Dagur - 04.09.1993, Síða 24
Umdæmanefnd kynnti sameiningartillögur sínar á aðalfundi Eyþings í gær:
Sveitarfélögum fækki úr 30 í 5
Umdæmanefnd Eyþings leggur
til að sveitarfélögum á Norður-
< landi eystra verði fækkað úr 30
I í S. Guðný Sverrisdóttir, for-
maður nefndarinnar, kynnti
sameiningartillögurnar á aðal-
fundi Eyþings í gær. Umdæma-
nefnd ieggur tii að sveitarfélög í
Eyjafirði auk Hálshrepps í Suð-
ur-ÞingeyjarsýsIu sameinist í
eitt sveitarfélag, öll Suður-Þing-
eyjarsýsla að Hálshreppi undan-
skildum verði eitt sveitarfélag
og í Norður-Þingeyjarsýslu
verði þrjú sveitarfélög.
Tillaga umdæmanefndar tekur
til allra sveitarfélaga í kjördæminu
og því er ljóst að allir kosninga-
bærir íbúar þar ganga að kjörborð-
inu þann 20. nóvember nk. til þess
að taka afstöðu til tillagnanna.
í umdæmanefndinni eru Guðný
Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtu-
bakkahrepps, Sigríður Stefáns-
dóttir, formaður bæjarráðs Akur-
eyrar, Dagur Jóhannesson, oddviti
Aðaldælahrepps, Guðmundur
Guðmundsson, sveitarstjóri Rauf-
arhafnarhrepps, og Sigurður Rún-
ar Ragnarsson, sveitarstjóri Skútu-
staðahrepps. Starfsmaður nefndar-
innar er Hjalti Jóhannesson, land-
fræðingur.
Nefndin átti fundi með öllum
sveitarstjómum í kjördæminu þar
sem hún leitaði eftir hugmyndum
sveitarstjómarmanna um hvaða
sameiningarform þeir vildu helst
og/eða teldu almenning í sínu
sveitarfélagi helst vilja.
Að þessum fundarhöldum
loknum komst umdæmefndin að
þeirri niðurstöðu að leggja til að
sveitarfélögin verði fimm.
Eyjafjörður í eina sæng
Lagt er til að Eyjafjörður verði eitt
sveitarfélag, sem þýðir að íbúar
þar yrðu um 21 þúsund. Þau sveit-
arfélög sem tillaga er gerð um að
sameinist eru: Akureyrarbær, Am-
ameshreppur, Árskógshreppur,
Q HELGARVEÐRIÐ
Sumarið verður áfram við
lýði um helgina því búist er
við hægri breytilegri átt um
norðanvert landið í dag og á
morgun. Gera má ráð fyrir
þokubökkun - einkum við
ströndina. Hiti á landinu
verður 5 til 15 gráður yfir
daginn en 2 til 8 um nætur.
Dalvíkurbær, Eyjafjarðarsveit,
Glæsibæjarhreppur, Grímseyjar-
hreppur, Grýtubakkahreppur,
Hálshreppur, Hríseyjarhreppur,
Ólafsfjarðarbær, Skriðuhreppur,
Svalbarðsstrandarhreppur, Svarf-
aðardalshreppur og Öxnadals-
hreppur.
Umdæmanefnd segir í greinar-
gerð með þessari tillögu að með
því að leggja til að í Eyjafirði
verði eitt sveitarfélag sé fylgt að
miklu leyti þeim ramma sam lagt
var til að umdæmanefndir ynnu
eftir. „Umdæmanefnd telur að
Eyjafjörður geti, sem eitt sveitar-
félag, orðið sterkara mótvægi
gegn höfuðborgarsvæðinu, at-
vinnulíf fjölbreyttara og byggða-
þróun jákvæðari."
Stór sameining í Suður-
Pingeyjarsýslu
Umdæmanefnd leggur til að öll
sveitarfélög í Suður-Þingeyjar-
sýslu að Hálshreppi undanskildum
sameinist. íbúar þessara sveitarfé-
laga, sem eru Áðaldælahreppur,
Bárðdælahreppur, Húsavíkurbær,
Ljósavatnshreppur, Reykdæla-
hreppur, Reykjahreppur, Skútu-
staðahreppur og Tjömeshreppur,
eru um 4.200.
