Dagur - 01.08.1996, Blaðsíða 16
Akureyri, fimmtudagur 1. ágúst 1996
TS
Kaupangi v/Mýrarveg • Sími 462 4800
___________________________________Œ
GBtmutbúóin
AKUR
Síldarævintýriö á Siglufirði eru um helgina:
Búist við um 6
þúsund gestum
- fráleitt sjónarmið að tala um syndabæli,
segir Theódór Júlísson
Við reiknum ekki með að fá
hingað sama fjölda fólks og
kom um verslunarmannahelgina
í fyrra. Þá voru hér um 10 þús-
und manns, en við verðum mjög
ánægðir ef nú koma 4 til 6 þús-
und manns. Samkeppnin hefur
harðnað mikið og sérstaklega
tek ég eftir því að forsvarsmenn
Halló Akureyrar og Neistaflugs
auglýsa mikið og ætla sér stóra
hluti,“ sagði Theódór Júlíusson,
framkvæmdastjóri Síldarævin-
týrisins á Siglufirði, í samtali við
Dag.
Fjölmörg dagskráratriði verða í
boði á Sfldarævintýri, svo sem
söltunarsýningar, skemmtisigling-
ar, dorgveiðikeppni, sundlaugar-
diskó, myndlistarsýning, hesta-
ferðir og sjósleðaleiga. Þá er fátt
eitt nefnt af dagskráratriðum, en
útgangspunktur þessa ævintýris
eru þó sælar minningar frá hinum
sælu síldarárum fyrr á öldinni.
Sú nýbreytni er nú varðandi
Sfldarævintýrið að aðgangseyrir er
innheimtur af þeim sem það sækja
og þar með Siglufjörð, - en kaup-
staðurinn allur er vettvangur gleð-
skaparins. Verð aðgöngumiða per.
mann eru 2.000 kr. en ókeypis er
fyrir böm og unglinga í fylgd með
fullorðnum. Að sögn Theódórs
verður því þó ekki fylgt út í hörg-
ul að innheimta gjald af öllum
þeim sem á staðinn koma, fólk
geti til dæmis átt önnur erindi í
bæinn. Með áðumefndri upphæð
er greitt fyrir skemmtiatriði, tjald-
svæði og annað sem í boði er.
Theódór Júlíusson sagði að
hann væri allsendis ósammála
þeim fullyrðingum um Sfldaræv-
intýrið sem Júlíus Hraunberg
Kristjánsson, forstöðumaður
Hvítasunnusafnaðarins á Siglu-
firði, hefur sett fram í bæjarblað-
inu Hellunni og í Degi. Þar segir
hann að urn verslunarmannahelg-
ina sé Siglufjarðarkaupstaður
drykkjukrá og syndabæli, og þar
reyni eldri menn „...að manga til
við sig ungar stúlkur, ég hef horft
á nauðgunartilraunir, þarna gerir
fólk þarfir sínar og sinnir öðmm
þörfum,“ eins og hann komst að
orði í viðtal við Dag sl. laugardag.
Þar sagði Júlíus enn fremur að
margir bæjarbúar færu ekki úr
húsum sínum þar sem þeir yrðu að
gæta þeirra vegna innbrotsþjófa
og brennuvarga.
„Þetta er algjört rugl og fráleit
sjónarmið - og í raun hlægilegt af
Júlíusi að setja þetta fram,“ sagði
Thedór Júlísson. Hann sagði að
vitnisburður lögreglu um háttalag
manna á Sfldarævintýrinu væri
skýr; fangageymslur gistu tiltölu-
lega fáir miðað við allan
mannfjöldann í bænum, kæmr um
naugungartilraunir hefðu aldrei
borist og því síður sinntu menn
margvíslegum þörfum sínum á
víðavangi. Allt þetta væri víðs-
fjarri vemleikanum. Hins vegar
bæri enginn á móti því að glatt
væri á hjalla á Siglufirði um versl-
unarmannahelgina, en slíkt væri
allt innan þeirra takmarka sem
skynsamt fólk setti sér. -sbs.
