Dagur - 18.01.1996, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 18. janúar1996 - DAGUR - 9
|
i
LONSBAKKA■601 AKUREYRI
•zr 463 0321, 463 0326, 463 0323
FAX 462 7813
'/------------^
Janúar
clao'ar
í Jaij ii
Veitingastaðurinn Fiðlarinn á Akureyri:
Andlits lyfting
á afmælisári
Fimmtudag,
föstudag og laugardag.
Náttfatnaöur 15% afsláttur
Undirfatnaöur 20% afsláttur
Slæður - Skinnhanskar 15% afsláttur
Ýmis fleiri tilboö
lltsöluhomiö
Brjóstahöld frá kr. 500,-
Nærbuxur frá kr. 200,-
Sérverslunin
Veitingastaðurinn Fiðlarinn eftir
endurbaeturnar. Myndir: BG
Veitingastaðurinn Fiðlarinn á
Akureyri hefur fengið viðamikla
andlitslyftingu á nýju ári en í
vor verða 10 ár síðan staðurinn
var opnaður. Núverandi eigend-
ur eru Snæbjörn Kristjánsson og
Héðinn Beck en þeir hafa rekið
staðinn í sjö ár. Snæbjörn segir
að jafnframt endurbótum á
staðnum verði áherslum breytt í
matseðli og til dæmis hefur verið
ráðinn nýr matreiðslumaður
sem starfað hefur undanfarið ár
í Luxemborg og mun hann inn-
Ieiða það nýjasta í matargerð-
inni á meginlandi Evrópu.
„Við höldum svipuðu skipulagi í
veitingasalnum eins og var en höf-
um endurnýjað allt umhverfi, mál-
að upp á nýtt, breytt móttöku og
svo framvegis. Það má því segja
að staðurinn sé á vissan hátt eins
og nýr eins og nauðsynlegt er að
gera með reglulegu millibili. Það
var líka tímabært að gera þetta
núna þegar staðurinn nálgast 10
ára afmælið," sagði Snæbjörn.
Um matseðilinn segir Snæbjöm
að Hákon Már Örvarsson, mat-
reiðslumaður, sem raunar lærði á
Eigendurnir Héðinn Beck (t.v.) og Snæbjörn Kristjánsson, en þeir fagna 10
ára afmæli Fiðlarans í vor.
Fiðlaranum á sínum tíma, komi til
með að leggja evrópska línu í
matseðilinn, þó haldið verði áfram
ákveðnum hefðum staðarins. Til
þess nýtir hann sér þekkingu sem
hann aflaði sér með vinnu í Lux-
emborg síðastliðið ár.
Fiðlarinn verður sem fyrr opinn
í hádeginu og á kvöldin, alla daga
vikunnar. Snæbjöm segir að áfram
verði hagstætt verðlag leiðarljós
og fyrir leikhúsgesti verður 25%
afsláttur á matseðli. JÓH
uppþvottavélar
á frábæru
tilboðsverði
kr. 65.000,-
|
i
I
I
I
I
I
I
i
Eigum enn
örfáar, mjög
fullkomnar
AEG
Munið bökunarvélarnar kr. 19,990,-
Kitchen Aid
tilboð
Wokkrar
vélar með
hakkavél
kr. S9.830,-
Sveitakeppni Akureyrarmótsins í bridge:
Sveit Antons Har-
aldssonar í forystu
Fimmta og sjötta umferð Akur-
eyrarmótsins í sveitakeppni í
bridge voru spilaðar sl. þriðju-
dag og hefur sveit Antons Har-
aldssonar forystu með 124 stig.
Næst á eftir sveit Antons kem-
ur sveit Ævars Armannssonar með
113 stig, í þriðja sæti er sveit
Kristjáns Guðjónssonar með 105
stig og í fjórða sæti er sveit
Ormars Snæbjömssonar með 94
stig.
Næstu tvær umferðimar verða
spilaðar þriðjudaginn 23. janúar.
Sunnudagsbrigde var spilaður
síðastliðinn sunnudag og þar sigr-
uðu Kristján Guðjónsson og Jónas
Róbertsson, fengu 167 stig. í öðru
sæti urðu Gissur Jónasson og
Ragnhildur Gunnarsdóttir með
157 stig og Sveinbjöm Jónsson og
Sveinn Torfi Pálsson í þriðja sæti
með 149 stig.JÓH
Skákfélag Akureyrar:
Óhefðbundið mót í kvöld
Skákfélag Akureyrar stendur fyrir
sérstæðu móti kl. 20 í kvöld í
Skákheimilinu við Þingvallastræti
á Akureyri. Þá fer fram 10 mín-
útna mót en það óvenjulega við
það er að fyrstu þrír leikimir
verða eins í öllum skákunum, þ.e.
fyrstu tveir leikir hvíts og fyrsti
leikur svarts. Þar með kemur upp
kóngsbragð sem fróðlegt verður
að bera saman hvernig þróast í
skákunum.
Sem fyrr verður öllum heimil
þátttaka í mótinu.