Dagur - 22.05.1993, Blaðsíða 19
Laugardagur 22. maí 1993 - DAGUR - 19
Popp
Magnús Geir Guðmundsson
Bostonsveitin Aerosmith:
Áfram meðal þeirra bestu
Hvað skyldu hljómsveitir á borð
við Black Crowes, Poison, Guns
N Roses, Motley Crue auk
margra annarra eiga sameigin-
legt. Nú fyrir utan það auðvitað
að vera allar bandarískar og telj-
ast til þeirra vinsælustu í rokkinu,
þá eiga þær það sameiginlegt aó
meira eða minna leyti að vera
unir áhrifum frá einni og sömu
hljómsveitinni í sinni tónlistar-
sköpun, nefnilega Aerosmith,
þeirri lífseigu og makalausu sveit
frá Boston. Er Aerosmith því án
efa ein áhrifamesta rokksveit
Bandaríkjanna sem enn lifir og
ekki að ástæðulausu nefnd af
sumum Guðfeður bandarísks
þungarokks. Hefur hljómsveitin
nú þrátt fyrir ýmis áföll og vand-
ræðagang eins og gengur í rokk-
inu, lifað og starfað í tvo áratugi
og notið ómældra_ vinsælda
mestan þann tíma. Á það ekki
hvað síst við um síðustu ár, eða
frá árinu 1987 er platan Perman-
ent Vacation kom út, en sú plata
kom hljómsveitinni aftur í hóp
vinsælustu rokkhljómsveita
heims. Seldist hún í milljóna
upplögum víóa um heim og náðu
lög af henni eins og Angel og
Dude (Looks Like A Lady) topp
tíu sætum hvarvetna. Að vísu
hafði platan á undan, Done With
Þann 29. apríl síðastlióinn sá
rokkheimurinn enn einu sinni á
bak góöum syni sínum langt
fyrir aldur fram. Var það að
þessu sinni gítarleikarinn, upp-
tökustjórinn og útsetjarinn Mick
Ronson sem mætti dauóa sín-
um af völdum lifrarkrabba-
meins 45 ára aó aldri. Ólst
Ronson upp í fiskibænum
fræga Hull þar sem hann byrj-
aði ungur aó læra á gítar, pí-
anó og fiðlu í skóla auk þess
að læra að lesa nótur. Hann
var í nokkrum
hljómsveitum
heimafyrir áóur
en hann ákvaö
að flytjast til
London og
reyna fyrir sér
þar. Fékk hann
þar eftir
skamma dvöl
vinnu sem spil-
ari í hljóðveri
(sessionmað-
ur) og gegndi
því starfi um
skeió. Þaó var
svo í kringum
1970 sem Mick
Ronson sóttist
eftir starfi sem
gítarleikari hjá
David Bowie
og fékk það eftir að hafa átt
fund með poppgoðinu. Mynd-
aöist strax vinátta með þeim
tveimur sem stóð allt til dauða-
dags Ronsons. Hljóðritaði
hann fjórar plötur með Bowie
þar á meðal hina margfrægu
Ziggy Stardust. Þá var Ronson
einnig upptökustjóri ásamt Bo-
wie á plötu Lou Reed Trans-
former auk þess að sjá um
strengjaútsetningu í laginu
þekkta á plötunni Walk On The
Wild Side. Ronson hætti með
Bowie til að reyna sig á eigin
spýtur og sendi frá sér tvær
sólóplötur á árunum 1974-75.
Þær gengu þó ekki betur en
svo að fljótlega eftir útkomu
seinni sólóplötunnar var hann
genginn til liðs við hina frægu
sveit Mott The Hoople með
Mirrors, sem út kom tveimur ár-
um áður selst ágætlega og tón-
leikaferð henni samfara gengið
vel, en það var lítið í samanburói
við vinsældir Permanent Vacati-
on. Næsta
platan Pump,
sem kom út
síðla árs 1989,
gerði síðan
enn betur og
færói Aero-
smith hreinar
ofurvinsældir.
