Dagur - 08.07.1995, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 8. júlí 1995
Erum að komast á fiiilt skrið
- rætt við Guðbjart Ellert Jónsson, framkvæmdastjóra Glits í Ólafsfirði
ÓlafsQörður hefur gegnum tíð-
ina byggst upp í kringum sjó-
sókn og fiskvinnslu og verður
svo án efa enn um sinn. Menn
hafa einnig leitað leiða til að
auka Qölbreytni atvinnulífsins
og með það fyrir augum fóru
bæjaryfirvöld í Ólafsfirði af stað
til að kanna kaup á fyrirtæki
sem hentað gæti í bæjarfélagi á
stærð við ÓlafsQörð. Fyrir val-
inu varð rótgróið fyrirtæki, Glit
í Reykjavík, sem til fjölda ára
hefiir framleitt margskonar
keramikmuni.
Fyrirtækið var keypt í lok árs-
ins 1994 og í iok mars á þessu ári
hófst starfsemin í Ólafsfirði. I fyr-
irtækinu eru 11 stöðugildi og
framkvæmdastjóri var ráöinn
Guöjartur Ellert Jónsson, sem áð-
ur var markaðsstjóri Gúmmí-
vinnslunnar hf. á Akureyri. Nú
þegar komin er nokkur reynsla á
rekstur Glits er ekki úr vegi að
taka hús á Guðbjarti og samstarfs-
fólki hans í Ólafsfirði.
„Við byrjuðum á að framleiða
upp í pantanir sem lágu fyrir og
klára hálfunna vöru sem fylgdi
fyrirtækinu. Við notuðum það til
að þjálfa okkar starfsfólk upp og
það hefur gengið mjög vel. Þetta
eru hins vegar það sérhæfð vinnu-
brögð að vió þurfum tíma til að ná
tökum á þeim. Allir sem hér starfa
eru heimafólk og það er gaman að
segja frá því að þegar starfsemin
fór í gang kom í ljós aó starfsfólk-
ið var talsvert fljótara að vinna
verkin en var í gamla fyrirtækinu
fyrii sunnan. Hvort það tengist því
að fólk hér hefur verió vant bón-
uskerfmu úr fiskvinnslunni skal
ég ekki segja, en í þaó minnsta
vinnur hér harðduglegt starfs-
fólk,“ sagði Guðbjartur og var
greinilega ánægður með sitt fólk.
„Við erum að komast á fullt
skrið núna og erum aó klára að
setja upp síðasta ofninn af þeim
sem við komum til meó aó nota í
bili.“ Leirinn sem notaður er vió
vinnsluna er keyptur inn frá Hol-
landi og Danmörku, en það sem
síðan er sérkenni vörunnar er ís-
lenska hraunið sem sett er utaná
og allir ættu að kannast við, enda
munir frá Gliti til á mörgum ís-
lenskum heimilum.
Tímamótasamningur
Á dögunum urðu þáttaskil í rekstri
fyrirtækisins þegar gengið var frá
samningum við enska aðila um
sölu þangað á miklu magni kera-
mikvasa. „Það er búið að taka
töluvert langan tíma að ræða við
þessa aðila, en þeir kaupa inn í
Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Glits, við hiuta af framleiðsluvörum fyrirtækisins.
Myndir: BG
„Hér vinnur harðdugiegt starfsfólk,“ segir Guðbjartur Ellert Jónsson, en í
fyrirtækinu eru 11 stöðugildi.
unum úti þótti mjög áhugavert.
Þannig væri um fullbúna vöru að
ræða frá íslandi." Þá segir Guð-
bjartur aö sænska fyrirtækið sem
verið er að semja við hafi áhuga á
að dreifa vörunni til Bandaríkj-
anna.
Glit framleiðir einnig fyrir inn-
anlandsmarkað og þar er einkum
um að ræða ýmis sérverkefni.
