Dagur - 04.09.1993, Side 22
22 - DAGUR -- Laugardagur 4. september 1993
Popp
Magnús Geir Guðmundsson
Draumurinn búinn
hættir við Black Sabbath
Fyrir nokkrum vikum var skýrt frá
því hér í Poppi að gengið hafði
verið frá því að ein áhrifamesta
hljómsveit þungarokksins, Black
Sabbath, kæmi fram á ný í sinni
upprunalegu mynd í lok þessa
árs og ekki væri loku fyrir það
skotið að um plötuupptöku yrði
að ræóa ef vel tækist til. Hefðu
samningar um þetta tekist milli
upprunameðlimanna fjögra,
Ozzy Osbourne, Tony lommi,
Geezer Butler og Bill Ward og
umboðsmanna þeirra eftir miklar
viðræður, en hugmyndin af því
að koma saman aftur kviknaði
eftir að lommi, Butler og Ward
komu fram með Osbourne á
kveðjutónleikum hans sem sóló-
listamaður. En eins og stundum
vill veróa þá skipast veður skjótt
í lofti, þannig að allt fer öðruvísi
en vonir standa til. Sú hefur
nefnilega orðið raunin meó
þessa fyrirhuguóu endurkomu
Black Sabbath, því á síðustu
stundu hefur hún nú verið afboð-
uó og virðist ekki annað blasa
við en aó það sé endanleg nióur-
staða. Fara því þær um níu
- Ozzy Osbourne
mánaða erfiðu viðræður sem
fram fóru til að koma hlutunum á
fyrir lítið. Var það í byrjun ágúst
sem Ijóst varð að ekkert yrói af
endurkomudraumnum, en þá
sendi söngvarinn Ossy frá sér
þá yfirlýsingu að þrátt fyrir orð
um að samkomulag væri í höfn,
þá hefðu málin á síðustu stundu
farió á annan veg. í viðtali fyrir
tveimur vikum eða svo, skýyrði
Osbourne síðan frekar frá
ástæðum þess hvernig fór, en
þær liggja fyrst og fremst hjá
honum og eru svo sem ekki
flóknar né óeðlilegar. Segist
hann einfaldlega ekki hafa verið
tilbúinn að stíga skrefið til fulls
þegar til kastanna kom. Eftir að
síðasta tónleikaferðalagi hans
lauk hafi hann átt dásamlegan
tíma meó konu sinni og börnum
sem hann vilji halda áfram enn
um sinn. „Síðustu níu mánuði
hef ég eytt meiri tíma með þeim
en nokkru sinni áður og því vil
ég halda áfram. Ef ég ætla að
fara í tónleikaferð aftur, með
Sabbath eða einhverjum öðrum,
verð ég að vera fullkomlega til-
A Ozzy Osbourne hætti við á síð-
ustu stundu að ganga á ný til liðs við
gömlu félagana í Black Sabbath.
búinn til þess og geta gefið mig
allan í þaó. Þegar til kom að
skrifa átti undir samningana varð
mér Ijóst að svo var ekki. Ég
væri ekki tilbúinn að halda af
stað á ný strax," segir Osbourne
til útskýringar og tekur ennfrem-
ur skýrt fram að ekki sé á neinn
hátt um ágreining að ræða við
hina Sabbathmeðlimina þrjá.
Vonast hann reyndar til þess að
reyna megi aftur með endur-
komu þeirra fjögurra einhvern
tímann í náinni framtíð, en slíkt
verður að telja harla ólíklegt eins
og áður segir. Kemur það líka
fram í yfirlýsingu frá lommi og
Butler aó þeir hyggjast vinna
plötu með söngvaranum Tony
Martin, en hann hefur áður sung-
ið inn á þrjár plötur undir merki
Black Sabbath, sem þykja hver
annarri betri. Hins vegar mun
þaó vera óvíst, eins og áður hef-
ur verið sagt frá hér á síðunni,
hvort sú nýja verður undir nafni
Sabbath þar sem einhverjar
lagaflækjur kunna að hamla því.
Það verkefni mun því a.m.k. taka
eitt ár, þannig að Sabbath í sinni
upprunalegu mynd er ekki
möguleg né hugsanleg nema að
eitthvað mjög svo óvænt gerist.
Ozzy sjálfur, sem nú er staddur í
Karabíska hafinu, hefur heldur
ekki setið auðum höndum hvaó
tónlistina varðar, því auk þess
að hafa sinnt fjölskyldunni síð-
ustu mánuði, hefur hann komið
út tónleikaefni sem kunnugt er
og er nú einnig langt kominn
með nýja sólóplötu, sem gengur
undir vinnuheitinu See you on
the other side. Henni mun þó
ekki vera ætlunin að fylgja eftir
meó tónleikaferð, þar sem Osbo-
urne segist vera hættur öllu slíku
einn síns liðs að minnsta kosti.
