Dagur - 08.12.1995, Blaðsíða 12

Dagur - 08.12.1995, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Föstudagur 8. desember 1995 Qkkar átárgldmlegajálafdadharð föátudagár ag* laugardagdwöld. Háraðssjúkrahúsið á Blönduósi. Viðbyggingin, sem byrjað var á 1981, er fremst á myndinni - og nýlega var önnur hæðin tekin í notkun. Mynd: -sbs. Inguy lEgdal &ér um að fidlkúmna jálaátmumiinguna. Örfiá harð lau&fö&tudagdwéld, uppáeb laufiardagfikuald. ‘Nií er rétti túninn til að panta ántiidtíðina. Trum incð &alifyrir 10-200 inanna fiápa. Laugardag&kuöldið 13. janúar leikw fiúv smimækt fújámsmit Qeirmundar Valtýssanar. cAllar uánaii upplýsingar fýá aeititigaáýára C &íma■ 462 2200. Héraðssjúkrahúsið á Blönduósi: Starfsemin er mikið að breytast - segir Sigursteinn Guðmundsson yfirlæknir Nýlega var tekin í notkun önnur hæð viðbyggingar við Héraðs- sjúkrahúsið á Blönduósi. Hún verður einskonar þjónustuhæð fyrir þá íjölþættu starfsemi sem á sjúkrahúsinu er veitt sem og á heilsugæslustöðinni sem þar er, að sögn Sigursteins Guðmunds- sonar yfírlæknis. Þessi viðbygg- ing, sem er kjallari og þrjár hæðir, er rösklega 2.400 fermetr- ar að flatarmáli eða um 600 ferm. að grunnfleti. Fram- kvæmdir hafa staðið yfir frá 1981 og í hitteðfyrra var jarð- hæðin tekin í notkun, en þar eru heilugæslustöð og apótek til húsa. Nú er verið að taka aðra hæðina í notkun, en ólokið er framkvæmdum við þriðju hæðin þar sem sjúkradeild verður - sem og við kjallarann þar sem Hverju svarar læknirinn? Á myndinni eru þeir Sigursteinn Guðmundsson yfirlæknir, til vinstri, og Böðvar Örn Sigurjónsson læknir. Þriðja lækninn við sjúkrahúsið, Ómar Ragnarsson, vantar á þessa mynd. Mynd: -sbs. Búsáhöld og gjafavara mikið úrval 14 JÓLAVÖRUR t.d. mjög falleg jólatné frá 1 ,2 m upp í 2,3 m og gnenilengjun 2,7" m. aðstaða til endurhæfingar verð- ur til staðar. „Starfsemin hér á sjúkrahúsinu er mikið að breytast. Það er í takt við bættar samgöngur. Sú stefna hefur verið mörkuð hér á Norður- landi vestra að komið verði á fót verkaskiptingu milli sjúkrahús- anna. Fyrirhugað er að endurhæf- ing fyrir allt svæðið verði hér við Héraðssjúkrahúsið á Blönduósi, en skurðaðgerðir færist að mestu til Sauðárkróks, það er aðgerðir sem réttlætanlegt er að fram- kvæma hér úti á landi. Þó tel ég nauðsynlegt að hér verði áfram aðstaða til bráðaaðgerða,“ sagði Sigursteinn yfirlæknir í samtali við Dag. Á hæð þeirri sem verið er að taka í notkun er gert ráð fyrir skurðstofu - en slík starfsemi verður þar þó ekki og hefur skurð- stofuaðstöðunni verið breytt í fræðslu- og fundaherbergi, einnig verður fagbókasafni komið þar fyrir. Á hæðinni verður jafnframt röntgendeild, rannsóknadeild, fæðingardeild og skrifstofur yfir- læknis, ljósmóður og hjúkrunar- forstjóra, svo og aðstaða til minni- háttar aðgerða. Héraðssjúkrahúsið á Blöndu- ósi er stofnun sem stendur á göml- um grunni. Þar er veitt margháttuð heilbrigðsiþjónusta, en þar eru alls 40 sjúkrarúm; 30 á almennri hjúkrunardeild og tíu á öldrunar- deild. Sigursteinn Guðmundsson segir að brýnt sé að fá fleiri legu- rými, því þrengslin á núverandi deild séu ansi mikil, eins og hann kemst að orði. Á væntanlegri legudeild á þriðju hæð verða 20 legurými og miðast áætlanir við að deildin verði tekin í notkun eftir tvö ár. Eldri deildin sem komin er til ára sinna, en Héraðshælið hét stofn- unin áður fyrr, heldur upp á 40 ára afmæli sitt um komandi áramót. Áætlaður kostnaður við að full- gera nýju deildina er áætlaður um 30 milljónir króna. Þá er kjallar- inn ótalinn. Þar verður aðstaða til endurhæfingarþjálfunar ýmiskon- ar og þar verður sundlaug meðal annars. í kjallaranum eru þegar fyrir búningsklefar starfsfólks, lík- hús og aðstaða til kistulagninga, sem þó hefur enn ekki verið geng- ið frá að fullu. Líkt og með þriðju hæðina eru vonir bundnar við að þessi hæð komist í noktun innan tveggja til þriggja ára - en hér veltur allt á af- stöðu fjárveitingavaldsins og á það er nú stíft sótt. Sigursteinn Guðmundsson hef- ur verið yfirlæknir Héraðssjúkra- hússins á Blönduósi frá árinu 1962, en fyrst kom hann til starfa við stofnunina árið 1959. Þá hét hún reyndar Héraðshæli Austur- Húnvetninga á Blönduósi og svo var þar til fyrir fáum árum þegar nafninu var breytt í Héraðssjúkra- hús. „Fyrst þegar ég kom hingað og svo var reyndar lengi að maður varð að leysa af sjálfsdáðum öll þau læknisverk sem upp komu. Ef um þraut varð maður að stóla á Bjöm Pálsson sjúkraflugmann, sem lenti þá flugvél sinni hér vest- ur frá við Akur eða þá Enni. Flug- völlur kom hér á Blönduósi ekki fyrr en löngu síðar,“ segir Sigur- steinn og vitnar til margra eftir- minnilegra flugferða sem hann og Bjöm fóm saman í. Einnig vitnar Sigursteinn til þess þegar fyrirburður fæddist á sjúkrahúsinu og þá var enginn hitakassi til taks, en nauðsynlegt þykir við þess háttar aðstæður að böm séu fyrstu sólarhringana í slíkum kössum. „Það eina sem hægt var að gera var að taka eitt stakt herbergi fyrir bamið og halda þar uppi því hita- og raka- stigi sem þurfti. Með því bjargað- ist þetta og bamið dafnaði vel. En í dag væri sjálfsagt hringt eftir þyrlu og móðir og bam flutt á sjúkrahús í Reykjavík - en slíkt er auðvitað áhættuminnst,“ segir Sigursteinn Guðmundsson, yfir- læknir á Blönduósi. -sbs.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.