Dagur - 08.07.1995, Side 13
Laugardagur 8. júlí 1995 - DAGUR -13
POPP
MAÚNÚS CEIR ÚUÐMUNDSSON
Hærra, lengra, hraðar
Á vissan hátt er þaó nærtækast aó
vitna til slagorðs Olympíuleikanna,
til að lýsa uppgangi Bjarkar Guó-
mundsdóttur í heimi poppsins um
þessar mundir með plötunni sinni
nýju, Post. Hærra, lengra, hraðar,
hljómar nokkurn veginn þetta slag-
orö og er einmitt nákvæmlega þaó
sem er að gerast hjá söngkonunni
okkar nettu. Hærra og lengra upp
frægðartindinn klífur hún áfram nú
og hraðar aó ég held, nokkuð sem
fæsta hefur órað fyrir. Bamsleg
einlægni Bjarkar hefur eins og lík-
lega flestir hafa gert sér grein fyrir,
átt stóran þátt í að skapa vinsældir
hennar, litlu síður en rödd hennar
og tónlist. Heldur sú þróun greini-
lega áfram nú jafnframt sem það
skín í gegn á Post, betur sem aldrei
fyrr, að á feróinni er listamaður
sem gerir verk sitt á eigin forsend-
um, NÁKVÆMLEGA þannig og
ekki öðruvísi. Það er því ekkert
undarlegt fyrst slagorð Ólympíu-
leikanna er manni nærtækast til að
lýsa framgangi Bjarkar, að sjálf
Ólympíuhugsjónin lýsi tilgangi og
tilveru hennar sem tónlistarmanns.
„Aðalatriðið er ekki að sigra, held-
ur að taka þátt,“ er Ólympíuhug-
sjónin í hnotskum, fyrir einstak-
linga jafnt sem þjóðir. Á sama hátt
er því frægðin og framinn ekki það
Rcifplatan númer tíu.
• Reif í runnann er nafnið á
nýjustu reifplötunni og mun
hún vera sú tíunda í röóinni.
Geymir platan samtals 19 lög
og eru þar á mcðal þckkt nöfn
í danspoppinu á borð við Cor-
ona og Whigfield. Hafa
Reifplötumar hingað til notið
gríóarlegra vinsælda og má
nefna því til staðfestingar, að
síðustu þrjár hafa samtals selst
í yfir 20.000 cintökum.
• Eftir um þriggja ára þögn
eru nú þungarokkaramir vin-
sælu í Iron Maiden, loks
komnir á kreik að nýju. Eru
þeir Steve Harris og félagar nú
að mestu búnir að ljúka gerð
nýrrar enn ónefndrar plötu,
sem koma á út í byrjun sept-
ember. Veróur síðan í kjölfarið
haldið í tónlcikaferó að hætti
hússins, víóa um heim, sem
standa mun í a.m.k. sjö mán-
uði.
• U2 hafa mörg jám í eldinum
þessa stundina og halda áffam
að koma skcmmtilega á óvart.
Innan skamms keniur heil
plata, sem í hálfkæringi er
kölluð „kvikmyndatónlistar-
plata“ og í bígerð er „rokk og
ról“ plata, scm gcrt er ráð fyrir
að komi út um mitt næsta ár.
Er það eins og oft áður Brian
Eno, sem er Bono og félögum
til halds og trausts við gerð
þessara platna.
- Björk, hvar endar þú?
sem virðist skipta Björk megin-
máli, heldur að geta gert það sem
huga hennar og hjarta stendur næst.
Vera þátttakandi í hinum heillandi
heimi tónlistarinnar.
Án hliðstæðu
Þessar samlíkingar hér að framan
kunna ef til vill að hljóma helst til
háfleygar og orðmargar (ef ekki
bara út í hött) og innihaldið eftir
því, en það verður bara að segjast
eins og er að öðruvísi en á háfleyg-
um nótum í það minnsta er vart
hægt að reyna að lýsa þeim áhrif-
um sem Björk hefur. Hvað Post
varðar, svo vikið sé nú sérstaklega
að henni, þá væri einfaldast að
segja að hún væri reyndar líkt og
Debut, misgóð, með góðum og
grípandi lögum og öðrum heldur
síðri líka. En af framansögðu dugar
það bara ekki, svo margt annað í
fari og fasi Bjarkar, sem ekki þarf
að rekja frekar, spilar þar inn í. Það
er þó að ég held ekki spuning að
Post er tónlistarlega töluverö fram-
þróun. Lagasmíðamar eru í senn
rólegri og yfirvegaðri og minni
„maskínubragur" er sem betur fer á
plötunni. Þarf annars ekki að leggja
frekari dóm á hana. Við vitum að
Björk er einstök, gjörsamlega án
hliðstæðu. Hér veröa því engar
Björk. Barnslcga cinlægnin ber hana langt.
stjömur gefnar frekar en fyrri dag-
inn. Björk fær alveg nóg af þeim
annars staóar, þó þær skipti hana
reyndar litlu. Er slík einkunnargjöf
líka að sumu leyti leiðitöm og hefur
þann galla aó fólki hættir til að taka
of mikið mark á henni. Sumir láta
sér meira að segja nægja að líta á
stjömugjöfina og sleppa aö lesa
hvað liggur henni til grundvallar.