Þess má svo geta að lokum að
Ronnie James Dio, sem var síó-
ast söngvari í Black Sabbath og
kom hingað til lands í fyrra sem
slíkur á Skagarokkið, hefur end-
urreist sína eigin sveit, Dio, og
kemur ný plata frá henni 18.
október. Mun hún líklega bera
heitið Strange highways og verð-
ur sjötta hljóóversplata hljóm-
sveitarinnar. Með Dio nú eru
Vinnie Appice trommuleikari,
sem var líka í Sabbath hér á
landi og var einnig áóur með Dio
(hljómsveitinni), Traccy G. gítar-
leikari og bassaleikarinn Jeff
Pilson, sem áður spilaði meó
Dokken.
Úrýmsum áttum
• Það hefur ekki farið framhjá
neinum að allt var (og er
kannski ennþá) vitlaust útaf
þeim fregnum af poppgoðinu
Michael Jackson að hann eigi
samkvæmt ásökunum að hafa
misnotað unglingsdrengi kyn-
ferðislega. Ekki skal lagður
dómur á þaö hér hvort eitthvað
geti verið til í þessu né reynt að
botna í öllum vitleysisganginum
í kjölfarið, en þaö er deginum
Ijósara að ýmislegt býr að baki,
hvor sem svo hefur rétt fyrir
sér. Það gæti auðvitað vel ver-
ið að strákurinn Michael hafi
„fitlað“ eitthvað meira en vel-
sæmislög gera ráð fyrir, en hitt
er engu líklegra og reyndar
virðist það sannað, að um sé
að ræöa Ijótan hefnigirnisleik
þar sem viðkomandi foreldrar
láta sig ekki muna um að nota
sitt eigið barn sem áhrifamikið
vopn. En hvað sem því líður þá
er það aldeilis ekki nýtt að
frægir tónlistarmenn fái á sig
ákærur, eða verói beinlínis
uppvísir af vafasamri kynhegð-
um. Má sem dæmi um það
nefna tvo af frægari og áhrifa-
meiri postulum rokksins, þá
Jerry Lee Lewis og Chuck
Berry, en orðspor þeirra í þess-
um efnum var mikið svo ekki sé
meira sagt. Má í því sambandi
rifja upp það hneyksli þegar Le-
wis opinberaði áhuga sinn á
„ungu holdi“ með því aó giftast
13-14 ára frænku sinni, en það
var engin smábomba. Berry
hefur sömuleiðis haft sambæri-
legan „áhuga“, en þó enn
svæsnari en Lewis að því hald-
ið er fram. Er það til dæmis
ekki langt síðan að karlinn var
bendlaður við heimatilbúið
barnaklám, sem þó var eitthvaó
orðum aukið. Þeir eru því
margir misjafnir sauðirnir í tón-
listinni eins og annars staðar
og þarf það ekki að koma á
óvart.
• Nú er það Ijóst að um nokk-
urs konar pakkaútgáfu verður
að ræða hjá stórsveitinni þungu
Metallica á ýmsu tónleikagóð-
meti. Eins og fram kom í Poppi
fyrr í sumar, var búist við stórri
tónleikaútgáfu frá hljómsveitinni
með a.m.k. tveimur geisla-
plötum og tveimur myndbönd-
um, en nú er gert ráó fyrir aö
um eitt myndband og einn sér-
stakan geisladisk verði að tefla
sem einungis verði seld saman
í pakka. Verður efnið á mynd-
bandinu og geisladiskinum
blanda af upptökum héðan og
þaðan á ferðum Metallica, en
aö sögn félaganna, Hetfield
söngvara og Ulrich trommara,
spannar útgáfan nánast öll lög-
in þeirra sem þeir hafa tekið á
tónleikum. Nafnið á „pakkan-
um“ er enn óþekkt, en vonast
er til að af útgáfunni verði í lok
nóvember.
• Poppdúettinn gríðarvinsæli
Pet Shop Boys lætur ekki deig-
an síga frekar en fyrri daginn,
því von er á nýrri plötu frá þeim
félögum þann tuttugasta þessa
mánaóar. Kallast hún stutt og
laggott Very og mun geyma
samtals tólf lög. Sáu þeir félag-
arnir sjálfir um upptökustjórnina
á plötunni ásamt Stephen
Hogue. Sér til fulltingis hafa svo
Pet shop boys á plötunni Anne
Dudley, sem ég hygg að sé
velþekkt söngkona. Er slíkur
gestagangur ekki nýmæli hjá
hljómsveitinni, því fyrir nokkrum
árum söng m.a. sú fræga Dusty
Springfield með henni á plötu
við miklar vinsældir.
• Jarðarfarir mannlegra leifa
og allt sem þeim tilheyrir eru
daglegt brauð í tilveru okkar og
fastur og óhjákvæmilegur þátt-
ur í henni. Þaö er hins vegar
heldur óvenjulegra að huglægt
og tilbúið fyrirbæri sé „lagt til
grafar“ og þess minnst með
„erfidrykkju", eins og raunin
varð um daginn með plötuút-
gáfufyrirtækið Def American.
