Dagur - 23.12.1995, Blaðsíða 20
20 - DAGUR - Laugardagur 23. desember 1995
SMÁSACA
Eftirminnilega gott
BRAGA
KAFFI
- islenskt og ilmandi nýtt
Tindátinn
- eftir Hilmar T. Harðarson
Tindátinn stendur upp á sófa-
borðinu og pírir augun undir
hjálminum. Hver taug í þessum
fölgræna hermanni er þanin til
hins ýtrasta. Sjötta skilningarvit-
ið segir honum að óvinurinn
gæti verið á hverju strái. Hann
beinir byssustingnum að Hugs-
uðinum sem situr allsber á trjá-
stubb með hnefann í andlitinu,
en Hugsuðurinn hugsar bara og
má ekki vera að neinu stríði.
Enda fátt hallærislegra en stríðs-
brölt á tippinu.
Tindátinn kom á dráttarvél, en
það er eingöngu vegna þess að
skriðdrekinn er fastur undir
bókaskápnum og losnar ekki
þaðan fyrr en mamma ryksugar
næst.
Andrúmsloftið er magnþrung-
ið og það má heyra rykkorn falla
á gólfteppi. Þar sem tindátinn
stendur þarna, veitir hann allt í
einu plussófasettinu
athygli. Bakvið út-
saumuðu rósrauðu
púðana leynist ör-
uggt fylgsni fyrir
loftárásum óvinar-
ins sem gæti látið
að sér kveða á
hverri stundu.
Dátinn hug-
prúði grípur
eina dokku
úr prjóna-
körfunni í
nafni Nató
og fikrar sig
eftir bláu
Bamba gam-
inu milli hús-
gagna. Og auð-
vitað er hann
hvergi banginn þótt
það sé hátt niður. Það mátti
ekki tæpara standa, því um leið
og hann kastar sér með þraut-
þjálfaðri Ninjaveltu bak við
stærsta púðann hefjast ósköpin.
Óvinurinn lætur að sér kveða.
Óvinaherinn hefur komið sér
fyrir á þriðju hillu í
bókaskápnum
við hliðina á
rit-
safni
Jóns Trausta.
Höfuðpaurinn
er enginn annar
en hin illræmdi
Yfirstrumpur og
sér til aðstoðar
hefur hann Mjalta-
konuna Astrík og
eina gula kú með
þrjár lappir; sú
fjórða var étin af þriggja
ára snáða fyrir þrem árum og
endaði sú löpp í klósettinu
nokkru seinna eftir margar and-
vökunætur, en það er önnur saga.
„Þönder, þönder, þönderk-
ats... Hóóóóó,“ æpir tindátinn
sér til hughreystingar.
Loftárásin er miskunnarlaus-
ari en það sem miskunnarlaust
er. Yfir dátann rignir Öldinni
okkar og á hann fullt í fangi með
að forða sér undan bókaflóðinu.
Hluti af fimmtándu öldinni lend-
ir á fíkjutrénu og hvolfir því. En
tindátinn er eins og áður sagði
sérþjálfaður og veit að sókn er
besta vömin. Því tekur hann sér
til handagagns nokkur hand-
fylli af pottamold og þeytir í
óvininn.
Gagnárásin ber árangur í
fimmta kasti; þrífætt kýrin rið-
ar til falls enda jafnvægið
kannski ekki upp á marga fiska.
Yfirstrumpur forðar sér í skjól
bakvið Heimilislækninn, Mjalta-
konan stekkur niður á gólf í leit
að liðsauka í dótakassanum og
Ástríkur fer að hjúkra þrífættu
kúnni biðjandi um vopnahlé
veifandi hvítum hekludúk af
stofuborðinu.
Tindátinn rekur
upp siguröskur og
fær sér mjólk,
skúffuköku og
kleinu, sem hann
hafði tekið
með sér í
nesti.
Vopnahléið
notar hann síðan til að hlaða sér
byrgi úr pottamold sem er nóg
af eftir að fíkjutrénu hvolfdi.
Verst hvað byggingarefnið
loðir illa saman. Eina ráðið er
að fá lánað vatn úr
blómavasa og
bæta á eftir
þörfum
og viti
menn;
áður en
nokkur
fær neitt
við ráðið
hefur
stofugólf-
ið breyst í
torfært
fenjasvæði
sem aðeins
fuglinn fljúgandi kemst yfir. Nú
væri gott að vera á skriðdrekan-
um.
En þessar áhyggjur tindátans
verða smávægilegar þegar kunn-
uglegar drunur heyrast í fjarska.
Hann veit sem er að óvinurinn
sem nú nálgast er ósigrandi.
Ekkert bítur á hann, hvorki
skyndiorrustur né diplómatískar
viðræður. Þetta er óvinur sem
getur ekki tapað, óvinur sem býr
til æðislega góðar skúffukökur
og kyssir á bágtið.
„Guðmundur Ýrsælsson, hvað
í ósköpunum ertu búinn að gera
drengur?“ æpir óvinurinn þar
sem hann gnæfir yfir vígvöllinn,
„ég næ þessu aldrei úr.“
I einlægni...
★ Næsta blað kemur út fimmtudaginn 28. desember.
Skilafrestur auglýsinga í það blað er til kl. 11.00
miðvikudaginn 27. desember.
★ Þá kemur blað út föstudaginn 29. desember.
Skilafrestur auglýsinga í það blað er tii kl. 11.00
fimmtudaginn 28. desember.
★ Helgarblaðið okkar 30. desember verður síðasta
blað ársins 1995. Til þess að allir fái blaðið sitt á
réttum tíma þurfa allar auglýsingar að hafa borist til
okkar fyrir kl. 14.00 fimmtudaginn 28. desember.
★ Fyrsta blað á nýju ári kemur út strax miðvikudaginn
3. janúar. Auglýsingar í það blað þurfa að berast til
okkar fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 2. janúar.
-★ ■
Starfsfólk auglýsingadeildar óskar viðskiptavinum sínum og
landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
auglýsingadeild
Sími 462 4222 • Fax 462 2087
Týndur köttur!
Grábröndóttur (dökkur) högni tapaðist frá heimili sínu á Suð-
ur-Brekkunni sl. þriðjudag, 20. desember.
Ef einhver getur gefið upplýsingar um köttinn vinsamlega
hringið í síma 462 4980.
íslenskt @ já takk
Eflum
atvinnu
Verkalýðsfélagið Eining, Eyjafirði.
Iðja, félag verksmiðjufólks Akureyri og nágrenni.
Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri.
Félag byggingamanna Eyjafirði.
Félag málmiðnaðarmanna Akureyri.
Sjómannafélag Eyjafjarðar.
Rafvirkjafélag Norðurlands.
TVLVUTÆKI
FURUVÖLLUM 5 ■ SÍMI 462 61 00 ■ FAX 462 6156
Utvarp I tölvuna og ýmislegt
nýtt fýrir tölvufólkið.
Verð frá kr. 1.690,-
Heitasti tölvuleikurinn og fullt
hlaðborð af úrvals hugbúnaði fyrir
tölvufólkið.
i kr. 1.990,-
Radio Card
^ífctftu a MUIO UN/UFF
!«oa
fjölskyldunnar