Dagur - 23.12.1995, Blaðsíða 21
FRETTIR
Laugardagur 23. desember 1995 - DAGUR - 21
Húsvísk fjölmiðlun hf:
Rekur sjónvarps-
stöð og gefur út
Víkurblaðið
Húsvísk fjölmiðlun hf. nefnist
fyrirtæki sem stofnað hefur ver-
ið á Húsavík og mun hefja starf-
semi með útgáfu Víkurblaðsins
eftir áramótin. Um páska er síð-
an fyrirhugað að senda út sjón-
varpsefni þráðlaust á nokkrum
rásum, og geta notendur þá
horft á fleiri en eina stöð í sjón-
varpstækjum húss síns um til-
heyrandi afruglara. Hugmyndir
eru um sjónvarpssendingar á
húsvísku efni, t.d. auglýsingum,
bæjarstjórnarfundum, útileikj-
um íþróttaliða sem fara til
keppni utanbæjar og fleiru. Ekki
er mótuð stefna varðandi ýmis-
legt sem til greina kemur, t.d.
útvarpsrekstur eða móðurstöð í
sambandi við Internetið.
„Við erum að skoða allt,“ segir
Jón Hermann Óskarsson, sem er
stjómarformaður fyrirtækisins og
einn níu aðila sem samtals leggja
fram níu milljóna króna hlutafé.
Atta eigendanna eru á Húsavík en
einn í Reykjavík. í stjóm eru auk
Jóns Hermanns: Friðrik Sigurðs-
son, Jóhann Bjarni Einarsson,
Ingimar Eydal Óskarson og Ómar
Guðmundsson, frá Elneti í Kópa-
vogi.
„Við erum nýi útgáfu- og
rekstraraðilinn á Víkurblaðinu og
þar verður fyrst vart við okkur.
Fyrsta blaðið á nýju ári verður
gefið út undir merki félagsins en
við höfum ráðið Jóhannes Sigur-
jónsson sem starfsmann og rit-
stjóra. Nú sjáum við um rekstur-
inn og hlutverk hans verður að
skrifa blaðið og hann ætlar að
auka vægi hins ritaða hluta þess.
Við ætlum ekki að kollvarpa blað-
inu, en munum byrja á óbreyttu,"
sagði Jón Hermann.
Hann sagði að unnið hafi verið
að fjölvarpinu og stefnan sé að
þráðlausar gerfihnattasendingar
verði hafnar um páskana. Þá þurfi
menn að greiða inntökugjald og fá
afmglara sömu tegundar og Stöð
3, þannig að menn geti horft á
hvaða rás sem þeir vilji í. hvaða
tæki heimilisins sem þeir vilji, en
það þurfi ekki allir á heimilinu að
horfa á sömu rásina.
„Við stefnum að því að vera
með fjölbreytt efni, einar fimm
rásir til að byrja með. T.d. NBC
Super Channel, EURO Sport og
líka MTV, Evrópuútgáfuna,
Discovery og rásir með sígildum
kvikmyndum. Ég nefni þetta sem
dæmi um fjölbreytni, þó það verði
kannski ekki nákvæmlega allar
þessar stöðvar sem við verðum
með. Efnið verður ekki textað,
það er sent út allan sólarhringinn
og þetta er nánast eins og fólk sé
með disk heima hjá sér,“ sagði
Jón Hermann.
„Þessu til viðbótar ætlum við
að vera með staðarrás, sem er enn
nánast eins og óskrifað blað. En í
staðarsjónvarpi á öðrum stöðum á
landinu eru menn með skjáauglýs-
ingar, allt frá því að auglýsa ferða-
áætlanir til þess að auglýsa eftir
bamapíum um kvöldið. Okkar
metnaður er að þetta verði gott og
vonandi boðið upp á eitthvað sem
menn fá ekki annars staðar. Við
munum geta leyst tæknilega erfið-
leika við að sjónvarpa frá bæjar-
stjómarfundum. Við gætum sýnt
knattspymuleiki frá útileikjum
heimaliðsins eða annað sérstakt
sem um væri að vera. Þetta er ekki
fastmótað en býður upp á ýmsa
möguleika.
Með góða og skemmtilega
heimarás óttumst við ekki sam-
keppni annars staðar frá, því það
er það sem skemmtilegast þykir á
öðrum stöðvum, að sjá myndir
héðan og þegar von er á þeim
tæmist bærinn,“ sagði Jón Her-
mann.
Jón Hermann sagði að menn
væru bjartsýnir þó um talsverða
fjárfestingu væri að ræða. Stofn-
kostnaður væri um 15 milljónir en
eigið fé um 60%. Fyrirtækið verð-
ur til húsa að Héðinsbraut 1, á efri
hæð, en Tölvuþjónusta Húsavíkur
hefur þegar flutt á neðri hæðina
og húsið verið keypt fyrir þessa
starfsemi. IM
Enn flytur fólk suður
Hagstofan hefur sent frá sér
bráðabirgðatölur um mann-
ljölda á landinu þann 1. desem-
ber sl. Þar kemur fram að lands-
menn voru þá 267.809 talsins,
134.224 karlar og 133.585 kon-
ur. Ibúafjölgunin á einu ári er
1.026 eða 0,38%. Þetta er
minnsta íjölgun á landinu síðan
á aldamótaárinu 1900.