Slíkt er nú ekki gott, en er samt
önnur saga. Sú spuming lifir hins
vegar hvað framgang Bjarkar varð-
ar: Hvar endar þetta alltsaman?
Verða heimsyfirráðin hennar, hvort
sem hún vill það eða ekki? Svar: ??
Björk á Kleifum
Nú virðist það ljóst samkvæmt
fregnum í ljósvakafjölmjðlunum,
að Björk kemur heim til Islands í
sumar og verður í aðalhlutverki á
mikilli tónlistarhátíð, sem halda á
um verslunarmannahelgina á Kleif-
um, skammt frá Kirkjubæjar-
klaustri. Þarf ekki að tíunda hversu
mikill viðburður þetta verður, en
ásamt Björk munu m.a. Underw-
orld, Dmm Club, Prodigy, sem all-
ar eru frá Bretlandi og hafa komið
hingaö áður, og Bubbleflies, koma
þama fram. Væntanlega verður
meira fjallað um þessa uppákomu
síðar.
Vel þess virði
Eins og fram kom hér á síðunni á
sínum tíma þegar það spurðist að
Sálin hans Jóns míns og reyndar
Stjómin líka, ætluðu að snúa aftur
með „stæl“ í sumar, voru nokkrar
efasemdir hafðar uppi um gildi
þess og líka hent pínulítið gaman
að því. Það verður hins vegar að
segjast eins og er að allavega í til-
viki Sálarinnar hefur þessari end-
urkomu verið vel tekið og fólk
ekki látið sig vanta þar sem
hljómsveitin hefur farið. Það sem
svo ekki síður er um vert, er að
nýja platan, Sól um nótt, sýnir að
enn er ýmislegt eftir sem Sálin
hefur upp á að bjóða. Er það eins
og oftast áður Guðmundur Jóns-
Sálin á enn crindi í íslensku
poppi. Mynd: MGG
son gítarleikari sem sér alfarið um
lagasmíðarnar, sem að þessu sinni
eru tíu talsins, en Stefán Hilmars-
son söngvari og Friðrik Sturluson
bassaleikari um textana. Reyndar
veróur Sól um nótt hvorki talin til
stórvirkja í poppinu, né byltingar-
verka, en tiltölulega jafn og stíl-
hreinn heildarsvipur, sem hljómar
betur við hverja hlustun, gerir það
að verkum að platan er vel yfir
meðallagi. Nefna má lög eins og
Dimma, Netfangin og Saga, sem
dæmi um prýðispoppsmtðar. Upp-
fylla þeir vel það skilyrði aó geta
fest vel í minni. Upptökunni á
plötunni er síðan ástæða til aö
hrósa sérstaklega. Er hún tær og
„fyllir" vel út í ýmist hátalara eða
heyrnartól. Hún verður því að telj-
ast vel þess virði, endurkoma Sál-
arinnar.
Be5i5 eftir
Metallica
Nokkrar vonir voru bundnar við það
um hríð að risarokkaramir í Metall-
ica, myndu loks senda frá sér nýja
plötu á þessu ári, en fjögur ár em nú
síðan svarta platan sigursæla, sem
eingöngu bar nafn hljómsveitarinnar,
kom út. Nú er hins vegar ljóst að ekki
verður af útgáfu fyrr en á næsta ári
og hefur mars verið nefndur sem
hugsanlegur útgáfumánuður. Hófu
aðalsprautumar, Lars Ulrich trommu-
leikari og James Hetfield söngvari og
gítarleikari, að setja saman efni seint
á síðasta ári, en í hljóðver ásamt hin-
um tveimur í sveitinni, Jason New-
sted bassaleikara og Kirk Hammett
gítarleikara, héldu þeir ekki fyrr en í
apríl á þessu ári. Þar hafa þeir síðan
unnið í tveggja vikna skorpum í senn,
en tekið svo tveggja vikna hlé, koll af
kolli fram á þennan dag og er áætlað
að þeir ljúki verkinu í október. Fer
upptakan fram í heimaborginni San
Fransisco og er það í fyrsta skipti
sem félagamir fjórir gera plötu þar.
Er upptökustjórinn sá sami og síðast,
Bob Rock. Þau tónleikatíðindi em
síðan af Metallica, að sveitin hefur
nú óvænt orðið til þess að vekja Don-
ingtonrokkhátíðina upp frá dauðum.
Mun hátíðin fara fram 26. ágúst. Síð-
an mun sveitin koma fram á helgar-
rokkhátíð í Kanada, í svokölluðum
Artic Circle 4. og 5. september, með
líklega Offspring, Hole o.fl.
Mctallica tekur sér góðan tíma til plötugerðar.