Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ1994
9
dv Stuttar fréttir
Lertaenn leida
RíMsstjórn Jemens leitar enn
leiða til að lina þjáningar íbúa
hinnar stríðshrjáðu borgar Aden.
Skorturáöllu
Hálfa milljón íbúa Aden skortir
drykkjarvatíii matvseli og Ijtf. j
Ráðherrar til Bosníu
Alain Juppé
og Douglas
Hurd, utanrík-
isráðherrar
Prakklands og
Bretlands, œtla
til Bosníu til að
reyna að fá
deiluaðila til aö
fallast á alþjóðlega friöaráætlun.
Smalartlið
Leonid Kútsjma, nýkjörínn for-
setiÚkraínu, safnar að'sér mönn-
um til að taka við valdataumun-
um.
Tvö tonn af sprengjum
Breska lögreglan hefur gert tvö
tomi af sprengiefni upptæk í
ílutningabil sem kom frá Norð-
ur-írlandi.
Sprengjumanna leitað
Gríska lögreglan leitar manna
sem hafa sprengt sprengjur á
ferðamannaeynni Rhodos.
Hrefnuráland
Norskir hvalveiðimenn hafa
drepið 100 hrefnur það sem af er
vertíðinni.
Arafativinnu
Yasser Ara-
fat, íeiðtogi Pal-
estinumanna,
korn heim til
Gaza i gær og
tók þegar i stað
viö stjórnar-
taumunum á
heimastjórnar-
svæðum Palestínumarma á Gaza
og í Jeríkó.
Morðinginnvareinn
Maðurinn sem myrti mexí-
kóska forsetaframbjóðandann
Colosio var einn að verki.
Fyrnrkonur
Suha Arafat, eiginkona Yass-
ers, kom meö honum til Gaza í
gær og sagðist ætla að stuðla að
aukinni læknishjálp og réttind-
um kvenna.
IVamAi Mt3t MMH |ÉJ.«
verouratram
Lögreglustjórinn í Chile ætlar
að sitja sem fastast þótt hann sé
sakaður um að hylma vftr morð.
HársýniafSimpson
Lögregla hefur tekið hársýni af
ruðningskappanum O. J. Simpson
vegna rannsóknar á morðmu á
fyrrum konu hans.
Leiðtoginn syrgður
Tæplega átján milljónir Norð-
ur-Kóreumanna syrgðu látinn
leiötoga sinn, Kim Il-sung. Lands-
menn eru 22 mílljónir.
Craximissirpassa
Bettino
Craxi, fyrrum :
forsætisráð-
herra Ítalíu,
var í gær fyrir-
skipað að af-
henda lögregl-
unni vegabréf
sitt en Craxi
sætir nú rannsókn fyrirspillingu
og er landflótta.
BurtfráHaíti
SÞ gáfu eft.fr og köliuðu eftirlits-
menn sína burt frá Haítí í gær.
Stænilandhelgi
Sjómenn í Senegal vilja fá tólf
mDna lögsögu. Reut(,r, NTB
Útlönd
Leif Jan Hammerstad bóndi fyrir framan fjósvegginn sinn umdeilda sem nú hefur verið breitt yfir.
Símamynd Scanfoto/Geir Olsen
Breitt yfir frægasta flósvegg 1 Noregi:
Gro við mjaltir
truflar umferð
NýrforsetiHvít-
Rússavill að-
stoðRússa
Alexander
Lúkasjenkó,
nýkjörinn for-
seti Hvíta-
Rússlands, hef-
ur lýst yfir
verulegum
áhyggjum sín-
um vegna efna-
hagsástandsins
í landinu og segir að það lifi þreng-
ingamar ekki af nema með aðstoð
frá nágrannaríkinu Rússlandi.
Lúkasjenkó hélt fyrsta blaða-
mannafund sínn i gærkvöldi og
þar sagðist hann ætla að ráðfæra
sig við rússneska starfsbróður
sinn Borís Jeltsin um efnahags-
málin hið fyrsta.
Nýi forsetinn hét því i kosn-
ingaharáttunni að beijast ötul-
lega gegn spillingu í landinu, m.a.
með því að reka fjölda embættis-
manna sem voru flæktir í spill-
ingarmál. Á fundinum í gær-
kvöldi sagðist hann ætla að halda
nokkrum ráðherrum fráfarandi
stjómaríembætti. Reuter
VEISTU
að húsbúnaðardeild
Húsgagnahallarinnar
er smám saman að spyrjast
Frægasta kýr Noregs um þessar
mundir, veggmálverk á fjósvegg í
Valdres, við aðalveginn milli Óslóar
og Bergen, var hulin sjónum öku-
manna í gær að kröfu norsku vega-
gerðarinnar. Kýr þessi er yfirlýstur
andstæðingur aðildar Noregs að Evr-
ópusambandinu en það voru um-
ferðaröryggissjónarmiðin sem réöu
því að neglt var fyrir hana. Hún
skapaði jú hættu á aftanákeyrslum.
