Dagur - 21.10.1995, Qupperneq 12
12 - DAGUR - Laugardagur 21. október 1995
I VINNUNNI HJÁ JÓN I CUDMUND KNUTSEN, SLÖKKVI LIÐSMANNI
Fjölbreytnin og
óvissan gerir starf
ið spennandi
Margan ungan drenginn dreym-
ir um að verða slökkviliðsmaður
þegar hann verður stór. Rauði
brunabíllinn heillar og starf
slökkviliðsmanns hefur á sér
ákveðinn dýrðarljóma í hugum
margra krakka. Jón Gudmund
Knutsen ætlaði sér þó aldrei að
verða slökkviliðsmaður og segir
það fremur vera tilviljun að
þetta starf hafí orðið fyrir valinu
en hann vinnur hjá Slökkviliði
Akureyrar.
„Eg byrjaði ungur í Flugbjörg-
unarsveitinni og þar voru menn
með mér sem unnu hjá Slökkvilið-
inu og út frá því kviknaði áhuginn
fyrst. Til að komast að þurfti að
hafa meirapróf bifreiðastjóra en
aðra menntun þurfti ekki í upp-
hafi. Síðan hef ég verið sendur á
sjúkraflutninganámskeið og nú er
komin góð menntun fyrir slökkvi-
liðsmenn á vegum Brunamála-
skólans, sem Brunamálastofnun
ríkisins rekur.“
Jón byrjaði í afleysingum hjá
Slökkviliðinu 1984 og hefur verið
fastráðinn síðan 1988. Hann segir
erfitt að lýsa dæmigerðum vinnu-
degi því þegar hann mæti í vinn-
una hafi hann ekki hugmynd um
hvað hann komi til með að gera.
„Fjölbreytnin og óvissan gerir
þetta spennandi og skemmtilegt
oft á tíðum en einnig sorglegt
líka.“
Jón vinnur bæði á næturvökt-
um og dagvökum og á dagvöktun-
um er fastur liður að yfirfara
brunabíla og sjúkrabíla og laga ef
með þarf. „Ef rólegt er í sjúkra-
flutningum og á brunabíl, yfirför-
um við slökkvitæki og veitum
ýmsa aðra þjónustu. Sem óbreytt-
ur slökkviliðsmaður er ég er fyrst
og fremst á sjúkrabílunum. Eg var
sendur á námskeið í björgunar-
tækjum, sem eru klippitæki til að
rífa sundur bflflök, og viðhald á
þeim tækjum og fræðsla um þau
eru því einnig mikið á minni
könnu.“
- Hvað með næturvaktimar,
hvemig eyðið þið tímanum ef lítið
er að gera?
„Það er oft ansi rólegt en við
reynum að taka í spil eða annað
slíkt. Sumir okkar reyna líka að
bæta við þekkinguna með því að
lesa á næturvöktunum."
Verst þegar börn lenda í
slysum
- Hvað er skemmtilegast við
þessa vinnu?
„Það er mjög gefandi að geta
aðstoðað fólk vegna slysa og ým-
issa veikinda og maður er afskap-
lega hamingjusamur þegar tekst
t.d. að bjarga fólki frá dauða eða
öðrum hættum. Erfiðustu stund-
imar eru aftur á móti þegar illa
gengur og ekki tekst að bjarga
fólki sem hefur lent í slysum og
jafnvel þurfa að tilkynna aðstand-
endum að ekkert sé hægt að gera.
Langverst er þegar böm lenda í
slysum eða alvarlegum veikind-
um.“
Jón segir að slökkviliðsmenn
fari í miklu fleiri útköll á sjúkra-
bflunum heldur en vegna bruna.
„Að meðaltali em 3-4 sjúkratúrar
á hverjum sólarhring.“
Kennir líka skyndihjálp
- Sér fólk starf slökkviliðsmanns-
ins fyrir sér í hetjuljóma?
„Fullorðna fólkið lítur ekki á
okkur á þann hátt. Krökkum finnst
þetta kannski frekar vera spenn-
andi þegar þeir sjá okkur í sjúkra-
bfl eða brunabfl."
Starf slökkviliðsmannsins er
vaktavinna sem Jón segir að henti
sér mjög vel. „Ég vinn 4-5 daga í
einu á dagvöktum og næturvökt-
Jón Gudmund Knutsen í vinnugallanum.
um og á síðan jafnlangt frí inn á
milli. Ég er lflca skyndihjálpar-
kennari hjá Rauða krossi Islands
og get notað frítímann í að kenna
skyndihjálp. Mér líkar mjög vel
við vaktavinnu en þetta fer mis-
jafnlega í menn.“
- Hvemig em kjörin?
„Þau mættu auðvitað vera betri
eins og á flestum öðmm stöðum.
Fasta kaupið er lágt en vaktaálag
og ýmis konar aukavinna bætist á
þannig að þegar á heildina er litið
eru kjörin þolanleg.“ AI
MATARKRÓKUR
Kaupír uppskrííitarbækur hvar sem hún fer
Sólveig Hallgrímsdóttir leggur til
uppskriftir í Matarkrókinn í dag.
Sólveig er hjúkrunaifrœÖingur og
býr á Akureyri. Hún er víðförul
kona, hefur m.a. búið í Danmörku,
Bandaríkjunum og Astralíu, og
bera uppskriftirnar þess merki.
