Dagur - 05.08.1995, Page 4
4 - DAGUR - Laugardagur 5. ágúst 1995
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SlMI: 462 4222 • SÍMFAX: 462 7639
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavlk vs. 464 1585, fax 464 2285),
SÆVAR HREIÐARSSON,(íþróttir),
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GISUSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Verslunarmannahelgin
Það miðast allt við verslunarmannahelgina. Hlutirnir
gerast fyrir eða eftir verslunarmannahelgi. Þá eru útihá-
tíðir um allt land, unglingarnir miða skemmtanahald
sumarsins framar öllu við þessa helgi og hinir eldri
bregða sér í sumarbústaðinn eða fara út á þjóðvegina.
Svona hefur þetta verið svo lengi sem elstu menn muna
og engin ástæða er til að ætla að á þessu verði breyting.
Það er í raun nauðsynlegt að landsmenn fái eina
langa helgi yfir hásumarið til þess að blása mæðinni,
slappa af frá hversdagsamstrinu. Fólk hefur þörf fyrir
langt helgarfrí á þessum tíma. Á hinn bóginn má segja
að óheppilegt sé að stór hluti bílaflota landsmanna
þyrpist út á þjóðvegina um eina helgi, það er á mörkun-
um að þeir beri allan þennan umferðarþunga. í það
minnsta er ekki meira leggjandi á norðurþingeyskar
vegleysur, sem svo mjög hafa verið í fréttum að undan-
förnu.
Þetta leiðir hugann að því hversu gífurlega mikilvægt
það er að búa við gott vegakerfi. Góðir vegir eru ómet-
anlegt öryggisatriði fyrir vegfarendur og ekki má heldur
gleyma því að viðhaldskostnaður bifreiðanna
snarlækkar í takt við batnandi vegakerfi.
En þrátt fyrir að miklir fjármunir hafi verið lagðir í að
endurbæta vegakerfi landsmanna er það bitur stað-
reynd að stöðugt berast fréttir af alvarlegum slysum úti
á þjóðvegum landsins. Sjálfsagt er engin ein skýring á
þessu, en löggæslumönnum ber saman um að í mörgum
tilfellum sé umferðarhraðinn allt of mikill og það á bæði
við um ungu ökumennina og hina eldri og reyndari. Og
því miður er það svo að landsmenn hafa einhverra hluta
vegna slakað á klónni í notkun bílbelta.
Auknum hraða í umferðinni fylgir aukin hætta á al-
varlegum slysum. Það má oft á tíðum svo lítið út af bera
til þess að verulega illa fari. Ábyrgð ökumanna sem
stíga of þungt á bensíngjöfina er mikil. Þeir stefna ekki
aðeins lífi sínu í hættu, heldur einnig farþega í eigin bíl-
um og ökumanna og farþega annarra bíla. Þetta vill oft
gleymast. Það verður sjálfsagt aldrei hægt að útrýma
hraðakstri af þjóðvegum landsins, en fræðsla og áróður
er sígilt tæki til þess að halda ökumönnum á mottunni.
Verslunarmannahelgin er mesta ferðahelgi ársins og
þá er ekki síst mikilvægt að ökumenn haldi vöku sinni.
Vegfarendum er óskað góðrar ferðar og ánægjulegrar
heimkomu.
í UPPÁHALPI
Þekki orðið sumarfrí aðeins af afspum
- segir Magnús Már Þorvaldsson, framkvæmdastjóri „Halló Akureyri“
agnús Múr Þorvaldsson
er einn afþeim mönnum
sem eiga annríkl um
þessa verslunarmanna-
hclgi. Magnús hefur
borið hiiann og þungann
af undirbúningi hútíðarinnar „Halló
Akureyri“ en nú er undirbúningi lokið
og komið út í alvöruna. Magnús Mór er
Akureyringur í húð og húr og segistfú
ce meiri úhuga ú uppbygginguferða-
múla í bœnum. Hann var í Svíðþjóð ú
úrunum 1981 til 1989 og nam þar arki-
tektúr en lokaverkejhið í núminu er eftir
og segir Magnús það verða vetrarverk-
efni sitt. Fró því hann kom heimfrá Sví-
þjóð hefiir hann þó unnið í faginu,
lengst af hjú Svani Eiríkssyni, arkiteh ú
Akureyri. Magnús Múr úfjögur börn og
einn stúpson en sambýliskona hans er
Dagný Sveinbjörnsdóltir.
Hvaða matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
Soðin ýsa (með Létt og laggott
útá) og kjötsúpa a la Dagný.
Uppáhaldsdrykkur?
íslenska vatnið, auk heldur létt-
mjólkin, ekki síst með poppkomi!!
