Dagur - 08.07.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 8. júlí 1995
FRÉTTIR
Gamli bærinn í Laufási:
Endurbætur á smiöjunni
komnar
langt
Undanfarin tvö sumur hafa
staðið yfir umtalsverðar endur-
bætur á gamla bænum í Laufási.
Byrjað var á smiðjunni, hún rif-
in til grunna og byggð upp aftur.
M.a. þurfti að grafa víða niður á
fast, en mikil þyngsli eru í
gömlu torfbæjunum og þeir vilja
því síga. Um timburverkið í
bænum hafa séð Sverrir Her-
mannsson á Akureyri og hans
menn og luku þeir sinni vinnu á
dögunum.
„Þessi áfangi í timburverkinu
er búinn. Við byrjuðum á þessu í
fyrra, héldum síóan áfram í sumar
og svo er von á torfmanninum
sem endanlega lokar húsinu og
gengur frá því,“ sagði Sverrir. Aó
hans sögn er mikió verk framund-
an við að endurnýja Laufásbæinn
og verður þaó tekið í áföngum
eins og efni og aðstæður leyfa.
„Það verður gengið að þessu verki
á hverju ári og tekið fyrir það sem
mest ríður á hverju sinni,“ sagði
Sverrir.
Sverrir hefur sérhæft sig í end-
urgerð gamalla húsa og komið
víða við. „Eg er búinn að vera í
þessum smíðum í 50 ár og síðast-
liðin 30 ár hef ég bara sérhæft mig
í gömlu húsunum. Eg hef verið
meö um og yfir 30 hús í takinu en
er núna að slaka á sjálfur.“
Um þessar mundir eru Sverrir
og hans menn að vinna við endur-
bætur utanhúss á Gamla spítalan-
um vió Aðalstræti 14 á Akureyri,
sem vera mun elsta tvílyfta hús á
landinu. Akureyrarbær festi kaup
á húsinu og afhenti Læknafélagi
Akureyrar og Félagi hjúkrunar-
fræðinga á Norðurlandi það til
umsjónar og rekstrar. Er í bígerð
að setja þar upp safn um sögu
lækninga og hjúkrunar. „Þetta er
mikið og traust hús og ótrúlega
lítill fúi í því,“ sagói Sverrir, en
jafnframt að þama væri mikið
verk framundan. HA
Tilboð opnuð í stjórnunarálmu við Glerárskóla:
Hyrna hf. með lægsta
tilboðið sem er 86.57%
Gamli torfbærinn í Laufási er fallegt hús, sem fjöldi ferðafólks heimsækir á
ári hverju. Nú er cndurbótum á smiðjunni að mestu lokið, en hún er fremst
á myndinni. Mynd: Halldór.
Þokkalegur afli
fyrir austan land
af kostnaðaraætlun
Sex tilboð bárust í byggingu
stjórnunarálmu við Glerárskóla
á Akureyrí, kjallara og jarðhæð
að grunnfleti 450 fermetrar. Um
er að ræða fullnaðarfrágang að
utan og jarðhæðar. Lægsta til-
boðið var frá Hymu hf. á Akur-
eyri, kr. 49.882.063 sem er
86,57% af kostnaðaráætlun sem
hljóðaði upp á kr. 57.621.316.
Önnur tilboð voru frá Tré-
smíðaverkstæði Þorgils Jóhannes-
sonar á Svalbarðströnd að upphæð
kr. 50.734.860 eóa 88,04%; frá
SJS Verktökum hf. á Akureyri að
upphæð kr. 53.135.738 eða
92,21%; frá SS-Byggi hf. á Akur-
eyri að upphæð kr. 55.946.928
eða 97.09%; frá Fjölni hf. á Akur-
eyri að upphæð kr. 56.881.727
eóa 98,72% og frá Kötlu hf. í Ár-
skógshreppi að upphæð kr.
59.921.673, eða 103,99% af
kostnaðaráætlun.