Nafn þess og minning var
nefnilega greftrað með pompi
og prakt í kirkjugarði í Holly-
wood fyrir nokkrum dögum, en
þó reyndar ekki í neinni sorg.
Fyrirtækið sem slíkt er nefni-
lega í fullu fjöri, en ákveðið var
að „farga" Def nafninu þar sem
það þykir einhverra hluta vegna
heldur gamaldags. Nýja nafn
fyrirtækisins, sem er aó mestu í
eigu upptökustjórans fræga,
A Pet Shop Boys gleðja brátt að-
dáendur sína með nýrri plötu.
■4 Michael Jackson er ekki sá eini
af stjörnum poppheimsins, sem
fengið hefur á sig ásakanir um
vafasamt athæfi.
A Shamen eru með nýtt verk í vinnslu.
Rick Rubin, er American Rec-
ordings og var skírninni fagnað
formlega með rækilegu veislu-
haldi. Meðal hljómsveita á
Def/American recordings merk-
inu má nefna Black Crowes,
Slayer, Masters of Reality, Red
Devils m.a.
Margt Smátt...
• Ef allt hefur gengið eins og
fyrirhugað var, hefur nú banda-
ríska hljómsveitin Lemonheads,
sem vakti mikla athygli með
síðustu plötu sinni Its a shame
about Ray og þá ekki síður
með útgáfu sinni á Simon &
Gartfunkel laginu fræga Mrs
Robinson, lokið vinnslu á nýrri
plötu. Nefnist hún Come on fe-
el the Lemonheads og er
væntanleg innan skamms...
• Danspoppsveitin Shamen,
sem nokkuð á óvart sló ræki-
lega í gegn meö plötunni sinni
Boss drum á síðasta ári og er á
mála hjá sama fyrirtæki og
Björk (og Sykurmolarnir áður)
One little indian, eru sömuleiðis
líkt og Lemonheads að Ijúka
gerð nýrrar plötu. Nafnið er enn
á huldu, en gripurinn á að vera
fáanlegur fyrir árslok...
• Hljómsveitin 10.000 Maniacs
hefur nú séð á eftir aöallaga-
höfundi sínum og söngkonu
Natalie Merchant, sem ákveöið
hefur að hætta eftir að hafa
verið í henni í tólf ár. Segir
söngkonan aó það hafi tekið
sig um tvö ár að taka þessa
ákvörðun. Hefur hljómsveitin
sjálf í kjölfar þessa lagt upp
laupana. Fór viðskilnaðurinn
fram án nokkurra sárinda og
skildu meðlimirnir í vinsemd...
• Plata til heiðurs minningunni
um Johnny Thenders, gítarleik-
arans í hinni frægu New York-
sveit New York dolls, er nú í
vinnslu. Leggja þar margir
þekktir tónlistarmenn hönd á
plóg og m.a. Chrissie Hynde
(úr Pretenders), Dr. John,
David Johansen (öðru nafni
Buster Pointdexter fyrrum
söngvari New York dolls) o.fl.
Rennur ágóði af plötunni, ef
einhver verður, til eftirlifandi
fjölskyldu Thunders...
• Ein helsta hljómsveitin sem
enn trekkir í thrashrokkinu,
Sepultura frá Brasilíu, hefur
lokið gerð á sinni nýjustu plötu,
sem koma á út 11. október.
Mun hún bera titilinn Chaos AD
og verður sú firnmta í röðinni
frá Sepultura. Á henni veróur
m.a. aö finna túlkun á Nwq
model army laginu The hunt og
ósungið kassagítarlag sem kall-
ast Kalowas, sem að ku vera
það þyngsta sinnar tegundar
sem sett hefur verið á plast...
• Fight, sveitin sem fyrrum
söngvari þungarokksgoðanna í
Judas Priest, Rob Halford,
stofnaði á síðasta ári, sendir frá
sér sína fyrstu plötu á vegum
Epic útgáfunnar þann þrettánda
þessa mánaðar. Nefnist hún
War of words og mun tónlistin á
henni vera í líkingu við það
sem sveitir á borð við hina ný-
vinsælu Pantera eru aö gera.
Fyrrum félagar Halfords eru
svo líka í plötuhugleiðingum...
• Takttvíeyki Seattlesveitarinn-
ar Soundgarden, þeir Matt
Cameron trommari og Ben
Shephard bassaleikari hafa sett
saman hljómsveit í hjáverkum
frá Soundgarden undir nafninu
Hater. Hafa þeir nú lokið vió að
taka upp samnefnda plötu sem
kemur út 21. þessa mánaðar.
Söngvari Soundgarden, Chris
Cornell, sinnir líka aukaverkefn-
um, því hann hefur verið að
semja efni með gítarleikara Al-
ice in chains, Jerry Cantrell.
Þeir allir þrír eru svo einnig í
hljóðveri þessa dagana að
vinna nýja plötu með Sound-
garden.