Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994
Utlönd
Bjargar Beatrix
íslenskunni?
Eyþór Eóvarðsson, DV, Holiandi:
Eitt. af
verkum Beatr-
ix Hollands-
drottningar eft-
ir opinbera
heimsókn
hennar til ís-
lands var aö at-
huga stööu ís-
lenskunnar viö háskólann i
Amsterdam.
Helmsókn Clintons til Þýskalands lokið:
Hvetur Þjóðverja til
að skríða úr skelinni
Tungumáladeild háskólans
hafði ákveðið að leggja niður ís-
lenskukennslu í sparnaðarskyni.
islandsvinurinn Pála Vermeyd-
en, sem hefur byggt upp íslensku-
deildina sl, 26 ár, hefur undanfar-
ið ár barist ötullega fyrir þessu
síðasta vígi íslenskunnar i Hol-
landi en með takmörkuðum ár-
angri þar til nú.
Að sögn Pálu hefur forseti ís-
lands greinilega tekið málið upp
við drottninguna. Pála er nú
bjartsýnni en áður en bætti viö
að ektó væri víst að drottning
myndi beita sér í málinu. En ef
hún gerir það fær íslenskan
áreiðanlega að vera áfram.
Bill Clinton og Helmut Kohl hlýða á þjóðsöng landanna I opinberri heim-
sókn Clintons til Þýskalands. Símamynd Reuter
í boöi (kœföfá
TOPP 40
Islenski listinn er birtur í DV á hverjum fimmtudegi og á
fimmtudagskvöldum á milli kl. 20 og 23 kynnir Jón Axel
Ólafsson stööu laganna á Bylgjunni og greinir frá sög-
um á bakvið athyglisveröa flytjendur og
lög þeirra. Á Bylgjunni, laugardaga milli .^j. ^
kl. 16 og 19 er staöa laganna 40 svo A "Ú + %
kynnt á ný og þau endurflutt.
COTT ÚTVARP!
ÍSLENSKI LISTINN er unninn í samvlnnu DV, Bylgjunnar og Coca-Cola á íslandl. Mikill fjöldl fölks tekur þátt I að velja ÍSLENSKA LISTANN I hverri viku
Yfirumsjón og handrit eru I höndum Agústs Héöinssonar, framkvæmd 1 höndum starfsfólks DV en tæknlvlnnsla fyrir útvarp
er unnin af Þorsteini Ásgeirssynl.
Bill Clinton hvatti Þjóöverja til að
láta til sín taka í alþjóðastjómmálum
í tveggja daga heimsókn sinni til
landsins sem nú er lotóð. Hann lagði
áherslu á að Þjóðverjar væm nú óve-
fengjanlega stærsta efnahagsveldið í
Evrópu og taldi líklegt að mitólvægi
landsins á alþjóöavísu mundi aukast
mjög á næstu árum. Frá stríðslokum
hafa þýskar hersveitir ekki beitt sér
utan landamæranna en samkvæmt
úrskurði geta þær nú látið til sín taka
erlendis.
Clinton lagði mikla áherslu á vin-
áttutengsl Þjóðverja og Bandaríkj-
anna í heimsókn sinni til landsins.
Hann hvatti Þjóðverja til þess að
skríða úr skel sinni og breytast í
þann efnahagslega risa sem hæfði
stærð og umfangi ríkisins. Clinton
benti á að þar sem ljóst væri að
Þýskaland væri frjálst og fullvalda
ríki, sem hefði allar lýðræðisreglur
í gildi, væri engin ástæða til þess að
óttast virka þátttöku Þjóðverja í al-
þjóðastjómmálum.
Þjóðverjar fagna orðum Clintons
en nágrannar Þjóðveija eru mis-
hrifnir. Þeim er enn í fersku minni
að Þjóðveijar eru þjóðin sem hóf
tvær heimsstyijaldir á öldinni.
Nokkrir breskir þingmenn hafa látiö
í ljósi áhyggjur vegna þessarar þró-
unar.
Enginn var þó ánægöari en Helmut
Kohi. „Við erum aðilar að Samein-
uðu þjóðunum og ef við ætlum okkur
að njóta þess sem aðild að þeim býð-
ur upp á verðum við einnig að sinna
þeim skyldum sem því fylgja,“ sagði
Kohl.
Bill Clinton vakti hrifningu Berlín-
arbúa þegar hann ávarpaði þá á
þýsku í ræðu sem hann flutti við
Brandenborgarhliðið. Fyrir rúmum
þremur áratugum gerði John F.
Kennedy slíkt hið sama við hliðið.
Reuter
í gær var frumsýning á nýjustu mynd vöðvatröllsins Arnolds Schwarzeneg-
gers, „True Lies“, i Bandaríkjunum. Að sjálfsögðu mætti kappinn á frumsýn-
ingu myndarinnar I Los Angeles. Símamynd Reuter
Borgarastyrjöld í Rúanda:
Stjórnarherinn í
vonlausri baráttu
Uppreisnarliðið í Rúanda vinnur
stöðugt fleiri landsvæði af stjórnar-
hernum og stefnir vestur í bóginn í
átt aö borgunum Kibuye og Ruhen-
geri. Hundruð þúsunda ílóttamanna,
mestmegnis af hutu-ættbálknum,
hrekjast sífellt lengra vestur á bóg-
inn undan hetjum uppreisnar-
manna. Fámennar franskar her-
sveitir, sem hafa helgað sér verndar-
svæði, hafa samt verið látnar í friði
af uppreisnarmönnum.
Sveitir stjórnarhersins halda
áfram aö berjast að því er viröist
vonlausri baráttu gegn uppreisnar-
mönnum. Skortur á vopnum er nú
farinn að há mjög stjórnarhernum.
Jean-Claude Lafourcade, stjórn-
andi liössveita Frakka, sem í eru
aðeins 2.500 manns, hefur lýst því
yfir að þeir muni á engan hátt stópta
sér af átökum skæruliða og stjórn-
védda. Þeirra hlutverk væri einungis
að tryggja hlutlausa svæöið fyrir
flóttamenn og verja þaö meö kjafti
og klóm gegn hvers konar árás.
Reuter