Dagur - 05.05.1995, Blaðsíða 16
ijlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllli
Bautinn í sumarskapi
Ódýrir réttir í hádeginu
súpa - salat - pizzur og pastaréttir
Urval fiskrétta
^iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíp.
Þórshöfn:
- og atvinnuhorfur góðar
Ekkert atvinnuieysi er á
Kópaskeri og frekar gott
ástand í atvinnumálum. Sveitar-
félagið mun reka vinnuskóla í
nokkrar vikur í sumar, sam-
kvæmt venju og ekki eru taldar
líkur á að skólafólk þurfi að
ganga atvinnulaust.
Kaldur apríl-
mánuður á
Akureyri
Nýliðinn aprflmánuður var
kaldur eins og veturinn í
heild hefur verið,“ sagði Þór-
anna Pálsdóttir, veðurfræðingur
á Veðurstofu íslands. Meðalhit-
inn í Reykjavík var 1,4 gráðum
undir meðallagi í aprfl og á Ak-
ureyri var hann 1,8 gráðum
undir. Meðalhitinn í Reykjavík
síðastliðna 5 mánuði er 1,6 gráð-
um undir meðaltali áranna
1961-1990 og á Akureyri 1,2
gráðum undir.
I Reykjavík var þurrviðrasamt
og mældist úrkoma 32 mm sem er
aðeins rúmlega helmingur þess
sem venja er og féll hún öll fyrstu
15 daga mánaðarins. Meóalhitinn
í Reykjavík var 1,5 gráóa og sól-
skinsstundir 147 sem er 7 stund-
um fleiri en í meðalárferði.
A Akureyri var meðalúrkoman
í tæpu meðallagi, 27 mm og meö-
alhitinn var -0,2 gráður. Sólskins-
stundir voru 128 sem er 2 færri en
vant er.
A Hveravöllum var meðalhit-
inn -4,7 gráður, úrkoma 32 mm og
sólskinsstundir 149. HA
Nóg vinna er á Þórshöfn eins
og er og landburður af fiski. Rein-
hard Reynisson sveitarstjóri sagð-
ist reikna með að hægt væri að
bæta við fólki, en húsnæði vant-
aði.
„Mér sýnist að atvinnuhorfur
fyrir unglinga séu allgóðar í sum-
ar. Við erum að byrja aö skrá 12-
15 ára unglinga í vinnuskóla, en
ég á von á að krakkar eldri en 15
ára verði ekki í vandræðum með
aó fá vinnu við sjávarútveginn og
fiskvinnsluna í sumar,“ sagði
Reinhard.
Reinhard sagðist reikna með aó
nóg yrði að gera, ekki síst ef ein-
hver síld veiddist, en Júpíter land-
aói 700 tonnum af síld í bræðslu
fyrr í vikunni. Hann sagði að bát-
amir veiddu vel af þorski í firðin-
um og um helgina hefóu þeir ver-
ið að koma drekkhlaðnir að landi,
jafnvel tvisvar eða oftar á sólar-
hring. IM
Þjóöfánamir hengdir upp
Það styttist í að Heimsmeistarakeppnin í handknattleik hefjist og er allur undirbúningur á iokastigi. í gær var m.a.
unnið af því að koma þjóðfánum þátttökulandanna fyrir í íþróttahöliinni á Akureyri, þar sem einn riðili keppninnar
verður leikinn. HM ’95 verður formlega sett á sunnudag í Laugardalshöilinni en fyrsti leikurinn á Akureyri fer fram
á mánudaginn kemur. Mynd: KK
Atvinnuástand á Húsavík:
Skárra en á sama tíma í fyrra
- skólafólki gengur greiðar að fá vinnu en atvinnulausum
Við skynjum að ástandið er
heldur skárra fyrstu mánuði
ársins en það var í fyrra og við
vonum að það skili sér þannig
að meiri atvinna verði í boði í
sumar. Nú er gott ftskerí og þá
er allt jákvæðara og betra og
menn fá vinnu í Fiskiðjusamlag-
inu. Þó ástandið sé skárra en í
fyrra er það langt frá því að vera
gott,“ sagði Aðalsteinn Baldurs-
son, formaður Verkalýðsfélags
Húsavíkur, varðandi atvinnu-
ástand í bænum.
Aðalsteinn sagði að bærinn
stæði fyrir átaksverkefni líkt og í
fyrrasumar, þannig að reiknað
væri með að flestir kæmust í sum-
arvinnu. Könnun á atvinnuhorfum
unglinga í sumar veróur gerö í
skólanum, til að starfsmenn
Verkalýðsfélaganna fái betri yfir-
sýn um stöðu mála.
Aðalfundur Mjólkursamlags KEA haldinn í gær:
Rekstrarhagnaður 61 milljón
„Annars hefur skólakrökkum
gengið betur að fá vinnu en at-
vinnulausu fólki að undanförnu.
Það er mjög miður að fólk sem
búið er að vera atvinnulaust í
marga mánuði fái ekki vinnu, þó
tímabundió sé,“ sagði Aðalsteinn.
Þó almennt atvinnuástand sé
betra núna en í fyrra, en þá voru
164 atvinnulausir á þessum tíma
en eru 139 núna, þá er atvinnu-
ástand alltaf að versna í sveitun-
um og þar gengur ungu fólki, sér-
staklega piltum um tvítugt, illa að
fá vinnu.
