Dagur - 23.12.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR
Laugardagur 23. desember 1995 - DAGUR - 3
Utgjöld vegna fjárhagsaðstoðar hjá Félagsmálastofnun Akureyrarbæjar sambærileg og í fyrra
Desember alltaf verstur
Útlit er fyrir að beiðnir sem Fé-
Iagsmálastofnun Akureyrarbæj-
ar berast um fjárhagsaðstoð til
einstaklinga nú í desember verði
fleiri en í fyrra. Desember er
alltaf sá mánuður ársins þegar
þessar beiðnir eru sem fíestar
og eru þær nú þegar orðnar
nær jafn margar og bárust allan
desember í fyrra. Heildarupp-
hæð sem fer í þennan málaflokk
verður eitthvað hærri á þessu
ári en 1994 en þar spiia inn í
breytingar á skattareglum.
„Það eru nú þegar komnar 124
umsóknir um fjárhagsaðstoð í des-
ember en voru 129 allan mánuð-
inn í fyrra. Þetta er miklu hærra en
aðra mánuði ársins þegar algengt
er að umsónir séu á bilinu 70-80,“
sagði Guðrún Sigurðardóttir,
deildarstjóri hjá Félagsmálastofn-
un Akureyrarbæjar. Hún sagði
jafnframt að fólk bæri sig almennt
illa nú í desember. „Það er ekki
hægt að neita því að þannig hefur
þetta viljað vera í desember og þó
fólk komist af þessa venjulegu
mánuði þá þolir það illa þau út-
gjöld sem fylgja jólunum.“
Ekki liggur endanlega fyrir
hversu há upphæð mun fara í
þennan málallokk á árinu. í fyrra
námu styrkir og lán samtals 30,6
milljónum en eru nú komin í tæpa
31 milljón. Heildarfjöldi umsókna
mun hins vegar vera færri en í
fyrra. „Það sem skekkir þessa
mynd er að frá 1. september sl.
bar okkur að fara að taka stað-
greiðslu af allri fjárhagsaðstoð, en
áður var þetta gert upp eftir á. Frá
1. september hefur því í rauninni
þurft að bæta skattinum ofan á
fjárhagsaðstoðina þegar fólk hefur
ekki skattkort til að nota og þetta
hefur aukið útgjöldin. Mér sýnist
miðað við þær tölur sem nú liggja
fyrir að árið í ár hefði orðið sam-
bærilegt og í fyrra ef skatturinn
hefði ekki komið til,“ sagði Guð-
rún.
Vegna nýrrar mengunarvarnar-
reglugerðar í tengslum við EES-
samninginn ber sveitarfélögum
að hafa komið fráveitumálúm í
lag fyrir árið 2005 og að dreif-
ing mengunar frá útrásum til
sjávar sé innan þeirra marka.
Arnar Snorrason, tæknifræð-
ingur hjá Dalvíkurbæ, kynnti
bæjarráði Dalvíkur stöðu þess-
ara mála nýlega og hann segir
að á næstu níu árum þurfl að
koma öllu skólpi frá Dalvíkur-
bæ út fyrir ákveðin viðmiðunar-
mörk í hafi, sem eru 400 til 500
metrar frá landi.
Að undanfömu hefur verið tal-
að um að efnahagsástand í þjóðfé-
laginu hafi heldur skánað en Guð-
rún segir erfitt að meta slíkt. „Þeg-
ar maður horfir á árið þá eru tals-
verðar sveiflur milli mánaða og
t.d. áberandi færri umsóknir og
minna sem fer til framfærslunar í
ágúst og september en ýmsa aðra
mánuði. Ég tel að það megi rekja
til skárra atvinnuástands á þessum
tíma. Síðan verður aftur aukning
Ekki er ljóst hver kostnaður
bæjarsjóðs verður, unnið er að
frumathugun á þessu máli og unn-
in hefur verið skýrsla fyrir bæinn
um dreifingu mengunar frá fyrir-
huguðum útrásum og hversu langt
þurfi að fara með skólpið en áætl-
að er að útrásimar verði austur á
sandinum og við Norðurgarð
hafnarinnar. Unnið verður að því
að sameina núverandi útrásir.
Vinna þarf að heildarlausn sem
m.a. felur í sér lagnir og hreinsun
á skólpinu, þ.e. fyrsta stigs hreins-
un, og síðan þarf að dæla skólpinu
í útrásimar. Ríkissjóður kemur til
þegar líður á haustið og langmest
núna í desember."
Á næsta ári er gert ráð fyrir
minni útgjöldum til þessara mála
og er þá gengið út frá því að takist
að fá ríkið til að falla frá reglunni
um staðgreiðslu. „Okkur sem
vinnum við þetta finnst óeðlilegt
að framfærslustyrkir séu stað-
greiðsluskyldir. Fjárhagsaðstoð er
skattskyld og það ætti að vera
nægjanlegt,“ sagði Guðrún. HA
með að styrkja þessar fram-
kvæmdir í fráveitumálum þannig
að sveitarfélögin fái virðisauka-
skattinn af framkvæmdunum til
baka. Um tugmilljóna framkvæmd
er að ræða hjá Dalvíkurbæ, jafn-
vel hundruð milljóna, en þess má
geta að áætlað er að samsvarandi
framkvæmd hjá Akureyrarbæ
muni kosta allt að einum milljarði
króna. Þar sent matvælafram-
leiðsla er á strandsvæði Dalvíkur-
bæjar, m.a. fiskverkunarfyrirtæki,
eru gerðar harðari kröfur til
fráveitumála í tengslum við meng-
unarvamarreglugerðina. GG
Þreifingar um samein-
ingu sveitarfélaga viö
utanveröan Skagafjörö:
„Menn
eru mjög
jákvæðir"
„Mér fannst nienn vera mjög
jákvæðir gagnvart þessum
hugmyndum og málin voru
rædd af opnum huga. Við
munum koma saman fljót-
lega eftir hátíðar og halda
viðræðum áfram,“ sagði
Snorri Björn Skúlason, bæj-
arstjóri á Sauðárkróki, í
samtali við Dag.
Forystumenn sjö sveitarfé-
laga við utanverðan Skagafjörð
komu saman til fundar á dög-
unum þar sem þeir ræddu um
hugsanlega sameiningu þeirra.
Segir Snorri Bjöm menn sýna
málinu áhuga, en allir séu enn
með óbundnar hendur. Nokkrir
sveitarstjómamenn, sem komu
saman til nefnds fundar, hafa
enn ekki aflað sér formlegs
umboðs frá sínum sveitar-
stjómum til viðræðna um sam-
einingu. Þeir munu afla sér
þess fyrir næsta fund, að sögn
Snorra Bjöms.
Það eru forystumenn Skef-
ilsstaða-, Staðar-, Hofs-, Við-
víkur- og Hóla- og Fljóta-
hrepps auk Sauðárkróksbæjar,
sem taka þátt í þessum viðræð-
unt. „Við höfum engar for-
sendur gefið okkur og förum af
stað á algjörum núllpunkti á
næsta fundi um miðjan janú-
ar,“ sagði Snorri. -sbs.
Sveitarfélög hafa 9 ár til að
koma fráveitumálum í lag
OPIÐ ÞORLÁKSMESSU 23. DES. KL. 10-23
OPIÐ AÐFANGADAG 24. DES. KL. 9-12
Frakkar Stakkar
Föt Jakkar
Buxur Skyrtur
Peysur Vesti
Leður- n r i •
jakkar jakkar
Sloppar Náttföt
Húfur Treflar
Hanskar Bindi
e máfw
Sími 462 3599