Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLl 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjórar: JONAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð I lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Hvarf Ólafs digra Frá Noregi berast þær fregnir aö líkamsleifar Ólafs konungs Haraldssonar hvíli ekki í kistu hans í dómkirkj- unni í Niðarósi eins og menn hafa talið, heldur bein ein- hvers annars manns. Norskur sagnfræðingur, sem borinn er fyrir þessum tíðindum í DV 1 gær, segir að bein Ólafs konungs hafi verið íjarlægð úr kistunni þegar á 14. öld. Fram að þessu hefur þvi jafnan verið trúað að konungurinn forni hvíldi í miðri dómkirkjunni. Ólafur féll í Stiklastaðarorrustu árið 1030 eins og lesa má um í sögubókum. Hann er þjóðardýrlingur Norð- manna og hefur viðurnefnið „hinn helgi“, enda stofnandi kristinnar kirkju í Noregi. Dómkirkjan í Niðarósi var byggð yfir gröf hans á árunum 1150 til 1300. Skiljanlega eru Norðmenn í uppnámi yfir staðhæfingu sagnfræðingsins, sem við skulum ætla að sé marktækur vísindamaður. Þótt aðeins sé um að ræða rökstudda til- gátu, sem varla verður sönnuð óvefengjanlega, varpar efinn skugga á gleði og stolt Norðmanna yfir því að eiga þjóðardýrhng á vísum stað. Við íslendingar mættum gjarnan líta í eigin barm af þessu tilefni. Hér hafa orðið slys og skaðar í minjavörslu og óhappaverk unnin af gáleysi eða skilningsleysi, ís- lenskri menningu til tjóns. Skallagrímur Kveld-Úlfsson er horfinn úr haug sínum í Borgamesi. Vegagerðarmenn ruddu burt leiði Hallgerð- ar langbrókar í Laugamesi. Bein tahn af Jóni Arasyni og sonum hans, sem voru færð þjóðminjaverði fyrir nokkrum áratugum, finnast ekki í Þjóðminjasafninu. Kirkjugarðurinn fomi í Gufunesi var lagður í rúst af fullkomnu miskunnarléysi. Er þá fátt eitt tahð. íslendingar hafa ekki haft Ólaf í sömu hávegum og landar hans. Hér hefur hann í fornum ritum og nýjum gengið undir heitinu „hinn digri“. Segir það meira en mörg prð um ólíka túlkun þjóðanna á sögulegu hlutverki hans. íslendingar skilja samt leiða Norðmanna og gremj- ast með þeim. Framhjá Ólafi konungi Haraldssyni verður ekki htið þegar íslandssagan er skráð, þótt ekki væri nema vegna þess að að elsta ritaða heimild íslensk varðandi sögu þjóð- arinnar er samningurinn sem forfeður okkar gerðu við hann um rétt íslendinga í Noregi árið 1022. Hvarf Ólafs digra er okkur öhum til áminningar um þýðingu menningarminja fyrir þjóðarvitund og þjóð- menningu. Hver væri staða okkar meðal menningarþjóða ef okkur hefði ekki tekist að varðveita handritin og forn- gripina? Því miður verður samt ekki annað sagt en að almenn- ingur og stjómvöld hér á landi sýni minjavörslu htinn áhuga. Stöng í Þjórsárdal og Keldur á Rangárvöhum lágu til dæmis undir alvarlegum skemmdum fyrir örfáum misserum. Fé hefur ekki fengist til að kanna og viðhalda friðlýstum fomleifum. Dæmin sanna að það er ekki fyrr en eitthvað bjátar á, munir hverfa úr safni, minjar brenna eða hneyksh verður, sem áhuginn vaknar. En þá er það líka yfirleitt of seint til uppbygghegrar niðurstöðu. Merkar minjar hafa þá náttúm að verða þáttur í sjálfs- vitund og sjálfsskilningi þjóðar. Þegar þær týnast eða eyðileggjast eða reynast vera svikin vara tapar þjóðin hluta af sjálfri sér. Af þessum sökum meðal annars væri grátt silfur í Þjóðminjasafni íslands grátt gaman og bæri að meðhöndla það sem slíkt. Guðmundur Magnússon Greinarhöfundur likir íslenskum skipasmiðum við jurt án alls þess sem hún þarf. Skipasmíðar í f ríhöf n íslenzkar skipasmíðar hafa átt erfitt uppdráttar síðustu árin, eins og ýmis annar iðnaður hér á landi. Þessi vaxtarsproti, sem svo miklar vonir voru bundnar við fyrir nokkrum árum, er sem jurt án alls þess sem hún þarf; jarðvegs, vökv- unar, áburðar og sólarljóss. Þær raddir heyrast æ oftar, að dagar íslenzkra skipasmíða séu taldir. Hvers vegna er iðnaðurinn fluttur úr landi? Skipastóll okkar er svo stór - far- skip og fiskiskip - að endurnýjun hans og viðhald gæti veitt stórri atvinnugrein næg verkefni. En