Dagur - 23.12.1995, Blaðsíða 2

Dagur - 23.12.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 23. desember 1995 FRÉTTIR Leikararnir sem koma fram i sýningunni ásamt leikstjóranum, Skúla Gautasyni. Mynd: AI Leikklúbburinn Saga: Frumsýnir á annan í jólum Unglingaleikklúbburinn Saga á Akureyri frumsýnir nýtt leikrit í Dynheimum á annan í jólum. Leikritið heitir því frumlega nafni „Mysingssamloka með sveppum“ og er eftir Jón Stefán Kristjánsson en Skúli Gautason leikstýrir. Leikritið gerist á heimavistar- skóla þar sem eru bara stúlkur. Sonur skólastýrunnar kemur í skólann og veldur það mikilli ólgu á heimavistinni að fá skyndilega strák í hópinn. „Þetta er eiginlega ærslaleikur,“ segir Kjartan Hösk- uldsson, einn leikaranna í leikrit- inu. Ekki er búið að ákveða fjölda sýninga en stefnt er að því að halda áfram að sýna leikritið eftir áramót. AI Möðruvallaprestakall: Sr. Torfi Hjaltalín Stefánsson I námsleyfi til Svíþjóðar Sóknarprestur Möðruvalla- prestakalls, sr. Torfi Hjaltalín Stefánsson, fer í námsleyfi til Lundar í Svíþjóð um áramótin, og stendur námsleyfið til 15. apríl 1996. Sr. Torfí hefur verið áður í Lundi, síðast árið 1987, en hyggst nú ljúka doktorsnámi í trúfræði. Á fundi með vígslubiskupi, sr. Bolla Gústavssyni, fyrr á árinu var reynt að ná betra samstarfi milli sr. Torfa og sóknamefndarinnar og var málinu gefinn tími til ára- móta. Þar var ekkert rætt um brottvikningarkröfu, enda þarf af- skaplega alvarlegar sakir á hendur presti til þess að honum verði vik- ið úr embætti. i Óskum viðskiptavinum okkar g « m Sr. Torfi hefur leyst sr. Huldu Hrönn Helgadóttur, sóknarprest Hríseyjar og Stærri-Árskógssafn- aða, af meðan hún er í námsleyfi í Skotlandi og mun sr. Jón Helgi Þórarinnson á Dalvík þjóna þeim sóknum til 15. apríl nk. en sr. Torfi þá taka við aftur til 1. júní er sr. Hulda kemur aftur til starfa. Möðruvallarprestakalli verður þjónað af sr. Gunnlaugi Garðars- syni í Glerársókn, en þar sem hann þjónar mjög stóru prestakalli fær hann stuðning héraðsprests Eyjafjarðar og Þingeyjarprófasts- dæma um páska og fermingar. Starf héraðsprests verður auglýst strax í byrjun næsta árs samkvæmt upplýsingum frá Biskupsstofu og er umsóknarfrestur einn mánuður. Gert er ráð fyrir að nýr héraðs- prestur taki til starfa innan mánað- ar frá því að umsóknarfrestur rennur út. Til þess tíma mun sr. Svavar A. Jónsson, sem tekið hef- ur við starfi aðstoðarprests við Akureyrarkirkju, gegna embættinu eins og kostur er. GG gleðilegirajálci ogjarsœldar á komandi ári. Þökkum viðskiptin. Akureyri: Tryggvabraut 18-20 Sími 462 2211 Hlutafélag um rekstur knattspyrnu skemmu ekki stofn- að fyrir áramót Áætlanir um stofnun hlutafélags um byggingu og rekstur yfír- byggðs knattspyrnuvallar eða skemmu ná ekki fram að ganga fyrir áramót eins og upphaflega var stefnt að. Þórarinn E. GEISLADISKAVEISLA Páll Óskar .. Samlokugrill Bubbi ..... Kaffikanna . Barnabros .. Djúpsteikingarpottur Reif í skóinn ............. Kenwood matvinnsluvél m/ávaxtapressu og safapressu, tilboð, áður 8.795, nú 7.900,- Gott úrval rafmagnsverkfæra .1.595,- .2.990,- .1.695,- .2.190,- .1.590,- .4.900,- .1.595,- Emiliana Torrini...............1.595,- Hárþurrkur ..................frá 990,- Sixties .......................1.595,- Verkfærasett...............frá 1.990,- Pottþétt 2 ....................2.490,- Skrúfjárnasett ..............frá 648,- og fleira og