Dagur - 23.12.1995, Blaðsíða 24

Dagur - 23.12.1995, Blaðsíða 24
Skagstrendingur hf.: Mikil umskipti í rekstri s Utgerðarfélagið Skagstrend- ingur hf. var rekið með 53,3 milljón króna hagnaði fyrstu tíu mánuði ársins. Þetta eru mikil umskipti frá afkomu fyrri ára og fyrri hluta ársins 1995 en þá varð 20,6 milljón króna tap af rekstrinum. Þessi umskipti skýr- ast fyrst og fremst af þeim rót- tæku aðgerðum sem gripið var til sl. sumar og koma að fullu til framkvæmda á næsta ári. Þær fólust m.a. í sölu á frysti- togaranum Arnari HU-1 til Royal Greenland as. og kaupum á ódýr- ara skipi með svipaða veiðigetu af Rússum en skipið er í Suður- Kóreu og kemur til landsins í febrúarmánuði; sölu á ísfisktogar- anum Arnari gamla HU-101 til Samherja hf. og kaupum á rækju- frystitogaranum Helgu Björg HU- 7 af Grænlendingum. Með þessu móti hafa náðst þau markmið fé- lagsins að lækka fjárfestingu í skipum og þar með skuldir um 500 milljónir króna og auka fjöl- breytni hvað varðar verkefni skip- anna. Heildartekjur af rekstri Skagstrendings hf. námu 892,9 milljónum króna fyrstu 10 mánuði ársins; hagnaður án fjármagns- kostnaðar og afskrifta 204,9 millj- ónir; bókfærðar afskriftir 149 milljónir og þar af afskriftir af keyptum framtíðarveiðiréttindum 77 milljónir króna. Veltuhlutfall í lok október var 2,35 en var 1,13 í lok júní og eiginfjárhlutfall 38,3% en var 14,5%. Bókfært eigið fé er 348 milljónir en var 269 milljónir í lok júní. Veltufé frá rekstri er 124 milljónir og handbært eigið fé 106,4 milljónir. Skagstrendingur hf. mun gera út þrjá frystitogara á árinu 1996 og er gert ráð fyrir 90 milljóna króna hagnaði á árinu. Unnið er að því að Skagstrendingur hf. eignist meirihluta í rækjuvinnslu Hólaness hf. á Skagaströnd með sameiningu félaganna. Stefnt er að því í janúarmánuði og er þá gert ráð fyrir töluvert meiri rekstrar- hagnaði en að framan greinir. GG MAX kuldagallar á börn og fullorðna 10% afsláttur til jóla Sandfell hf. v/Laufásgötu, Akureyri • Sími 462 6120 ; t væs. á ganginum í skólanum hann var í eins fötum og ég broþþer verð að fái mér nýtt átfitt ; Jfií ■ m JM ii v . gjjr y v rii\" i | é ^ i M 'Y 'j/ .. w ■ i.*:u ;

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.