Dagur - 01.12.1995, Síða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 1. desember 1995
B RÆÐI NdUR
Mörgum er illa viS snjóinn en unga kynslóSin er ekki þar ó meSal. Honum GuSmundi leiddist í þaS minnsta ekki þar sem hann var aS renna
sér í Skótagilinu ó Akureyri. Mynd: BG
Hvað
veistu?
Hví drúpir laufið á grænni grein
hví grætur lindin og stynur hljótt.
Hví glampa daggir á gráum stein,
sem grúfi' yfir dalnum þögul nótt.
Náttúrustemmning eins og hún
gerist best. Hver orti?
■„Dutpun" 9!A 6d| (Ba^nDpp jpjsB uossuDjsjg
joc)Xa npinp jjrja „uipui-)" sujsgoji tpuus djj/C) js DHO()
/-------------------------
Hvað ætlar
þú að gera
um helgina?
„Ég ætla aöallega aö sinna fjölskyldunni og vinnunni,"
segir Hörður Geirsson á Minjasafninu á Akureyri um
sínar helgaráætlanir. „Minjasafniö er opiö á sunnu-
dögum og viö skiptumst á að vinna þá. Það kemur allt-
af eitthvaö af fólki, feröamenn og útlendingar sem eru
hér á ferð. Fyrir þá er þessi opnunartími nauösynlegur.
Svo býst ég við að sinna tómstundaáhugamálinu mínu
líka en það er flugsaga Akureyrar og allt sem henni
^tengist."
N
Afmælisbörn helgarinnar
Jón Arnkelsson 40 ára, Túngötu ó, Húsavík
Laugardagur 2. desember
Sigurður Elvar Viðarsson 20 ára, Brakanda, Skriðuhreppi
Sunnudagur 3. desember
Stefán Ingi Gunnarsson 40 ára, Lítla-Hvammi 2, Svalbarðsströnd
Sunnudagur 3. desember
Kristján Þór Vilhjálmsson 40 ára, Urðarbaki, Þverárhreppi
Sunnudagur 3. desember
Valdimar Kjartansson 60 ára, Klapparstíg 2, Árskógshreppi
Sunnudagur 3. desember
Fróðleikur
Ótrúlegt „afrek"
Sumum er það gefið að vera sérstaklega
óheppnir, en Dick Sheppard var ekki óheppinn.
Hann hafði atvinnu a því að eyðileggja. Árið
1989 hafði Sheppard, sem er áhættuleikari
Gloucester á Englandi, tekist að eyðileggja
1997 bifreiðar.
Heilræði
dagsins
Ogn af áhuga kemur sér oft betur en mörg próf-
skírteini.
____í eldlínunni______
■uopuo-| i jnjsajdsgDjjpuss oijsa
upf jnjBL| £gý [ nuup pjj -n|sæD|ps §ia
D|p>|spi|jD6joc|U!pg; ujpusppi|iuojj ud
-gis popunjs uuDp 'ipi §ia lóæjjgnB uogis
uidu 6o 8961 VW !j9Jas)uspn|s >|nD|
uuopf -uu;>|np|o>| | uing0)sss6iaj0 9 9^61
iun| 'i [ |S|ppæj uossuyppg 'y upf 'jg
Verðum að rífa okkur upp
„Við vorum slakir í síðasta leik, en við verðum að reyna að rífa
okkur upp fyrir þennan leik," sagði Jón Guðmundsson, þjálfari
körfuknattleiksliðs Þórs, sem mætir Skallagrími á sunnudagskvöld-
ið. Leikurinn fer fram í Iþróttahöllinni og hefst klukkan 20.
„Eins og ég hef sagt áður, ef við spilum eins og menn þá eigum
við að vinna þá. Stærsta vandamálið í vetur hefur verið það að
liðið virðist ekki vakna til lífsins fyrr en það er komið mörgum stig-
um undir í leikjunum. Það eru samt undantekningar eins og heima-
leikurinn gegn IR og útileikurinn gegn Skallagrími, þar sem menn
voru tilbúnir að berjast í fjörutíu mínútur," sagði Jón.
Þórsarar hafa leikið tvo leiki gegn liðunum sem leika í sama riðli
og árangur liðsins hefur verið bestur gegn Skallagrími, þar sem
þeir hafa sigrað í báðum leikjunum.
■Spurning vikunnar _Spurt á Akureyri.
.Hvernig verður jólamaturinn hjá jpér / ár?.
Gunnar Thorsteinsson:
Gunnþóra Árnadóttir og Gunnar Þór
Ég er ekkert farinn aS hugsa um þaS enn- Kristjánsson:
þá. ÞaS hefur aldrei veriS neitt hefSbundiS. HeimalöguS blómkálssúpa, svínakótilettur
meS waldorfsalati og heimatilbúinn ís á
aSfangadag. Svo er hangikjöt á jóladag.
Marinó Þorsteinsson:
ÞaS er vanalega sfeik á aSfangadag í ein-
hverri mynd, lamb eSa rjúpa og kalt hangi-
kjöt á jóladag.
Sólrún Friðbergsdóttir:
Þórhalla GuSmundsdóttir:
Ég ætla aS vera meS nýjan svínabóg á aS- AnnaS hvort gæs eSa rjúpur á aðfanga-
fangadag og hangikjöt á jóladag.
dag og svo er ævinlega hangikjöt á jóla-