Dagur - 04.09.1993, Side 9
Laugardagur 4. september 1993 - DAGUR - '
in komi frá heimilum þar sem fyrir séu
vandamál af ýmsu tagi.
„Tilllnningaleg vandamál, óregla og flcira
í þcssum dúr cru vandamál sem fer fjölgandi
hjá unglingum og ég vil kenna því um
hvcrnig þjóðfélagið okkar helur þróast.
Hjónaskilnaðir, óregla, atvinnuleysi, vinna
foreldra utan heimilis. Við þurfum í raun
ekki að fjölyrða frekar um þetta cins augljós-
lcga og þetta blasir við okkur í fjölmiðlum
dags daglega.“
Vilbcrg segir það afskaplega mikilvægt
að forcldrar séu þátttakendur í skólastarfinu.
Sífellt færist í vöxt að rcynt sé að fá þá til
starfa innan skólanna en misjafnlega gangi.
Foreldrar vilja vel
„Við höfum verió heppin hér í skólanum því
við höfum náð nokkuð góðu samstarfi við
foreldra okkar nemenda. Eg hcld að við
vcrðum að hafa það í huga, og ganga út frá
því scm vísu, að öllum foreldrum þykir vænt
um börnin sín og vilja þeim allt hið besta.
Þcir cru því oft á tíðum ckki sáttir við það ef
eitthvað kcmur upp, þeim sárnar og þeir vilja
kcnna skólanum um. Það væri fásinna að
neita því aö mistök geti átt sér stað í skóla-
kerfinu cn sjaldnast held ég þó að því sé
eingöngu um að kcnna. Það kcmur yfirleitt í
Ijós þegar rnálin hafa verið rædd og krufin til
mcrgjar.
Við leggjum mikla áherslu á að lá að ræða
við forcldra um vandamál eða misklíó sem
upp kcmur. Það koma oft upp einhver smá-
vægileg klögumál hjá þeim; einhver hefur
vcrið að stríða þeim eða citthvað í þcim dúr
og þá geta þeir orðið fúlir út í skólastarfió.
Það er þó mjög íljótt aó jafna sig og því ákaf-
lega mikilvægt að foreldrar taki ekki undir
meö þcim þegar og ef skólanum cr hallmælt.
Þeir mcga aldrei láta krakkana finna að þeir
hafi citthvað við skólann að athuga. Hann er
þeirra vinnustaður og þar þarf þcim að líöa
vel næstu árin. Tilfellið er að það er auðvelt
að koma því inn hjá börnum að það sé eðli-
legt aó þykja kennararnir slæmir og skólinn
leiðinlcgur. Slíkt hcfur slæm áhrif á börnin
og þeirra starf innan skólans. Mín skilaboð
til foreldra og forráðamanna eru því aö koma
skilyrðislaust með klögumál til okkar.“
Tekið eins og höfðingja
Skólastjóragrýla er eitthvað sem líklcga flest-
ir kannast við úr sinni skólagöngu. Kennarar
nota skólastjórann sem grýlu á krakka sem
hagar sér ekki í sæmilega. Jafnan er þá grip-
ið til þess alkunna frasa að viökomandi verði
sendur lil skólastiórans ef hann bæti ekki ráó
sitt.
„Það verður aó segjast alvcg cins og cr aö
þaó er líklega talsvert til í því að skólastjórar
séu notaðir á þennan hátt. Eg er ckki hlynnt-
ur því en þctta er undir kennurum komið.
Þeim hættir til þess að nota okkur á þennan
hátt.“
Vilbcrg segist yfirleitt hafa reynt að taka
mildilega á þcim sem sendir hafa verið til
hans, reynt aó ræða við þá eins og maður við
mann.
„Annars hef ég alltaf haft mjög gaman af
því, og reyndar tekið á því nokkurt ntark,
þegar ég hitti gamla nemendur ntína ein-
hvers staðar þar sem þeir starfa í verslun eða
þurfa að þjónusta ntig á einhvern hátt. Það er
sama hversu baldnir þcir hafa verið og hversu
vel og hrcssilega ég hef talað yfir hausamót-
unum á þcini, alltaf skal mér vera tekió cins
og höfðingja og allt fyrir ntig gert. A þcim
stundum sannfærist ég um að skammir og
það að slá í borð geti gert mönnum gott.“
Skulfu á beinununi
Vilberg og Sigurbjörg fóru til Skotlands á
liðnum vetri, drifu sig þar í nám og höfóu
mikið gagn og gaman af. I einni af skoðun-
arferðum sínum loru þau í skóla. Afskaplega
skemmtilegan skóla þar sem krakkarnir voru
fengnir til þess að fara yfir verkefni sem
hcngd höfðu verið upp á veggi skólans.
