Dagur - 17.12.1993, Blaðsíða 11

Dagur - 17.12.1993, Blaðsíða 11
Einu sinni var prcstur nol3uir, vænn maður og vel megandi. Hann var nýkvæntur, er þessi saga gerðist, og átti liann unga og fríða konu, er honum þótti einkar vænt um, enda var hún að öllu afbragð annarra kvenna í nálægum sveitum um þann tíma. Nokkur ann- marki var þó á um ráð hennar, er presti þóttl ekki svo lítils- verðrn, og það var, að hún hvarf á burt hveija jólanótt og vissi enginn, hvað af henni varð. Spurði þó prestur hana oft og þrásamlega um það, en hún sagði liann það engu varða. Það eina varð þeim að sundurþyldíju. Einhverju sinni vistaðist til prests förudrengur nokkur. Hann var lítilmenni á vöxt og viðgang, en það ætluðu menn hann mundi vita fleira fyrir sér en aðrir menn óbreyttir. Líður svo fram til jóla, að ekkert ber til tíðinda. En á aðfarakveld jóla er dreng- ur úti í hesthúsi að kemba og hirða eldishesta prestsins. Hann veit ekki fyrr til en konu prestsins vindur þar inn og gefur hún sig á tal við dreng um ýmsa hluti. Og er minnst varði, bregður hún beisli undan svuntu sinni og legg- ur við dreng; fylgir því svo mikið töfraafl, að drengur líður prests- konunni að fara á bak sér, og hleypur hann þegar á stað sem fugl fljúgi. Fer hann yfir fjöll og dali, kletta og klungur og hvað, sem fyrir er, - er því líkast sem hann vaði reyk mikinn. Loksins koma þau að liúsi einu litlu. Þar fer hún af baki og bind- ur dreng við hæl einn, er stóð í húsveggnum. Prestskonan geng- ur að dyrum hússins og klappar upp á. Kemur þar út maður og fagnar henni ágæta vel. Leiðir hann prestskonu með sér inn í húsið. En er þau eru horfin, leys- ir drengur beislið frá hælnum og nær því síðan fram af sér og stingur því hjá sér. Síðan læðist hann upp á húsið og sér inn um rifu, sem á var þekjunni, hvað um er að vera inni. Líður svo undir morgun, og segja konurnar, að nú muni mál að fara. Er þá kennslunni hætt; en konurnar taka upp hjá sér sitt glasið hver og rétta húsráðanda. Sér drengur, að í þeim er eitt- hvað rauðleitt, er húsráðandinn sýpur, og réttir síðan konunum aftur glösin. Kveðja þær hann síðan með mestu virktum og fara út úr húsinu. Sér þá drengur, að konurnar hafa allar sitt beislið hver og eiga sinn reiðskjótann hver: ein hefur hrosslegg, önnur kjálka, þriðja herðablað o.s.frv. Tekur hver sinn reiðskjóta og ríða á burt. Hann sér, að þar sitja tólf kon- ur við eitt borð og maður sá, er út kom, hinn þrettándi. Þar þekkir hann húsmóður sína. Það sér hann, að konurnar bera mikla virðingu fyrir þessum manni, og eru þær að segja honum ýmislegt af brögðum sínum og listum. Þar á meðal segir prestskonan frá því, er hún hefur riðið hingað lif- andi manni, óg þykir húsráðanda það mikil býsn, því það sé hin rammasta gandreið að ríða lif- andi manni. Segir hann hana mundi verða afbragð annarra í galdri, - „því þetta vissi ég engan áður kunna nema sjálfan mig.“ Hinar konurnar vaða þá allar upp til handa og fóta og biðja hann kenna sér þessa list. Leggur hann þá bók fram á borðið, gráa ílits og ritaða rríéð eldi eða eldslit- um stöfum. Bar af stöfunum glætu nokkra um húsið, og var þar ekki önnur birta. Tekur nú húsráðandinn til að kenna kon- unum á bók þessa og útskýra fyr- ir þeim innihald hennar, og nem- ur drengur allt eftir, það sem hinn hafði fyrir. En frá prestskonunni er það að segja, að hún finnur hvergi sinn reiðskjóta. Ærist hún í kringum allt húsið, og er minnst varir, stekkur drengur ofan af húsinu og að henni og kemur á hana beislinu. Sest síðan á bak og heldur heim á leið. Hefur hann lært svo mikið um nóttina, að hann getur stýrt prestskonu rétta leið, og segir ekki af ferð þeirra, fyrr en þau komu aftur í hesthús- ið, sama og þau fóru frá. Þar fer drengur af baki og bindur prests- konuna í hesthúsinu. Gengur síð- an heim og segir tíðindin, livar hann hafi verið, og hvar prests- konan sé nú niðurkomin, og með hverjum atburðum þetta hafi Orðið. Verður öllum mönnum bilt við, ekki síst presti. Er nú prestskonan tekin og krafin til sagna. Meðkennir hún loksins, að hún og ellefu prestskonur aðr- ar hafi um nokkur ár gengið á Svartaskóla og fjandinn sjálfur hafi kennt þeim þar galdur og að einungis eitt ár hafi verið eftir af þeirra kennslutíma. Segir hún, að hann hafi áskilið sér tíðablóð þeirra í kennslukaupið og það hafi verið það, sem drengur sá rautt í glösunum. Eru síðan prestskonunni goldin makleg málagjöld sinnar illsku. Jón Sigurðsson á Gautlöndum. Gandreiðin Þjóðsaga Föstudagur 11. desember 1993 - DAGUR - B 11 A4;A4A4A:4A:4A.4A.4 4 4 4 3co(u lóln 00 nýnroóðftít sendum við öllum viðsfiiptavinuni okkar og landsmönnum öllum. Þökkum viðskiptin d árinu. K* BLIKKRÁS HF. Hjalteyrargötu 6 - Sími 26524 á4á4á4á4á4á4á4 4 'Sendum öllum viðskipta vinum okkar óskir um 0feðífe0 JÓl olj jursitld á komandi ári. ^Pedtomyndin? Skipagata 16 . 600 Akureyri • Sími 96 - 23520 A4A:4A4A4A4A4A4 á4á4á4á4á4á444 4 ^ Óskum viðskipta- q vinum okkar * 0lCðílC0M jóln ^ oíj farsœls komandi árs Þökkinn viðskiptin. SÉRLEYFISBÍLAR OUCtJ AKUREYRAR HF. Dalsbraut 1 - Sími 23510 i4á4A4li4á444á4 á4*4á4á4á4á4á4 4 4 4 k 4 Sendum viðskiptavinum oij [ands- mönnum öllum bestu óskir um 0(OÖÍÍO0 JÓt olj jarsœld á komandi ári. Þökkuni árið sem er að líða. Sandblástur og málmhúöun sf. Akureyri - Sími 22122 *#*#*#*#*#*#*# *#*#*#*#*#*#*# * + # 1 <$8ítUítQ ÍÓI jarsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á liðnu ári. Stjörnu-Apótek Hafnarstræti 93-95 - Símar 30451 & 30452 *#*#*#*#*#*#*# * # * *»*,»»*,*»*,»»***>*,#» #► #► ** #► 4* #► 4* #► 4> #► #► 4* #► 4* #► 4* #► 4* #► 4> #► #► 4* #► 4* *► 4* 4» »► 4>

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.