Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994 Fréttir Lenti í vandræðum með Maestro-debetkort í hraðbanka 1 Flórída Fékk enga peninga en upphæðin dregin frá - fimm mánuði tók að fá leiðrétta „úttekt“ sem aldrei fékkst greidd „Þaö var hroðalegt áfall fyrir mig úti í Flórída, á eigin vegum með fjóra unglinga, þegar ég fór í banka með debetkortið og ætlaði að taka út pen- inga úr vél. Ég fékk ekkert út úr kassanum og það var sagt að ég ætti að reyna aftur. Ég gerði það en ekk- ert gerðist. Eftir þetta hringdi ég í Reiknistofuna hér heima. Þá var mér sagt að innstæða væri á reikningnum og engin fyrirstæða ætti að vera fyr- ir því að ég gæti tekið út peninga. Sama var mér sagt hjá Eurocard þeg- ar ég hafði samband þangað. Eg fór inn í bankann í Flórída en þar sagð- ist fólk ekki geta aöstoðað mig af því að það skipti sér ekki af vélunum. Ég var því algjörlega auralaus þarna úti og gat enga björg mér veitt,“ sagði Sigrún Sigurðardóttir í samtali við DV. Sigrún fór til Flórída í vetur og lenti í þeirri aðstöðu að ætla að nota debet- kortið sitt til að taka út peninga þar en fékk enga - kerfiö dró hins vegar þá upphæð sem hún stimplaði iim í véhna frá á reikningi hennar í banka hér heima. Fimm mánuði tók að fá þetta leiðrétt eftir aö heim var komið. „Ég þurfti að halda mér og bömun- um uppi og ætlaði auk þess að versla eitthvað en ég gat ekkert gert. Við vorum algjörlega upp á ættingja komin þarna úti. En þegar ég fór heim til íslands kom áfallið. Þá var upphæö sem samsvarar 1.500 dollur- um farin út af reikningnum mínum þrátt fyrir að ég hefði enga peninga fengið úti. Ég fór fram á að fá einhverjar bæt- ur út af óþægindunum en Eurocard, sem er með maestrokortið, vildi ekk- ert koma til móts við mig. Síðan tók það mig 5 mánuði að fá þetta leið- rétt. Þetta gekk því þannig fyrir sig að ég stimplaði inn ákveðnar upp- hæðir, fékk enga peninga, en þeir voru engu að síður teknir út af reikn- ingnum héma heima. Reikningurinn minn var hjá SPRON við Hátún en starfsfólk þar var þó ekkert nema hjálpsemin við að reyna að leiðrétta þetta,“ sagði Sigrún. Sigrún sagðist vera fullviss um að hefði hún ekki geymt kvittanimar sem komu úr framangreindri vél, þar sem núll komu fram, hefði hún sennilega aldrei fengið neina peninga greidda til baka hér heima. „Mér þykir verst að hugsa til þess að gam- alt fólk treystir þessum debetkortum og getur lent í vandræðum með þetta eins og ég,“ sagði Sigrún. Endurbyggingu á gömlum túngarði við Norðurströnd á Seltjarnarnesi er að verða lokið. Búið er að setja boga á garðinn til að fegra hann en garðurinn var mun stærri og náði yfir Noröurströndina í gamla daga. DV-mynd BG Seltjamames: Endurbygging túngarðs að Ijúka „Þetta er gamall túngarður sem þurftí aö taka sundur vegna þess að við þurftum að leggja skólplögn þama. Við tókum myndir af honum og hnit áttum við og settum hann svo niður aftur eins og alltaf var mein- ingin. Við erum bara aö ljúka því verki núna og fegrum aðkomu bæj- arins í leiðinni sem var tímabært. Við berum mikla virðingu fyrir öllu gömlu hér,“ segir Steinunn Árna- dóttir, garðyrkjustjóri á Seltjarnar- nesi. Starfsmenn Seltjarnarnesbæjar eru að leggja lokahönd á endurbygg- ingu gamals túngarðs við Eiði á Sel- tjarnarnesi en verkið hófst í haust. Gamli garðurinn lá upprunalega í boga þar sem Norðurströndin er núna en þegar gatan var lögð var garðurinn þar jafnaður við jörðu. Steinunn segir aö gerður hafi verið nýr bogi í fegrunarskyni. „Ég býst við að það sé góðra gjalda vert að reyna að laga þennan garð en hins vegar finnst mér hann dálítið skrítinn núna. Það er búið að hlaöa hann upp og setja nokkrar torfur þarna hjá sem mér finnst varla passa saman. Meðan Eiði var bújörð voru þarna garðar en það er náttúrlega allt saman farið þannig að það er hálfgert svindl þó að mér fmnist það kannski í lagi,“ segir Heimir Þorleifs- son sagnfræðingur, sem ritað hefur bók um sögu Seltjarnarness. Kostnaður nemur nokkrum hundruöum þúsunda