Mun hún í
Bandaríkjun-
um einum hafa
selst í a.m.k.
sex milljónum
eintaka, sem
verður að telj-
ast mjög gott
hjá rokkhljóm-
sveit. Hafa
ekki mjög
margar slíkar
hljómsveitir
náó viðlíka vin-
sældum og Aerosmith. Sat plat-
an um skeió í toppsætinu auk
þess sem þrjú smáskífulög af
henni náðu topp tíu sætum.
Þeirra vinsælast var Janie s Got
A Gun sem náði fjórða sæti. All-
skyns verðlaun og viðurkenning-
söngvarann lan Hunter í broddi
fylkingar. Sú sæla stóð hins
vegar stutt og hætti hann fljót-
lega í hljómsveitinni sem þá
var reyndar að leysast upp.
Þeir Hunter héldu þó áfram
samstarfinu um nokkurra ára
skeió undir nafni Hunters meó
þokkalegum árangri. Auk þess
aö starfa með Hunter vann
Ronson svo einnig á næstu ár-
um með mörgum frægum tón-
listarmönnum bæði sem gítar-
leikari og upptökustjóri. Þar á
meóal meó
Bob Dylan,
Van Morrison
og Roger
McGuinn leið-
toga Byrds. Ár-
ið 1990 geróu
hann og Hunt-
er saman plötu
á ný og svo á
síðasta ári var
Ronson vió
takkana hjá
Morrissey á
plötunni hans
góóu Your Ar-
senal. Er Ron-
son lést var
hann langt
kominn meó
nýja plötu þar
sem Bowie,
Chrissie Hynde úr Pretenders,
Joe Eliott söngvari Def Lepp-
ard og John Cougar Mellen-
camp lögðu honum lið. Líka
stóð til að Hunter tæki þátt í
gerð hennar. Platan mun koma
út í náinni framtíð, en ekki er
vitað nákvæmlega hvenær.
Ronson kom síóast fram á
minningartónleikunum um
Freddie Mercury á Wembley
fyrir ári ásamt Hunter. Tóku
þeir saman ásamt eftirlifandi
meðlimum Queen All The Yo-
ung Dudes og mun upptaka af
því verða á plötu Ronsons.
Hann kom svo eins og fram
hefur komið við sögu í einu lagi
á nýju plötu David Bowiem,
Black Tie White Noise. Mick
Ronson lét eftir sig eiginkonu
og eina dóttur.
ar hlotnaðist svo Aerosmith
einnig fyrir Pump, þar á meðal
þrenn MTV verðlaun og ein
Grammyverðlaun sem besta
sviðssveitin. Þá kusu lesendur
tónlistarblaðsins viðfræga Rol-
ling Stone hana hljómsveit árs-
ins sem telst ávallt mikil viður-
kenning. Það hefur því verið
nokkur eftirvænting eftir nýrri
plötu frá Aerosmith og menn
spurt sig hvort hljómsveitin geti
áfram haldið sama dampi í gæð-
um og vinsældum. Nú þegar svo
hún hefur litió dagsins Ijós undir
nafninu Get A Grip virðist svarið
við þeirri spurningu ætla að
verða jákvætt, því fyrstu við-
brögð vió henni hafa verið góð.
Þá hefur fyrsta smáskífan með
laginu Living On The Edge náð
nokkrum vinsældum.
