Dagur - 03.09.1994, Síða 3
FRETTIR
Laugardagur 3. september 1994 - DAGUR - 3
Á fimintudagskvöldið var Vcrkmcnntaskólinn á Akurcyri settur við há-
tíðlcga athöfn í Gryfjunni, samkomustað skólans. í ræðu Bcrnharðs
Harldssonar skólamcistara kom fram að nemcndur við skólann í vctur
verða 994 í dagskóla cn talsvcrt á annað þúsund í hcildina. Á stærri
myndinni hlýða nemendur með andakt á skólamcistarann, sem á inn-
felldu myndinni flytur þcim boðskap sinn. Myndir: Hulldór
Röng afgreiðsla á stálbitum í brú á Seyðisá á Kjalvegi:
Kann að raska verulega
áætlunum um verklok
Framkvæmdum sem miðar að
því að gera Kjalveg fólksbflafær-
an hefur miðað samkvæmt áætl-
un, en unnið er að byggingu brú-
ar á Seyðisá og lagningu 7 km
vegar sitt hvoru megin brúarinn-
ar. í ljós hefur komið að ekki
voru afgreiddir réttir stálbitar til
brúargerðarinnar og kann það
að raska nokkuð áður gerðri
áætlun sem miðaðist við að brú-
arbyggingunni lyki 15. septem-
ber nk.
Brúin yfir Seyðisá, sem er síð-
asti farartálminn á Kjalvegi, verð-
ur stálbitabrú með timburgólll og
hljóóar kostnaðaráætlun upp á
tæpar 20 milljónir króna. Það er
vinnuflokkur frá Vegagerðinni
sem sér um brúarbygginguna.
Um vegarlagningu að brúnni
sér verktaki, Nesey hf., og að lok-
inni brúarsmíðinni þarf að aka
burðarlagi á hana og við brúar-
sporðana. Kostnaður við vcgar-
lagninguna er áætlaður 13 millj-
ónir króna. GG
Vaxtaskiptasamningur Seðlabankans
við banka og sparisjóði:
Miðað við 1,07% ársverðbólgu
- horfur á afar litlum verðhækkunum
næstu mánuði
Nokkrar staö-
reyndir um
vímuefnaneyslu
Krossgötur, sem cr mcðferðar-
og forvamaraðili, hcfur hrint af
stað átaki undir slagorðinu „Lát-
um ekki í minni pokann fyrir
vímuefnum“ og sagt hefur verið
frá í Degi. I fréttatilkynningu frá
Krossgötum cr m.a. bcnt á
nokkrar athyglisverðar stað-
reyndir varðandi vímefni:
■ Um 20% framhaldsskóla-
nema hafa pröfað hass, þar af
fjórði hver framhaldsskólapiltur!
É Rúm 44% framhaldsskóla-
nema geta nálgast hass fyrir-
varalítið.
■ Tæp 23% framhaldsskóla-
nema geta nálgast amfetamín
fyrirvaralítið.
É Um 14% framhaldsskóla-
nema geta nálgast alsælu fyrir-
varalítið, rétt um 15% LSD,
10% kókaín, heróín og krakk.
■ 26-28% íslensku þjóðarinnar
fer einu sinni eða oftar á ævinni
í meðferð vegna vímucfna-
neyslu, samkvæmt opinberum
tölum frá SÁÁ 1993.
■ Á áratugnum frá 1980-1990
féllu um 80 manns út af skrám
fikniefnalögreglunnar vegna
þess að þeir lctust. Mcðalaldur
þcssara einstaklinga var um 29
og hálft ár! KK
Seðlabankinn hefur samið við
banka og sparisjóði um vaxta-
skipti fyrir tímabilið 01.09. 1994
til 01.01 1995 í samræmi við
rammasamkomulag um vaxta-
skipti sem gert var í september
árið 1993.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Seðlabanka íslands er tilgang-
ur samkomulagsins að draga úr
áhættu innlánsstofnana af óvæntri
hækkun verðbólgu og hefur samn-
ingurinn m.a. stuðlað að lækkun
nafnvaxta hjá innlánsstofnunum.
Grjóthrun
í Ólafsfjaröar-
göngum
Vegfarendur sem leið áttu um
ÓlafsQarðargöng um miðnætti
aðfaranótt föstudagsins komust
ekki leiðar sinnar vegna grjót-
hruns úr lofti ganganna. Að
sögn lögreglunnar á Ólafsfirði
féll 500-600 kg stykki úr berginu
með klæðningunni úr lofti
ganganna og fylgdu festingar
með. Rafmagnið slapp en vírar
og leiðslur héngu niður.
Vcl var fengin strax um nóttina
til að færa grjótið og þurfti að
saga í sundur teina sem héngu úr
loftinu að sögn lögreglunnar.
Rignt hefur mikið á þessu svæói
og streymir vatnið niður. Sam-
band var haft vió Vegagerðina og
munu menn frá hcnni sjá um við-
gerðir en ekki er cnn ljóst hvað or-
sakaði hrunið. ÞÞ
í samkomulaginu fyrir næsta
tímabil er gert ráð fyrir að bankar
og sparisjóðir greiði Seðalbankan-
um 5,33% nafnvexti af samnings-
fjárhæð, sem er um 14 milljónir
króna, og að Seðlabankinn greiði
þcim 4,25% vexti ofan á verö-
tryggðan höfuöstól. Samningurinn
byggist á þeirri forsendu aó vcrð-
bólga næstu fjögurra mánaóa svari
til 1,07% verðbólgu á ári á mæli-
kvarða lánskjaravísitölu og cr það
í samræmi við nýjustu verðlags-
spár Seðlabankans.