Tilboðin eru að sjálfsögðu óyf-
irfarin og því kunna að koma fram
reikningsskekkjur þegar bygg-
ingadeild Akureyrarbæjar fer yfir
tilboðin auk þess sem kanna þarf
gögn um stöðu og búnað tilbjóð-
enda vegna nýrra og strangari
reglna um útboð. Tilboðin verða
síðan til umfjöllunar fram-
kvæmdanefndar Akureyrarbæjar
næstkomandi mánudag en stefnt
er að því að ganga til samninga
um verkið í næstu viku. Verkið
hefst strax að lokinni undirritun
samnings og skal lokið í maímán-
uði 1996 og kemst langþráð
stjómunarálma því í notkun í upp-
hafi skólaársins 1996/1997. GG
Margrét EA-710 og Oddeyrin
EA-210, tvö af skipum Samherja
hf., em á veiðum fyrir austan
land og hefur afli verið þokka-
legur en blandaður, aðallega
karfi, ufsi og þorskur. Margrét
EA hóf túrinn með veiðum í
Smugunni en þar var nánast
enginn veiði svo haldið var til
baka á íslandsmið.
Baldvin Þorsteinsson EA-10 er
á Reykjaneshrygg á úthafskarfa-
veiðum en önnur skip útgerðar-
innar eru m.a. fyrir vestan land.
Oddeyrin EA kemur til löndunar
nk. mánudag og síðan önnur þar
fljótlega á eftir.
Samherji hf. á Akureyri hefur
sem kunnugt er keypt loðnuskipið
Helgu II RE-373, sem er 793
tonna skip, smíðað í Noregi 1988,
af Ármanni Ármannssyni í
Reykjavík sem er að láta byggja
nýjan togara í Noregi, sem verður
afhentur í júnímánuði 1996. Helga
II verður afhent Samherja hf. í
byrjun októbermánaðar. Upphaf-
lega stóð til að selja bæði Helgu II
og Helgu RE-49 úr landi til Nor-
laafffafl SD
0BÐ 0Qff« VQDDQQfil
Laugardagur 8. júlí
Sýning á verkum Birgis Andrés-
sonar opnuð í Deiglunni.
Sunnudagur 9. júlí
Tónleikar í Listasafninu á Akur-
eyri. Arna Kristín Einarsdóttir,
flautuleikari og Geir Rafnsson,
slagverksleikari flytja verk eftir
George Hue, Debussy o. fl. Kl.
20.30.
Gönguferð um Innbœinn frá
Laxdalshúsi kl. 13.
Mánudagur 10. júlí
íslensk kvöldlokka. Már Magn-
ússon syngur íslensk sönglög,
þjóðlög o. fl. í Deiglunni kl. 21.
Aögangur kr. 500,-
Sýningar
Listasafnið á Akureyri Jón
Gunnar Árnason Jan Knapp
Myndlistaskólinn ó Akureyri
Sumar '95
Deiglan og Glugginn Birgir
Andrésson
Café Karólína Dröfn Friðfinns-
dóttir
Afmæli Ólafsfjarðarbæjar:
Forseti Islands í heimsókn í dag
Ólafsfirðingar halda upp á 50
ára kaupstaðarafmæli bæjarins
um helglna og alla næstu viku,
en dagskráin hófst í gær þegar
tekið var á móti unglingum frá
öðrum bæjum. Fleiri gestir eru
væntanlegir, og kemur Vigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands í
heimsókn í dag.
Embættismenn og bæjarstjóm
taka á móti forsctanum á Ólafs-
fjarðarfiugvelli kl. 13 og þaðan
verður haldið að Tjamarborg þar
sem forseti íslands og forseti bæj-
arstjómar munu ávarpa bæjarbúa
og gesti. Verði veður óhágstætt
mun þessi liður verða fluttur í
íþróttamiðstöóina.
Um kl. 14 hittir forsetinn eldri
borgara, verður viðstödd vígslu
húss þeirra og að því loknu verður
kaffisamsæti. Gert er ráð fyrir að
forsetinn skoði ýmsar sýningar
sem settar hafa verið upp í tilefni
afmælisins frá kl. 15.45-17.15,
m.a. ljósmyndasýningu þar sem
myndefnið er fengið úr bæjarlíf-
inu.
Klukkan 18.00-20.15 situr for-
seti íslands kvöldverð í boði bæj-
arstjómar á Hótel Ólafsfiröi og að
honum loknum verður hún heið-
ursgestur á fmmsýningu söguann-
áls Ólafsfjarðar eftir Guðmund Ól-
afsson sem ber heitið „Horfðu
glaður um öxl“.