fleira. Frábærar jólagjafir Sveinsson, bæjarfulltrúi og for- maður íþrótta- og tómstunda- ráðs, segir að líkurnar á því að hlutafélagið verði stofnað hafí ekki minnkað, þær séu í hans huga enn 100%. „Málið er enn statt á vinnslu- stigi eða kynningarstigi og enn hefur ekki orðið af því að halda fundi annars vegar með íþrótta- félaginu Þór og hins vegar með Knattspymufélagi Akureyrar en það verður gert fljótlega á nýju ári. Ég ræddi og útskýrði málið á aðalfundi Knattspymuráðs Akur- eyrar og það fékk góðar undirtekt- ir þar. Einnig er mikill áhugi hjá KSÍ að fylgjast með þessu máli og leggja þessu máli lið. Málið verð- ur tekið upp af fullri einurð strax í janúar,“ sagði Þórarinn E. Sveins- son. GG Dagur kemur næst út fimmtu- daginn 28. desember. Skila- frestur auglýsinga í það blað er til kl. 11 miðvikudaginn 27. desember. Milli jóla og nýárs kemur Dagur auk þess út föstudaginn 29. desember og laugardaginn 30. desember. Fyrsta blað á nýju ári kemur út miðvikudaginn 3. janúar. Akureyri: Punktar úr bæjarráði Bréf frá Heilsu- gæslustöðinni Bæjarráð ræddi á fundi sínum sl. fimmtudag um tvö bréf frá Heilsugæslustöðinni á Akur- eyri. Annars vegar afrit bréfs þar sem stjórn Heilsugæslu- stöðvarinnar andmælir með- ferð ráðuneytisins á eftirstöðv- um af inneign stöðvarinnar hjá Ríkissjóði. í hinu bréfinu er vakin athygli á hálum gólfum í aðgengi að Heilsugæslustöð- inni og spurt hver beri skaða- bótaábyrgðina vegna hugsan- legra slysa á hinum hálu gólf- um. í tilefni af síðamefnda bréfinu fól bæjarráð bæjar- verkfræðingi og bæjarlög- manni að kanna málið. Áhyggjur af fjár- hagsstöðu LA Lagt var fram bréf frá Leikfé- lagi Akureyrar þar sent gerð er grein fyrir erfiðri fjárhagsstöðu félagsins og brýnni þörf á að endurskoða þríhliða samning milli Leikfélagsins, Akureyrar- bæjar og Ríkissjóðs um rekstur atvinnuleikhúss á Akureyri. Salaá Löngumýri 9-11 Bæjarráð ræddi um bókun í húsnæðisnefnd um sölu á hús- eigninni Langamýri 9-11. Af- greiðslu málsins var frestað á síðasta fundi bæjatráðs, en bæjarstjóm veitti bæjarráði heimild til fullnaðarafgreiðslu málsins. Guðríður Friðriks- dóttir, forstöðumaður Húsnæð- isskrifstofunnar, gerði bæjar- ráði grein fyrir aðferð við öfl- un tilboða í Löngumýri 9-11 og afstöðu hennar til þess máls. Meirihluti bæjarráðs samþykkti tillögu húsnæðis- nefndar um sölu eignarinnar. Sigurður J. Sigurðsson, Sjálf- stæðisflokki, lýsti sig ósáttan við vinnulag í þessu máli og sat hjá við afgreiðslu þess. Rætt veröi við Sigurjón Ingibjörg Eyfells, deildarstjóri leikskóladeildar, ræddi við bæjarráð um svör við greinum um leikskólamál á Akureyri eftir Sigurjón Haraldsson, sem hafa birst í Degi og Morgun- blaðinu. Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra og félags- málastjóra að ræða við höfund greinanna. Erindi frá Árna Tekið var fyrir erindi frá Árna V. Friðrikssyni, stjórnarfor- manni Fóðurverksmiðjunnar Laxár hf., þar sem lýst er óánægju með framgang mála við sölu Akureyrarbæjar á hlutabréfum í Krossanesi hf. Þá óskaði Árni einnig eftir við- ræðum við bæjaryfirvöld um kaup fyrirtækisins á hlutabréf- um Akureyrarbæjar í Laxá. Afgreiðslu þessa erindis var frestað. Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðubandalagi, óskaði bók- að að hún óski eftir að fram verði lögð afrit af bréfum þeim, sem vitnað er til í erindi Áma V. Friðrikssonar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.