því miður er þessi atvinnugrein ekki hérlendis, heldur erlendis - í Nor- egi, á Spáni og í Póllandi, svo að dæmi séu nefnd. Þar njóta skipasmíðastöðvar lágra vaxta, 'opinberra styrkja og jafnvel aðstöðu, sem kallast má „fríhöfn", þ.e. fyrirtækin njóta toll- og skattfrelsis. Ýmsir hafa samt, eins og t.d. Jóhann J. Ólafsson stór- kaupmaður, orðið til að hreyfa frí- hafnarhugmyndinni. Ajdrei inn fyrir landsteinana íslenzki skipaflotinn er geysistór þáttur í atvinnulífi okkar og þó jafnframt tengdari öðrum löndum en nokkur önnur atvinnugrein. ís- lenzk skip - farskip og fiskiskip - koma aldrei inn fyrir íslenzka land- steina. Þau eru vel flest smíðuö erlendis, sigla um heimshöfin og fara í viðhald erlendis. Þegar spurt er, hvers vegna þetta sé svona, er svarið, að skipasmíða- stöðvar okkar séu ekki samkeppn- isfærar. Efalítið er það rétt, en það er af mannavöldum - af völdum okkar sjálfra. KjáUarinn Sigurður Gizurarson bæjarfógeti Sömu kjör og ísai? Álverksmiðjunni í Straumsvík var á sínum tíma búin sérstök rétt- arstaða utan við almenn íslenzk lög með samningi við svissneska stór- fyrirtækiö Alu-Suisse. ísal starfar í eins konar íslenzkri „fríhöfn", sem lýsir sér í sérstöku rafmagns- verði, tollfrelsi o.s.frv. Samningur- inn hefur samt fært íslenzku þjóð- arbúi mikil auöæfi. Við bíðum langeygir eftir því að annar slíkur risi vilji setjast að á Keilisnesi og bjóðum ekki lakari kjör en ísal nýtur. Hvers vegna ekki að auglýsa eftir íslenzkum skipasmíðastöðvum til að taka upp starfsemi hér á landi með „fríhafnarkjörum", þ.e. toll- frelsi, skattfrelsi fyrir starfsmenn og lágu rafmagnsverði? Þyrftum við að bíða lengi og í nagandi óvissu? Ég held ekki. Skattfrjáls skipasmíðaiðn- aður er betri en enginn Heimspekingurinn Bertrand Russel sagði einhvern tíma á tím- um stalínismans: „Better red than dead“. Ummæli þessi voru gagn- rýnd og ekki aö ástæðulausu. Svo sem komið er fyrir íslenzkum skipasmíðaiðnaði, má vissulega segja: Betri skattfrjáls en dauður. Þau sannindi mun naumast nokk- ur vefengja. Með því að búa íslehzkum skipa- smíðastöðvum aðstöðu, eins og viö værum að semja við erlent stórfyr- irtæki, gætum við endurheimt gíf- urlega mikilvæga stoð undir ís- lenzkt atvinnu- og þjóðlif. Sigurður Gizurarson „Hvers vegna ekki að auglýsa eftir ís- lenzkum skipasmíðastöðvum til að taka upp starfsemi hér á landi með „frí- hafnarkjörum“, þ.e. tollfrelsi, skatt- frelsi fyrir starfsmenn og lágu raf- magnsverði?“ Skoðanir armarra Silf ursjóður og þjóðminjavarsla „Þjóðminjaverði hefur veriö fahö að varðveita og rannsaka fornminjar. Og honum ber að gera það. Og ef upp koma efasemdir um að það sem hingaö til hefur verið talið til merkra minja sé í raun seinni tíma dót ber honum að sjálfsögðu skylda til að rann- saka þær... Fréttir undanfarinna vikna af efasemd- um um aldur silfursjóðsins snúast síður en svo ein- vörðungu um þessa ákveönu muni. Þær snúast fyrst og fremst um hæfni núverandi þjóðminjavarðar." Úr forystugrein Eintaks 11. j>ilí. Samskip af höndum bankans „Nú hefur Landsbankinn komiö Samskipum af höndum sér til nýrra eigenda, þ.á m. þýzks skipafé- lags, sem hefur lagt fram nokkra íjármuni í nýju hlutafé og mun hugsanlega leggja fram verulega meira fé til reksturs Samskipa hf. Einhverjir kunna að spyrja, hvort hér sé verið að stíga fyrsta skrefiö tfi þess, að íslenzk flutningafyrirtæki komizt í eigu útlendinga. Nú á tímum eiga áhyggjur af slíku tæp- ast VÍð.“ Úr Reykjavíkurbréfi Mbl. 10. júlí. Jóhanna kannar jarðveginn „Nýkjörinn formaður Alþýðuflokksins hlýtur að vera í erfiðri stöðu. Jón Baldvin hefur sagt það hlut- verk sitt og skyldu að halda flokknum saman. Hann kemur frá flokksþinginu með þá staðreynd að hafa aðeins 60% fylgi flokksmanna. Fjörutíu prósent voru tfibúin að skipta um formann. Það er þessi jarðvegur sem Jóhanna er nú að kanna nánar. Sú staða getur komið upp í stjórnmálum næstu mánaða að Alþýðu- flokkurinn klofni á landsvísu." Úr forystgrein Tímans 12. júli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.