Dagur - 03.09.1994, Blaðsíða 4

Dagur - 03.09.1994, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Laugardagur 3. septembert 1994 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SlMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1400 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON.tíþróttir), LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. „Unglingavandamál“ „Blessaður vertu, það er ekkert frekar unglingavandamál 1 dag en var þegar ég var ungur." Þetta er töluvert al- gengt viðhorf þeirra sem komnir eru á miðjan aldur og það má mikið vera ef ekki er töluverður sannleikur fólg- inn í þessum orðum. Ef til vill eru unglingar meira áberandi í þjóðfélagsum- ræðunni en fyrir nokkrum árum síðan og fjölmiðlaumræð- an gerir það að verkum að ef einhver vandamál koma upp vegna t.d. drykkju unglinga, þá er umræðan blásin út um leið og unglingarnir settir undir sama hatt og stimplaðir sem „vandræðaunglingar". Þetta er hins veg- ar alls ekki rétt. Upp til hópa eru unglingar í dag kurteisir og duglegir, en inni á milli, eins og alltaf hefur verið, eru nokkrir svartir sauðir. Þeir unglingar sem eiga erfitt uppdráttar, hafa flestir lent í klóm Bakkusar og síðan fíkniefnanna. Út úr þeim vítahring hefur oft reynst vandratað. Áhrifarík áfengis- og fíkniefnameðferð Þetta leiðir hugann að því athyglisverða starfi sem unnið er á vegum félagsskaparins SÁÁ. Samkvæmt tölulegum upplýsingum komu 83 einstaklingar til meðferðar á Vogi yngri en 20 ára og var þessi hópur 7% þeirra sem komu til meðferðar. Tölur sýna, þótt ótrúlegt megi virðast, að 23% líkur eru á því að fimmtán ára íslenskir unglingar leiti sér meðferðar vegna áfengissýki eða annarar vímu- efnaneyslu einhvern tímann á ævinni. Þegar konur eiga í hlut eru líkurnar 9%. Það er auðvitað ljóst að stuðningur SÁÁ hefur orðið til þess að margir unglingar, sem hafa ánetjast áfengi og öðrum vímuefnum, hafa náð að fóta sig aftur í lífinu. Þetta stuðningsstarf er ómetanlegt fyrir viðkomandi ein- staklinga, fjölskyldur þeirra og síðast en ekki síst þjóðfé- lagið í heild sinni. Á undanförnum árum hefur SÁÁ búið við þrönga fjárhagsstöðu og opinber stuðningur hefur verið af skornum skammti. í ljósi erfiðs fjárhagsramma er undravert hvaða árangri þessi félagasamtök hafa náð í baráttunni við áfengið og önnur vímuefni. I UPPAHALDI Geri allt annað en að horfa á sjónvarp og lesa bækur aka Jónsdóttir, sem býr á Punkti í Eyjafjarðar- sveit, var fram- kvæntdastjóri landbúnaóarsýn- ingarinnar Auóhumlu 94, sem haldin var á Hrafnagiii fyrir skemmstu. Hún hefur sannarlega haft I nógu að snúast undanfamar vikur en nú er sýningunni lokið og Vaka tilbúin til að takast á við ný verkefni. Hún er frá Vöku- landi í Eyjafiröi, menntaður iðn- rekstrarfræðingur frá Háskólan- um á Akureyri. Eiginmaóur Vöku er Stefán Ámason, sem starfar á skrifstolu Eyjafjarðar- sveitar. Þau hjónin eiga tvær stórar stelpur. En hvað er í uppá- haldi hjá Vöku? Hvað gerirðu helst ífrístundum? „Ég geri allt milli himins og jarð- ar nema ég les ekki bækur og horfi ekki á sjónvarp.4' Hvaða matur er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Lambakjöt.“ Uppáhaldsdrykkur? „Undanrenna.