Fram kemur í greinargerð um-
dæmanefndar að hún hafi komist
að raun um að með fáum undan-
tekningum hafi ekki verið ákveð-
inn vilji fyrir sérstöku sameining-
arformi. Því sé gerð tillaga um
þann sameiningarkost sem nái
lengst. Þá segir í greinargerðinni
að umdæmanefnd vænti þess að
með tilliti til byggðaþróunar verði
Suður-Þing. sterkari eining sem
eitt sveitarfélag. Gert er ráð fyrir
að Húsavík verði aðalþjónustu-
kjami í sveitarfélaginu, en líklega
þurfi að hafa 2-3 þjónustukjama í
því.
Þrjú sveitarfélög í Norður-
Þingeyjarsýslu
Gerð er tillaga um að Norður-
Þingeyjarsýsla skiptist upp í þrjú
sveitarfélög. í fyrsta lagi 500 íbúa
sveitarfélag í Öxarfirði, sem sam-
anstandi af Fjallahreppi, Keldu-
neshreppi og Öxarfjarðarhreppi að
hluta. I öðm lagi 600 íbúa sveitar-
félag í Þistilfirði sem samanstandi
af Sauðaneshreppi, Svalbarðs-
hreppi að hluta og Þórshafnar-
hreppi. Þriðja sveitarfélagið, þar
sem yrðu um 400 íbúar, tæki til
Raufarhafnarhrepps, Svalbarðs-
hrepps að hluta og Öxarfjarðar-
hrepps að hluta.
I greinargerð umdæmanefndar
um þessa tillögu segir m.a.: „í N.-
Þingeyjarsýslu eru þrír þjónustu-
kjamar (íbúar í hverju þjónustu-
svæði u.þ.b. 400-600) og enginn
þeirra hefur, m.a. vegna
samgönguerfiðleika, tækifæri til
að verða aðalþjónustukjami. Þess
vegna er lagt til að sveitarfélögin
verði þrjú og sveitarfélagamörk
falli að mörkum þjónustusvæð-
anna.“
Nauðsynlegar aðgerðir
í greinargerð umdæmanefndar
kemur fram sú skoðun að fyrir
stærstu sveitarfélögin þyrfti að
vinna að gerð nýs stjómkerfis og
jafnvel kosningafyrirkomulags,
þar sem þess væri gætt að rödd
allra byggða innan sveitarfélags-
ins nái að heyrast. Þá segir að gera
þyrfti samninga um margvísleg
staðbundin málefni, s.s. fjallskil,
nýtingu hlunninda, mannvirki og
stofnanir, snjómokstur o.fl.
Eins og áður segir verður kosið
um tillögumar 20. nóvember nk.
Hljóti hver tillaga meirihluta
greiddra atkvæða í öllum hlutað-
eigandi sveitarfélögum, skulu
sveitarstjómir taka ákvarðanir um
fjárhag sveitarfélaganna, fjölda
fulltrúa í nýrri sveitarstjóm, nafn
hins sameinaða sveitarfélags og
önnur nauðsynleg atriði. óþh
- 8 sveitarfélög
- Um 4200 íbúar
- Fjallahreppur,
Keldunes-
hreppur og
Öxarfjarðar-
hr. að hluta
- Um 500 íbúar
Raufarhöfn
- Raufarhafnarhreppur,
Svalbarðshr. að hluta
og Öxarfjarðarhr. að
hluta
Um 400 íbúar/
Þistilfjörður
- Sauðaneshreppur,
Svalbarðshr. að hluta
og Þórshafnarhreppur
- Um 600 íbúar
Eyjafjörður
-15 sveitarfélög
- Um 21 þ. íbúar
Sameining sveitarfélaga á
Norðurlandi eystra samkvæmt
tillögu umdæmanefndar Eyþings.
Kortið sýnir tillögur umdæmanefndar Eyþings að nýjum hrcppamörkum á Norðurlandi eystra. Lagt er til að
sveitarfélögum fækki úr 30 í 5. í fjölmennasta sveitarfélaginu verði um 21 þúsund íbúar en 400 íbúar í því
fámennasta. Kosið verður um þessar tillögur í öllum sveitarfélögum á Norðurlandi eystra. 20 nóvember nk.
Höfum opnað glæsilega varahlutayershm að Dalsbraut 1.
UERSLUN - mAHLUTIR - UIÐGERÐIR
mmáamm jle- mmrnm i * sm- nsn