Sjálfsagt kannast flestir íslending-
ar við keramikvörumar frá Gliti,
með íslenska hrauninu utaná, sem
verið hefur á íslenskdm heimilum
í 20-30 ár. „Mörgum fínnst þetta
kannski ekki alveg ganga saman
við þann tíma sem við lifum í dag
en útlendingar hafa keypt töluvert
mikið af þessu.“
Lítið fyrirtæki líka kostur
Guðbjartur segir ýmsa kosti fylgja
því að vera með fyrirtæki sem
ekki er stærra í sniðum. „Litaval
hefur mikið að sega varðandi það
hvort varan selst eða ekki og í litlu
fyrirtæki er fljótlegt að breyta um
eftir því hvernig markaðurinn
sveiflast. Við höfum líka sérhæft
okkur í sérmerkingum og álíming-
um á hluti fyrir fyrirtæki og ein-
staklinga, t.d. til jólagjafa eða sem
minjagripi. Þetta er svona aukabú-
grein hjá okkur. Eins reyna menn
alltaf að vera með augun opin fyr-
ir nýjum möguleikum og eitt af
því sem okkur hefur dottið í hug
er að endurnýta leir sem fellur til
hjá okkur og framleiða leirdúfur
fyrir skotveiðimenn og þá sem
stunda leirdúfuskotfimi. Það er
því margt sem getur komið upp
þegar svona fyrirtæki er farið að
snúast,“ sagði Guðbjartur Ellert
Jónsson, framkvæmdastjóri Glits.
HA
töluvert miklu magi og dreifa á
verslunarkeður. Við erum í þessu
sambandi að tala um magn sem
hefur í för með sér nokkurra mán-
aða vinnu hjá okkur og ég mundi
áætla að þessi samningur, ásamt
samningi sem er í burðarliðnum
við aðila í Svíþjóó, muni taka yfir
um 80-90% af framleiðslu fyrir-
tækisins, sem þá fer í útflutning."
Guðbjartur segir hins vegar
innanlandsmarkaðinn af ýmsum
orsökum talsvert erflðari við að
eiga. „Ástæða þess að við horfum
frekar á þennan möguleika en ekki
innanlandsmarkað er sú að innan-
landsmarkaðurinn er mjög erfiður
þar sem verið er að flytja inn vör-
ur í stórum stíl frá Asíulöndum á
verði sem við getum ekki keppt
við. Keramikvörur eru líka allar
fluttar inn á tollnúmerum sem eru
undir búsáhöldum. Það er því
mjög erfitt að fá upplýsingar um
stærö markaðarins fyrir þessar
vörur og finna út hvað á að fram-
leióa. Þannig hefur tollakerfið og
það hvað margar vörutegundir eru
undir sama tollnúmeri, valdið
mörgum fyrirtækjum erfiðleikum
því þær forsendur sem menn hafa
reiknað út frá við áætlanagerð
hafa ekki verið byggðar á raun-
verulegum tölum.“ Glit er raunar
sjálft í innflutningi, eða réttara
sagt dótturfyrirtæki þess í Reykja-
vík og flytur inn vörutegundir sem
Glit getur ekki framleitt, ásamt
ýmsu öðru sem tilheyrir leirgerð
og leirgerðarlist.
Fleira á döfínni
Guðbjartur segir engan vafa leika
á að samningurinn við enska fyrir-
tækið er stór áfangi fyrir Glit.
„Þessi samningur hentar okkur
mjög vel þar sem við höfum tæki-
færi til að afgreiða vöruna í
nokkrum sendingum, en ekki allt í
einu. Það sem kannski hefur gert
þetta mögulegt fyrir okkur er að
við höfum fundió þama ákveðinn
markað sem er frekar lítill og mið-
ast við aó fá hærra verð fyrir vör-
una. Þetta fyrirtæki óskaði einnig
eftir því aó við færum út í vöru-
þróunarverkefni sem felst í fram-
leiðslu á lampafótum.“
Þar segir hann geta oróió um
mjög stórt verkefni að ræða og á
það að fara í gegnum fyrirtæki í
Þýskalandi með dreifmgu um alla
Evrópu í huga. „Viö höfum hugs-
anlega möguleika á að leita eftir
samstarfi við aðila hér á landi um
gerð skermanna. Við höfum t.d.
áhuga á að koma steinbíts- og
hlýraroði á þessa skerma sem aðil-