króna. í dag mælir Dagfari Debetsöngurinn þekktist ekki Fréttir gærdagsins hermdu að smiöur frá Selfossi hefði orðið fyrir þeirri óbærfiegu reynslu í Hollandi að þarlendir bankar þekktu ekki debetkortið hans og neituðu að af- henda honum fé út á kortið. Smið- urinn frá Selfossi var að vonum gramur yfir þessum móttökum og segir að debetkortin virðist ekki komin í mikla notkun ytra. Þessar fréttir koma mjög flatt upp á lands- menn eftir að hafa verið heila- þvegnir með debetkortaauglýsing- um mánuöum saman. Sjálfur heimssöngvarinn okkar kemur fram í auglýsingu um hin rómuöu debetkort og ekki annað að skilja en að hann fari heimsálfa á milli á kortinu einu saman. Ef það er svo tilfellið að kortið fina gildi einkum á íslandi en sé lítt þekkt erlendis fer maður næst að efast um að heimsfrægð söngvarans nái mikið út fyrir landsteinana. Kortafyrirtæki bankanna hafa beitt harkalegum aðgerðum til aö fá landsmenn til að nota debetkort og innheimta svo gjöld fyrir notk- unina. Sagt er að bankarnir hyggist ná inn hundruðum milljóna króna tekjum á kortunum og það veitir víst ekki af því það sýnist lélegur útvegur að reka banka á íslandi. Bankar í útlöndum virðast al- mennt ekki hafa komið auga á þá gróðaleið að nota debetkort. Alla vega ekki í Hollandi. Þar framleiða menn tréskó og sjeniver, bjór og bjóða hass. En debetkort þekkja þeir ekki. Alla vega ekki kort frá smiðnum á Selfossi sem notar eins kort og heimssöngvarinn. Þeir tví- menningar þurfa greinilega að grípa til annarra greiðslumáta þá þeir leggja leið sína um Holland. Kannski eru Hollendingar almennt ekki eins gefnir fyrir kort og við íslendingar. Hér þykir bönkunum við hæfi að unglingar fái krítarkort um fermingu og láti ættina skrifa upp á mörg hundruð þúsund króna tryggingavíxil af því tilefni. Þetta þekkist ekki í útlöndum því þar bera bankamir sjálfir ábyrgð á sín- um viðskiptum. En nú er ekki nóg að eiga krítarkort því bankarnir hafa ákveðið að allir sem hafi krít- arkortin fái líka debetkort svo fólk geti tryggt sig gegn peningum bak og fyrir. Blessuð krítarkortin hafa gert mikla lukku meðal landsmanna og þau halda lífinu í fjölda fólks. Við höfum komist miklu lengra í notk- un krítarkorta en aðrar þjóðir. Þess vegna getum við borgaö pylsu- pakka með korti og eftir að hafa étið pylsurnar getum við farið út á krá og keypt bjór út á kortið. Svo getum við keypt allt frá eldspýtu- stokk upp í bíl með boðgreiðslum og raðgreiðslum krítarkortanna og þannig má lifa góðu lífi þó maður sjái aldrei krónu. í útlöndum þekkja allir höndlarar íslendinga á kreditkortunum og við erum köll- uð kortlendingar á nágrannalönd- unum. íslendingur með debetkort er hins vegar fyrirbæri sem þekkist ekki í útlöndum, hvort sem þar er á ferð smiður frá Selfossi eða heimssöngvari frá Gardavatni. De- betkort eru nefnilega staðgreiðslu- kort og þaö trúir því ekki nokkur maður í útlöndum að íslendingar bjóði staðgreiðslu. Miðað við reynslu smiðsins frá Selfossi má alveg eins taka með sér safnkort frá Essó eins og debetkort þegar farið er til útlanda. Hvort tveggja kemur að jafnlitlum not- um. Hins vegar hefur ekki frést af vandræðum heimssöngvarans út af þessu en það má telja líklegt að hann hafi upp á fleiri kort að hlaupa. En hveijum þykir sinn fugl fagur og söngvarinn segist hafa sungið vel í London um daginn þótt gagnrýnandi þar í borg sé ekki á sama máh. Og kortabankamir íslensku segjast þekktir út um all- an heim og kortum þeirra sé hvar- vetna fagnað þótt bankar í útlönd- um séu ekki á sama máli. Svona eru útlendingar oft seinir að taka við sér og eru ótrúlega mikhr sveitamenn á mörgum sviðum mið- að við okkur íslendinga. Þessir er- lendu fáráölingar þekkja ekki gott debetkort þegar þeir sjá það og þekkja ekki snillinginn þegar þeir heyra rödd hans. Það fer ekki mihi mála að íslensku kortabankarnir verða að hefja auglýsingaherferð í útlöndum til að kynna þarlendum íslenska debetsönginn. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.