„Við vorum stödd í skólanum miðjum,
uppi á annarri hæð, þar sem bæði var hátt til
lofts og vítt til veggja. Við gátum horft fram
af svölum þar sem við stóðum og allt í einu
heyrðum við þcssi líka óhljóð. Skólastjórinn,
stór og skessuleg kona, var þá að hirta tvo
tíu ára stráka scm eitthvað höfðu gert af sér
úti á skólalóðinni. Eg hef aldrei um dagana
heyrt aðra cins þrumandi ræðu. Mig langaói
mest til þess að skella upp úr en hugsaði
meó mér aö ef ég ætti eftir að gcra aðra eins
„bommertu" þá væri mér farið að förlast.
Strákagreyin skulfu þarna á beinunum og hún
sagði alltaf „horfiö á mig“, „horfið á mig".
Þcir reyndu að líta upp en hakan seig jafn-
harðan ofan í bringu. Eg þorði ekki að spyrja
hvað þcir höfðu gert af sér en það hlýtur að
hafa verið rosalega alvarlegt,“ segir Vilbcrg
og hlær dátt að þcssari upprifjun.
Vilberg segir þau hjón hafa haft afskap-
lega gott af dvölinni erlcndis. Þau hafi
kynnst fjölbreyttu starfi Skotanna og séð aö
þeir eru að gera margt spcnnandi. Hann scgir
þó að þrátt fyrir margt gott séu þcir áratug-
um á eftir íslendingunt varðandi húsnæóis-
rnál pg annað sem tengist aðbúnaði í skólun-
um. Islcndingar séu reyndar mjög framarlcga
á þessu sviði.
Fólksvagninn kostaði
tveggja ára Iaun
Það sem vakti einna mesta athygli þcirra sem
voru mcð hjónunum í Skotlandi var þegar
þau fóru aö segja frá launamálum kcnnara á
Islandi. Þcir áttu varla orð til þcss að lýsa
undrun sinni og spurðu hvernig í ósköpunum
þau færu að því að draga frant lífið.
„Þaó er engin furða því þaó er misjafnlcga
að kcnnurum búið og laun þeirra eru lág. Mér
finnst þctta til skammar og hefur lcngi fund-
ist. Það cr ekki það til sem kennarar vilja
ekki gera og því cr þctta fyrir neðan allar
hellur. Þetta er krefjandi og erfitt starf og
hreint ekki fyrir hvern sem er. Við höfðum
mjög lélcg laun þcgar við vorum aö byrja og
ég man að fólksvagn scm við keyptum kost-
aði tveggja ára laun. Síðan fór þetta örlítið
upp á við en hefur því miður staðnað nokkuð
síðustu árin. Einhverjir hafa orðið til þcss að
Mynd: Robyn
Texti: Svanur Valgeirsson
segja ástæðuna vcra þá að um kvennastétt sé
að ræöa. Um það skal ég ckkcrt segja en cf
svo er þá er það smánarblettur á okkur Is-
lendingum. Kennarar vinna eitt mikilvæg-
asta starf sern þessi þjóð vinnur, þ.e. að upp-
fræða unglingana og koma þeim til manns.
Ef- við missum hæfasta fólkið úr stéttinni
vegna þess að launin eru lág þori ég ekki að
spá fyrir um framtíðina."
Foreldrar með fyrsta daginn
Vilberg scgist hlakka til komandi vetrar.
Annað sé ekki hægt. Hann hafi góðu fólki á
aö skipa og húsakost eins og best verður á
kosið, með sundlaug og íþróttahúsi. Hann
segir að nú vcrói reynt að brydda upp á ýms-
um nýjungum í vetur. Til dæmis þegar
krakkarnir mæta fyrsta daginn verði reynd sú
nýbreytni að cldri nemendurnir mæti að
kvöldi til og mælst sé til þess að sem flestir
foreldrar komi með.
„Viö ætlum að prófa það núna að láta
nemendur í eldri bckkjum, 7.-10. bekk, mæta
þegar komið cr undir kvöld og taka pabba og
mömmu með. Þar ætlum við að tala við þá
um komandi vetur hjá börnunum. Það cr svo
rnargt sem er fólki sameiginlegt varðandi
krakkana, vasapeningar, útivera á kvöldin og
þar fram eftir götunum. Þaó skiptir nefnilega
miklu máli að foreldrar tali um þessa hluti
og samræmi þá sín á milli svo einn segi ckki
að annar megi vcra úti til 10 ef þaö er ekki
rétt. Foreldrar vita gjarna ekki hvaða reglur
gilda á öðrum hcimilum og til þcss að losna
við allan misskilning sé rétt að tala um þessa
hluti fyrsta daginn í skólanum, miðvikudag-
inn 8. september," segir Vilberg Alcxanders-
son, skólastjóri Glerárskóla.