Dagur - 04.09.1993, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 4. september 1993
Fréttir
Ágústveðrið á Akureyri:
GæMegra en íjúlf
Samkvæmt uppiýsmgum frá
veðurfarsdeild Veðurstofu ís-
lands var meðalhitinn á Ak-
ureyri í nýliðnum ágústmán-
uði 9,1 gráða sem er 0,9 gráð-
um undir meðallagi. Þetta er
mun skárri útkoma en í hin-
um hrollkalda og sólarlausa
júlímánuði.
Úrkoma mældist 40,2 milli-
metrar sem er 6 millimetrum
yfir meðalúrkomu í ágúst og
sólskinsstundir voru 127 sem er
8 stundum undir meðallagi.
Akureyringar fengu nokkra
góða daga í röð seinnipartinn í
ágúst og komst hitinn í 19 stig
23. og 24. ágúst og í 20 stig 25.
ágúst.
Útkoman á Akureyri en nán-
ast þversnið af veðurfarinu á
landinu öllu í ágúst. Hitinn var
víðast hvar um I gráðu undir
meóallagi og mánuðurinn ekki
óvenjulegur að neinu leyti hvað
veðurfarið varðar.
„Þctta var ffamför hjá ykkur,
cnda gat ástandió varla vcrsn-
að,“ sagði veöurfTæðingurinn á
veóurfarsdeildinni um saman-
burðinn viö hinn illræmda júlí-
mánuð. SS
■filli 1II ]ji| itiffl
ríTiHinii 1H III11 rtTrfrl
Blómahúsið
jwStór
a
potta-
plöntum
Líttu inn í kaffihúsið og njóttu góðra
veitinga í fallegu umhverfi.
Blómabúðin er opin alla
daga frá kl. 09.00-21.00
BfÓMAHÚSIÐ
Sími 22551
Rætt um hlutafjárkaup á fundi bæjarstjórnar Sauðárkróks:
Flestir bæjarfulltrúar fagn-
andi yfír lyktum mála
Á fundi bæjarstjórnar Sauðár-
króks sl. þriðjudag var rætt um
kaup Skagfírðings hf. á hlut
Þormóðs Ramma í Skildi hf.
Voru bæjarfulltrúar flestir
fagnandi yfír lyktum mála, en
forseti bæjarstjórnar var þó
ekki alls kostar ánægður.
Eins og áður hefur verið greint
Akureyri:
Mikið ónæði af
bifhjólamönnum
Bifhjólamenn voru mikið á ferð-
inni á Akureyri á fimmtudags-
kvöld og bárust lögreglunni fjöl-
margar kvartanir undan öku-
lagi þeirra og hávaða sem af því
hlaust. Að sögn lögreglu virtist
sem að minnsta kosti sumir
þessara ökumanna hefðu engan
annan tilgang með framferði
sínu en að valda ónæði og
hættu.
Margir höföu samband við lög-
regluna á Akureyri á fímmtudags-
kvöld og kvörtuðu undan bifhjóla-
mönnum, sem þeystu vítt um bæ-
inn á reiðskjótum sínum. Bifhjóla-
mennimir virtu lítt um hraðatak-
markanir og beittu farartækjum
sínum gjaman með þeim hætti að
mikill hávaði hlaust af. Ekki þarf
að fjölyróa um þær hættur sem
skapast af þvílíku athæfi auk mik-
ils ónæóis vegna hávaða. Þá var
ökumaður bifreióar 'stöövaöur á
Glerárgötu á fimmtudagskvöld en
hann ók á um 95 kílómetra hraða.
ÞI
frá keypti Skagfirðingur hf. hlut
Þormóðs Ramma í Skildi hf,
52,2%. Sauðárkróksbær á 18% í
Skildi og 15% í Skagfirðingi.
Kaup Þormóós Ramma á meiri-
hlutanum í Skildi fyrir rúmu ári
síóan ollu talsverðum hita í bæjar-
stjóminni og víðar. Það rifjaði
Knútur Aadnegard, forseti bæjar-
stjórnar, (D) upp á fundinum á
þriðjudag. Kvaðst hann jafnframt
harma „aö þaó skuli þurfa að
leggja til 83,5 milljónir af fjár-
magni sem til er hér í bænum til
þess að yfirtaka atvinnufyrirtæki
sem til staðar eru“ og sagði jafn-
framt harmsefni „að missa út úr
bænum fjármagn sem hægt væri
að nýta til uppbyggingar atvinnu-
lífinu". Knútur sagði ljóst að til-
raun Þormóós Ramma hefði mis-
tekist og kvaðst gjaman vilja sjá
þá aftur taka þátt í atvinnuupp-
byggingu á Króknum. „Eg vildi
sjá sem allra flest fyrirtæki utan
Sauðárkróks koma og taka þátt í
atvinnuuppbyggingu hér“, bætti
hann við.
Stefán Logi Haraldsson (B)
vítti málflutning Knúts. Stefán
Logi kvaðst ánægður meó lyktir
mála og Ijóst að menn hefðu gert
mistök á sínum tíma þegar hluta-
bréfin voru seld úr bænum. Undir
þau sjónarmið tók Anna K. Gunn-
arsdóttir (G).
