Dagur - 12.10.1995, Blaðsíða 16
MflílH
Akureyri, fimmtudagur 12. október 1995
Fjölskyldtivemd
...eíns og þu
vílt hafa hana
Fjöískyldavernd er ný þjónusta Tryggíngar hf.
Hún felur f sér mikínn sveígjanleíka fyrír hvern og eínn tíl
að sníða tiYggíngárpakkánn að sínum þörfum.
TKYGGING HF
Hofsbót 4 • Sími 462 1844
Ekkert knattspyrnuhús á 3ja ára áætlun:
Við höfum
visst svigrúm
- segir Þórarinn E. Sveinsson, formaður ÍTA
Iþriggja ára áætlun Akureyr-
arbæjar, sem samþykkt var
sl. þriðjudag, er hvergi getið um
fjárveitingu til úrbóta fyrir
knattspyrnumenn, en í áður
samþykktri þriggja ára áætlun
íþrótta- og tómstundaráðs var
gert ráð fyrir allt að 60 milljón
króna framlagi Akureyrarbæjar
til hlutafélags, sem hefði úrbæt-
ur fyrir knattspyrnumenn að
markmiði. Sú spurning hlýtur
því að vakna hvort knattspyrnu-
hús sé úr sögunni.
Þórarinn E. Sveinsson, formað-
ur ÍTA, sagðist ekki líta þannig á
Búvörusamningurinn:
Grænt Ijós
bænda
Fulltrúar á aukabúnaðarþingi
samþykktu í gær með mikl-
um meirihluta nýgerðan samn-
ing ríkisstjórnarinnar og
Bændasamtaka íslands um
framleiðslu sauðfjárafurða.
Hart var deilt um hvort bera
ætti samninginn undir atkvæði
bænda um allt land og var tillaga
um allsherjaratkvæðagreiðslu
felld með 26 atkvæðum gegn 13.
Síðan var samningurinn borinn
undir atkvæði þingfulltrúa og voru
30 honum fylgjandi, 1 reyndist á
móti samningnum og sex fulltrúar
sátu hjá. Tveir fulltrúar voru fjar-
verandi. óþh
VEÐRIÐ
Austan eða norðaustan
gola verður á Norðvestur-
landi í dag. Síðan þykknar
upp með vaxandi austanátt;
stinningskalda og skúrum á
annesjum. Austan kaldi og
stinningskaldi með rigningu
á Norðurlandi eystra framan
af degi en síðan gengur í
norðan og norðvestan stinn-
ingskalda með skúrum. Hiti
2 til 5 stig.
Innimálning
verði
Gljá
stig 10
málið og í þriggja ára áætlun Ak-
ureyrarbæjar sé visst svigrúm sem
vel megi hugsa sér að nýta í þessu
sambandi. í gjaldfærða fjárfestingu
eru 50 milljónir króna óskiptar á
næstu þremur árum og þama sagð-
ist Þórarinn sjá möguleika á að fá
peninga í knattspymuhús. Hann
sagist þó jafnframt gera sér fulla
grein fyrir að mikil ásókn yrði í
þessa peninga. „Þama er m.a. kom-
in ástæðan fyrir því að ég vil láta
stofna hlutafélag um þessi mál.
Slíkt hlutafélag er hægt að stofna
með tiltölulega litlu framlagi, en
þá væri komið af stað apparat sem
tekur málið föstum tökum. Þannig
væri hægt að láta á það reyna
hversu margir vaem tilbúnir að
koma að dæminu. Eg tel því að við
höfum svigrúm til að hrinda þessu
máli af stað, ef menn vilja.“
Hann sagði að meiri peningar
lægju einfaldlega ekki fyrir miðað
við núverandi stöðu. Hins vegar
sé hægt að breyta fjármálum bæj-
arins og hann benti á að Fram-
kvæmdasjóður ætti eignir sem
nema um 1400 milljónum króna. I
því sambandi má minnast á um-
ræðu fyrr á þessu ári um sölu á
hlutabréfum bæjarins í UA, sem
metin voru á um milljarð. HA
Læknafélag íslands:
Styrkir endurbyggingu
Gudmanns Minde
Aaðalfundi Læknafélags ís-
lands á dögunum var
samþykkt að veita Qárstuðning
að upphæð ein milljón króna
til endurbyggingar á svoköll-
uðum Gamla spítala á Akur-
eyri, eða Gudmanns Minde við
Aðalstræti. Að sögn Stefáns
Yngvasonar, formanns Lækna-
félags Akureyrar, vonast menn
til að Læknafélag íslands muni
styrkja endurbæturnar enn
frekar.
Gudmanns Minde er hið
merkilegasta hús, byggt árið
1836 og er næst elsta hús á Ak-
ureyri. Fyrstur manna bjó r hús-
inu Eggert Johnsen, héraðslækn-
ir. C.M. Gudmann, kaupmaður,
eignaðist síðar húsið og gaf það
Akureyrarbæ árið 1873 til rekst-
urs sjúkrahúss. Þjónaði það sem
slíkt í aldarfjórðung og er því
fyrsti spítali Akureyringa.
Húsfriðunarsjóður keypti
Gudmanns Minde fyrir nokkru
en Læknafélag Akureyrar og
Hjúkrunarfræðingafélag Islands,
Norðurlandsdeild eystri, reka
húsið ásamt Minjasafninu á Ak-
ureyri. Að sögn Stefáns Yngva-
sonar liggja fyrir miklar endur-
bætur á húsinu, sem þegar eru
hafnar. I húsinu verða lækninga-
minja- og hjúkrunarminjasafn,
auk húsvarðaríbúðar. A efstu
hæðinni verður komið upp fé-
.5'ÍiHt:i teíÍi ÍfesUc .
'i
lagsaðstöðu fyrir bæði félögin,
sem er engin í dag.
A þessu ári hafa verið 2,3
milljónir til framkvæmda og
verða allir þeir peningar notaðir
á árinu. Búið er að gera heilmik-
ið fyrir vesturhlið hússins og
unnið er að því að hindra að vatn
og aur komist að því frá brekk-
unni fyrir ofan. Stefán sagði ekki
ljóst hversu mikið verður til
framkvæmda á næsta ári, en auk
milljónarinnar frá Læknafélagi
íslands, gera menn sér vonir um
að fá úthlutað úr húsfriðunar-
sjóðum. Þá er vonast til að fram-
hald verði á framlögum Lækna-
félags íslands, enda fordæmi
fyrir slíku við uppbyggingu Nes-
stofu á Seltjamamesi.
Ekki liggur fyrir hversu mik-
ið framkvæmdimar munu kosta í
heildina. Stefán segir menn sam-
mála um að húsið hafi verið
mjög vel byggt, viðir þess séu
góðir, sem ekki síst sé að þakka
mjög góðri umönnun síðasta
eiganda. Yfirumsjón með verk-
inu hefur Finnur Birgisson, arki-
tekt, en framkvæmdir annast
SveiTÍr Hermannsson, þekktur af
endurreisn gamalla húsa. HA