„Eg ætla ekki að setja mig upp á
móti þessu," segir bóndinn Leif Jan
Hammerstad, eigandi hins umdeilda
málverks. „Það þýðir þó ekki að ég
gefi mig í máli þessu. Ráðstöfunin
gildir aðeins í sex vikur og á þeim
tíma ætla ég að fá aðstoð lögfræði-
deildar norsku bændasamtakanna til
að andmæla röksemdum vegagerð-
arinnar."
Málverkið sýnir Gro Harlem
Brundtland, forsætisráðherra Nor-
egs, í gervi fjósakonu þar sem hún
mjólkar alnorska kú í ESB-fötu.
Hammerstad vill líta á fjósvegg-
myndina sem hugverk en ekki sem
auglýsingu eins og vegagerðin.
Hugsanlegt er að Hammerstad tak-
ist að selja fjósvegginn þar sem
margir hafa sýnt honum áhuga, m.a.
fyrirtækið Colbjörnsen og Co í Bær-
um. „Okkur finnst málverkið flott
en við lítum frekar á þetta sem stuðn-
ingsyfirlýsingu þar sem norskir
bændur eru stærsti viðskiptamanna-
hópur okkar. ESB-tollurinn mun
gera vörur okkar dýrari ef Noregur
gerist aðiii að ESB,“ segir sölustjóri
fyrirtækisins sem flytur inn m.a.
vélsleða og beltadráttarvélar.
Vegagerðin fór upphaflega fram á
að málað yrði yfir málverkið en dónj-
urinn sem fjallaði um máliö í gær
féllst ekki á það, sagði nægilegt að
hylja það.
Fjósveggurinn hefur vakið mikla
athygli og streymdu ferðamenn,
Rússneski kafbáturinn innsiglaður:
Komið í veg fyrir
geislamengun
Rússnesk stjórnvöld sögðu í gær
að tekist hefði að innsigla kjarn-
orkukafbátinn Komsomolets, sem
sökk undan Bjarnarey árið 1989, til
að koma í veg fyrir leka á geislavirk-
um efnum. Kafbáturinn er nú á kafi
í leðju á tæplega sautján hundruð
metra dýpi.
Tengiz Borísov, yfirmaöur aðgerða
á svæðinu, sagði í fyrra að svo mikið
magn geislavirkra efna væri í kaf-
bátnum að þau nægðu til að drepa
allan fisk á hafsvæðinu næstu sex til
sjö hundruð árin ef þau lækju út.
Embættismenn sögðu að tundur-
skeytaskotpallar kafbátsins heföu
verið þaktir sérstöku efni sem mundi
drekka í sig öll geislavirk efni sem
lækju út og skildir hefðu veriö settir
fyrir til að takmarka leka á mengun.
Þá var einnig fyllt upp í lítil göt sem
sjórinn streymdi í gegnum, aö sögn
sjónvarpsstöðvarinnar OstcUikino.
Sjónvarpsstöðin sagði ekki hvernig
þetta hefði verið gert.
Tuttugu fermetra gat kom á kafbát-
inn þegar sprengingin varð í honum
árið 1989 og 42 menn fórust.
Talið er að tíu til tólf kíló af plútó-
níumi sé um borð í kafbátnum en
norsk yfirvöld segja að flakið sé á svo
miklu dýpi að þar sé lítið um líf og
að plútóníumið mundi sökkva til
botns. Reuter
bæði norskir og útlendir, í stórum
stíl að býli Hammerstad til að virða
fyrirsérdýrðina. NTB
HÚ8gagnahöllin
Scm hefur það allf «aman
Varmahlíð - Siglufjörður
Akureyri - Mývatn
e
COMBhCAMP
TJALDAÐ Á 15 SEKÚNDUM
Combi Camp Family Modena frá kr. 319.516,- stgr.
Combi Camp tjaldvagnar fyrir þá sem njóta
vilja útiveru og ferðalaga. Þá sem vilja
komast í náinn kynni við náttúruna og geta
á skömmum tíma slegið upp náttstað að
eigin vali með alvöru þægindum
/VIA Tl
LÁGMÚLA 7
SÍMI 814077
Laugardaiur - Þingvellir - Laugarvatn - Þjórsárdalur