Dagur - 17.12.1993, Side 39
Föstudagur 17. desember 1993 - DAGUR - B 39
- og áttunda systkinið í námi í skólanum!
Menntaskólinn á Akureyri stendur á gömlum merg.
Hann á sér samfellda sögu frá 1880 og hefur verið starf-
ræktur á Akureyri síðan 1902. Sitt sýnist hverjum um
ágæti skólans. Sumum finnst nemendur hans og kenn-
arar óhóflega ánægðir með hann, hann sé of fastheld-
inn á gamlar hefðir og staðnaður. Hinir virðast þó vera
fleiri sem fyllast hálfgerðri lotningu og væntumþykju
þegar MA ber á góma þannig að utanbæjarmanneskju
fer að gruna að tryggð nemenda við hann sé óvenju
mikil. Enda kemur í ljós þegar málið er skoðað að heilu
ættirnar hafa stundað nám við skólann. Oðinn Gíslason
er dæmi um þetta. Hann hóf nám 1992 en öll systkini
hans, sjö að tölu, eru stúdentar frá MA!
Að sögn Tryggva
Gíslasonar skóla-
meistara er það
ekki óalgengt að
tvö, þrjú og jafn-
vel fjögur systk-
ini stundi nám
við skólann og
börn eldri nemenda sækja mjög
gjarnan í hann. A árunum 1933-
1949, meðan hægt var aó ljúka
bæði gagnfræða- og stúdentsprófi
frá skólanum, uróu sex bræóur l'rá
Hvilft í Önundarfirði stúdentar og
fjórar systur þeirra gagnfræðingar
en á þcim árum þótti gagnfræða-
próf næg menntun fyrir stúlkur. Er
þetta stærsti hópur systkina scm
brautskráður hefur verið frá skól-
anum.
Atkvæðamiklar fjölskyldur
Önnur fjölskylda hefur vcrió at-
kvæðamikil í MA. Gísli Konráós-
son, fyrrum forstjóri Utgerðarfé-
lags Akureyrar, varó stúdent frá
MA svo og öll sjö börn hans og
Sólveigar Axclsdóttur, auk dóttur-
Óðinn Gíslason á herbergi heima-
vistar Mcnntaskólans. Hann hóf
nám við MA árið 1992 og mun
væntanlcga útskrifast frá skólanum
17. júní 1996.
Gísli Björn Gíslason útskrifaðist frá
MA 1986.
sonar þcirra sem ólst upp hjá
þeim.
Þaö hlýtur þó aö vera sjaldgæft
að átta systkini ljúki stúdentsprófi,
Marta Eínarsdóttír
er fædd 24. júní 1967. Hún er Norð-
firöingur en þó fædd á Akureyri og tel-
ur sig hálfan Þingeying þar sem móðir
hennar ólst upp í Ystu-Vík í Grýtu-
bakkahreppi.
Síðustu 10 ár hefur Marta verið búsett
á höfuðborgarsvæöinu og stundað þar
nám og ýmis störf. Hún lauk B.A.-
prófi í sálarfræöi frá Háskóla íslands í
febrúar sl. og er nú nemandi í hagnýtri
fjölmiölun við sama skóla.
Sigurlína Gísladóttir, Silla, útskrif-
aðist cins og Ingibjörg systir hcnnar
árið 1978. I Carmínu segir m.a. að
hún sé „hinn mcsti hrossaprangari,
cnda stóðhryssa af stofni Svaða-
staða.“
Þannig kom Þrúður Gísladóttir
skoptciknara Carmínu 1983 fyrir
sjónir. *
Magnús Gíslason var þannig „út-
settur“ í Carmínu 1979.
hvað þá úr sama skólanum, en þaó
vcrður þegar Óöinn Gíslason,
nemi við MA, lýkur námi. Þctta
verður stærsti hópur systkina sem
hcfur brautskráóst þaðan með
stúdentspróf. Systkinin cru börn
Kristínar Sigurmonsdóttur og
Gísla Magnússonar á Vöglurn í
Blönduhlíð. Ingibjörg og Sigur-
lína luku prófi árió 1978, Magnús
Hartmann 1979, Þorkcll 1981,
Þrúóur 1983, Gísli Björn 1986,
Sindri 1990 og Óðinn stcfnir á aó
ljúka próíl 17. júní 1996.
