Dagur - 08.07.1995, Side 20
1M«IE
Akureyri, laugardagur 8. júlí 1995
Asprent-POB tekið til starfa:
Andinn er
alveg glimr-
andi góður
- segir Rósa Guðmundsdóttir
Um mánðamótin tók nýtt
prentvinnslufyrirtæki til
starfa á Akureyri, Ásprent-POB.
Það varð sem kunnugt er til með
kaupum Ásprents á prentsmiðju
Ako-POB og er nýja fyrirtækið
til húsa í húsnæði Asprents, sem
var stækkaði talsvert, þar sem
keyptir voru 300 fermetrar til
viðbótar sem unnið er hörðum
höndum við að innrétta þessa
dagana. Flutningur á POB er
þegar hafinn og að sögn Rósu
Guðmundsdóttur hjá Asprenti-
POB verður það að ganga hratt
fyrir sig. Stefnt er á að þeim
verði að fullu lokið í lok ágúst.
Ein af forsendum sameiningar
fyrirtækjanna var að Ásprent hef-
ur fest kaup á nýrri og afar full-
kominni fjögurra lita prentvél sem
eykur afköst til muna og með
kaupunum á POB er verið að
skapa aukin verkefni fyrir hana.
Nýja vélin fór að snúast sl. mánu-
dag og Rósa sagist vera alveg í
skýjunum. „Þetta hefur í för með
sér 60% styttingu á vinnutíma og
hagkvæmnin verður því miklu
meiri. Eins og ég hef bent á erum
við að keppa við fyrirtækin fyrir
sunnan og markmiðið er að láta
sem minnst af verkefnum fara til
Reykjavíkur," sagði Rósa og
minntist í því sambandi á nýtt
fréttabréf frá prentsmiðjunni Odda
í Reykjavík sem hleypt hafi aukn-
um krafti í sitt fólk. „Við ætlum
okkur svo sannarlega að stríða ris-
unum í Reykjavík."
Eins og gjarnan þegar eitt fyrir-
tæki sameinast öðru var ráðninga-
Ólafsfjöröur:
Bílvelta
Fólksbifreið valt við bæinn
Lón, Ólafsfirði, um hálfsex-
leytið á fimmtudag.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í Ólafsfirði rann bifreið-
in til í aurbleytu með þeim afleið-
ingum að hún lenti utan vegar.
Tvennt var í bílnum en engin
meiðsl urðu á fólki. Bifreiðin er
þó talin mikið skemmd. GH
HELCARVEÐRIÐ
í dag verður verður suð-
vestlæg átt, smá saman
birtir til og léttskýjað verður
fram eftir degi. Á morgun
verður bjartviðri með hægri
suðvestan átt og hitinn allt
að 12-14 stig. A mánudag
og þriðjudag verður austan
kaldi eða stinningskaldi á
landinu, rigning um austan-
vert landið en úrkomulítið
annars staðar, hiti 7-15 stig.
málning
10 lítrar
kr. 4.640,
0
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 462 3565
samningum starfsfólks POB sagt
upp en Rósa sagðist ekki sjá fyrir
sér að starfsfólki muni fækka svo
neinu nemi. „Þetta eru tvö fyrir-
tæki í fullum rekstri og ef fer sem
horfir sé ég ekki fram á að ég
þurfi að fækka fólki, þó einhverjar
breytingar verði eflaust eins og
gengur. Við erum að styrkja okkur
með þessum breytingum því nú er
hægt að afgreiða verk á mun
skemmri tíma en áður.“
Rósa sagist ekki geta neitað því
að hún hafi svolítið óttast hver
viðbrögðin við kaupunum yrðu og
hvort fólki mundi finnast þetta
vera yfirgangur. Hún kvaðst því
einstaklega ánægð með hversu all-
ir væru jákvæðir í garð nýja fyrir-
tækisins og þeirra breytinga sem
átt hafa sér stað. „Ég viðurkenni
alveg að ég svitnaði. Frá því að
við fórum að ræða við þá í POB
og þar til ég sat með fyrirtækið í
fanginu Iiðu ekki nema 10 dagar.
En andinn er alveg glimrandi góð-
ur og ég hefði ekki trúað því sjálf
að það myndi blása svona góðu.
Ég finn alveg að þetta hefur verið
til góðs því enn þann dag í dag
veit ég ekki til jiess að ég hafi
misst eitt einasta verkefni út af
þessum breytingum. Það eru allir
sammála um að þetta hafi verið
rétt.
Þetta er auðvitað erfiðast fyrir
starfsfólkið í POB sem margt hef-
ur unnið lengi hjá fyrirtækinu.
Ræturnar í POB eru fólkið og ég
óska eftir því að sem flest af því
verði hjá mér. Hins vegar má ekki
gleyma því að þetta er líka erfitt
fyrir fólkið í Ásprent. En mér sýn-
ist allir leggjast á eitt um að láta
þetta ganga og starfsfólk fyrir-
tækjanna beggja hefur reynst mér
ákaflega vel í þessum breytingum.
Ég veit líka að ef allir leggjast á
eitt þá getum við smíðað úr þessu
stórkostlegt fyrirtæki sem ég
hlakka til að reka,“ sagði Rósa
Guðmundsdóttir. HA
r innanhúss- "*
Gömul ásjóna Strandgötu 41 birtist þessa dagana.
Mynd: BG
Akureyri:
„Felagsbakanið“ við Strand
götu fær gömlu ásýndina
Þessa dagana fer fram viðgerð
á Strandgötu 41 á Akureyri
og þegar bárujárninu hafði verið
flett af framhliðinni kom í ljós
áletrun sem minnti á þann tfma
er Kristján Jónsson rak þar bak-
arí allt þar til bakaríið var flutt
að Strandgötu 37.
Einnig er verið að setja í húsið
nýja glugga með póstum eins og
áður voru í húsinu og koma ásýnd
þess þar með í upprunalegt horf.
Það var Bökunarfélag Akureyrar
sem reisti húsið árið 1901 og
framan af öldinni var bakarí í
kjallara hússins, Félagsbakaríið,
en íbúð á hæð og risi. Eftir að
Kristján Jónsson bakari eignaðist
húsið reisti hann tvflyft stein-
steypuhús á baklóðinni árið 1925
sem stendur enn, þ.e. Hríseyjar-
gata 2. Það var fyrst í stað notað
sem geymsluhús, fjós og hænsna-
hús. GG
Bj Electrolux
getum
þér
)2 800 sn.,
iur 62.900,- nú 54.900,- stgr.
1000 sn.,
2.627,- nú 64.900,- stgr.
sn. með'
106.587,- nú 85.90: