Dagur - 04.09.1993, Qupperneq 5
Laugardagur 4. september 1993 - DAGUR - 5
Aðalfundur Stéttarsambands bænda:
Aukið vægi búgreinafélagaima fellt
Fulltrúar á aðalfundi Stéttar-
sambands bænda, sem lauk á
Hvanneyri á iaugardagskvöld,
höfnuðu auknu vægi búgreina-
félaganna á fulltrúa- og aðal-
fundum sambandsins. Um tveir
þriðju hlutar fundarmanna eða
40 af 61 sem atkvæði greiddu,
felldu tillögu frá meirihluta fé-
Iagsmálanefndar um að stóru
búgreinafélögin; Landssamband
Sauðárkrókur:
Rottur drepnar í
rússneskum togara
Rússneski togarinn Minkino frá
Murmansk, sem vísað var frá
landi á Sauðárkróki á þriðjudag
vegna rottugangs, hefur að und-
anförnu legið rétt utan við höfn-
ina. Skipið er hér í umboði Fisk-
markaðs Norðurlands og hefur
meindýraeyðir nú drepið allar
rottur og því fékk skipið leyfi til
að leggja að bryggju á ný.
Þegar heilbrigðisfulltrúi skoð-
aði skipið á þriðjudag varð hann
var við rottu og því var skipinu
vísað frá. Fenginn var meindýra-
eyðir um borð og lauk hann verki
sínu á fimmtudag. Þá var skipinu
veitt heimild til að leggjast aö
bryggju til að taka vatn, olíu og
vistir. Skipið flytur frystan fisk og
rotturnar fundust fyrst og fremst í
vinnslusal og einnig í eldhúsi.
Þegar blaðið fór í prentun var
óvíst hvort skipið fær löndunar-
leyfi, en til stóð að Fiskiðjan á
Sauðárkróki keypti fiskinn. Einar
Svansson, framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar, sagðist ekki geta
sagt um það hvort af fiskkaupum
yrði, það færi alfarið eftir því
hvort yfirvöld gæfu leyfi. sþ
kúabænda, Landssamtök sauð-
fjárbænda, Samtök garðyrkju-
bænda og Svínaræktarfélag ís-
lands fengju fleiri en einn full-
trúa á aðalfund Stéttarsam-
bandsins.
Samkvæmt nýjum samþykkt-
um Stéttarsambands bænda, sem
samþykktar voru á aðalfundinum,
verða fulltrúar á fundum þess 39
frá og með árinu 1995 en voru yfir
60 samkvæmt eldri samþykktum.
Umræóur um samþykktir Stéttar-
sambands bænda og félagskerfi
landbúnaðarins settu mikinn svip
á störf aðalfundarins. Fyrir fund-
inum lágu tillögur nefndar sem
skipuð var á síðasta aðalfundi cr
fólu í sér nokkuð róttækar breyt-
ingar á samþykktum sambandsins,
meðal annars umtalsverða fækkun
fulltrúa á fulltrúafundum þess og
aðalfundi. I tillögum meirihluta
nefndarinnar var einnig gert ráó
fyrir auknu vægi stóru búgreinafé-
laganna innan Stéttarsambandsins.
Inn í umræóur um samþykktir
Stéttarsambandsins blönduóust
umræður um félagskerfi landbún-
aóarins sem heildar en eins og
fram hefur komið gera bændur nú
auknar kröfur um gagngera upp-
stokkun þess og einföldun. Þar á
meðal kröfur um sameiningu
Stéttarsambands bænda og Búnað-
arfélags Islands. Töldu sumir
fundarmanna á Hvanneyri aó bíöa
ætti með að samþykkja end-
urskoðun á samþykktum Stéttar-
sambandsins í ljósi þess að farið
væri að ræða um mun róttækari
^ SigluQörður:
Átján nemendur stunda
sjúkraliðanám í vetur
Boðið verður upp á sjúkraliða-
nám á Siglufirði í vetur, sem er
nýjung þar í bæ. Námið er í
tengslum við Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðár-
króki.
