Dagur - 23.12.1995, Blaðsíða 17
Laugardagur 23. desember 1995 - DAGUR - 17
Leikhúsið getur verið vopn
Haukur hefur starfað við leikhús í
ótal ár og óhætt að segja að hann
hafi komið víða við. Næsta verk-
efni hans, á eftir Sporvagninum,
er að setja upp leiksýningu í Ud-
múrtíu sem er rússneskt lýðveldi.
„Þetta er þjóð sem talar tungumál
fjarskylt samísku,“ segir Haukur,
en hann hefur einmitt verið leik-
hússtjóri samíska þjóðleikhússins
í fimm ár.
„Ég hef alltaf verið heillaður af
menningu utan Evrópu. Ég lærði í
Japan og hef ferðast mikið um As-
íu. Einnig hef ég áhuga á menn-
ingu minnihlutahópa eins og Söm-
um og þjóðarbrotum í Rússlandi.
Menning þeirra á undir högg að
sækja en lifir þó enn og mér finnst
mjög áhugavert að sjá hvernig
hægt er að nota leikhús til að
varðveita og styrkja menningu.
Leikhús er ekki bara skemmtun
heldur getur það verið pólitískt
vopn. Mörgum finnst að leikhúsið
hafi misst broddinn og að fólk
sæki leiksýningar bara til að
skemmta sér. En þegar ég er í að-
stöðu eins og við samíska leikhús-
ið finn ég hvað leikhúsið getur
verið mikilvægt.“ AI
Úr lokasenu leikritsins. Blanch er leidd úr húsi systur sinnar.
Myndir: BG
Þórey Aðalsteinsdóttir í öðru tveggja smáhlutverka sem hún fer með
Sporvagninum Girnd.
40 ára leikafmæli Þóreyjar:
Aðalatriðið að
allir vinni saman
Þórey Aðalsteinsdóttir fer
með lítið aukahlutverk í sýn-
ingunni en á þessu ári eru lið-
in ljörutíu ár frá því hún lék
fyrst með Leikfélagi Akureyr-
ar.
„Ég var 16 ára þegar ég lék í
fyrstu sýningunni. Þetta var
sýning sem Jónas Jónasson
leikstýrði. Móðir mín, Kristín
Konráðsdóttir, var búin að
starfa með leikhúsinu í mörg ái
sem áhugaleikari. í leikritið
vantaði unga stúlku og, eins og
Jónas Jónasson orðaði einhvem
tímann, var bent á að Stína
Konn ætti bráðlaglega hnátu og
ég spurð hvort ég vildi vera
með. I fyrstu var ég hálfhrædd
en lét samt tilleiðast og síðan
hef ég ekki getað sagt skilið við
leikhúsið.“
Þórey hefur tekið þátt í milli
40 og 50 sýningum með Leikfé-
lagi Akureyrar. Árið 1981 tók
hún við stöðu framkvæmda-
stjóra leikhússins og hefur verið
framkvæmdastjóri eða fjár-
reiðustjóri síðan þá. „Þegar at-
vinnuleikhúsið var stofnað var
ég í bameignum og sótti því
ekki um vinnu. í nokkur ár datt
ég úr sambandi við leikhúsið en
eftir að ég fór að vinna á skrif-
stofunni hef ég tekið að mér
minni hlutverk sem krefjast
ekki mikillar æfingar þar sem
staða framkvæmdastjóra er fullt
starf.“
Þórey segir að sér finnist all-
ar sýningar yndislegar en hún á
sér þó nokkur hlutverk sem eru
eftirminnanlegri en önnur. „Ég
hugsa að Lynn, móðirin í Stál-
blómi, hafi gengið næst hjarta
mínu. Dollý draumur í Súkku-
laði handa Silju var einnig
hressileg persóna. Ég lék líka
gömlu vinnukonuna í Þremur
systrum og það var yndislegt
hlutverk þó sú gamla segði
aldrei neitt alla sýninguna.
Annars skiptir ekki máli hvort
hlutverk er lítið eða stórt. Aðal-
atriðið er að allir vinni saman
að því að skapa góða og fallega
sýningu." AI
Valdimar Örn Flygenring leikur Stanley Kmvalski, mág Blanch. Hér horfir hann illskulega á systur konu sinnar en
leikritiö snýst að stóruin hluta um átök inilli þeirra Stanley og Blanch.
Óskum viðskiptavinum okkar
og Norðlendingum öllum
og farsœldar á komandi ári.
Fögnum saman nfju ári og höfum
fagmennsku ífyrirrúmi
triprent
Prentsmiðja
Glerárgötu 24 ■ Sími 462 2844
Ekki allra en hún getur verið þín