Dagur - 13.08.1994, Qupperneq 14

Dagur - 13.08.1994, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Laugardagur 13. ágúst 1994 Á handverksdegi í Minjasaíhinu á Akureyrí Síðastliðinn sunnudag efndi Minja- safnió á Akureyri til handverks- dags í safninu. Minjasafnið er til húsa í Kirkjuhvoli við Aðalstræti og er opið daglega frá I. júní til 15. september. A sunnudaginn sátu handverkskonur við vinnu sína víðsvegar í safninu og ljáðu því líf og lit. Aö sögn Katrínar Ríkarðsdóttur á Minjasafninu stóö safnió fyrir leikjadegi í júní og heyönnum, í samvinnu við safnið í gamla bæn- um í Laufási við Eyjafjörð, í júlí og svo handvcrksdegi nú í ágúst. Katrín sagði að það væri nýbreytni hjá safninu að efna til atburða sem þessara en þessir dagar hefðu allir vakið athygli og verulega aukin aðsókn hefði verið_ að safninu í tengslum við þá. A sunnudaginn sóttu um 200 gestir Minjasafnið heim sem er mun meiri fjöldi en venja er. A þjóðminjadaginn, 10. júlí, þegar Minjasafnið var með heyannir í samvinnu við Laufás komu þangaó 1100 gestir. KLJ Þuríður vefur Tóvinna Helgu Á neðri hæð Minjasafnsins sat Helga Jónsdóttir húsfreyja á Gull- brekku í Eyjafjaróarsveit við tó- vinnu. Hún lagði lagðana í kamb- ana og sýndi gestum handtökin. Helga prjónar ýmsar ullarvörur úr algjörlega heimaunninni ull. Hún kembir hana og spinnur með gamla laginu og nýtir jurtir til lit- unar. Helga var með ljölbreyttar ullarvörur með sér í Kirkjuhvoli; ullarpeysur, sokka og vettlinga en cinnig imgerðar nælur, lyklakipp- ur, kort og jafnvel nælur sem hún hafói unnið úr ull. KLJ Við lítinn vefstól á efri hæð Kirkjuhvolls sat Þuríður Kristjáns- dóttir á Ytri-Tjörnum í Eyjafjarð- arsveit og óf. Þuríður sagðist fyrst hafa lært vefnað einmitt í Kirkjuhvoli á vefnaðarnámskeiói árið 1935. Hún hélt síðan til lrekara vefn- aðarnáms til Danmerkur og Sví- þjóðar. Þuríður kenndi vefnað í 5 ár í húsmæðraskólanum á Lauga- landi á árunum 1939-1944. Aó sögn Þuríðar er nú að aukast á ný áhugi fyrir vefnaói og síðastliðiö vor var Þuríóur við kennslu á vefnaðarnámskeiði sem cinmitt var haldið á Laugalandi. Hún sagðist hafa haft gaman af því að nú væru allir gömlu vefstólarnir sem eitt sinn voru í húsmæðra- skólanum en hafa síðan verið í geymslum komnir aftur í Lauga- land. KLJ Þóra bald- erar borða „Ég er að baldera borða á ís- lenskan bolbúning," sagöi Þóra Þorvaldsdóttir og stakk nálinni niður við hlið perga- mentsins. En pcrgamcnt cr sér- staklega hen lcður scm balder- að er yfir meö ýmist silfur-, gull- eða silkiþræði en sá þráð- ur er festur nióur meó tvinna. Þóra sagði að þegar hún bald- eraði boróa notaði hún sígild i og falleg gömul íslcnsk mynst- ur. Hún sagði aö á nítjándu öld hefói verið balderaó með litum en í dag notaði hún aðallega liti og silkiþráó í boróa á tclpu- búninga en gull- og silfurþráð- ur væri algengastur. Þóra sem er búsett á Húsa- vík er ein þeirra kvenna sem starfa í Kaóltn, handverkshúsi á Húsavík, en þungamiðja starfscminnar þar cr íslcnski þjóðbúningurinn og allt sem honum tilheyrir. KLJ Jenný Karlsdóttir kennari í Valsárskóla á Svalbarðsströnd sat í innsta horni niðri í Kirkju- hvoli og var aó bregða hross- hársgjörð. Hún spinnUr hróss- hárið sjálf og bregður úr því gjaróir. Jenný, sem er hesta- kona, segist ckki nota aörar gjaröir sjálf enda ltki henni nrjög vel vió þær. „Hrosshárs- gjaröir eru hestinum algjörlega eölilegar, búkhár hcstsins festist í þeim og þær verða scrstaklcga mjúkar og þjálar," sagði Jenný. Auk þess að brcgða gjaröir sagöist Jenný hafa fengist við að lita meö íslenskum jurtum og það væri mjög skemmtilegt. KLJ Ingunn orkerar Það tekur tíma að vinna fagra muni úr örfinum þræði. Orkcring er blúnda búin til úr einum finum þræði sem vafinn er á litlar skytt- ur. Ingunn Björnsdóttir handa- vinnukennari orkeraði af kappi með tveimur handunnum skyttum sem faðir hennar smíðaói úr rauðaviði en einnig notar hún kop- arskyttur. Ingunn sagöi aó sér finndist orkeringin því fallegri sem hún væri unnin úr fínna bandi. Ingunn lærði að orkera á Hallormsstað og sagði að enn þann dag í dag væri kennt að or- kera þar. KLJ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.