Sömu viðtökur og aðrir
Skyldu viöhorf kcnnara til nem-
anda sem helur átt niörg systkini í
námi vera öðruvísi en til annarra
nemcnda? Asmundur Jónsson,
sem hefur kennt öllum systkinun-
Ingibjörg, cða Ibba eins og hún var
títt kölluð, útskrifaðist vorið 1978. í
Carmínu segir m.a. að Ibba sc af
skagfírsku bergi brotin og komin af
skáldum og hestamönnum góðum.
Skagfírskur búfcnaður ér grcinilcga
ofarlcga i huga Sindra Gíslasonar,
ef marka má þessa mynd af honum
í Carmínu 1990.
Þorkell Gíslason, „sveitavargur í
húð og hár“, eins og komist er að
orði í Carmínu, lauk námi frá MA
17. júní 1981.
um, telur svo ekki vera. Hann tcl-
ur aó Óðinn hafi t.d. ekki fengið
annars konar viðtökur cn aðrir. Þó
viðurkennir hann að hafa búist við
að Óðinn stæði sig vel í námi eins
og eldri systkinin án þess að hann
telji að þetta hafi halt áhrif á sam-
skipti þeirra.
Ótvíræðir kostir MA
Þegar Óðinn var beðinn um viðtal
féllst hann á það en hann býr á
heimavistinni þar sem öll systkini
hans hal'a búið. Aó sögn Óðins lá
beinast við að fara í MA.
„Þegar elstu systkinin fóru í
MA var það að miklu lcyti vcgna
þess að það var sá menntaskóli
sem styst var í. Eg skoðaði auðvit-
að aðra skóla cn ákvaö svo að fara
hingað. Þetta cr álitinn góöur skóli
og systkinum mínum líkaði ágæt-
lega hcr.
Óðinn segir þaö hafa hal't ótví-
ræða kosti aó systkini hans höfðu
verið í MA. Hann hafi þekkt til
skólans, vitað hvcrnig námið færi
frarn og hvaða kröfur væru gerðar
til nemenda. Hann getur einnig aö
einhverju leyti notaó bækur systk-
ina sinna, t.d. er enskubókin hans
merkt þremur þeirra.
*
„Urvals Skagfírðingar“
Óðinn heldur að þau systkinin hafi
ekki verið hvött meira til náms en
gengur og gerist. Honum finnst
ekki sérlega merkilegt þótt átta
systkini ljúki stúdentsprófi en vió-
urkennir þó að það sé dálítió sér-
stakt að þau skuli öll hafa gengið í
sama skóla.
Hann er mjög lítillátur þegar
innt er eftir námsárangri systkin-
anna en kennarar við skólann gátu
þess að þau væru öll mjög góðir
námsmenn, „úrvals Skagfirðing-
ar,“ eins og einn þeirra komst að
orði.
„Sindri sjöundi“
Hann telur að hann hafi ekki notið
neinna sérréttinda í skólanum þó
að eldri systkinum hans hafi öllum
gcngið mjög vel enda viti fáir af
þessu nema eldri kcnnararnir og
þessu sé ekki haldið ncitt sérstak-
lega á lofti í MA. Þcgar
næstyngsti bróóirinn brautskráðist
var hann þó kallaður upp sem
„Sindri sjöundi" og Jóhann Sigur-
jónsson, settur skólamcistari,
færði móóur hans blómvönd. Nú
er að bíóa og sjá hvort börn systk-
inanna frá Vöglum vióhalda fjöl-
skylduhefðinni þegar þau komast
á menntaskólaaldur.
Marta Einarsdóttir.
Höfundur er nemi í hagnýtri fjölmiölun viö Há-
skóla Islunds.
*
4
4
A
4
4
4
4
A
4
A
4
k
4
4
A
4
4
A
4á4á4á4á4á4á4
JÓI
og Jorsœlt komandi ár.
Þöíifuini viðskiptin á lidtui ári.
Verslunin Garöshorn
Byggðavegi 114 - Sími 24400
4 A
Okkar bestu óskir lim
OlCðílCD JÓl
ocj farsœtd á
komandi ári.
Bœjarverk
Rauðumýri 22 - Símar 22992 & 12992
4*444*4*4*
*
4
*
4
*
4
*
4
4
á
4
*
4
*
ft
4
*
4
*
4
*
4
*
4
*