Verslanir Hagkaupa i Reykjavík:
Húnvetnsk sumar-
lömb í verslanir í gær
Rösklega 70 sumarlömbum
var slátrað hjá Ferskum af-
urðum hf. á Hvammstanga sl.
mánudag og komu þau á mark-
að í verslunum Hagkaupa í
Reykjavík í gær, miðvikudag.
„Ég vænti þess að neytendur
taki nýju kjöti af húnvetnskum
sumarlömbum vel,“ sagði Eyj-
ólfur Gunnarsson, bóndi á Brú í
Hrútafírði, formaður Félags
sauðfjárbænda í Vestur-Húna-
vatnssýslu, í samtali við Dag.
Sem kunnugt er gerðu nokkrir
sauðfjárbændur í V-Hún. samn-
inga við Hagkaup um að slátrun á
allt að 200 fjár vikulega, frá júlí-
© VEÐRIÐ
Á Norðurlandi vestra er í
dag spáð hægri breytilegri
átt og heldur léttskýjuðum
himni. Hiti verður á bilinu 8
til 16 stig. Á Norðurlandi
eystra mun létta til með
sunnan golu og hiti verður á
bilinu 12 til 18 stig.
lokum og fram í fyrstu viku des-
ember, - eða í alls 21 viku. Skráð
grundvallarverð er greitt fyrir
kjötið, það er 215,60 kr., en nú -
þegar slátrunin er að hefjast - er
kjötið yfirborgað um 40%, en sú
yfirborgun lækkar svo í tröppu-
gangi niður á við allt þar til hinn
almenni sláturtími hefst, sem er í
byrjun september. Eftir þann tíma
gildir grundvallarverðið.
Reiknað er með að í næstu viku
verði slátrað hjá Ferskum afurðum
hf. á Hvammstanga um 150 hún-
vetnskum sumarlömbum. Fall-
þungi lambanna sem slátrað var í
fyrradag var að jafnaði 13,44 kg.,
sem telst harla gott miðað við árs-
tfma.
„Ég er í töluðum orðum stadd-
ur í Reykjavík og er á leið til
fundar með forsvarsmönnum Hag-
kaupa. Ég býst við að kjöt frá
húnvetnskum bændum hljóli góð-
ar viðtökur - og þess má geta að
kjötið verður upprunamerkt, þann-
ig að hver og einn getur séð frá
hvaða bónda það kemur. Það
verður allt á hreinu," sagði Eyjólf-
ur Gunnarsson. - sbs.
Með lipurð og lagni fyrir Múlann
Með lipurð og lagni varð að þræða hið tæpa einstigi sem
vegurinn fyrir Olafsfjarðarmúla er þegar Árni Helga-
son, vörubflstjóri í Ólafsfirði, flutti húsið Jaðar á Dalvík
yfir að Kleifum við Ólafsfjörð sl. föstudagskvöld.
Ómögulegt var að flytja húsið í gegnum Múlagöng,
hvort heldur sem mið væri af því tekið á hæð eða breidd
- og því var farið fyrir Múlann. Ferðalag þetta gekk að
óskum og var samkvæmt áætlunum. Nánar er sagt frá
ferðalagi þessu á bls. 7.
-sbs. Ljósm.: Óskar Gíslason
POLARTEC FLEECl
KULDAGAtl
SEGlAl
GtROIN'
ÆGIR
Borö 90x90 cm
og 4 stólar kr. 4.300,-
Plaststólar kr. 455,- stk.
Úrval af göngustöfum
Kælitöskur
Vindsængur
einfaldar og tvöfaldar
Pottasett
litir í Flísfatnaði
Gasprímusar fyrir göngufólk
Skrefmælar
50 gerðir af tjöldum
Tveggja manna kúlutjald
og svefnpoki kr. 8.900,-
Barnasvefnpokar kr. 2.800,-
Svefnpokar frá kr. 4.900,-
Bakpokar frá kr. 1.700,-
Norskar lopapegsur - 10% afsláttur
Gönguskðr
Tjaldborð og stólar í settum
þar sem ferðalagið byrjar
OPIÐ:
Mánud.- fimmtud. kl. 10-18
Föstudaga kl. 10-21
Laugardaga kl. 10-13
GLERÁRGÖTU 32 - SÍMI 461 3017
SSr IJÍÍ; MæKftb w. v
m «2! ^ j&mÆÉ I