„Eg er uppskriftaifíkill og kaupi
uppskriftarbœkur hvar sem égfer,“
segir Sólveig, enda koma uppskrift-
irnar hennar úr ýmsum áttum.
Mexíkanska kjötréttinn segist hún
oft elda og geri þá gjarnan stóran
skammt, frysti afganginn og noti
leifarnar sem fyllingu með bökuð-
um kartöflum. Karrý kjúklingurinn
er danskur en súkkulaðikakan am-
erísk og er mjög fljótlegt að búa
hana til. Síðasta réttinn segir Sól-
veig vera þjóðarrétt Ástrala og er
hann kenndur við dansara sem hét
Pavlova.
Sólveig skorar á Erlu Ingólfs-
dóttur í næsta Matarkrók og að
tveimur vikum liðnum fáum við að
sjá hvaða góðgæti Erla lumar á.
Mexíkanskur kjötréttur
- Chili con carne -
lkg kjöthakk
6 msk. matarolía
3 laukar (brytjaðir smátt)
1 grœn paprika (brytjuð)
1 hvítlauksgeiri (pressaður)
4 msk. paprikuduft
1 tsk. kryddkúmen
1 tsk. chili pipar
2 negulnaglar
1 lárviðarlauf
salt og pipar
6 bollar vatn
2 dósir niðursoðnir tómatar
(brytjaðir)
2 msk. hveiti
2 dósir rauðar nýrnabaunir
Steikið hakkið, laukinn, papr-
iku og hvítlauk. Bætið kryddinu
við og hellið vatni yfir. Sjóðið í
um 45 mínútur. Bætið í tómötun-
um og sjóðið í 30 mínútur. Baun-
um og hveitinu bætt út í og allt
soðið í 10 mínútur.
Borið fram með hvítlauks-
brauði.
Leifar afChili con Carne
- með bökuðum kartöflum
Leifar afChili con Carne
kartöflur
smjör
rifinn ostur
1-2 bökunarkartöflur á mann
(fer eftir stærð) eru bakaðar t 1
klukkustund við 200°C eða þar til
þær eru mjúkar viðkomu. Kartöfl-
umar síðan skornar í tvennt,
langsum, og lítil hola gerð ofan í
hvom helming. Helmingunum
raðað í ofnskúffu og í hverja holu
er sett 1 tsk. smjör. Leifamar af
Chili settar ofan á, eins mikið og
tollir með góðu móti. Rifinn ostur
settur yfir og bakað í ofni þar til
osturinn er bráðinn.
Gott að bera sýrðan rjóma fram
með kartöflunum.
Karrý kjúklingur
1 poki kjúklingahlutar (ca. 1
kjúklingur)
1 msk. engiferduft
1 msk. karrý
safi úr 1 sítrónu
2 appelsínur (afhýddar og sneidd-
ar)
salt og pipar
200 ml sýrður rjómi (1 dós)
1 eggjarauða
Mango Chutney ('A krukka)
Setjið kjúkling, krydd og sí-
trónusafa í ofnfastan pott með
loki. Bakið við 220°C í 40 mínút-
ur. Bætið í appelsínusneiðunum
og bakið í aðrar 40 mínútur. Hrær-
ið saman eggjarauðu, sýrðum
rjóma og Mango chutney og bætið
í pottinn. Blandið vel saman við
soðið í pottinum.
Borið fram með soðnum hrís-
grjónum.
Skúffukaka með ís og sósu
- klessukennd og sœt
2 egg
1 bolli sykur
125 g smjörlíki (brœtt)
‘A bolli hveiti
'/ bolli kakó
'A tsk. salt
1 tsk. vanilludropar
'A bolli hnetur (má sleppa)
Ath! 1 bolli = 250 ml
Þeytið saman egg, sykur og
smjörlíki. Bætið hinu út í og hrær-
ið. Bakið í lagkökuformi (um 20
cm þvermál), við 170°C í 20-25
mínútur. Skerið í sneiðar og berið
fram með ís og súkkulaðisósu að
eigin vali, t.d. þessari:
Sósa:
3/ bollar sykur
'A bolli kakó
‘A bolli mjólk
/ bolli síróp
/ bolli smjör
1 tsk. vanilludropar
Kakói og sykri blandað saman.
Mjólk og sírópi bætt út í og soðið
í 1-2 mínútur. Tekið af hitanum
og smjöri og vanilludropum bætt
út í.
Pavloa m/rjóma og ávöxtum
Ferskir ávextir
‘A lítri rjómi
Marens:
6 eggjahvítur
2/ bolli púðursykur
Eggjahvítumar stífþeyttar og
púðursykrinum bætt út í smám
saman (2 msk. í einu). Þeytt vel á
milli. Teiknið hring sem er u.þ.b.
25 cm í þvermál á smjörpappír og
setjið á bökunarplötu (ekki smyrja
pappírinn). Setjið marensbotninn
á pappírinn og bakið við 120°C í
VA klukkustund. Slökkvið á ofnin-
um og látið kólna í ofninum. Rífið
pappírinn varlega undan og setjið
kökuna á disk.
Búið til ávaxtasalat úr ferskum
ávöxtum, t.d. kiwi, eplum, perum
og ananas eða jarðarberjum. Rétt
áður en kakan er borin fram er
rjóminn þeyttur og settur í holuna
sem myndast þegar kakan fellur
og ávextimir settir ofan á
rjómann. AI