Dagur - 23.12.1995, Blaðsíða 9
POPP
MAGNÚS ÚEIR CUÐMUNDSSON
Laugardagur 23. desember 1995 - DAGUR - 9
SÚKKAT SVÍKUR EKKI
Þeir fóstbræður úr matargerðinni
Hafþór Olafsson söngundur og
Gunnar Öm Jónsson gítarsnertir í
dúettinum Súkkat, lögðu ísland
svo gott sem að fótum sér fyrir
röskum tveimur árum með fyrstu
samnefndu plötunni sinni. Með
sínum einföldu tónsmíðum og ein-
stöku kímnigáfu í textagerðinni
Súkkat.
Skemmtilegt
Fjap.
(ásamt félaga þeirra Emi Karls-
syni) komu þeir með ferskt loft
inn í popplífið og sýndu að enn er
hægt að komast langt á viljanum
einum saman.
Nú fyrir þessi jól snúa þeir
snillingarnir aftur með „Fjap“ og
svíkja ekki frekar en í fyrra skipt-
ið. Að vísu er nýjabrumið að
mestu farið og „sjarminn“ ekki al-
veg sá sami nú og áður, en létt og
lúmsk gamansemin er vissulega
áfram á sínum stað, eins og lög á
borð við Vont en það versnar,
Rauðar rúsínur, Fóstran og
Reykjavíkurpakk, bera gott vitni
um.
Þrek og tár
Skipstjóra- og stýrimannafélag
Norðlendinga
Fundarboð
Við minnum á aðalfundinn þann 27. desember
kl. 10.30, í Alþýðuhúsinu, 4. hæð.
Félagar fjölmennið!
Stjórnin.
RAUTT LffÓS RAUTT LBÓS
gÉUMFERÐAR
Ólafur Haukur Símonarson er án
nokkurs vafa vinsælasta og af-
kastamesta leikskáld þjóðarinnar
um þessar mundir. Hafa verk hans
á liðnum árum hvert á fætur öðru
verið sett upp í Þjóðleikhúsinu við
miklar vinsældir og þá jafnan und-
ir stjórn Þórhalls Sigurðssonar.
Tvö af síðustu verkum Ólafs
hafa verið með söngvum og hafa
þeir í báðum tilfellum verið gefnir
út á plötum. Annars vegar er það
auðvitað Gauragangur sem í hlut
á, sem Ný dönsk sá um tónlistina
við, en hins vegar Þrek og tár, sem
hefur verið á fjölunum undanfarið
og notið mikilla vinsælda. Fléttar
Ólafur þar ýmsum dægurflugum
frá 6. áratugnum inn í og eru það
Egill Ólafsson og Tamlasveitin
sem sjá um flutninginn ásamt
Eddu Heiðrúnu Bachmann, EIvu
Ósk Ólafsdóttur og Stefáni Jóns-
syni leikurum. Er platan með lög-
unum án efa ágætisviðbót við sýn-
inguna.
Meira af Bítlum
Á NÝJU ÁRI
Ef einhverjir skildu halda að nú
verði látið staðar numið um sinn
með útgáfu á efni með Bítlunum
eftir að tvöföldu plötumar Live At
The BBC frá því í fyrra og Antho-
logy 1, þá er hægt að fullyrða það
hér og nú að um slíkt verður svo
sannarlega ekki að ræða. Herma
nefnilega nýjustu tíðindi, að strax
í mars verði von á hluta númer 2
og sá 3. sé á dagskrá í maí. Og
ekki nóg með það, heldur á svo í
framhaldinu að vera í bígerð
„Unplugged“ plata með ýmsum
lögum félaganna fjögurra. Það á
því aldeilis ekki að verða neitt lát
á nýja Bítlaæðinu, en þessi tíðindi
ber þó að taka með nokkrum fyrir-
vara hvað varðar tímasetningam-
ar, auk þess sem reynslan sýnir að
hlutimir geta breyst hratt á
skömmum tíma.
...strákar
eruö þíð búnír að
velja jólagjöfma...
í' f k,
THE ONE AND ONLY
wonderbra
V______________y
Margír Iítír
Stærðír 32-38, A, B, C, D.
Isabella
Hafnarstræti 97, sími 461 1209
S0LUMIÐST0Ð
Aðalstræti 6, 101 Reykjavík
Sím.i: 560 7800 • Fax: 562 1252
HRAÐFRYSTIHUSANNA
Hvannavöllum 14, 600 Akureyri
Sími: 460 7800 • Fax: 460 7965
Hluti starfsnwnna Sll á Ákureyri.
Starfsfólk skrifstofu SH á Akureyri, óskar Norðlendingum og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla ogfarsæls komandi árs og
þakkar samstarfið á árinu sem er að hða.