Er hljómsveitin nú eins skipuó
Popparar sem muna mega
sinn fífil fegurri eiga oft ekki
sjö dagana sæla eins og nýleg
frétt frá Bretlandi ber glögglega
meó sér. Nú á dögunum var
nefnilega fyrrum trommuleikari
popphljómsveitarinnar vinsælu
frá Hull, The Housemartins,
dæmdur í sex ára fangelsi fyrir
líkamsárás. Hann Hugh Whita-
ker fékk þennan dóm nánar til-
tekió fyrir aó hafa ráöist á fyrr-
um viðskiptafélaga sinn meó
exi aö vopni í þeim tilgangi að
stytta lífdaga hans. Þá mun
Whitaker einnig hafa gert árás-
ir á heimili mannsins og reynt
aó kveikja í því m.a. meö því
aó kasta í eitt skiptið heimatil-
búinni sprengju inn í stofu til
hans. Kom það fram við réttar-
höldin aó ofsóknir Whitakers á
hendur félaganum fyrrverandi
hefóu staóið í tvö ár og endað
meó axarárásinni í ágúst síð-
astliðnum, sem betur fer bar
ekki tilætlaðan árangur. Á
Whitaker að hafa auðgast
nokkuö vel á dögum sínum í
Housemartins, en mun víst
hafa tapað miklu á viðskiptun-
um við félaga sinn, sem fólust
víst í sambandi vió bíla. Að
minnsta kosti heldur Whitaker
því fram, hvað sem svo rétt er í
því.
Líkt og svo margar aðrar
stjörnur í poppinu verður
hann Sting fyrrum Police leið-
togi nú heldur ómaklega fyrir
barðinu á kjaftasögum, sem
einhverra hluta vegna hafa
spunnist upp. Hefur söngvarinn
og fyrir tuttugu árum er hún
sendi frá sér fyrstu samnefndu
plötuna; þeim Steven Tyler
söngvara, Joe Perry og Brad
Whitford gítarleikurum, Tom
Hamilton bassa-
leikara og Joey
Kramer trommu-
leikara. Voru það
Perry og Tyler
sem stofnuðu
hana upp úr
1970, en eins og
fyrr segir kom
fyrsta platan út
1973. Voru Aero-
smith til aó byrja
með mest í að
stæla breska
rokkrisa á boró
við Cream, Yard-
birds og Rolling
Stones (Tyler er
líka nokkuð líkur
Mick Jagger
„munnlega" svo
ekki sé meira
sagt), en mótaó-
ist þó brátt meó sinn eigin stíl,
sem ótvíræður er enn þann dag í
dag. Má segja aó hann sé
blanda af áhrifum gamla rokk og
rólsins og blústónlistar svarta
mannsins í kraftmiklum búningi.
Vakti fyrsta platan ekki mikla
athygli þegar hún kom út í byrjun
árs 1973, en með útgáfu fyrstu
smáskífunnar, Dream On, sem
hljómsveitinni tókst einhvern
veginn að fá í gegn, fóru lukku-
hjólin óvænt að snúast henni í
hag. Voru svo næstu fimm ár
nær stanslaus sigurganga með
plötunum Get Your Wings 1974,
Toys In The Attic 1975, Rocks
19766, Draw The Line 1977 og
Sting hefur fengið að kenna á
kjaftasögum að undanförnu.
eins og kunnugt er verið ötull
baráttumaður fyrir ýmsum góð-
um málum, þar á meðal fyrir
verndun regnskóganna í Bras-
ilíu og fyrir réttindamálum ind-
íána þar í landi og víðar. Eitt-
hvað virðist nú einhverjum mis-
líka þessi baráttumái Sting, því
í breskum blöðum hafa birst
„fregnir“ um að hann hafi lýst
því yfir sjálfur að hann gæfi nú
skít í allt svoleióis baráttubrölt.