Hvaða heimilissfórffinnst þér
skemmtilegust/leiðinlegust?
Geng í velflest heimilisstörf og hef
gert lengi en þykir þaó vissulega
misskemmtilegt.
Stundarþú einhverja markvissa
hreyfingu eða líkamsrœkt?
Ég lyfti lóðum a.m.k. fjórum sinn-
um i viku í Vaxtarræktinni hjá
Sigga Gests og hef ekki alveg sagt
skilið við fótboltann.
Ert þú í einhverjum klúbbi eða fé-
lagasamtökum?
Ég er í Sjálfstæöisflokknum og
KA sem þykir allgóð blanda.
Magnus Már Þorvaldsson á sínum
yngri...
Hvaða blöð og tímarit kaupir þú?
Dag, Moggann, Heilsu og Sport, B
och K Sports Magazine, Arkitektur
(svensk) og Hús og Híbýli.
Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér?
Engin bók nú um stundir, fremur
eitthvert áðumefndra tímarita.
/ hvaða stjömumerki ert þú?
Ég er Steingeit, hvað sem þaó
kann nú að þýóa!
Hvaða tónlistammður er í mestu
uppáltaldi hjá þér?
Gömlu tæknirokkaramir í
ELP(Emeson, Lake and Palmer)
hafa ætíð verið mér hugleiknir og
jafnaldri minn frá USA, Michael
Jackson, hefur lengi glatt mitt
hjarta með tónlist sinni. Af innlend-
um músíköntum standa Egill Olafs-
son og Bubbi Morthens upp úr.
Uppáhaldsíþróttaimður?
Thomas Ravelli hinn litríki sænski
markvörður ásamt Alfreó Gísla-
syni, KA-manni.
Hvað horfir þú mest á í sjónvarpi?
Ég horfi mest á fréttir, oftast á
breska sakamálaþætti og stundum
á sportið.
Hver er þín uppáhalds teiknimynda-
persóna?
Ástríkur og Tinni (þó því sé haldið
fram að sá síðamefndi sé hommi!)
A hvaða stjómmálamanni hefurðu
mest álit?
Davíð Oddsson er dugmikill mað-
ur og „okkar menn fyrir norðan“
Tómas Ingi og Halldór Blöndal em
traustir menn og ágætir í hvívetna.
Hver er að þínu mati fegursti staður
á íslandi?
Ég hef séð alltof lítió af landinu til
að geta tjáó mig um það.
Hvar vildirðu helst búa ef þú þyrftir
að flytja búferlum nú?
Mér líkaði afar vel árin sem ég bjó
í Svíþjóó svo ég svara þér mcð því
að nefna Svíþjóð.
Hvaða hlut eða fasteign langar þig
mest til að eignast um þessar mundir?
Mig langar mest að eignast hús-
næðið sem ég bý í nú - annað
verður að bíða.
Hvernig vilt þú helst verjafrístund-
um þínum?
Með fjðlskyldunni, við æfingar og
einn að grúska í faginu.
Ætlarðu að fara í sumarfrí?
Þekki orðið cinungis af afspum.
Hvað œtlarðu aðgera um helgina?
Helgin verður vinna og aftur
vinna. Ég ætla að halda enn
ótrauóur áfram að koma Akureyri
inn á kortið sem besta ferðamanna-
stað á íslandi, burtséð frá verði og
veðri! JÓH
A\Et> MORÚUNKAFFINU _ ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON
Af gúrkutíð og afslöppun
Mér hefur alltaf þótt gúrkutíðin svokallaða í fjölmiðlaheim-
inum fremur skemmtileg tíð. Kemur þar margt til. Frétta-
menn, sem flytja dags daglega fréttir af stofnanareglugerð-
um, þurfa allt í einu að setja sig í stellingar, vegna þess að
möppudýrin í stofnunum eru öll í sumarfríi og ekkert þar að
hafa, og flytja fréttir af því sem þeim finnst alla jafna ekki
fréttnæmt. Þetta leiðir hugann að því að hinar svokölluðu
mannlegu fréttir eiga yfirleitt ekki greiðan aðgang að frétta-
tímum ljósvakamiðla og dagblaðanna, líklega vegna þess aó
„hörðu“ fréttirnar þurfa að fá sitt rými og hinar verða útund-
an. Ég er alveg sannfærður um að bróðurpartur landsmanna
vildi gjarnan hafa gúrkutíð í fjölmiðluninni allan ársins
hring, einfaldlega vegna þess að fólk vill frekar fá þessar
mannlegu fréttir. Þær geta stundum verið sorglegar, saman-
ber uppslátt DV dag eftir dag í sumar um slysfarir og því-
umlíkt. Ekki síður var athyglisverð DV-frcttin á dögunum
um eldri konur sem höfðu verið í bréfasambandi árum sam-
an án þess að sjást, en síðan gerðist hið óvænta; pcnnavin-
konumar hittust og allir þeir kossar rötuöu beint á forsíðu
DV. Svona eiga fréttir að vcra!
