Dagur - 03.09.1994, Blaðsíða 6

Dagur - 03.09.1994, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 3. september 1994 „ ÞAÐ ER SPENNAN SEM HEILLAR” - Einar Gunnlauösson, íslandsmeisfari í forfæru Hann heitir Einar Gunnlauásson, Akureyrinöurinn sem varð ís- landsmeistari í flokki sérútbuinna torfærubíla um síðusfu helei að lokinni harðri keppni í sex torfærum. Hver er hann Þessi Ein- ar á Norðdekkdrekanum o& hverniá deffur sæmilesa óbríáluð- um mönnum í hue að leööja líf, limi, fjármaen o& fíma í að fæfa á fryllfu forfærutrölli í malarkrúsum flesfar helöar sumarsins? Einar og Hildur, kona hans, eiga og reka Hjólbarðaþjónustu Einars vió Dalsbraut á Akureyri. Þar var sannarlega líf og fjör í vikunni. Það lór vcl unt Drekann í hvíldarstöðu á gamla pickupnum, sem ekur honunt milli keppna. Þriggja ára aódáandi gckk hringinn í kringum bílinn og vissi greinilega nteira um torfæru- garpa en teiknimyndahetjur. Vinir og kunningjar litu inn til að óska Is- landsmeistaranum og konu hans til hamingju. Þau voru eólilega himin- sæl með titilinn. Einari var létt í skapi og stutt í hláturinn enda Einar sérstaklcga hláturmildur maður. Hverra manna er hann Einar? „Eg er fæddur og uppalinn hér á Ak- ureyri, kallinn heitir Gunnlaugur Traustason, hann var með bátaverk- stæöi Gunnlaugs og Trausta hérna á Oseyrinni fyrir mörgum árum síðan. Mamma, Svava Lúóvíksdóttir, er dóttir Jeppa-Lúdda, sem var með bílaverkstæðió Vagninn. Foreldrar mínir fluttu til Þingeyrar í Húna- vatnssýlu þegar ég var krakki og viö bjuggum þar um nokkurra ára skeið, nú eru þau búsett hér á Akureyri." Konan á bak við manninn er Reykvíkingurinn Helga RagnHILD- UR Kristjánsdóttir. „Eg fór suður og sótti hana fyrir einum átta árum,“ sagði Einar. Einar er 29 ára en Hildur 32, þau eiga tvær dætur Hafdísi Olmu 5 ára og Hörpu Svövu 1 árs, þau búa í Smárahlíð á Akureyri. Tvær hendur fómar Einar og Hildur keyptu Hjólbarða- þjónustu Heiðars og breyttu nafninu í Hjólbarðaþjónustu Einars fyrir tæp- um þremur árum. „Eg hafói kynnst þessum „bransa“ vcl því ég vann hjá Gunna í Dckkjahöllinni. Við hófum þennan rekstur algjörlega nteð tvær hendur tómar ég og Hildur. Þá var hún dag- mamma en nú eru hún framkvæmda- stjórinn hjá Hjólbarðaþjónustunni. Auðvitaö er þetta erfitt fjárhagslega en það gcngur samt í raun ótrúlega vel. Við höfum vinnu og það er mik- ils virði. A þessu ári keyptum við húsnæóið sem við erum í hér við Dalsbraut. Það er ákveðið átak og vissara að hafa fjármálin í lagi svo allt gangi upp. Við höfum lagt okkur fram um að hafa röó og reglu á hlut- ununi, ekkert rassvasabókhald. En mestu skiptir að vinna sem mest sjálfur við fyrirtækið." A Hjólbarðaþjónustunni vinna frá fjórum upp í níu starfsmenn að þeim hjónum meðtöldum, allt eftir því hvað árstíð er. Auk þess að selja dekk og sinna dekkjaviðgerðum eru bílar þrifnir, bónaðir og smuróir hjá Hjólbaröaþjónustunni. Aðaltamirnar í dekkjunum eru á vorin og haustin en á sumrin er meira líf í kringum Bílaleiguna Geysi, sem Einar og Hildur eru með umboð fyrir. Annars er sumarið tími torfærunnar. Hestur - ieppi - forfærufröll Já, einmitt torfæruna. Hvemig datt Iiinar glaðbeittur hcima í stofu við