Klukkan 22.15 verður Vigdís
kvödd á flugvellinum. shv
100 ára verslunarafmæll Hvammstanga:
Hátíöardagskrá í dag
verður mikið um að vera á
Hvammstanga þegar þar verður
haldið upp á 100 ára verslunar-
afmæli staðarins með veglegri
dagskrá.
Dagskráin hefst kl. 11 með úti-
markaói við Félagsheimili
Hvammstanga, en markaðurinn
verðurtil kl. 16.
Klukkan 13 til 14 vcrður úti-
dagskrá við félagsheimilið og víð-
ar. Edda Hrönn Gunnarsdóttir, for-
maður afmælisnefndar, ávarpar
hátíðargesti, Lillukórinn syngur og
Leikflokkurinn á Hvammstanga
sér um gönguferðir um söguslóðir
verslunar og þjónustu á Hvamms-
tanga.
Frá kl. 14 til 16 verða kaffiveit-
ingar í félagsheimilinu, en kl. 16
hefst dagskrá í félagsheimilinu þar
sem Leikflokkurinn rifjar upp at-
vik úr verslunarsögu Hvamms-
tanga.
Hátíöarhöldunum lýkur síðan
með eðalballi, harmonikudansleik
að gömlum sið fyrir alla fjölskyld-
una. Aðgangseyrir verður kr. 800
fyrir 16 ára og eldri, frítt fyrir 15
ára og yngri. 12 ára og yngri komi
í fylgd með fullorönum.
Það skal tekið fram að verslun-
arminjasýningin á Hvammstanga
verður opin á morgun kl. 12-17.
óþh
egs, en Samherji hf. festi kaup á
Helgu II og á móti þarf útgerðin
að úrelda skip eða selja úr landi.
Hvaða skip þaö verða er ekki
ákveðið, en Samherji hf. hefur eitt
ár til að hrinda því í framkvæmd.
Líklegt er að það verði Hjalteyrin
EA-710 og Oddeyrin EA-210 en
það hefur þó ekki fengist staðfest
frekar en kaupverð skipsins. Með
Helgu II fylgir loðnukvóti skips-
ins, sem nú er við fyrstu úthlutun
veiðitímabilið 1995/1996 alls
19.284 tonn, sem er 3,6% af heild-
arúthlutuninni, 536 þúsund tonn-
um. Seljandi heldur öðrum kvóta
skipsins, sem var á yfirstandandi
fiskveiðiári 564 tonn af úthafs-
rækju, 34 tonn af þorski og síldar-
kvóti. Helga II mun stunda rækju-
veiðar þann tíma sem ekki er ver-
ió á loðnuveiðum og mun þá nýta
þann rækjukvóta sem færður verð-
ur af þeim skipum sem verða úrelt
eða seld úr landi. GG
Allt hvítt við
Kverkfjöli
Hvít jörð blasti við skálavörðum
og gestum í KverkQöllum í
morgunsárið á fimmtudaginn og
að sögn Steinunnar Þórhallsdótt-
ur, skálavarðar, var enginn á
svæðinu í gær.
Aðsókn hefur verið góð frá því
opnaó var, og hafa bæði íslending-
ar og útlendingar heimsótt staðinn,
enda veður verið gott hingað til.
„Aðsóknin hér fer nánast al-
gjörlega eftir veðrinu. Ef veður er
slæmt koma engir Islendingar og
hópar frá ferðaskrifstofum stytta
dvölina, dvelja frekar eina nótt en
tvær.“
Steinunn sagðist ekki treysta
sér til að spá neinu um fjölda í
sumar, en henni sýndist að hann
hefði framan af verið svipaður og
og venjulega, en ef sumarið yrði
kalt og snjóþungt væri ekki hægt
aó búast við miklu. „Sem stendur
er alhvítt, að vísu engir skaflar, en
hvít jörð eins langt og maður sér.“
shv
Siglingar:
Opið íslands-
mót á Pollinum
Nú stendur yfir á Pollinum við
Akureyri opið Islandsmót í sigl-
ingum. Keppnin hófst í gær og
lýkur síðdegis í dag. Þama em all-
ir fremstu siglingamenn landsins á
feróinni og kærkomið tækifæri til
að berja þessa kappa augum.
Keppnin hefst kl. 10 í dag og
stendur til 17. Keppendur eru 25
og má búist vió skemmtilegri
keppni.