Og var það ekki óborganlegt æðið sem greip um sig í
fjölmiðlaheiminum um daginn þegar sjónvarpspredikarinn
Benny Hinn gerði allt vitlaust í höfuðborginni. Dag eftir
dag var spáð og spekúlerað á öllum hugsanlegum útvarps-
rásum um Benny Hinn þetta og Benny Hinn hitt. Benny
Hinn var sem engill sendur af himnum ofan til þess að auð-
velda íslenskum fjölmiðlum róðurinn í gúrkutíóinni og hann
gerói það svo sannarlega skuldlaust, enda er hann sagður
hinn nýi frelsari. Mér þykir eiginlega verst að Benny skyldi
ekki koma norður og blessa Akureyringa og nærsveitamenn
og leyfa okkur hér á Degi að taka þátt í gúrkuveislunni.
Annað ágætt dæmi um skemmtilega gúrkufréttamennsku
var í sjónvarpinu um síðustu helgi. Þar var mörgum mínút-
um varið í það að segja frá konu austur í Mjóafirði sem
hafði tekið kríuunga í fóstur. Kona þcssi er kannski ekki
eins og konur almennt eru, í það minnsta er ólíklegt að
margar konur fari eins vel með byssur og þessi kjamorku-
kona úr Mjóafirói. Þetta var dæmi um öðruvísi frétt, upp-
fyllingarfrétt, sem án þess að sjónvarpsmenn geri sér grein
fyrir er miklu meira umtöluð en viðtal við Davíð eða Hall-
dór fyrir framan Stjómarráðið.
Og það má heldur ekki gleyma hinni óborganlegu frétt
Moggans dag eftir dag í síðustu viku um að borgarstjórinn í
Reykjavík hafi ákveðið að taka niður málverkið af Bjama
heitnum Benediktssyni, forsætisráðherra, sem hvíldi yfir
þeim Reagan og Gorbatsjov hér forðum daga á hinum mis-
lukkaða leiðtogafundi í Höfða. Þessu stórmáli voru gerð
drjúg skil í Mogganum og margir fræðingar kallaðir til. Og
til að sýna alvöru málsins dugði Mogganum ekki minna en
heil forystugrein um málið sl. þriðjudag.
Já, gúrkutíðin er óborganleg tíð og það verður ekki frá
henni tekið að hún er miklu mannlegri og líflegri en drunga-
legir vetrardagar þegar allir fréttatímar ganga út þaó að
greina frá misvitrum stjórnmálamönnum kasta fúkyrðum í
hvor annars garð niður á Alþingi. Má ég þá frekar biðja um
Benny Hinn á hverjum degi!
En vcl á minnst - gúrkutíð. Hvernig skyldi það hugtak
hafa komið til? Einhvem tímann heyrði ég að skýringin
væri sú að fréttamanni á franska stórblaðinu Le Mondc hafi
einhvern steindauðan fréttadag að sumarlagi veriö falið að
skrifa greinafiokk um agúrkur, sem hann og geröi með
miklum glæsibrag. Ekki veit ég hvort þessi skýring á hug-
takinu er rétt, en hún er að minnsta kosti ekki lakari en hver
önnur.
Verslunarmannahelgaræðið
Þjóðin verður hálf vitlaus um verslunarmannahelgina, í það
minnsta bróðurpartur hennar. Ég hef að vísu aldrei náð að
verða sérstaklega vitlaus um þcssa helgi, enda eru fáar helg-
ar sem er jafngott að vera heima hjá sér og slappa af. Þetta
er því í mínum huga ein albesta afslöppunarhelgi ársins.
Mér finnst hins vegar vanta að fá þessar reglubundnu upp-
lýsingar um staðsetningu FÍB-bíla, sem Pétur Sveinbjarnar-
son og Oli H. Þóróar. fiuttu landsmönnum hér á árum áóur.
Þessar nauðsynlegu upplýsingar um verslunarmannahelgi
heyra sögunni til og ég sakna þeirra sárlega.
Hins vegar verða örugglega á sínum stað um þessa versl-
unarmannahelgi fréttimar um tjöldin sem fuku eða rigndu
niður og allt brennivínið sem flaut í lækjum á Uxanum og
þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum. Þessi verslunarmanna-
helgi verður varla mjög frábrugðin fyrri verslunarmanna-
helgum.