Að sögn Jóns Hjartarsonar,
skólameistara Fjölbrautaskólans,
stunda 18 nemendur nám á sjúkra-
liðabrautinni í vetur. „Þetta er
verkefni sem er unnið í samvinnu
við sjúkrahúsið á Siglufirði og
nemendur eru fyrst og fremst
starfsfólk þar. Flestir kennararnir
eru læknar og hjúkrunarfræðingar
á sjúkrahúsinu, en kennsla fer
væntanlega fram í húsnæði grunn-
skólans á Siglufirói. Þetta er
tveggja ára almennt bóklegt nám
auk 34 vikna verklegs náms á
sjúkrahúsinu,“ sagói Jón.
Hann sagði að stefnt væri að
því útskrifa þessa nemendur sem
sjúkraliða að 2-3 árum liðnum.
Sambærilegt nám hefur verið
innan veggja Fjölbrautaskólans á
Sauóárkróki og hefur hann út-
skrifað tjölda sjúkraliða.
Jón Hjartarson sagði þaó tví-
mælalaust styrk fyrir Fjölbrauta-
skólann að hafa slíkar námsbraut-
ir á hans vegum á öðrum stöðum
en Sauðárkróki. Auk Siglufjaróar
eru námsbrautir á vegum skólans
á Blönduósi. óþh
Dalvík:
Heiimlisiðnaðaraiarkaður opnaður
í gær var opnaöur á Dalvík
markaður þar sem á boðstólum
er Qölbreyttur heimilisiðnaður.
Að markaðnum, sem fengið hef-
ur nafnið „Nú er - markaður-
inn“, standa 10 konur á Dalvík.
Markaðurinn er til húsa í bíl-
skúr að Karlsbraut 11 á Dalvík, en
þar var fyrir nokkrum árum skó-
og hjólreiðaverkstæði.
Að sögn Sigríðar Guðmunds-
dóttur, sem er ein af konunum 10,
Islenskur lakkrís framleiddur í Kína:
Kyrniing á íslandi
Þessa dagana hefur staðið yfir
kynning á íslenskum lakkrís,
framleiddum í Kína, í verlsun-
um Hagkaups víða um land.
Eins og marg oft hefur komið
fram í fréttum eiga akureyrskir
aðiíar m.a. í verksmiðjunni í
Kína, ásamt kínverska ríkinu.
Framkvæmdastjóri og gæða-
stjóri eru íslenskir en að auki
starfa 60 Kínverjar í verksmiðj-
unni. Fyrirtækið tók þátt í sælgæt-
issýningu í Köln í Þýskalandi í
febrúar sl. og hafa viðbrögð kaup-
enda verið góð.
Verksmiójan heitir Scandinavi-
an Guangzhou Candy Company
Ltd. en dreifingaraðili lakkrísins
er fyrirtækið Unimark Int. Ltd. og
er Evrópuskrifstofa þess staósett
á Akureyri. KK
hefur kjarni kvenna á Dalvík
lengi haft áhuga á að láta verða af
því að opna slíkan markað, enda
stundi fjölmargar konur í byggð-
arlaginu merkilegan heimilisiön-
að, sem full ástæóa sé til að hafa
á boöstólum. Hún sagði að á dög-
unum hafi þrjár konur farið að
ræða þetta mál í fullri alvöru og
um leið og tcningnum hafi verið
kastaö hafi fleiri konur bæst í
hópinn. Að markaðnum nú í byrj-
un standa 10 konur og sagði Sig-
ríður öruggt að fleiri muni síðar
taka þátt í þessu starfi.
A þessum heimilisiónaðar-
markaói eru afar fjölbrcyttar vör-
ur. Sem dæmi má nefna prjóna-
vörur, ramma, nælur og fleira.
I dag verður opið frá kl. 14-17
og fyrst um sinn vcrður markaður-
inn opinn alla virka daga frá kl.
15 til 18. óþh
Glerárkirkja:
Þessa dagana stendur yfir kvnning á lakkrís framleiddum í Kína. Mynd: Robyii
að heljast
Vetrarstarfið er nú að fara í
fullan gang hjá Æskulýðsfélagi
Glerárkirkju. Fyrsti fundur
vetrar verður sunnudaginn 5.
september kl. 17.30 og eru allir
unglingar sem eru fæddir 1979
eða fyrr velkomnir.
