vatnið.“ Ertu hamhleypa til allra vérka á heimilinu? „Tja, svona mátulega held ég. Það cr svona citt og annað sem ég er ekkert alltof hrifin af.“ Spáirðu mikið í heilsusamlegt líf- erni? „Nei, það geri ég ekki. Að Tinna Óttarsdóttir. vísu má kalla það heilsusam- legt að spila fótbolta og halda sér í formi en þetta óholla er alltaf svo gott.“ Hvaða blöð og tímarit kaupirðu? „Dagblaðið. Það er eina blaðiö sem ég er áskrifandi að.“ Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér? „Núna er það Hamingjan er ckki alltaf ótukt, eftir Guð- mund Hagalín minnir mig. Ég er alltaf með einhverjar bækur á náttborðinu." Hvaða hljómsveitJtónlistarmaður er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Það er nú bara það sem er í útvarpinu hverju sinni, helst eitthvað íslenskt og gott.“ Uppáhaldsíþróttamaður? „Þeir em nokkuð margir. Ég gct nefnt Stuart Pcarcc og raunar allt Manchester United liðið, Ryan Giggs og þessa kappa.“ Hvað horfirðu helst á í sjónvarpi? „Aðallega íþróttir og fréttir. Svo horfi ég á Mclrose Place á Stöð 2, en annars horfi ég lítið á sjónvarp á sumrin.“ A hvaða stjómmálamanni hefurðu mest álit? „Eg verð að viðurkenna aö ég hcf ekki ýkja mikið álit á þeim, en ég hugsa að ég nefni Halldór Ásgrímsson.“ Hvar á landinu vildirðu helst búa fyrir utan heimahagana? „Ég 'held að það gæti verið ágætt aó búa á Egilsstöðum svo sem eitt sumar, en ekki mikið lengur.“ Hvaða hlut eðafasteign langar þig mest til að eignast um þessar mundir? „Það væri gaman að eiga góð- an sumarbústað einhvers stað- ar framrni í firði.“ Hvemig hyggstu verja sumarleyf- inu? „Bara slaka á og hafa það gott í sveitinni hjá mömmu og pabba. Svo verö ég auðvitað á kafi í fótboltanum." Hvað œtlarðu aðgera um helgina? „Ég ætla kannski að bregða mér í leikhús á föstudags- kvöldið (í gær) og sjá Leður- blökuna og síðan fer ég að spila á laugardaginn. Annað er ekki planað.“ SS Efst í huga Sólin skein, fuglarnir sungu, blómin ilm- uðu og önd synti með ungana sína á tjörninni. Við vorum hamingjusamar, rétt eins og fólk sem leitar þess jákvæða og uppbyggandi í tilverunni og er komið svolítið sunnar á hnattkringluna snemma sumars, eftir langan og kaldan vetur á íslandi. Sagan gerðist fyrir nokkrum árum er ég var stödd ásamt fleiri virðingarverð- um konum í sjálfum Drottningargarðin- um við konungshöllina í Osló. Skyndi- lega var kyrrðin rofin er steggur kom bagsandi gegnum loftið, beint ofan á öndina, og það fyrir framan ungana. Og við höfðum ekki náð andanum á ný er annar norskur steggur kom æðandi á sömu önd og síðan hver af öðrum. Sam- tímis því að sá áttundi skellti sér í þvög- una tóku íslensku konurnar til fótanna, öndinni til aðstoðar, en hún barðist hetjulega fyrir lífi sínu undir yfirborði tjarnarinnar. Háskólaborgari úr okkar hópi var skjótust að hlaupa á tjarnar- bakkann, samtímis því að spenna upp og sveifla regnhlífinni sinni svo ákaft að Mary Poppins hefði roðnað. Steggirnir tvístruðust, aðframkomin öndin yfirgaf ungana og skjögraði undir runna, sem við umkringdum umsvifalaust svo hún fengi færi á að jafna sig. Norðmenn í garðinum lágu út um allar grasflatir, héldu um kviði sína og engdust úr hlátri yfir aðförunum. Okkur var alveg sama og fannst við hafa unnið hið besta verk með því að reka hópnauðgarana ofan af kynsystur okkar. Hins vegar skildum við ekkert í þess- ari uppákomu. Þetta var annað atferli en nokkur úr hópnum hafði orðið vitni að áður, þó þarna væru konur bæði uppald- ar í sveitum og við andapolla. Löngu seinna rakst ég á grein í erlendu tímariti sem skýrði nokkuð fyrir mér málið; þar var því haldið fram að atferli fugla í stór- borgum breyttist þegar að þeim þrengdi, þeir yrðu árásargjarnari og endurnar á pollunum mættu jafnvel eiga von á hópum óvelkominna steggja á bakið. Þetta atvik skoppaði efst í huga minn er ég var að fletta bók eftir bandarískan kvensjúkdómalækni. Þar stóð að ofbeld- isglæpurinn nauðgun væri stöðugt að verða algengari í mörgum hinna stærri borga, og að. einkum þær konur sem ættu heima í þéttbýli gætu átt slíkan glæp yfir höfði sér. Bændur og sveitafólk, sem ég hef kynnst um dagana, er það besta og vammlausasta fólk sem ég þekki. Ég ólst upp í horninu hjá afa mínum og ömmu, þar sem stöðugur straumur þessara mætu borgara gekk út og inn. Margir laumuðu einhverju í lófann á lítilli stúlku, klöppuðu á kollinn eða tóku hana á hné sér til að segja sögu. Og það voru fallegri sögur en þær sem sagðar eru í sjónvarpinu á sunnudagskvöldum, með- an myndavélin er látin reika um sveitir landsins og sýna býli þeirra samborgara okkar sem hvergi mega vamm sitt vita. Erfurða þó að sumum sárni? Krakkar 7-10 ára Enn eru laus pláss í Sumarbúðum kirkj- unnar við Vestmannsvatn í 1. flokki 8.-15. júní og 3. flokki 28. júní - 5. júlí. Innritun í síma 96-27540 og i símum 96-26179, 96-61685, 96-43545. m i ?i iigitiii — Aðaltölur: ; :v;■ . Vinningstölur miðvikudaginn: 19. maí ’93 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING EE 6a,e 1 (á ísl. 0) 21.085.000.- n 5 af 6 LS+bónus 1 1.486.682.- 0 5af6 5 61.456.- 0 4af6 332 1.472.- P| 3 af 6 t*J+bónus 953 221.- ,17) (22) (29) BÓNUSTÖLUR ;37)(3á)(® Heildarupphæð þessa viku 23.578.279.- áísi, 2.493.279.- UPPLÝSINGAR, SÍMSVARt 91- 68 15 11 LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR Atvinna Viljum ráða starfsfólk til vinnu á kvöldin og um helgar. Upplýsingar veitir verslunarstjóri á staðnum, ekki í síma. HAGKAUP Akureyri — Kæru vinir. Hjartans þakkir til yldcar allra sem gerðu mér 75 ára afmælisdaginn minn, þann 15. maí sl., ógleymanlegan með heimsóknum, gjöfum, blómum og heillaóskum. Guð blessi yklmr. ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, Rimasíðu 23 c, Akureyri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.