I fréttatilkynningunni segir að
forsendur vaxtaskiptasamningsins
fyrir næsta tímabil staðfesti horfur
um afar litlar verðhækkanir á
næstu mánuðum. KLJ
Vetrarstarfið að
hefjast hiá STYRK
Halldóra Bjarnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Krabbameinsfé-
lags Akureyrar og nágrennis,
sagði að fyrsti fundur Styrks,
Samtaka krabbameinssjúklinga
og aðstandcnda, á þessu hausti
yrði haldin mánudaginn 5. sept-
ember klukkan 20-22 í húsa-
kynnum Krabbameinsfélagsins í
Glerárgötu 24, annari hæð.
Nú hcfur Magna Birnir hjúkr-
unarfræðingur hætt störfum fyrir
Krabbamcinsfclagið og í hennar
staó hefur verió ráðin Brynja Ósk-
arsdóttir félagsráðgjafi, sem upp-
lýsingarfulltrúi félagsins. Halldóra
sagðist vænta þcss að þær Brynja
bættu hvor aðra upp cn Halldóra
cr hjúkrunarfræðingur. Brynja
verður til viótals á skrifstofu lé-
lagsins tvo cftirmiödaga í viku.
Þcss má gcta að öll þjónusta
krabbamcinsfélagsins cr fólki að
kostnaóarlausu.
Áttunda september veróur
mcrkja- og pcnnasala á vegum
krabbameinslclaga.
Halldóra vildi scnda starfsfólki
Söltunarlélagsins á Dalvík bar-
áttukveðjur en Söltunarfélagið á
að vcrða reyklaus vinnustaður frá
1. scptember.
Nú eru um 1000 fyrirtæki á
landinu orðin reyklaus og sagði
Halldóra að æ lleiri fiskverkunar-
fyrirtæki fctuðu í fótspor Frysti-
hússins í Ólafsfirði, scm hefói
verið fyrsta frystihúsið sem varð
reyklaust. KLJ
Kópasker:
Vantar vinnuafl
Nú þegar hcfðbundin sláturtíð
er að hefjast er vant sláturhús-
fólk gulls ígildi.
Að sögn Garðars Eggertssonar,
framkvæmdastjóra Fjallalambs á
Kópaskeri, er atvinnuástandið á
Kópaskeri og í nágrenni svo gott
um þcssar mundir að erfiðlega
gengur að fá vant fólk til starfa í
sláturhúsinu. Einkum er skortur á
fiáningsmönnum enda ekki á
hvcrs nianns færi að lcysa það
starf vel af hcndi.
I haust verður slátraó um
22.000 kindum hjá Fjallalambi.
KLJ
rtt
Fjölbreytt
valkostanámskeíð
í myndlíst
„LYKILL AÐ GÓÐU SVARI*
Fyrír fullorðna: Kennsla í meðferð vatnslita - olíulita -
akríllíta - pastellita, einnig teikning og kynning á ýms-
um öðrum möguleikum varðandi blandaða tækni.
Forsendur og óskir hvers nemanda hafa áhrif á þær
námsleiðir sem unnið verður útfrá og þess gætt svo
sem mögulegt er að sköpunarkraftur hvers og eins fái
að njóta sín sem allra mest.
Kennslan fer fram tvisvar í viku og stendur í 10 vikur.
Möguleiki er á laugardagskennslu.
Samskonar námskeið er einnig í boði fyrir unglínga
nema þá er einungis kennt einu sinni í viku (10 vikur).
Þar sem áætlað er að hefja námskesöín am miðjan
september er góður möguleíkí á útivinntt og haust-
lítaferð.
Einnig er í boði tréskurðamámskeíð fyrír fullorðna og
unglinga.
Hefðbundinn munsturskurður en einnig frjáls mynd-
skurður eftir frumteikningu nemandans. Skorið verður
út í íslenskt birki og mahony. Einu sinni í 10 vikur.
Kennarar: Jóhannes Haraldsson og Öm Ingi.
Kennslan fer nú fram í nýrrí og bættrí aðstöðu.
Frekari upplýsingar og skráning er í síma 96-22644.
Með kveöju,
Örn Ingi, Klettagerðí 6, Akureyri.
Handvcrksfólk - hönnuðír
Atvinnumálanefnd Akureyrar vekur hér með athygli á samkeppni sem
Handverk - reynsluverkefni, stendur að um hönnun minjagripa og minni
nytjahluta úr íslensku hráefni.
Markmið samkeppninnar er að finna nýjar leiðir til að framleiða úr ís-
lensku hráefni. Keppnin er ætluð öllu handverksfólki og hönnuðum sem
áhuga hafa á vandaðri íslenskri framleiðslu.
Keppnislýsing og samkeppnisreglur liggja frammi á skrifstofu atvinnu-
málanefndar Akureyrar, Strandgötu 29.
Atvinnumálanefnd Akureyrar.