Flest bendir til að tala aðfluttra
verði um 1400 manns lægri á ár-
inu en tala brottfluttra og líkur
benda til þess að á árinu fæðist
4300 böm og 1900 manns látist.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar
hafa aldrei jafn margir flust af
landi brott og á árinu 1995, eða
4400 manns. Leita þarf aftur til ní-
unda áratugar síðustu aldar, þegar
vesturferðimar stóðu sem hæst, til
þess að finna viðlíka tölur um
brottflutning. Athyglisvert er að
mannslátum fjölgaði umtalsvert á
árinu, eða um allt að 10%. Hag-
stofan segir að ekki liggi fyrir
skýringar á þessu, að öðru leyti en
því að fimmtungur aukningarinnar
er vegna snjóflóðaslysanna á
Vestfjörðum.
Fjölgun fólks á höfuðborgar-
svæðinu heldur áfram og virðist
ekkert lát vera á henni. Á þessu
ári stefnir í 1,3% fjölgun á höfuð-
borgarsvæðinu en á móti fækkar
fólki út um allt land. Á Norður-
landi vestra nemur fækkunin 1%
og 0,5% á Norðurlandi eystra.
Norðurland
Á Norðurlandi vestra eru íbúar nú
600 færri en 1985. Á Hvamms-
tanga fjölgaði um 2,2% á árinu og
Sauðárkróki 1,4%. Annars fækk-
aði fólki lítillega á þéttbýl isstöð-
unum en þó um 3,2% á Skaga-
strönd. 1 strjálbýli hefur fækkað
um 17% á síðustu 10 árum, mest í
Vestur-Húnavatnssýslu, um 24% í
Austur-Húnavatnssýslu um 22%
en minna í Skagafirði, um 11%.
Á Norðurlandi eystra fækkaði
fólki lítillega en yfirleitt hefur
fólki fjölgað þar alla öldina. Á
Akureyri og í Ólafsfirði stóð
mannfjöldi í stað á þessu ári, það
fjölgaði um 9 manns á Akureyri,
en á Dalvík og Húsavík fækkaði
fólki um 1%. Fækkun á Grenivík
nemur 4,3%, á Þórshöfn er fækk-
unin 4,4%, 2,5% í Hrísey og 3,1%
á Raufarhöfn. Hins vegar hefur
fólki fjölgað um tæp 5% í Öxar-
fjarðarhreppi og 6,5% í Svalbarðs-
strandarhreppi. óþh
Hátíðardagskrá
Hvannavöllum 10.
Jóladag kl. 17. Hátíðarsamkoma.
Miðvikud. 27. des. kl. 14. Jólafagnaður á Dvalar-
heimilinu Hlíð.
Fimmtud. 28. des. kl. 15. Jólafagnaður eldri borg-
ara í þjónustumiðstöðinni Víðilundi 24.
Laugard. 30. des. kl. 14. Jólafagnaður fyrir börn.
Kl. 18. Jólafagnaður fyrir 11+ og unglingaklúbb.
Gamlársdag kl. 23. Áramótasamkoma.
Nýársdag kl. 17. Hátíðarsamkoma.
Fimmtud. 4. jan. kl. 16. Jólafagnaður á Dvalar-
heimilinu Skjaldarvík.
Kl. 20. Jólafagnaður fyrir Herfjölskylduna.
Föstud. 5. jan. kl. 15. Jólafagnaður á Kristnesspítala.
Starf innkaupastjóra
Samlands er laust til umsóknar
í starfinu felst m.a. að hafa umsjón með innkaupum
fyrirtækisins og skrifstofuhaldi og þarf umsækjandi að
geta hafi störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Samlands
sf., Hannes Karlsson.
Umsóknir sendist til framkvæmdastjóra og þurfa þær
að berast í síðasta lagi 8. janúar nk.
samLAND
Óseyri 3, 603 Akureyri.
SPARISJÓÐUR ÞÓRSHAFNAR
og nágrennis auglýsir
Staða sparisjóðsstjóra
við Sparisjóð Þórshafnar og nágr. er laus til um
sóknar.
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur áhuga og þekk-
ingu á að taka að sér krefjandi og uppbyggjandi starf í
sparisjóði þar sem gæði og mannleg samskipti eru
höfð að leiðarljósi.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar nk. og með umsókn
skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf.
Nánari upplýsingar veita Ragnhildur Karlsdóttir, fulltrúi
sparisjóðsstjóra í síma 468 1117 og Kristín Kristjáns-
dóttir, stjórnarformaður í síma 468 1260.
Umsóknir skulu sendast til:
Kristínar Kristjánsdóttur, Syðri-Brekkum,
681 Þórshöfn.
SPARISJÓÐUR ÞÓRSHAFNAR
og nágrennis
- fyrir þig og þína
Eyljörðshúsinu, Hjalteyrargötu 4
Fjölskyldupakkar
Afgreiðslutiml:
28.-30. desember kl. 13-21.
31. desember kl. 10-16.