Dagur - 17.12.1993, Blaðsíða 37

Dagur - 17.12.1993, Blaðsíða 37
Föstudagur 17. desember 1993 - DAGUR - B 37 Hvað mundir þú aldrei gefa í jólagjöf? Margrét Kristinsdóttir. „Egg- og bitvopn koma ekki til greina" - segir Margrét Kristinsdóttir, húsmæðrakennari á Akureyri „Ég hcf nú aldrei leitt hugann að því sér- staklega hvaó ekki komi til greina sem jóla- gjöf en eitt man ég þó eftir sem ég mundi aidrei gefa. Þaö er eggvopn cða bitjárn, skæri eða hnífar eða eitthvað slíkt. I gamla daga var gjarnan sagt að slíkt mætti ekki gefa, jafnvel ekki tertuhnífa, án þess að láta þiggjandann þá borga eitthvað í gjöfinni þannig að vináttan slitnaði ekki. Ég man t.d. eftir að ég fékk í brúðargjöf tertuspaða og ég var látin borga krónu í spaðanum. Svo þætti mér ekkert gaman að því að gefa garðyrkjuáhöld í jólagjöf en þvert á móti gæti ég vel hugsað mér að gefa veiði- útbúnað. Hvaó varðar áfcngi þá fer allt eftir því hverjum er verið að gefa. Til dæmis cr hægt að gefa þeini koníaksflösku sem gaman hafa af því aó taka á móti gestum en auóvit- að kemur ckki til greina að gela þeim áfengi sem hættir til aó drekka of mikið. Ég er heldur ckki mikið fyrir að gefa konfekt, kannski vegna þcss að ég verð sjálf óskap- lega skúffuö ef ég fæ konfekt því ég má helst ekki borða það. Svo finnst mér afskaplega órómantískt þcgar hjón cru að gcfa hvort öðru eldhús- áhöld. Það er hins vegar allt annað ef hjón koma sér saman um að eyða aurunum sam- eiginlega í eitthvert hcimilistæki en gefa svo hvort öðru einhverja pcrsónulega smá- gjöf. Mér finnst meginreglan vera sú að gjafirnar glcðji. Hvað varðar börnin þá gcf ég barnabörnunum ekki stríðslcikföng vcgna þess að foreldrar þeirra óska cftir því og svo finnst mér auóveldlega vera hægt að gcl'a þcim margt annað. Það er nóg ofbeldi sem börnin sjá í sjónvarpinu þó ekki sé vcr- ið aó halda því að þeim mcð lcikföngun- um.“ „Gef ekki gæludýr eða skrautmuni" - segir Þórunn Bergsdóttir skólastjóri á Dalvík „Ég mundi aldrei gefa gæludýr í jólagjöf. Stjúpdætur mínar fengu einu sinni tvær litl- ar hvítar mýs í jólagjöf og sú gjöf hitti ágætlega í mark hjá þeim en það leið ekki á löngu þar til mýsnar voru orðnar 50. Gælu- dýrin koma í mínum huga alls ekki til greina. Ég er opin fyrir alls konar jólagjöfum og raunar finnst mér aó gefa eigi eftir aðstæð- um þess sem á að fá gjöfina. Ég ætla til dæmis að gefa dóttur minni matarkörfu sem hún óskaði eftir enda hún og kærastinn í námi og þessi gjöf kemur sér vel. Ég mundi aldrei gefa mínum manni eld- húsáhöld þó hann eldi oftar en ég og honum kæmi aldrei í hug að gefa mér eldhúsáhöld. Hins vegar gætum við gefió börnunum t.d. pönnu eóa þau okkur. Ég get hugsað mér að gefa fólki sem er aó byrja aó búa eitthvaó í eldhúsið en ég léti mér aldrei detta í hug að gel'a dóttur minni eða tengdadóttur eldhús- áhöld en kærastanum bók. Slíkt mundi ég aldrei gera. Jú, nú kemur mér í hug ein gjöf sem alls ekki kemur til greina. Þaö er að gel'a skraut- muni í stofu. Astæóan er einfaldlega sú að ég vil ekki troða mínum smekk upp á aðra. Ég reyni að gefa gjafir þar sem ég er ekki aö koma mínum smekk yfir á aóra. Gjafirn- ar verða þá frekar að vera praktískar og hafa notagildi. Mér finnst skemmtilegast að gefa bækur og þeim er hægt að skipta og ef gefa á börnunum fatnað þá er ágætt að hafa þau með í ráóum. Svo er ágætt að gefa vekjaraklukku en auóvitað má skilja ákvcðna meiningu í þcirri gjöf!