“ Ertu hamhleypa til allra verka á heimilinu? „Já, því svara ég bara játandi.“ Er heilsusamlegt líferni ofarlega á baugi hjá þér? „Æ, æ, æ.“ Vaka Jónsdóttir Vaka Jónsdóttir. Hvaða blöð og tímarit kaupir þú? „Ég er ekki áskrifandi aö neinum blöóum eöa tímaritum en ég kaupi eitt og eitt blað eða tímarit í lausasölu.“ Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér? „Engin.“ Hvaða hljómsveit/tónlistannaður er í mestu uppáhaldi lijá þér? „Diddú.“ Uppáhaldsíþróttamaður? „Gunný, ég fæ aö keyra hana svo oft á æfingar.“ Hvað horfir þú mest á í sjónvarpi? „Ég horfi ekki á sjónvarp en ef eitthvaó er þá lít ég stöku sinnum á fréttimar." Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu mestálit? „Ingibjörgu Sólrúnu Gísladöttur, borgarstjóra Reykjavíkur.“ Hvar á landinu vildirðu helst búa ef þú þyrftir að flytja búferlum nú? „Ætli ég færi ekki til Reykjavík- ur.“ Hvaða hlut eða fasteign langar þig mest til að eignast um þessar mund- ir? „Ég hcld að öll nauósynlcgustu heimilistækin séu í lagi eins og er þannig aó sennilega myndi mig langa mest í nýjan bíl.“ Hvar skemmtir þú þér best? „I þröngum vinahópi, heirna vió.“ Hvað œilar þú að gera um helgina? „Ég er að hugsa um aó taka mér frí frá lokafrágangi vegna Land- búnaóarsýningarinnar og vera úti, taka upp kartöflur og vinna í garóinum mínum.“ / livaða stjörnumerki ert þú? „Ég er bogmaður." KLJ AAEt> MOROUN KAFFI NU ÓLAFUR ÞÓRÐARSON Hvar stöndum vér? Með þessum pistli ætla ég að frelsa mannskepnuna frá sjálfri sér og koma heiminum í þaó horf, sem hann á aö vera. Að frelsa manninn frá sjálfum sér er tvíþætt verkefni. í fyrsta lagi aö losa einstaklinginn undan hinuni ýmsu stefn- um, ismum og samþykktum svokallaðra heimshyggju-manna, en cins og allir vita, er styttingin á orðinu heimshyggja orðið heimska og fer auðvitað ekki vel á því aó heilu þjóðirnar skuli neyðast til að lúta ráðum slíkra manna. í ööru lagi að frelsa hin ýmsu samfélög úr þungum hlekkj- um eignaréttarins, en í skjóli hans tekst, til þess að gera fáum einstaklingum að ganga þannig um þessa jöró aó til upplausnar horfir. Á ég þar vió þá ónauðsynlegu sóun á hráefnum og orku, sem nú á sér stað, ásamt hinni bráðdrepandi mengun, sem af þessu hlýst, allt í nafni hagvaxtar, sem ekki þýóir neitt annað, en síaukinn gróða þeirra sem allt eiga og þar með aukin völd til ennþá stórfelldari eyðileggingar á okkar „Fögru veröld“, eins og Tómas mælti forðum. Aó koma heiminum í eðlilegt horf, kcmur svo af sjáli'u sér, þar sem þaó eina sem aó er í heimi hér er örvæntingarbrölt mannskepnunnar af ótta vió skort við óþrjótandi hlaðborö skaparans. Að einmitt ég skuli takast þetta verk á hendur kemur eins og af sjálfu sér, þar sem ég hef hvorki vit á pólitík né hagfræði og er gjörsamlega ókunnur myrkviðum kjarasanminga hvað þá að ég botni hió minnsta í læróum trúarkenningum hinna sundur- leitu söfnuöa, um víða veröld. Þess vegna er iífssýn mín enn í dag fersk og ómenguð eins og á fyrsta degi bemskunnar og trú hinna fullorðnu á það lífs- lögmál að eins dauði sé annars brauó ekki til í mínum hugar- heimi. Til dæmis er mér ástand eins og atvinnuleysi með öllu óskiljanlegt. Þau verk, sem áður tóku allan tíma manna og dugði varla til, taka í dag aðeins