Að sögn Einars Svanssonar,
framkvæmdastjóra Fiskiðjunnar
og Skagfirðings, verður vakta-
vinnu haldið áfram í Fiskiójunni.
Gerður hefur verió um það lang-
tímasamningur, þ.e. ótímasettur.
Vaktir hafa verið frá kl. 6-22 og
verða það áfram, en á tímabilinu
nóvember-febrúar verður þó ekki
byrjað að vinna fyrr en kl. 8 á
morgnana. sþ
Eyjafjarðarsveit:
Bóndi varð undir heyrúllu
Það slys varð við bæinn Hrafna-
gil í Eyjafjarðarsveit á fímmtu-
dagskvöld að bóndi úr ná-
grannasveitarféiagi, sem vann
við að rúlla hey, varð undir
heyrúllu. Hann var með farsíma
hjá sér við heyskapinn og gat
því sjálfur látið vita um slysið.
Sjúkrabíll sótti hann og flutti á
slysadeild á Akureyri en hann
kvartaði um óþægindi í baki.
Túnið þar sem bóndinn var við
vinnu er í nokkrum halla og valt
ein rúllan af stað þegar hún losn-
aði úr bindivélinni. Ætlaói bónd-
inn að stöðva hana með fyrr-
greindum afleiðingum. Þar sem
um seinni slátt var að ræða og
blautt á grasi má ætla aö rúllan
hafi verió allt að 700 kíló eóa
jafnvel meira. Sem fyrr segir var
maðurinn fluttur á slysadeild en
ekki var vitað nánar um líðan
hans. ÞI
Heilsurækt í Hamri!
Líkamsrækt, tröppuþrek fyrir hópa, vatnsgufubað,
nuddpottur og Ijósalampar.
Vetrarstarfið hefst af fullum krafti mánudaginn 6. september.
Leiðbeinendur, Elín Sigurðardóttir og íþróttakennararnir Einar
Kristjánsson og Jón Sævar Þórðarson, veita hverjum og einum
persónulega ráðgjöf á virkum dögum milli kl. 17 og 19.
Mánaðarkort kr. 3.000.
Afsláttur fyrir námsmenn.
Ljósalampar.
10 tíma Ijósakort í frábærum Ijósalömpum á aðeins 3.000 kr.
Séraðstaða fyrir hvern og einn.
Gufubað og nuddpottur innifalinn í verði.
Skráning og upplýsingar í Hamri,
félagsheimili Þórsara, í síma 12080
og á staðnum.
er í áttunda sinn sem
er í áskriftargetrauninni,
Áskriftargetraun Dags og Flugleiða:
Hjúkrunarfræðingar hrepptu hnossið!
- þegar dregnir voru út vinningar ágústmánaðar
leiða meðan á dvölinni stendur.
Nöfn vinningshafa eru valin úr
áskrifendaskrá með aóstoð tölvu-
forrits og má segja að tölvan okk-
ar hafi verið höll undir hcilbrigð-
isstéttirnar að þessu sinni. Þær
Barbara og Ingibjörg áttu ekki í
crfiðleikum með að svara spurn-
ingunum tveimur, sem fyrir þær
voru lagðar. Þær vissu að aðal-
fundur Skógræktarfélags íslands
var haldinn á Húsavík um síðustu
helgi og að jarðskjálftinn, sem
reið yfir Norðurland á laugardag-
inn, mældist 4,5 stig á Richter-
kvarða.
Dagur og Flugleiðir óska vinn-
ingshöfunum til hamingju og vona
að þeir njóti ferðarinnar. BB
Barbara Geirsdóttir, hjúkrun-
arfræðingur á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri og Ingibjörg
Arnkeisdóttir, starfssystir henn-
ar Sjúkrahúsinu á Húsavík,
duttu í lukkupottinn er við
drógum út nöfn vinningshafa
ágústmánaðar í áskriftarget-
raun Dags og Flugleiða. Þær
hljóta hvor um sig helgarferð
fyrir tvo til Reykjavíkur.
Þetta
dregiö
sem efnt var til í tilefni af 75 ára
afmæli Dags þann 12. febrúar sl. 1
lok hvers mánaðar allt þetta ár
veróa dregin út nöfn tveggja
skuldlausra áskrifenda blaðsins og
þcim gert að svara tveimur lauf-
Íéttum spurningum, tengdum frétt-
um líðandi stundar. Séu svörin rétt
fá þeir að launum helgarferð fyrir
tvo til Reykjavíkur. I desember
nk. hlýtur síðan einn heppinn
áskrifandi blaðsins helgarferð fyr-
ir tvo til Amsterdam í Hollandi.
í hverri helgarferð til Reykja-
víkur felst flug fyrir tvo með
Flugleiðum, gisting í tvær nætur á
Hótel Esju eða Hótel Loftleiðum
og bílaleigubíll frá Bílaleigu Flug-
Barbara Geirsdóttir.
Mynd: Robyn
Ingibjörg Arnkelsdóttir. Mynd: im