“ Þórunn Bergsdóttir. Jakob Björnsson. „Áfengi kemur alls ekki til greina sem jólagjöf" - segir Jakob Björnsson, bæjarfulltrúi á Akureyri „Yfirleitt hefur nú spurningin snúist um hvað í ósköpunum maóur eigi að gefa í jólagjöf en ekki hvaó maður mundi alls ekki gefa. Auóvitaó takmarkast ýmislegt út frá veróinu ef vió lítum þannig á þetta. Ég held að ég mundi ekki gefa mat í jólagjöf, nema þá kannski gjafakort sem ávísun á veitingahús. En tæplega mundi ég kaupa hangikjötslæri til að gefa sem per- sónulega gjöf. Einhvern veginn finnst mér að gjafirnar þurfi að vera eitthvaó sem fólk á en ekki eitthvað matarkyns eða sem fólk drekkur. Ég mundi alls ekki gefa áfengi án þess aó þaö sé einhver bannvara hjá okkur. Hugsanlega mundi ég gefa slíkt í tækifæris- gjöf eða afmælisgjöf en alls ekki sem jóla- gjöf- Ég mundi líka sneiöa hjá því að gefa börnurn stríðsleikföng þó það hafi þótt í lagi þegar ég var yngri. Mér finnst margt annað skemmtilegt fyrir börnin, t.d. eitthvað sem þroskar hjá þeim hugmyndallugió. Konunni mundi ég aldrei gefa cldhús- áhöld eða eitthvað sem hcfói með daglcga húsmóðurumsýslu að gera. Stundum höfum við sameinast um citthvað til okkar beggja á heimilið, sérstaklega þegar um einhverja stærri hluti hefur verið að ræóa. En nei, ég gef konunni ekki til heimilisins en rcyndar er ég oft svo hugmyndasnauður að ég enda í einhvcrju scm hún velur þá sjálf. Heilt yfir þá reynir maður að finna út eitthvað til að gefa sem viðkomandi hefur sérstakan áhuga á aö fá þannig aó gjöfinni l'ylgi ánægja og einhver tilgangur sé með henni. Þaó held ég að sé hclsta reglan.“ Gæfi konunni minni aldrei bíltjakk - segir Svavar A.Jónsson, sóknarprestur í Olafsfirði „Ég held að meginreglan varðandi jólagjöf- ina sé sú að hún gleðji þann sem hana fær. Og svo fer það allt eftir því hver á að fá gjöfina hvað hæfir. Við getum til dæmis sagt að sumir mundu gleðjast mjög heitt og innilega ef þeir fengju borvél í afmælisgjöf og hún getur vissulega verið rómantísk gjöf en ég held til dæmis aó það þýddi lítið fyrir mig aó gefa konunni minni höggborvél í jólagjöf. Svo við veltum þessu aðeins meira fyrir okkur þá held á aó ég mundi aldrei gefa fisk í jólagjöf og aldrei gefa konunni minni bíltjakk eða ömmu minni fótboltaskó með stáltökkum eða kannski gefa henni tölvuspil. Ég held að reglan sé aó gefa ekki gjafir sem viðkomandi notar ekki og við- komandi hefur enga ánægju af að fá. Síðan er hægt að hugsa þetta út frá því að það er ýmislegt sem maður gæti ekki hugsað sér sjálfur að fá. Við getum til dæm- is nefnt kennslubók í vélritun, eða eitthvað í þeim dúr. Sú gjöf gæti hins vegar glatt ein- hvern þann sem not hefði fyrir hana. Ég mundi aldrei gefa einhverja gjöf sem væri til þeirra nota einna að skaða fólk eða niðurlægja það. Þó man ég eftir því að vindl- ar hafa verið gefnir í jólagjöf og ekki veróur sagt annað en þcir geti verið til skaða. En sennilega verður að líta á þá gjöf eins og þegar gefið er áfengi, meginmálið er hvemig viðkomandi notar það. Og talandi um þetta þá dettur mér í hug ein gjöf sem ekki kemur til greina í mínum huga og þaó er bjórkassi. Mér kæmi ekki í hug að gefa bjórkassa í jólagjöf en sennilegast er það vegna þess hve erfitt er að pakka honum inn. Eg mundi þá frekar velja fallega líkjörsflösku en aldrei t.d. vodkaflösku eöa kláravín!" JÓH Svavar A. Jónsson. Við sendum okkar bestu jóla- og nýárskveðjur til viðskiptavina okkar og landsmanna allra Þökkum viðskiptin á árinu Mjólkursamlag KEA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.