fáar stundir. Þökk sé hugvitinu og ávexti þess, tækninni. „Tæknin leysir manninn af hólmi“, segja heimshyggjumenn á hátíðarstundum. Og níu af hverjum tíu vinnumönnum, sem staðið hafa við orfin, myrkranna í niilli sumarlangt eru sendir heini. Þeirra er ckki þörf lengur, þar sem einn maður er nóg til að sitja á nýju sláttuvélinni og þá auðvitað eftir sem áður myrkr- ana á milli, því ekki má fyrir nokkum mun stytta vinnutímann og gefa þannig illu eðli hinns vinnandi manns aukinn tíma til athafna. Auk þess, sem þessi eini þarf nú að framleiða fyrir stofn- kostnaöi vélarinnar og viðhaldi, verður fyrirtækið af mannúð- arástæðum, aó píra einhverri hungurlús í hina níu, sem sendir voru heim enda nauðsynlegt að halda þeim við þaö lífsmark að meltingarfærin starfi nokkurn veginn og séu þannig farvegur fyrir framleiðslu fyrirtækisins. Aö öllu þessu athuguðu er augljóst hverjum menntuðum hagfræðingi að segja verður upp þessum eina starfsmanni og endurráóa hann svo á lægri launum, til að fyrirtækið eigi fyrir afskriftum. Og auðvitað verður síðan með öllum hugsanlegum ráðum að draga úr framleiðslunni til að halda verðlaginu uppi og tryggja að reksturinn nái að safna upp veðhæfu tapi við árslok. Og hvergi skyggir ský fyrir sól á heiðum himni hagspekinn- ar, því ef þessi eini starfsmaður skilur ekki cóa sættir sig ekki viö hinar lærðu ályktanir, eru níu „af hólmi leystir" menn, fúsir til nýrrarog enn meiri ánauðaren nokkru sinni fyrr. í þessu dæmi hefur tæknin, því miður ekki, leyst ncinn af hólmi heldur hrakið skapara sinn, manninn, út í ystu myrkur ánauóar og bjargarleysis. Þetta er það, sem ábyrgir og hugsandi heimshyggjumenn viðurkenna að vísu sem erfitt vandamál, en ei að síður óhjákvæmilegt til tryggingar jafnvægis á hinum svokallaóa vinnumarkaði. Rápa síðan vegalausir í frumskógi reglugerða og lagabálka til verndar vitleysunni og hvorki geta né vilja, ryðja nokkra braut í áfangastað. En af því aó ég er hvorki menntaður né ábyrgur á hinum æðri sviðum stjórnvísinda, get ég sagt eins og bamið í skrúðgöngunni forðum. „Keisarinn er berrassaður, hí á hann.“ Sá heyskapur, sem tók þrjá mánuði fyrir fjörutíu árum, tek- ur í dag aóeins fjórðung þess tíma eða þrjár vikur. Þökk sé tækninni. Fjörutíu tíma vinnuvika er fjörutíu ára tímaskekkja. Hinn raunverulegi tími, sem þaó tekur tæknivæddan nútíma mann að vinna fyrir frumþörfum sínum er samkvæmt framan- skráðu aðeins tíu tímar á viku. Með því að viðurkcnna þessa staðreynd og líka þá að end- anlega verður reksturinn hvort sem er að halda lífinu í allri þjóðinni, en ekki bara hluta hennar, mætti koma öllunt starf- hæfum þegnum að til mannsæmandi þátttöku í lífsbaráttunni á hverjum tíma. En nú er plássið búið, sem ætlað er svona pistli hverju sinni. Við yfirlestur og frekari athugun á umfangi íyrirhugaórar frelsunar, þykist ég sjá að líklega þarf annan pistil hátt í það jafnlangan til að koma heiminum endanlega í lag. T.d. cr alveg eftir að lagfæra orku- og hráefnissóunina, koma í veg fyrir mengunina og komast fyrir hina raunverulegu ástæðu ofbeldis karla gagnvart konum og bömum. En hér segir ritstjórinn stopp. Og þess vegna....

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.