Fundimir einkennast af söng,
leik og guðs orði og verður reynt
að bjóða upp á fjöibreytt starf í
vetur.
breytingar á félagskerfinu í heild
þótt með óformlegum hætti væri
enn sem komið er. Tillaga um það
náði þó ekki fram að ganga á
fundinum en í lok hans var sam-
þykkt tillaga þess efnis að áfram
verði hugað að framtíðarskipulagi
heildarsamtaka í landbúnaði og að
aðalfundur Stéttarsambandsins á
næsta ári fjalli um framtíðarskipu-
lag bændasamtakanna.
I umræðum um félagskerfi
landbúnaðarins kom glöggt fram
að þótt flestir taki undir hugmynd-
ir um nauðsyn á einföldun þess þá
greinir menn verulega á unt á
hvem hátt eigi að standa að því
verki. Einkum kom fram mjög
mismunandi afstaða manna til bú-
greinafélaganna þar sem hörðustu
talsmenn þeirra töldu þau nauð-
synlegan og allt að því hinn eina
baráttuvettvang viðkomandi bú-
greina á meðan aðrir létu í ljósi
skoðanir um að þau væru fremur
til þess fallin að vekja sundrungu
á meðal bænda í stað þess að sam-
eina þá í einum hópi sem þó væri
mikil þörf á í ljósi aðsteðjandi
vanda í landbúnaði. ÞI
30 umsóknir
bárust um
húsvarðarstöðu
áHúsavflí
Nýlega var starf húsvarðar
eða gæslumanns vlð íþrótta-
höllina á Húsavík auglýst
laust til umsóknar. Það sóttu
30 manns um stöðuna og er
það mesti fjöldi umsókna
sem Ilúsavíkurbæ hefur bor-
ist um stöðu af þessu tagi, að
sögn Guðmundar Níelssonar,
bæjarritara. Þessi mikli
fjöldi segir sitt um atvinnu-
málín.
Amar Sigurðsson, rafvirki,
hefur verið ráðinn til starfsins.
Aðspuróur sagói Guómund-
ur aó mikil brcidd hcfði verið
hvað varðaði aldur og menntun
umsækjenda. Fleiri karlar en
konur sóttu um og yngra fólk
að megninu til, þó nokkuó
margir sem stundað hafa sum-
arvinnu hjá bænum. Umsækj-
endur voru með allskonar
menntun að sögn Guðmundar,
en ekki var geró krafa um
neina sérstaka menntun er
staóan var auglýst. IM
SK
Alþingi
ÍSLENDINGA
Frá fjárlagadeild Alþingis
Fjárlaganefnd Alþingis ráðgerir að gefa sveitar
stjórnarmönnum kost á að eiga fund með nefndinni
dagana 27.-30. september fyrir hádegi.
Upplýsingar og tímapantanir í síma 630700 frá kl.
9-16 eigi síðar en 23. september nk.
sölu
á Akureyri
miðbæ Akureyrar, stærð
fjölnota húsnæði
samtals 169 fm.
Á efri hæð er hægt að innrétta íbúð en neðri hæðin
hentar vel fyrir hvers konar þjónustu, smáiðnað eða
verslun.
Viltu skapa þér framtíð?
Hugsaðu málið og hafðu samband við:
Fasteignasöluna hf.
Gránufélagsgötu 4, sími 96-21878.
Handhafar veiðileyfa, athugið
Samkvæmt lögum nr. 93/1992 skulu.... skip sem leyfi hafa tii
veiða i atvinnuskyni, sbr. lög nr. 38/1990,... hafa tölusett
vinnsluleyfi til staðfestingar þvi aö fulinægt sé settum skiíyrö-
um.“ Eitt af frumskilyrðum vinnsluleyfis er aö viðkomandi hafi
samning við viðurkennda skoðunarstofu.
Þau skip og bátar, sem ekki hafa gert samning við viðurkennda
skoðunarstofu þann 1. september nk., mega búast við að
verða svipt veiðiieyfinu eftir þann tíms.
Er hér með skorað á alía útgerðaraðiia og handhafs veiðiieyfa
að gera samning við viðurkennda skoðunarstofu sem fyrst,
þannig aö komist veröi hjá óþægindum.
Fiskistofa — Gæðastjómunarsvið.
Nóatúni 17,106 Reykjavík, sfmi 91- 697999.