Brjálað að gera
- 44 mjólkurframleiðendur hlutu viðurkenningu fyrir gæðaframleiðslu
Mjólkursamlag KEA á Ak-
ureyri var rekið með 61
milljón króna hagnaði á árinu
1994 á móti 21 milljón króna
hagnaði 1993, sem er tæplega
5% af veltu. Rekstrartekjur voru
1,2 milljarður króna, skamm-
tímaskuldir 212 milljónir króna
og langtfmaskuldir 63 milljónir
króna. Mjólkursamlag KEA tók
á móti 20.096.047 lítrum af
mjólk á árinu 1994 sem er 3,13%
aukning milli ára á innvegnu
magni, eða 609 þúsund lítrar.
Greiðslumark yfirstandandi
verðlagsárs er nú 19.733.173 lítr-
ar og Samtök afúrðastöðva hafa
Þokuslæðingur verður út við
sjóinn á Norðurlandi vestra í
dag og víða smá skúrir og
hiti frá 1 til 5 stig. Á Norð-
austurlandi hlýnar eitthvað
með suðaustan átt eða
kalda og um leið léttir til.
Skúrir verða, aðallega á an-
nesjum, í dag og hiti 2 til 5
stig. Hætt við éljum eða
slydduélum upp úr næstu
helgi.
VEÐRIÐ
gefið út þá yfirlýsingu þar sem
ábyrgst er greiðsla fyrir prótein-
hlutann úr allt að 1,5 milljón
lítrum af mjólk umfram
greiðslumark á landinu öllu.
Framleiddir voru 2.316.951
lítrar af nýmjólk, 1.188.656 lítrar
af léttmjólk, 174.817 lítrar af
rjóma, 386.340 lítrar af undan-
rennu, 303.838 lítrar af súrmjólk
og 197.096 kg af skyri. Smjör-
framleióslan nam 243.916 kg,
388.685 kg af smjörva, 579.161
kg af Gouda 26% osti og 562.800
kg af Gouda 17% osti en enginn
útflutningur var á ostum en 132
tonn af smjöri voru flutt út. Sala
nýmjólkur heldur áfram að drag-
ast saman, var 2.476.457 lítrar ár-
ió 1993, og nær aukning á neyslu
nýmjólkur ekki að vega það upp
en aukning varð í framleiðslu á
ostum. Framleiðsla annarra vöru-
tegunda var í minna magni. Tank-
bílarekstur Mjólkursamlagsins var
gerður upp með 1,6 milljón króna
hagnaði á árinu 1994 en tap varð á
árinu 1993 að upphæð 4,2 millj-
ónir króna.
Bændum sem hljóta heiðurs-
verðlaun Mjólkursamlagsins fyrir
árið 1994 fjölgar úr 29 árið 1993 í
44. Hjá þeim hefur gerlainnhald
mjólkur ekki farið yfir 30.000
gerla pr. ml. Þrír bændur hafa sl.
11 ár fengið viðurkenningu fyrir
úrvals mjólk. Þeir eru Sverrir
Sverrisson, Neðri-Vindheimum;
Ami Hermannsson, Ytri-Bægisá
og Félagsbúið Eyvindarstöðum.
Þessa aukningu á gæðum mjólkur
telur mjólkursamlagsstjóri, Þórar-
inn E. Sveinsson, að rekja megi
m.a. til stöðugrar baráttu gegn
júgurbólgu samfara alhliða og
sterku heilbrigðiseftirliti. GG
Eyjafjarðarsveit:
Lambhrútur kom heim
á sumardaginn fyrsta
Eftir óvenju harðan vetur á
norðanverðu landinu má
það kallast merkilegt að
útigöngukindur skuli hafa lifað
hann af. Þannig var þó með
Lambhrúturinn kominn í hús á
Finnastöðum. Mynd: Robyn
lambhrút í eigu Ketils Helgason-
ar á Finnastöðum í Eyjafjarðar-
sveit sem heimtist, eða réttara
sagt kom heim, á sumardaginn
fyrsta.
Ketill saknaði hrútsins sl. haust
er hann kom ekki af fjalli. A sum-
ardaginn fyrsta var féð á Finna-
stöðum úti og um kvöldið hafði
lambhrúturinn bæst í hópinn, án
þess að nokkur hafi áður oróið
hans var. Hrúturinn var ágætlega á
sig kominn og hinn sprækasti.
Hins vegar hefur hann sennilega
verið búinn að fá nóg af einver-
unni á fjöllum og ákveðið að drífa
sig heim og fylgjast með sauð-
burði. HA
Aðalsteinn sagði að 1. maí há-
tíðarhöldin heföu verið fjölsóttari
á Húsavík en áóur, um 350 manns
hefðu komið á hátíðardagskrána
og þegið kaffi og tertu. Milli 300
til 400 ungmenni sóttu bíósýningu
sem verkalýðsfélögin buðu til í
tilefni dagsins. Aðalsteinn sagði
að veðrió hefði verið frábært
þennan dag, en þaö heföi ekki
dregið úr aðsókn á hátíðarhöldin.
IM
r
L
Innanhúss-
málning
10 lítrar
kr. 4.640,-
KAUPLAND
Kaupangi ■ Sími23565