bik- arana, sem hann hefur hlotið fyrir frækilcga frammistöðu í torfærum. A innfeildu myndinni er harðsnúið lið Norðdekkdrckans, Einar á sínum stað í bílstjórasætinu, og aðstoðarmannasveit- in einnig á sínum stað, við hlið Drekans. Frá vinstri: Sigurður Jónsson, Iijarni Hjaltalín, Hilmar Kristjánsson og Ólaf- ur Jóhannsson. þér í hug að fara að keppa í torfæru, Einar? „Eg hef alltaf haft áhuga fyrir bíl- um, krafti og því að sigrast á torfær- um. Fyrst byrjaði ég í jeppamennsk- unni, fór í fjallferðir og þess háttar en svo vildi ég bara meira. Mér fannst ég ekki komast nóg, vildi komst meira, fá meiri spennu. Ég hafði líka fengið nasasjón af torfær- unni þegar ég var gutti þá fylgdist ég vel mcð náfrænda mínum, Guð- mundi Gunnarssyni, sem þá var þekktur torfærugarpur. En fyrstu kynni rnín af því að stýra krafti, beisla orkuna og komast áfram voru á hestbaki. Ég var forfall- inn hestamaður um nokkurra ára skeið á unglingsaldri. Vildi helst vera í hnakknum allar stundir en þegar bílprófið var í sjónmáli þá urðu hestamir að víkja fyrir fleiri hestöflum." AKSTURSFERILL 1985 Tilraunir á Willvsieppa, með eindæmum áranfiurslitlar. 1992 KepPir á BLEIKA PARDUSINUM - Uar frekar slappur í byrium en fann siá í annari for- færu á heimavelli og... - SIGRAÐI, kom geysileéa á óvart. frúði ekki síálfur eig- in siári fyrr en eftir marfia daáa. - Tveir siárar Akureyri oé Eáilsstaðir. 1993 Keppir á BLEIKA PARDUSINUM - mikið breyftum. - Sifiur í Greifaforfærunni á Akureyri. annað sæti á Hellu o& í Jósepsdal. - Einn sigur í sandspyrnu. 1994 - Uann Greifabikarinn fil eténar eftir siáur í Greifatorfær- unni. Þríú ár í röð. -Tveir sifirar í SvíÞióð í keppninni um Norðurlanda- meistaratitilinn. - íslandsmeisfaramófið: 1. sæti á Akureyri o& Akranesi. 2. sæfi á Eáilsstöðum, 3. sæfi á Hellu o& í Grindavík. 4. sæti í Jósepsdal. - íslandsmeistari effir tvísýna o& harða keppni. - Stefnir að Því að verða Norðurlandameisfari um næstu helfíi eftir úrslita torfæru í Jósepsdal. Dýrf! „Það var svo árið 1985 sem ég og vinur minn, Sigurður, núverandi fjár- bóndi á Stóru-Giljá í Húnavatnssýlu, ákváðum að útbúa bílinn hans fyrir torfærukeppni. Það varð ekkert úr því þar sem Sigurður dreil’ sig í fjár- húsin í sauðburðinn um vorið en mér fannst hinsvegar ófært að hætta við allt sanian. Ég skellti dekkjununt undir jeppann rninn og tók þátt með afburða lélegum árangri, en þá fann ég hvað þetta var gaman og það blundaði alltaf í mér aó smíða bíl. Sjö árum scinna, árið 1992, þá settist ég upp í frúarbílinn ók suður og skipti á honum og Bleika pardus- inum. Nú er hann oróinn að Norð- dekkdrekanum. Vissulega er dýrt að standa í þessu. Þaó er í raun ekki hægt nema hafa öflugan styrktaraðila á bak við sig. I vor náði ég sam- komulagi við forsvarsmcnn Gúmmí- vinnustofunnar, sent sólar og sclur dekk undir nafninu Noródekk. Þeir voru tilbúnir til að standa á bak vió mig sem auglýsingar- og styrktarað- ili í torfærunni í sumar. Svo sel ég að sjálfsögðu sóluð dekk eingöngu frá þeim enda gæóin tryggust þar. Af nýjum dekkjum er hinsvegar mun fjölbreyttara úrval hér hjá mér í Hjólbarðaþjónustunni.1'

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.