Það hefur hins vegar komið í
Ijós að engin stoð er fyrir þessu
og hefur Sting lýst furóu sinni
og hneykslun á óábyrgum
fréttaflutningi. Segir hann að
þetta sé ekki síst vítavert í ijósi
þess að búið hafi verið að til-
kynna um viðburó í Los Ange-
les í þágu regnskóganna í
næsta mánuði, þar sem hann
mun koma fram m.a. Að öðru
tvöföldu tónleikaplö tunni Live
Bootlegs 1978. Þykja þessar
plötur hver annarri betri og
innihalda þær vinsæl lög á borð
við Sweet Emotion, Mama Kim,
Back In The Saddle og Walk
This Way. Það síðasttalda öól-
aðist eins og eflaust margir
muna nýtt líf árið 1986 er hip
hop tríóið Run DMC gerði lagið
gríðarlega vinsælt með stuðningi
frá þeim Tyler og Perry. Má með
nokkrum sanni segja að þar hafi
á vissan hátt verið lagður grunn-
ur að velgengni Permanent Vac-
ation. í lok áttunda ártatugarins
fór að halla undan fæti hjá Aero-
smith aðallega vegna ofdrykkju
og eiturlyfjaneyslu sem var mikil
og hafói nær dregió þá suma til
dauða. Þá kom einnig upp mis-
sætti í hljómsveitinni á þessum
tíma sem leiddi til þess að bæði
Perry og Whitford hættu meó
skömmu millibili. Næstu ár hélt
hljómsveitin þó áfram og gaf út
tvær plötur í byrjun níunda ára-
tugarins. Þær vöktu hins vegar
takmarkaða hrifningu. En sem
fyrr segir komst hljómsveitin aft-
ur á réttan kjöl um miðjan ára-
tuginn og voru þá Perry og Whit-
ford á ný komnir til liós við hana.
Af Get A Grip aó dæma virðist
Aerosmith ætla að halda ótrauð
áfram og ekki láta neinn bilbug á
sér finna. Virkar platan í heild
hressileg og minnir um margt á
fyrstu verk hljómsveitarinnar.
Sem dæmi um mörg góð lög
plötunnar má nefna Living On
The Edge, Walk On Down,
Crazy og Line Up. Má því ætla
að hún verði áfram í hópi þeirra
bestu og vinsælustu enn um
sinn.
leyti á Sting ágætu láni aó
fagna, því fjóróa platan hans,
Summoners Tale, situr þessa
dagana í fimmta sæti yfir best
seldu plöturnar í Bretlandi. Er
þar víst um góðan grip að
ræöa hjá Sting.
að fór aldrei svo aó logn-
molla myndaóist um piltana
í stórrokksveitinni Guns N Ros-
es og þeir færu að taka því ró-
legar. Það er nú aldeilis eitt-
hvað annaó. Fyrir það fyrsta
hefur hann Axl Rose söngvari
enn einu sinni verið í sviðsljós-
inu vegna skamma og stórra
yfirlýsinga í garð Lars Ulrich
trommuleikara Metallica. Mun
ástæðuna fyrir þessu vera að
rekja til þess að kastast hafi í
kekki milli þeirra tveggja er
hljómsveitirnar voru saman á
tónleikaferðalagi á síðasta ári,
en áóur höfðu þeir verið vinir til
margra ára. Þá hafa borist þær
fregnir af nýjasta meólim
hljómsveitarinnar, Gilby Clark
gítarleikara, sem á sínum tíma
leysti Izzy Stradlin af hólmi, að
hann hafi brotið á sér annan
handlegginn í mótorhjólaslysi.
Hann var þó ekki í ofsaakstri á
götum úti, heldur í mótorhjóla-
kappakstri sem haldinn var í
góðgerðarskyni í byrjun mán-
aðarins. Þurfti að skera hann
upp vegna brotsins þannig að
hann spilar ekki næstu vikurnar
með Guns N Roses. Að end-
ingu má svo geta þess að
hljómsveitin sendi frá sér á
mánudaginn var nýja EP plötu
sem inniheldur þrjú lög og við-
tal við Slash.
Mick Ronson fallinn frá
Tónlistarmaðurinn með meiru,
Mick Ronson, lést úr lifrarkrabba-
meini þann 29. apríl síðastliðinn.
Aerosmith sýna sfnar bestu hliðar á nýju plötunni Get A Grip sem út kom
fyrir skömmu.
Ur ýmsum áttum