Dagur - 12.10.1995, Blaðsíða 6

Dagur - 12.10.1995, Blaðsíða 6
 6 - DAGUR - Fimmtudagur 12. október 1995 TM hugleiðsla nýtur vaxandi vinsælda: Hugleiðslunámskeið á Akureyri og Húsarik Á næstu dögum verða haldnir á Húsavík og Akureyri kynningar- fundir um hina svonefndu TM - hugleiðslu, eða innhverfa íhugun, sem svo er nefnd. Verða haldin fjögurra daga námskeið í þessari grein í framhaldinu ef nægur áhugi og þátttaka verða fyrir hendi. Talið er að um 3.000 manns hafi tileinkað sér TM hug- leiðslu hér á landi nú þegar, þar af um 100 á Akureyrarsvæðinu, að sögn Guðjóns Kristjánssonar, sem verður leiðbeinandi á námskeið- inu. Kynningarfundur um TM hug- leiðslu verður haldinn á Hótel Húsavík í kvöld, fimmtudags- kvöld, kl. 20:30 og á laugardag verður kynningarfundur á Hótel KEA á Akureyri og hefst hann kl. 13:30. I framhaldinu verða svo hugleiðslunámskeið haldin, ef áhugi er fyrir hendi. Það er ís- lenska íhugunarfélagið sem stend- ur fyrir þessum námskeiðum. TM hugleiðsla er einföld þroskaaðferð sem veitir afar djúpa og endurnærandi hvíld. Áhrif reglulegrar iðkunar TM - hug- leiðslu hafa verið ítarlega rann- sökuð af færum vísindamönnum við virtar vísindastofnanir um all- ar heim og fjöldi ritgerða þar um liggur fyrir. I þeim kemur fram að með reglulegri iðkun hugleiðslu er hægt að hægja mjög á líkamlegri hrörnun þótt árin færist yfir fólk. Þá eykst mjög alhliða heilbrigði og greind sem og sköpunarhæfni, minni og einbeiting. Sá sem iðkar TM hugleiðslu situr í þægilegum stól, kvöld og morgna, 20 mínútur í hvort skipti. LÓNSBAKKA•601 AKUREYRI s- 463 0321,463 0326, 463 0323 FAX 462 7813 BYCCINCAVÖRUR TEPPI » FLÍSAR HREINLffiTISTÆKI ■ PARKET HEIMILISTÆKI • VERKPÆRI Er athyglinni leyft að leita áreynslulaust „að upprunalegri og kyrrari sviðum hugans,“ eins og segir í kynningarblaði. Þetta á að losa fólk við streitu. „Hugtakið streita er hér notað um hindranir í taugakerfi okkar sem skapast hafa vegna einhvers álags, sem við réð- um ekki við, einhvem tímann á lífsleiðinni. Líkami okkar er þann- ig gerður að hann losar sig við streitu þegar hann hvílist. Við los- um okkur við daglega þreytu í svefni, en djúpstæð streita og þreyta losnar ekki nema til komi sérstök og afar djúp hvíld,“ segir ennfremur í áðumefndu blaði og einmitt þama á TM hugleiðsla að vera rétta lausnin. Þessi hugleiðsla á einnig að geta aukið framleiðni fyrirtækja og skapað betri samskipti, starfs- rnanna á meðal. Segja þeir sem standa að námskeiðinu að árangur og rekstur fyrirtækja verði aldrei betri en starfsmenn þess gefi til- efni til. Betra atgervi, svo sem starfshæfni, ánægja í starfi og minni fjarvistir leiði af sjálfu sér til betri árangurs í rekstri. Því hafi mörg erlend stórfyrirtæki tekið upp TM hugleiðslu sem sjálfsagð- an þátt í starfi sínu og það skili merkilegum árangri. Megi í þessu sambandi nefna fyrirtæki á borð við General Motors og Sony auk margra annarra. -sbs. í fremstu röð frímerkjasafnara VINNVFÖT • CJAFAVARA OC MARCT, MARGT FLEIRA Sigurður H. Þorsteinsson, skóla- stjóri bamaskólans í Hrísey, fékk á dögunum viðurkenningu frá al- þjóðlegum samökum frímerkja- safnara, The Internation biograph- ical association, sem staðsett eru í Cambrigde í Englandi. Viður- kenningu þessa fékk Sigurður fyr- ir rannsóknir á sviði alþjóðlegrar póstsögu. Hefur hann meðal ann- ars rannsakað og skrifað ritgerðir um hvemig flutningar pósts færð- ust úr landflutningum yfir í fiutn- kynning íVöruhúsi KEA Ó MAX - útivistarfatnaður (prnfaður á Noríurpólnum.) I Ó MAX kuldagallar, öndunar - og flísfatnaður. i ÓSjáið hvernig PÓLAR - flísefni eru endurunnin úr plastflöskum. ; i i ■ i O Kynnist hvernig MAX - micro -Tex öndunarefnin virka, - áhrifarík sjón. ! 9 Hvernig verða 1 + 1=3 11 það sérð þú á MAX kynningunni. ' inga með flugvélum, en það var á árunum fyrir síðari heimsstyrjöld- ina. I samtali við Dag sagðist Sig- urður var ákaflega stoltur af þess- ari viðurkenningu. I raun skipaði hún honum í fremstu röð frí- merkjasafnara í heiminum. Mynd og texti: Sigurður Bogi. Sería skrifstofu húsgögn Gerum tillögur að uppsetningu og föst verðtilboð án kostnaðar Falleg hönnun Hagkvæmt verð íslensk framleiðsla T#LVUTÆKI Furuvöllum 5 • Akureyri Sími 462 6100

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.